Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 8. MARS 1991.
Viðskipti
x>v
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, á fréttamannafundi 1 gær:
„Hagnaðurinn er viðunandi“
- engin mannaskipti fram undan meðal helstu stjórnenda félagsins
Hagnaður Eimskips og dótturfyrir-
tækja eftir skatta á síðasta ári var
um 341 milljón króna. Þessi hagnað-
ur skilaði 11 prósent arðsemi eigin
fjár félagsins á síðasta ári en undan-
farin fimm ár hefur arðsemi eigin
fjár félagsins verið um 13 prósent að
jafnaði. Þetta kom fram á aðalfundi
Eimskips í gær.
Arðsemi eigin fjár er mælikvarði
hiuthafa á árangur. Sé arðsemi eigin
fjár félaga undir 6 prósentum er ljóst
aö hluthafar hafa meira út úr því að
fjárfesta í spariskírteinum ríkissjóðs.
„Viðunandi hagnaöur"
„Hagnaðurinn á síðasta ári er við-
unandi," sagöi Höröur Sigurgests-
son, forstjóri Eimskips, á frétta-
mannafundi sem haldinn var
skömmu fyrir aðalfundinn í gær.
Hörður sagði að aðalfundur Eim-
skips hefði aldrei verið haldinn jafn-
snemma og núna. „Þetta er í fyrsta
skipti í sögu félagsins sem skrifað er
undir arsreikninga í febrúar.“
^Hagnaöur Eimskips fyrir skatta á
síðasta ári var um 701 milljón króna.
Félagiö greiðir af þessum hagnaði
um 360 milljónir í tekju- og eignar-
skatta sem þýðir aö hagnaðurinn er
341 milljón krónur eða sem svarar
til 4,7 prósenta af rekstrartekjum.
Markaðurinn metur Eimskip
á um 5,5 milljarða
Fjárhagsstaða félagsins er firna-
sterk. Eigiö féð var um 3,9 milljarðar
króna í lok síðasta árs. Hlutafél er
skráð á um 927 milljónir króna. Á
hlutabréfamarkaði er sölugengi
hlutabréfa í Eimskip núna 6,00. Það
þýðir að hlutabréfamarkaöurinn er
tilbúinn’að greiða um 5,5 milljarða
króna fyrir fyrirtækiö.
Það er um 1,6 milljörðum króna
meira en eigið fé er skráð á. Þetta
þýðir aö markaðurinn metur það svo
að í fyrirtækinu séu eignir sem eru
vanskráðar, það er bókfærðar á
lægra verði en markaðsverði. Af slík-
um eignum má nefna eignir íjárfest-
ingarfélags Eimskips, Burðaráss hf.
Miklar eignir dóttur-
félagsins Burðaráss
Hlutverk Buröaráss hf. er að kaupa
EB-EFTA-viðræöur:
Ríkin hafa
ekki neitun-
arvald
- segir forsætisráðherra
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra segir að hann hafi
aldrei heyrt rætt um að hvert
EFTA-landanna hefði neitunar-
vald í viðræðunum við Evrópu-
bandalagið, neitunarvald sem
felst í þvi að hvert EFTA-ríkjanna
verðiað vera sammála um niður-
stöðu viðræðnanna við Evrópu-
bandalagið.
„Það getur vel verið að ríkin
hafi gert með sér samkomulag
um að standa saman eins lengi
og mögulegt er; hafa samflot.
Hins vegar eiga rikin eflaust eftir
að fara sínar eigin leiðir í lokavið-
ræöunum. Það vita til dæmis allir
að Svíar og Austurríkismenn fara
sínar eigin leiðir og eru á leið inn
í Evrópubandalagiö.“
Um þau orð Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráð-
herra að til greina komi að leyfa
innflutning á landbúnaðarvörum
gegn þvi að Evrópubandalagiö
felli niöur tolla á íslenskum sjáv-
arafuröum segir Steingrímur aö
þetta hafi ekki veriö rætt i ríkis-
stjóminni.
-JGH
Þetta er hagnaður Eimskips eftir skatta á síðustu árum. Allar tölur eru á
sama verðlagi, verðlagi ársins 1990. Ljóst er að Eimskip græddi mun meira
á árunum 1986 og 1987 en á síðasta ári.
hlutabréf í öðrum fyrirtækjum. Bók-
fært verð hlutabréfa í Burðarási var
um síðustu áramót 1.250 milljónir.
Markaðsverð þessara hlutabréfa,
sem eru flest í Flugleiðum, er hins
vegar rúmir 2 milljarðar. Þarna eru
hlutabréfin skráð á um 800 milljón-
um króna lægra verði en markaös-
verði.
