Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991. Utlönd Albanía: Bangladesh: Skotið á flóttamenn - styttur af Hoxha endurreistar Strandgæslumenn skutu nokkr- um skotum aö skipi sem hélt frá Albaníu í gær með yfir hundrað ílóttamenn. Einn farþeganna lét líf- ið og þrír særðust, að sögn ítölsku lögreglunnar. Flóttamennirnir neyddu áhöfnina til að sigla til Otr- anto á Ítalíu þar sem þeir báöu um pólitískt hæli. Stjórnarandstæðingar í Albaniu hafa greint frá víðtækum hand- tökum í kjölfar mótmælanna í höf- uðborginni Tirana að undanfornu. Að minnsta kosti fimm manns eru sagðir hafa beðið bana og tugir slasast í átökum við lögreglu. Kommúnistar í Albaníu hafa sett aftur á stall tvær af þeim fjölda styttna af harðlínumanninum En- ver Hoxha, fyrrum leiðtoga lands- ins, sem mótmælendur felldu niður í síðustu viku. Að sögn talsmanns Lýðræðisflokksins var það í Korce í suðurhluta landsins og Fier sem er í vesturhlutanum. Styttur af Hoxha eru svo til í öllum bæjum Albaníu og er þeirra nú gætt af hermönnum. Fréttin um aö kommúnistar Júgóslavía: Kommúnistar í Albaníu hafa nú reist aftur styttur af Enver Hoxha, fyrrum leiðtoga landsins, i tveimur bæjum. Fyrir rúmri viku felldu mótmælendur í Tirana og í fleiri bæjum í Albaniu styttur af leiðtoganum. Simamynd Reuter hefðu reist aftur tvær af styttunum unum í marslok um það hvort setja kom í kjölfar boös Ramiz Alia for- ætti aftur stytturnar á stalla. seta um að höfð yrði þjóðarat- Reuter kvæðagreiðsla að loknum kosning- Serbar segja sig úr Króatíu Leiðtogar Serba í Króatíu í Júgó- slavíu lýstu í gær yfir sjálfstæði. Ályktunin um að segja sig úr lýðveld- inu var samþykkt af þjóðarráði Serba en þeir eru um sex hundruð þúsund í Króatíu. Sagði í ályktuninni að þar sem yfirvöld í Króatíu vildu segja sig úr júgóslavneska ríkjasam- bandinu hefðu Serbar ákveöið að lýsa yfir sjálfstæði frá Króatíu. Embættismenn í Króatíu höfnuðu ákvörðun Serba og sögðu að um þrýsting væri að ræða á króatísk yfirvöld. Sjálfstæðisyfirlýsingin var birt ein- um degi áður en leiðtogar Júgóslavíu og forsetar júgósla\tnesku lýðveld- anna sex koma saman í sjötta sinn til aö reyna að leysa þær deilur sem ógna ríkjasambandinu. Serbar hafa sagt að þeir vilji ekki búa í Króatíu ef lýöveldið verður sjálfstætt af ótta við að fjöldamorðin frá heimsstyijöldinni síöari endur- taki sig. Þá myrtu fasistar í Króatíu hundruð þúsunda Serba. Reuter Myndun nýrrar stjórnar undirbuin Begum Khaleda Zia, sigurvegar- inn úr kosningunum í Bangladesh, ræðir í dag við fulitrúa frá nokkr- um stjórnmálaílokkum í landinu i von um að samningar náist um myndum samsteypustjómar. Klialeda leiðir Þjóðarílokkinn í Bangladesh en hann hefur nú flest sæti á þingi eftir sigur í kosningun- urn. Khaleda er ekkia Ziaur Rahman hershöfðingja sem myrtur var árið 1981 í misheppnaðri tilraun til valdaráns. Flokkur hennar hefur 140 af 300 sætum á þingi. Hún þarf því að semja við smáflokka til að fá stuðning þeirra 11 þingmanna sem á vantar í hreinan meirihluta. Awami-bandalagið, helsti keppi- nautur Þjóðarflokksins, fékk 84 þingsæti í kosningunum. Þar á bæ kenna menn um víðtæku kosning- asvindli að ekki unnust fleiri þing- sæti en fyrir kosningamar var talið aö fylgi flokkanna tveggja værí áþekkt. Leiðtogi Awami-bandalagsins er Sheikh Hasina, dóttir Mujibur Rahman, fyrrum forseta landsins. Hann var myrtur í valdaráni árið 1975. Reuter Danmörk: Auka samvinn- una við Litháen Danir og Litháar hafa skrifað