Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991. Iþróttir ■**»»»***|****Tt*T*V lliilHtliiliÍIifiii flitlií Yfirþjálfari Nottingham Forest 1 samtali við DV: mmm ■ „Eins og Þor valdur haf i gef ist upp - góð lausn að lána hann til Islands 1 sumar, segir Alan Hill • Þorvaldur Örlygsson byrjaði mjög vel með Nottingham Forest i fyrravetur og átti fast sæti i liðinu um skeið. í vetur hefur hann engin tækifæri fengið, yfirþjálf- ari Forest segir að það sé eins og hann hafi gefist upp og það væri góð fausn að lána hann til íslensks félags í surttar. Gurmar Sveinbjömsson, DV, Englandú Eins og kunnugt er hefur Þor- valdur Örlygsson knattspyrnu- maður ekki fengið að spreyta sig með aðalliði Nottingham Forest á þessu keppnistímabili. í viðtölum, sem DV hefur átt við Þorvald um stöðu sína hjá félaginu, hefur Þor- valdur lýst yfir áhuga sínum að fara frá félaginu. DV hafði tal af einum af forráðamönnum Notting- am Forest eftir mikinn eltingarleik, Brian Clough, framkvæmdastjóri félagsins, var veikur og ekki náðist í hann en fyrir svörum var Alan Hill, yfirþjálfari félagsins og njósn- ari, en hann hefur verið hjá Forest í yfir 20 ár sem leikmaður og þjálf- ari. Alan Hill var fyrst spurður um stöðu Þorvaldar hjá félaginu í dag? Forest tilbúiö til að láta Þorvald fara „Eins og málin standa í dag er Nottingham Forest tilbúið að láta hann fara frá félaginu. Við höfum fengið fyrirspurnir frá enskum fé- lögum um að fá hann lánaðan en það er einfaldlega ekki hægt þar sem hann hefur aðeins atvinnu- leyfi til að vera hjá Forest.“ Ekki útilokað að hann fari til íslands Hvað með íslensk félög, gætu þau rætt við ykkur um að fá Þorvald lánaðan í sumar? „Við erum tilbúnir að ræða við íslensk félög og teljum það ekki útilokað að hann fari til íslands og leiki þar og ég teldi það góða lausn fyrir hann þar sem hann er óán- ægður hjá okkur. Þorvaldur er góð- ur leikmaður og það sýndi hann með aðalliði félagsins á síðasta keppnistímabili. Eftir að hann datt út úr liðinu hefur hann misst þann neista sem hann hafði. Það hefur lagst þungt á Þorvald andlega að fá ekki tækifæri, hann hefur verið með heimþrá og hefur ekki náð að aðlagast-lífinu í Englandi. Þorvald- ur hefur æft mjög vel og er í líkam- lega góðri æfingu. Sjálfstraustið er ekki til staðar Var það þá kannski peningasóun að kaupa Þorvald á sínum tíma? „Nei, alls ekki. Þorvaldur hefur leikið nokkra leiki með aðalliðinu og-staðið sig vel. Brian Clough hef- ur sagt að hann fái tækifæri með aðalliðinu að nýju hvenær sem það verður. Eftir að hann vann sér sæti í aðalliðinu hafði hann gott sjálfstraust, þorði að taka áhættu og var góður í maður á móti manni. En nú er eins og hann hafi gefist upp. Hann hefur ekki leikið nægi- lega vel með varaliðinu til að rétt- læta stöðu í aðalliðinu og sjálfs- traustið er ekki til staðar. Þorvald- ur hefur verið óánægður að spila úti á væng og hefur viljað fá tæk- ifæri á miðjunni. Það eru margir um hverja stöðu á miðjunni. Við settum Þorvald út á kant þar sem við héldum að hann yröi betri leik- maður en svo getur farið að hann fái sinn séns á miðjunni með vara- liðinu í næstu leikjum," sagði Alan Hill í samtali við DV í gær. Ekki verið rætt um söluverð Alan Hill sagði í samtali við DV að ekki væri farið að tala um söluverð Þorvaldar. Nottingham Forest greiddi 150 þúsund sterlingspund fyrir Þorvald þegar hann kom til félagsins árið 1989. Þorvaldur hefur leikið 12 leiki með aðalliði Notting- ham Forest í 1. deild og skorað eitt mark í þeim leikjum. íslandsmótið í kraftlyftingum íslandsmótið í kraftlyftingum verð- ur haldið í íþróttahúsi Snælands- skóla í Kópavogi á morgun. Keppni í flokkum 82,5 kg og léttari hefst klukkan 10 en klukkan 12 hefst keppni í flokkum 90 kg og þyngri. Áætlaö er að mótinu ljúki um kl. 16. Fyrirfam er búist við að Magnús Ver Magnússon geri harðasta hríð að íslandsmetunum. Það er búist við spennandi