Hörður gerir ráð fyrir að hagnaður
þessa árs verði svipaður og á síðasta
ári þó starfsemi félagsins fyrstu tvo
mánuöina fari mun rólegar af stað
en í fyrra. Þannig eru flutningar um
4 prósent minni núna en fyrstu tvo
mánuðina í fyrra.
Formennska í Flugleiðum?
DV spurði Hörð á fundinum í gær
hvort hann sæktist eftir stjórnarfor-
mennsku í Flugleiðum síöar í þess-
um mánuði en Höröur er varafor-
maður stjórnar Flugleiða og þrálátur
orðrómur hefur verið innan við-
skiptalífsins að Hörður muni taka
við af Sigurði Helgasyni, núverandi
stjórnarformanni, og verða þar jafn-
vel stjórnarformaður í fullu starfi.
Eimskip á 34 prósent í Flugleiðum
og er langstærsti hluthafinn. „Mál
stjórnar Flugleiöa eru ekki á dagskrá
hér en munu skýrast á aðalfundi
Flugleiða."
DV spurði þá hvort einhverjar
mannabreytingar væru fyrirhugað-
ar á meðal helstu stjórnenda Eim-
skips, forstjóra og framkvæmda-
stjóra: „Nei, það eru engar breyting-
ar fyrirhugaðar á meðal helstu
stjómenda Eimskips á næstunni."
Er einokun í siglingum
til og frá íslandi?
Á síðasta ári komst Eimskip nokk-
uð í umræðuna þegar danskt skipafé-
lag hugðist hefja reglubundnar sigl-
ingar með mun lægra fraktgjöld en
Eimskip býður upp á en hætti við
vegna aðstöðuleysis hér, að eigin
sögn. Þess má geta að hópur innan
Félags íslenskra stórkaupmanna ýtti
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eim-
skips, sagði í gær að engar manna-
breytingar væru fram undan innan
raða æðstu stjórnenda félagsins.
mjög undir siglingar þessa danska
skipafélags.
- Er Eimskip einokunarfélag?
„Nei. Siglingar til og frá landinu
eru frjálsar. Við keppum viö erlenda
aðila sem innlenda. Þetta eru ekki
aðstæður einokunar. Það er jafn-
framt rangt að þetta danska skipafé-
lag hafi ekki getað fengiö afgreið'slu."
- Eru farmgjöld Eimskips of há?
„Viö keppum hér á markaði sem
myndar þessi farmgjöld. Ég tel þessi
farmgjöld eðlileg. Ég bendi hins veg-
ar á að farmgjöld hafa lækkað hjá
Eimskip um 25 prósent að raunvirði
undanfarin ár.“
Eðlilegt að eiga svo
stóran hlut í Flugleiðum?
- Er eðlilegt að Eimskip eigi í Flug-
leiðum, og þar að auki svo stóran
hlut?
„Ég tel ekkert óeðlilegt við það að
Eimskip eigi svo stóran hlut í Flug-
leiðum."
- Nú er það í markmiðum Eimskips
Verðbréfamarkaðurinn:
Hagnaður þriggja stærstu
verðbréfafyrirtækjanna
Verðbréfamarkaður íslandsbanka,
VÍB hf., er með mestan hagnað
þriggja stærstu verðbréfafyrirtækja
landsins, Fjárfestingarfélagsins,
Kaupþings og VÍB. Hagnaður VÍB
eftir skatta var um 40,8 milljónir.
Arðsemi eigin fjár hjá fyrirtækinu
var hvorki meira né minna en 37
prósent. Forstjóri VÍB er Sigurður
B. Stefánsson hagfræðingur.
Hagnaður Fjárfestingarfélagsins
var rúmar 32 milljónir og hagnaður
Kaupþings eftir skatta var um 17
milljónir. Þess má geta aö Fjárfest-
ingarfélagið greiðir enga skatta af
hagnaði síðasta árs þar sem nýta má
sér skattafrádrátt vegna taps á síð-
asta ári en þá afskrifaði félagiö öll
bréf sín í Vogalaxi.
Arðsemi eigin fjárvhjá VÍB var
einnig mest á síöasta ári. Hún var
um 37 prósent á móti 18 prósenta
arðsemi hjá Fjárfestingarfélaginu og
um 15 prósenta arðsemi Kaupþings.
Þess má geta að bæði Fjárfestingar-
félagið og Kaupþing eru með talsvert
meira hlutafé en VÍB sem þýðir að
svipaður hagnaður í krónum talið
hjá fyrirtækjunum þremur gefur
sjálfkrafa meiri arðsemi eigin fjár
VÍB en hinna tveggja.
Dæmi: Fyrirtæki A hefur 100 millj-
ónir í hlutafé. B hefur 20 milljónir í
hlutafé. Bæði skila 10 milljóna króna
hagnaði. Arðsemi eigin fjár hjá A er
Arðsemi eigin fjár
í töflunum er miðað við hagnað
eftir skattgreiðsiur___________
10 prósent en 50 prósent hjá B.