undir samvinnusamning og í fyll- ingu tímans ætla Danir að taka upp stjórnmálasamband við Litháen. Þá hefur viðurkenning Dana á sjálfstæði Litháens frá 1921 verið ítrekuð. Skipti á sendiherrum geta þó ekki farið fram fyrr en „það er mögulegt vegna ástands mála“ eins og segir í samningnum. Með samningnum eru Danir að fikra sig í átt til fullrar viðurkenn- ingar á Litháen sem sjálfstæðu ríki. Málefni Eystrasaltsríkjanna hafa komið til umræðu á þingi Norður- landaráðs sem stendur þessa dag- ana í Kaupmannahöfn. Þar hefur fulltrúum rikjanna verið boðið til fundar þótt þeir taki ekki þátt í störfum aöalþingsins. Sovétmenn hafa mótmælt því hvernig Norðurlönd hampa full- trúum Eystrasaltsríkjanna en for- sætisnefnd ráðsins hefur ákveðið að svara Sovétmönnum engu. Það hefur sætt gagnrýni á þinginu og hafa sumir fulltrúanna krafist þess Uffe Elleman-Jensen, utanríkis- ráðherra Dana. að kröftuglega verði mótmælt og Sovétmönnum bent á aö þeim komi ekkert við hverjum sé boðið til þings Norðurlandaráðs. Ritzau Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: Garðastræti 17, hluti, þingl. eig. Tón- listarfélagið í Reykjavík, mánud. 4. mars ’91 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru tollstjórinn í Reykjavík og Gjald- heimtan í Reykjavík. Grýtubakki 32, 2. hæð t.h., þingl. eig. Kristín Biynjólísdóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Landsbanka fslands. Hamraberg 30, þmgl. eig. Karl Magn- ús Gunnarsson, mánud. 4. mars ’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Veð- deild Landsbanka íslands og Magnús Norðdahl hdl. Hjallavegur 50, efri hæð, þingl. eig. Óskar Ström og Ingunn Baldursdótt- ir, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.45. Upp- boðsbeiðendur eru Veðdeild .Lands- banka íslands og Klemens Eggertsson hdl. Hólaberg 6, þingl. eig. Júlíus Thorar- ensen og Ástríður Sigvaldad., mánud. 4. mars ’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðend- ur eru Veðdeild Landsbanka Islands og Sigmundur Hannesson hdl. Hringbraut 47, hluti, þingl. eig. Jón Þór Einarssón, mánud. 4. mars ’91 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. Hrísateigur 45, hluti, þingl. eig. Ketill Tryggvason, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. Hvassaleiti 15, þingl. eig. Svemdís Þórisdóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjald- heimtan í Reykjavík, Trvggingasto&i- un ríkisms, Eggert B. Ólafsson hdl. og Ólafur Gústafsson hrl. Iðufell 10, 1. hæð, þingl. eig. Kristín S. Markúsdóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur eru Veð- deild Landsbanka íslands, Gjald- heimtan í Reykjavík og Elvar Öm Unnsteinsson hdl. Iðufell 10,4. hæð f.m., þingl. eig. Jósep Ólason og Lilja Skarphéðinsdóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 11.00. Uppboðs- beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Kambsvegur 1A, hluti, þingl. eig. Jóna Gunnarsd. og Valgarður Bjamason, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.00. Uppboðs- beiðendur em Gjaldheimtan í Reykja- vík og Kristján Ólafsson hdl. Krummahólar 6, hluti, þingl. eig. Magnús Loftsson og Elsa Bjamadótt- ir, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.15. Upp- boðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, Búnaðarbanki íslands og íslandsbanki hf. Kögursel 28, þingl. eig. Flosi Ólafsson, mánud. 