Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 8. MARS 1991. 25 Iþróttir ÉÉI8Í Lokamínútumar vmu rosalesar ungur nýliöi bjargaði Þór á ævintýralegan hátt frá falli og Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii „Þaö var frábært aö sjá boltann- fara rétta leið á síðustu sekúndu leiksins eftir skotið frá Helga mín- um. Þar með tryggðum við það endanlega að við föilum ekki, enda með allt of gott lið til þess. Þetta var rosalegur leikur og Stólarnir að berjast fyrir urslitasæti. Þeir gáfu allt í leikinn en geta í lökin engu um kennt. nema sjáifum sér,“ sagði Sturla Örlygsson þjálfari og leikmaður Þórs eftir einhvem æsi- legasta körfuboitaleik sem fram hefur farið á Akureyri. Með 97:96 sigri tryggðu Þórsarar það að þeir geta ekki fallið í 1. deild, en úrslitin þýða að sama skapi þaö að Tinda- stóll missir af sætinu í úrslita- keppninni. Helgi Jóhannesson, ungur piltur sem er að stíga sín fjrstu skref í meistaraílokki skoraði sigurkörfu leiksins með langskoti þegar 6 sek, vora eftir af leiknum, og flölmargii- áhorfendur hreinlega ærðust af fögnuði. Æsilegum leik, þar sem voru miklar sviptingar í vel leikn- um leik upp á líf og dauða fyrir bæði iiðin, lauk þvi heimamönnum í vil, en miðað við gang leiksins hefði sigurinn getað hafiiað hvoru megin sem var. Þórsarar voru yfirleitt með for- ustuna í fyrri háifleik og náðu mest 13 stiga forskoti í hálfleik 48:35. En eftir 6 mín. í siðari hálfleik hafði Tindastóll unnið þetta upp og gott betur því þeir voru yfir 61:54. Þór jafnaði en undir lokin komust Stól- arnir aftur yfir og þegar 3 min. voru eftir leiddu þeir með 6 stigum. En þórsarar neituðu að gefast upp og með griðarlegri baráttu tókst þeim að sigra í lokin og loksins að vinna í jöfnum leik. Dan Kennard var mesti maður Þórs, skoraði 28 stig og tók jafn- mörg fráköst. Þá var Sturla Örlygs- son góður og Konráð Óskarsson átti frábæran kafla í síðari hálfleik. Hjá Stólunum var Ivan Jonas best- ur, gríðarlega sterkur og Einar Einarsson átti stórleik framan af. • Stig Þórs: Dan Keimard 28, Sturla Örlygsson. 26, Konráð Óskarsson 21, Jón Örn Guðmunds- son 9, Björn Sveinsson 4, Helgi Jó- hannesson 4, Jóhann Sigurðsson 3 og Eiríkur Sigurðsson 2. • Stig Tindastóls: Ivan Jonas 30, Einar Einarsson 22, Karl Jónsson 21, Valur Ingimundarson 20, Sverr- ir Sverrisson 2 og Haraldur Leifs- son l. ■ i Hauka og ÍR í Hafnarfirði í gærkvöldi. eiga eftir einn leik til að rétta hlut sinn DV-mynd Brynjar Gauti Flavík ;apíKeflavík • Stig Keflvíkinga: Falur Harðarson 30, Hjörtur Harðarson 18, Jón Kr. Gísla- son 14, Tyron Thornton 12, Albert Óskarsson 10, Sigurður Ingimundarson 9, Kristinn Friðriksson 5, og Skúli Skúlason 4. • Stig Vals: David Grissom 23, Guöni Hafsteinsson 15, Matthías Matthíasson 15, Helgi Gústafsson 8, Gunnar Þor- steinsson 6, Ragnar Jónsson 2, Bjarni Magnússon 2, og Brynjar Sigurðsson 2. • Guðmundur Stefán Maríasson og Jón Otti Ólafsson dæmdu leikinn og voru sæmilegir o n Körfubolti Úrvalsdeild • Staðan í úrvalsdeildinni er þessi eftir leikina í gærkvöldi: Þór-Tindastóll...........97-96 Haukar-ÍR................78-70 Kefla vík-V alur........102-73 A-riðill: Njarövík.....25 21 4 2407-1930 42 KR...........25 16 9 2134-2024 32 Haukar.......26 12 14 2177-2217 24 Snæfell......25 6 19 1965-2238 12 ÍR...........25 6 19 2033-2323 12 B-riðill: Keflavík....25 19 6 2472-2279 38 Grindavík...25 17 8 2163-2049 34 Tindastóll... 25 15 10 2333-2260 30 Þór..........26 7 19 2347-2490 14 Valur........25 7 18 2059-2220 14 • í gærkvöldi voru tveir leikir í 1. deild kvenna í körfuknattleik. ÍS sigraöi KR í íþróttahúsi Kenn- araháskólans með 62 stigum gegn 43 og Haukar unnu Grindavík, 78-33. Golf mót haldið á íslandi 9. mars HVeðurblíðan hér á landi í vetur hefur komið sér illa fyrir ákveðinn hóp íþróttamanna, nefnilega skíðafólk. Annar er sá hópur sem nýtt hefur sér ótrúlega gott tíðarfar. Er þar átt við golfáhugamenn. Kylfingar hafa varla lagt kylfum sínum enn þó komið sé fram í marsmánuð. Ög ekki eru líkur á því að veðurfar bregði fæti fyrir kylfmga á næstu dögum. Á morgun, laugardaginn 9. mars, er ætlunin að halda golfmót hér á landi, nánar tiltekið á