Þess skal getið að ekki er búið að
loka ársreikningum veröbréfafyrir-
tækja Landsbankans, Landsbréfa og
Verðbréfamarkaðar Samvinnubank-
ans og því ekki hægt að fá upplýsing-
ar um afkomu þeirra.
-JGH
VÍB hagnaðist mest þriggja stærstu verðbi-éfafyrirtækjanna. Arðsemi eigin
fjár hjá VÍB var einnig mest og hvorki meira né minna en 37 prósent.
að fjárfesta í atvinnulífinu en til
þessa hafa helstu fjárfestingarnar
verið í fluginu. Liggja fyrir ákvarð-
anir um að fjárfesta í nýjum atvinnu-
greinum á næstu árum?
„Þaö liggur ekkert ákveðið fyrir í
þeim málum,“ sagöi Hörður Sigur-
gestsson á fréttamannafundi Eim-
skips í gær.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN óverðtr.
Sparisjóðsbækur ób. 4,5-5 Lb
Sparireikmngar
3ja mán. uppsogn 4,5-7 Sp
6mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp
Sértékkareikningar 4.5-5 Lb\
VISITOLUB. REIKN.
6mán. uppsögn 2,5-3,0 Nema Ib
15-24mán. 6-Ö.5 lb,Sp
Orlofsreikningar 5.5 Allir
Gengisb. reikningar i SDR7.1 -8 Lbjb
Gengisb. reiknmgar i ECU 8,1 -9 Lb.ib
ÓBUNDNIR StRKJARAR.
Vísitolub. kjor, óhreyfðir. 3 Allir
óverðtr. kjor, hreyfðir 10.25-10,5 Nema Ib
BUNDNIR SKIPTIKJARAR
Vísitolubundinkjor 5,25-5,75 Bb
Óverðtr. kjör 12.25-13 Bb
INNL. GJALDEYRISR.
Bandarikjadalir 5,25-6 Ib
Sterlingspund 11.5-12,5 Ib
Vestur-þýsk mork 7,75-8 Ib
Danskarkrónur 7.75 8.8 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLÁN ÓVERDTR.
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,25 15.75 Lb
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareiknmgar(yfirdr) UTLÁN VERÐ- 18.75-19 Bb
TRYGGÐ
7.75 8.25 Lb
AFURÐALÁN
Isl. krónur 14,75-15.5 Lb
SDR 10-10,5 Lb
Bandarikjadalir 8.8-9 Sp
Sterlingspund 15.5 15.7 Lb.lb
Vestur-þýsk mork 10,75-10.9 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4.5
Lffeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21.0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. mars 91 15.5
Verðtr. mars 91 8
VlSITÖLUR
Lánskjaravisitala mars 3009 stig
Lánskjaravisitala feb. 3003 stig
Byggmgavísitala mars. 566 stig
Byggingavisitala mars 177.1 stig
Framfærsluvisitala feb. 149,5 stig
Húsaleiguvisitala 3% hækkun , jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5.397
Einingabréf 2 2.916
Einingabréf 3 3,539
Skammtimabréf 1.808
Kjarabréf 5.308
Markbréf 2.828
Tekjubréf 2.066
Skyndibréf 1.579
Fjolþjóðabréf 1.270
Sjóðsbréf 1 2.587
Sjóðsbréf 2 1,811
Sjóðsbréf 3 1.794
Sjóðsbréf 4 1,552
Sjóðsbréf 5 1,081
Vaxtarbréf 1.8371
Valbréf 1.7098
íslandsbréf 1.120
Fjórðungsbréf l .073
Þingbréf 1.119
Öndvegisbréf 1.109
Sýslubréf 1.129
Reiðubréf 1.098
Heimsbréf 1.036
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,80 7.14
Eimskip . 5,87 6.10
Flugleiðir 2,54 2.64
Hampiðjan 1.76 1.84
Hlutabréfasjóðurinn 1.77 1.85
Eignfél. Iðnaðarb. 2,00 2,10
Eignfél. Alþýðub. 1,47 . 1.54
Skagstrendingur hf. 4,20 4.41
Islandsbanki hf. 1.54 1.60
Eignfél. Verslb 1.35 1.40
Oliufélagið hf. 6.00 6,30
Grandi hf. 2.36 2.45
Tollvorugeymslan hf. 1.10 1.15
Skeljungur hf. 6.40 6,70
Ármannsfell hf. 2,35 2.45
Fjárfestingarfélagið 1,28 1.35
Útgerðarfélag Ak 3,80 3.95
Olis 2,19 2.30
Hlutabréfasjóður VlB 0.97 1.02
Almenni hlutabréfasj. 1,02 1.06
Auðlindarbréf 0,975 1,026
Islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Við kaup á viðskiptavíx’um og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb= Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.