4. mars ’91 kl. 11.15. Uppboðs- beiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands og Gjaldheimtan í Reykjavík. Langholtsvegur 122-124, 02-02, þingl. eig. Bijánn Ölason og Dagmar Gunn- arsdóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Lands- banka íslands. Laugavegur 22, hluti, þingl. eig Guð- mundur Franklín Jónsson, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendpr em Gjaldheimtan í Reykjavík og ís- landsbanki hf. Miðstræti 3A, 3. hæð og rishæð, þingl. eig. Guðni Kolbeinsson og Lilja Berg- steinsd., mánud. 4. mars ’91 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Landsbanki ís- lands og Gjaldheimtan í Reykjavík. Neðstaleiti 2, hluti, þingl. eig. Gísli Sveinsson og Svala Þórðardóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 11.30. Uppboðs- beiðendur em Gjaldheimtan í Reykja- vík og Bjami Ásgeirsson hdl. Rekagrandi 2-4, hluti, talinn eig. Byggingasamvinnufélag ungs fólks, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.15. Uppboðs- beiðendur em Garðar Briem hdl., Eggert B. Ólafsson hdl. og Ásbjöm Jónsson hdl. Rjúpufell 27,01-01, þingl. eig. Nikulás ívarsson og Anna Steingrímsd., mánud. 4. mars ’91 kl. 11.30. Uppboðs- b'eiðandi er Veðdeild Landsbanka ís- lands. Rjúpufell 31, 4. hæð t.v., þingl. eig. Ingunn Lámsdóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Veð- deild Landsbanka íslands. Seiðakvísl 16, þingl. eig. Siguijón Harðarson, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er bæjarfóget- inn í Kópavögi. Sflakvísl 3, þingl. eig. Ásta Schram og Magnús Baldvinsson, mánud. 4. mars ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Landsbanka Islands. Skeljagrandi 4, 02-02, þingl. eig. Edda Axelsdóttir, mánud. 4. mars ’91 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendurem Veðdeild Landsbanka íslands og Logi Egilsson hdf___________________________ Sörlaskjól 40, hluti, þingl. eig. Gmnd- arkjör hí, mánud. 4. mars ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, Fjárheimtan hf. og Egg- ert B. Ólafsson hdl. BORGARFÓGETAEMBÆTTIDI REYKJAVfK Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Barmahlíð 21, hluti, þingl. eig. Sævar Egilsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 4. inars ’91 kl. 16.30. Uppboðs- beiðandi er Fjárheimtart hf. Laugamesvegur 52,2. hæð, þingl. eig. •Jón I. Jónsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 4. mars ’91 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur em Reynir Karls- son hdl, Gjaldheimtan í Reykjavík og Ólafur Axelsson hrl. Melgerði 9, þingl. eig. Júlíus Gests- son, fer.fram á eigninni sjálfri, mánud. 4. mars ’91 kl. 15.30. Uppboðsbeiðend- ur em Eggert B. Ólafsson hdl. og Kristinn Hallgrímsson hdl. Rekagrandi 2, íb. 05-02, þingl. eig. Inga Hafsteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 4. mars ’91 kl. 17.30. Uppboðsbeiðendur em íslandsbanki hf., Gjaldheimtan í Reykjavík og Veð- deild Landsbanka íslands. Skipholt 37, hluti, þingl. eig. Hrafh- kell Guðjónsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 4. mars ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, Bjöm Jónsson hdl. og tollstjórinn f Reykjavík. Skólavörðustígur 29A, hluti, þingl. eig. Hjördís Ingólfsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 4. mars ’91 kl. 17.00. Uppboðsbeiðendur em_ Ásgeir Thoroddsen hrl„ Guðjón Armann Jónsson hdl., Gísli Baldur Garðarsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Is- landsbanki hf. og Gjaldskil sf. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐIREYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.