Hvaleyrarholtsvelli í Hafnarfirði. Það er einstakt að hægt sé að halda golfjnót hér á landi á þessum árstíma þegar vetur konungur lætur jafnan mest fara fyrir sér. Samkvæmt heimildum DV hefur aldrei far- ið fram golfmót á þessum árstíma áður hér á landi. Sveinbjörn Björnsson hjá Golíklúbbnum Keili sagði í samtali viö DV í gærkvöldi að fjöldi kylfmga hefði leikið golf undanfarna daga í veðurblíð- unni. Það ætti því ekkert að koma kylfmgum á óvart að þeir hjá GK ætluðu að halda mót á morgun, laugardag. Ræst verður út frá klukkan tíu um morg- un til klukkan tvö eftir hádegi og er öllum kylfingum heimil þátttaka. -SK Stúf ar frá Englandi O Jón Kr. Gislason lék vel með IBK i gærkvöldi að venju. Gimnar Sveinbjömsson, DV, Englandi: Bobby Gould byrjaði vel hjá WBA og náði jafntefli í sínum fyrsta leik gegn efsta hði deildarinnar, West Ham, á The Hawthorns um helgina. WBA var betra hðið í leiknum og hefði verðskulað sigur ef eithvað var. Lífið er þó ekki alltaf dans á rósum hjá Gould og hann þarf nú að finna nýjan fyrirliða í snarhasti því harðjaxhnn Graham Roberts neitar alfarið að sinna því starfi áfram. Roberts verður þó ekki refsað fyrir * gerðir sínar því það var fyrst og fremst pressa sem stuðlaði að þess- arri ósk leikmannsins. • West Ham hefur orðið fyrir miklu áfalh. Markahæsti leikmaður liðsins, Trevor Morley, var stunginn tvívegis í kviðinn með hnífi snemma á mánudagsmorgun í ónefndu húsi í Essex og liggur nú á sjúkrahúsi og missir af næstu leikjum liðsins. Kona hefur verið handtekin vegna málsins og færð til yfirheyrslu. Líðan Mor- ieys er sögð vera eftir atvikum en ljóst er að hann missir af deildarleik gegn Plymouth og bikarleiknum gegn Everton. West Ham er efst í 2. deildinni sem stendur og er komið í 8-liða úrslit í bikarnum. Stöðu Mor- leys í næstu leikjum tekur Jimmy Quinn. • Imre Varadi, framherjinn víð- förli hjá Leeds United, virðist nú vera á faraldsfæti enn á ný. Leeds hefur litla not fyrir leikmanninn og er th- búið að selja ef viðkomandi tilboð berst. Rotherham hefur sýnt málinu áhuga og lagt fram tilboð sem Leeds sætti sig við en gallinn var sá að Varadi hafði engan áhuga á að leika með Rotherham. Það er þó deginum ljósara að framtíð Varadi liggur ekki hjá Leeds og aðeins spurning um hvert þessi ungverskættaði fram- herji heldur næst með ferðatösku sína. • Brian Talbot fyrrum fram- kvæmdastjóri WBA var ekki lengi atvinnulaus eftir að forráðamenn Albion sögðu honum að taka pokann sinn. Talbot hefur nú gengið til liðs við Fulham en mun eingöngu leika með liðinu ef hann kemst í það en láta öll stjórnunarstörf alfariö eiga sig. Talbot sagði við fréttamenn að hann hlakkaði til að spila með Ful- ham og það yrði góð tilbreyting að spila án pressunnar sem fylgdi því að vera líka framkvæmdastjóri. • Teitur. • Ólóíur. Brann erf itt í samskiptum - Óll skoraöi fyrir Lyn Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi: Gamla félagið þeirra Teits og Ólafs Þórðarsona, Brann frá Björgvin, neitar nú alfarið að ganga frá félagaskiptum Ólafs Þórðarsonar yfir til Lyn fyrr en sættir hafa náðst í deilu félagsins við Oslóarliðið Lyn í kjölfar brotthvarfs Teits síðasthðið haust. Hefur Brann jafnvel hótað aö fara méð málið fyrir dómstóla. „Við vonumst til þess að geta leyst máhð með friði eða með málamiðlun af einhveiju tagi en útilokum ekki þann möguleika að máhð fari fyrir dómstóla," sagði stjórnarformaður Brann, Magne Revheim, í samtali viö Bergens Tidende um helgina. Forráðamenn félaganna áttu um síðustu helgi viðræður um lausn málsins á ársþingi norska knatt- spymusambandsins í Haugasundi. Ekkert samkomulag náðist hins vegar þar. „Allir launþegar hafa rétt á að segja upp vinnu sinni,“ var þaö eina sem Teitur vildi láta hafa eft- ir sér um málið í spjalli við BT. Lögfræðingur Teits, Gunnar Martin Kjenner, sagði í samtali við BT að hann gæti ekki séð að Brann gæti gert neina peningakröfu á hendur honum eða Lyn. • Ólafur Þórðarson skoraði eitt fimm marka Lyn í stórsigri þess í æfingaleik gegn Moss fyrir stuttu. Lokatölur urðu 5-0. ; 11111 i t 4 f f í!Íffilrrt?fí i 1 $ i 1 iHÍffHiriiliiilfl f * »

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.