keppni í mörgum flokkum og ekki í síst í -100 bg flokknum þar sem sterkasti unglingurinn á landinu, Auðunn Jónsson, keppir gegn Flosa Jónssvni frá Akureyri. -GH Breskur skvass- kennari kominn 1 Nigel Gildersleve, breskur skvasskennari, relur hér á landi um helgina á vegum Vegg- >orts hf. og Skvassfélags Reykjavikur og leið- iinir á helstu skvassstöðum Reykjavíkur. Hann ifur 3. gráðu próf frá breska skvasssamband- u og hefur þjálfað viða, meðal annars í Sviss, /skalandi og Bahrein. Heimsmet í gær • Noureddine Morceli frá Alsir fagnar eftir að hafa sett heimsmet í 1500 metra hlaupi karla innanhúss á móti i Sevilla á Spáni í gær. Morc- eli hljóp vegalengdina á 3:34,16 min- útum og sló met Bretans Peters Elli- otts. Simamynd/Reuter o ^ Körfuboiti 'f Urvalsdeild IR-Þór.... ..85-81 A-riðill: Njarðvík.... .23 19 4 2203-1761 38 KR .24 15 9 2036-1937 30 Haukar „24 11 13 2014-2049 22 Snæfell „23 6 17 1794-2034 12 ÍR „24 6 18 1963-2245 12 B-riðill: Keflavík „23 17 6 2269-2116 34 Grindavík.. „24 16 8 2072-1974 32 Tindastóll.. „23 15 8 2162-2072 '30 Valur „24 7 17 1986-2118 14 Þór „24 6 18 2160-2293 12 Stigahæstir: Rondey Robinson, Njarðvík.. Ivan Jonas, Tindastóli..... Magnús Matthíasson, Val.... Jonathan Bo w, KR.......... Jón A. Ingvarsson, Haukum.. Falur Harðarson, Keflavík.... Franc Booker, ÍR........... Teitur Örlygsson, Njarðvík... Valur Ingimundarson, Tind.. BárðurEyþórsson, Snæfelli.. 656 630 583 ...572 ...516 ...473 ...457 ...454 ...449 ...446 l.deildkarla ÍS - Akranes..............79-65 Víkverji....11 8 3 860-805 16 Skallagr....11 7 4 843-744 14 UÍA.........11 7 4 779-744 14 Akranes.....11 6 5 936-920 12 ÍS..........11 5 6 788-763 10 UBK.........10 3 7 668-768 6 Reynir......11 2 9 813-943 4 Þórsarar á barmi falls - Karl tryggöi ÍR sigur í lokin, 85-81 „Þetta var hreint rosalegur loka- kafli og ég held að þetta sé einn eftir- minnilegasti leikur sem ég hef leikið. Viö urðum hreinlega að vinna og það tókst á ótrúlegan hátt,“ sagði Karl Guðlaugsson, IR-ingur, við DV eftir að hð hans hafði sigrað Þórsara, 85-81,1 gífurlega mikilvægum botn- slag í Seljaskóla í gærkvöldi. Karl var hetja ÍR-inga í leiknum en hann skoraði 4 síðustu stigin í leikn- um og tryggði þeim mikilvægan sig- ur í hinni hörðu fallbaráttu úrvals- deildarinnar. Hagur ÍR-inga vænk- aðist til muna en staða Þórsara er orðin afar slæm því norðanmenn eiga eftir tvo mjög erfiða leiki, gegn Keflavík og Tindastóli, og tapi þeir báðum eru allar líkur á því að þeir missi sæti sitt í deildinni. Það var frábær lokakafli ÍR-inga sem tryggði þeim sigur í þessum þýð- ingarmikla leik. Þórsarar voru yfir næstum allan leikinn og leiddu með 7 stigum í leikhléi, 34-41. í seinni hálfleik héldu Þórsarar undirtökun- um og voru 9 stigum yfir þegar rúm- lega 3 mínútur voru til leiksloka. Norðanmenn virtust vera með unn- inn leik í höndunum en ÍR-ingar, dyggilega studdir af fjölmörgum stuðningsmönnum, neituöu að gefast upp. ÍR-ingum tókst að jafna á ótrú- legan hátt, 81-81, þegar aðeins 10 sek- úndur voru eftir. Karl Guðlaugsson stal þá boltanum frá Þórsurum og skoraði auðveldlega og bætti síðan við tveimur stigum úr vítaskotum á lokasekúndunum. Ótrúlegur sigur ÍR-inga var þar með í höfn og liðið á góða möguleika á að halda sér uppi. Lið ÍR-inga var mjög jafnt að getu en Franc Booker var óvenju fyrir- ferðarlítill að þessu sinni enda lék hann meiddur. Hjá Þór voru Dan Kennard og Sturla Örlygsson bestu menn. Stig ÍR: Franc Booker 18, Karl Guð- laugsson 17, Eggert Garðarsson 13, Björn Steffensen 12, Ragnar Torfa- son 12, Halldór Hreinsson 9 og Hilm- ar Gunnarsson 4. Stig Þórs: Dan Kennard 28, Sturla Örlygsson 23, Jón Örn Guðmundsson 16, Konráð Óskarsson 6, Jóhann Sig- urðsson 4, Helgi Jóhannesson 2 og Björn Sveinsson 2. Ágætir dómarar leiksins voru Árni Freyr Sigurlaugsson og Bergur Steingrímsson. -RR •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.