Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 8. MARS 1991.
39
Meiming
Mannlíf í kreppu
Heimskreppan hefur teygt ljótar krumlur sín-
ar til landsins og breyttir atvinnuhættir valda
því aö fólk flykkist úr sveitunum á mölina. Af-
urðir falla í verði og í Reykjavík versnar at-
vinnuástandið með hveijum degi. Hungurvofan
stendur við dyr margra bæjarbúa.
En hingað berast líka.straumar nýrra hug-
sjóna og alþýðan er að vakna til vitundar um
mátt sinn og megin. Ranglætið blasir alls staðar
við, en þaö kostar fórnir að ná fram breytingum.
Þetta er í grófum dráttum baksvið leikrits
Guðmundar Ólafssonar sem frumsýnt var í
Borgarleikhúsinu í gærkvöld. Það ber einfald-
lega nafnið 1932, og þar segir frá öldruðum hjón-
um með þrjú uppkomin börn sem hafa flosnað
upp af bújörð sinni og flust suður.
Saga þessarar fjölskyldu er mörgum öðrum
lík. Guðmundur, sem er líka leikstjóri sýningar-
innar, opnar verkið þar sem þau koma fyrst til
bæjarins ókunnug öllum staðháttum, en hreint
ekki vondauf um framtíöina.
Sá sem nennir að vinna hlýtur að bjarga sér.
Eða hvað?
Smám saman skýrast máhn. Það er nánast
enga vinnu að hafa nema eyrarvinnu með höpp-
um og glöppum. Bræðurnir Páll og Einar fá ein-
hveijar snapir en faðir þeirra má eigra um at-
vinnulaus. Kvenfólkið gengur í ýmis þjónustu-
störf hjá betri borgurum bæjarins.
Fyrsti hluti verksins er hægur og tíðindalítill,
textinn fremur rislágur og atriðin snubbótt og
rýr. Þar eru persónur verksins leiddar fram á
sviðið og þjóðfélagsbakgrunnar kynntur. Þenn-
an hluta verksins hefði að ósekju mátt gæða
mun meira lífl og lit í uppsetningunni.
En þegar kemur fram undir hlé byijar höfund-
ur að þétta vefinn og vinnur upp snyrtilega
fléttu í seinni hlutanum. Þar tvinnast saman
mannleg örlög og ólgandi stéttabarátta þar sem
allir verða að taka afstöðu, hvort sem þeim lík-
ar betur eða verr.
Þetta leiðir óhjákvæmilega til uppgjörs og htla
kjarnafjölskyldan, sem er miðpunktur verksins,
klofnar í herðar niður.
Annar bróðirinn kýs sem sé að ganga í lið
meö valdastéttinni en hinn tekur eindregna af-
stöðu með verkalýðnum, þó að það kosti bæði
hann og fjölskylduna fórnir. Þegar fylkingum
lýstur saman haustið 1932, í Gúttóslagnum
fræga, takast þeir bræður hressilega á, en á bak
við þau átök er ekki hugsjónin ein heldur bland-
ast ástamál þar inn í.
Það hefur margt verið skrifað um þetta tíma-
bil og ýmislegt sem kemur kunnuglega fyrir.
En engu að síður tekst Guðmundi að tengja sam-
an efnisþræði á þann hátt, að ég hygg að hann
hafi, þegar á leið, náð óskiptri athygli og eyrum
leikhúsgesta með mannlegu viðhorfi og sann-
ferðugum lýsingum á aðalpersónum verksins
og örlögum þeirra. Textinn verður hka þéttari
og samtölin líflegri þegar hér er komið.
Úrvinnslan á sviðinu er laus við prjál og um
margt freiiiur hefðbundin.
Leikmynd Hlínar Gunnarsdóttur sýnir hýbýli
þeirra sem við sögu koma. Fremst eru kjallara-
kompur og verkamannaskýh en stofur betri
borgara eru aftar og ofar. Á milli, eftir miðju
sviðsins og bakatil, er opið svæði sem getur
verið bryggja, gata eða ballhús, allt eftir hentug-
leikum.
Kolakraninn, sem margir muna enn,' gnæfir
svo í baksýn rétt eins og ehíft tákn um erfiði
og þrældóm verkamannanna.
Leikmyndin hefur þann kost að engar tilfær-
Margrét Jóhannsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir í hlutverkum sínum í 1932.
DV-mynd GVA
Leiklist
Auður Eydal
ingar þarf á milli atriöa og sýningin rennur því
fyrirstöðulaust áfram. Húsmunir eru fáir, eitt
borð, stóll, klukka - nánast hluti fyrir heild og
þeir ásamt vel völdum búningum undirstrika
stéttamuninn.
Þórarinn Eyfjörö leikur annan soninn, Einar,
þann sem snýst á sveif með verkalýðssinnum.
Einar á alla samúð höfundar, er drenghegur og
velur „réttan" málstað. En Guðmundur forðast
að koma boðskapnum á framfæri í prédikunum
og lýsingar á aðalpersónum í verkinu verða
sannferðugar því að þær eru hvorki alhvítar
né kolsvartar heldur ósköp venjulegt fólk með
kostum og göllum.
Þórarinn var í dáhtlum vanda framan af, á
meðan atburðarásin er hvað dauflegust, en óx
svo ásmegin eftir því sem á leið og náði mjög
styrkum og trúverðugum tökum á persónunni.
Kristján Franklín Magnús, sem leikur hinn
bróðurinn, Pál, náði ágætlega utan um persónu-
lýsinguna í fyrri hlutanum og saman áttu þeir
„bræður“ prýðhegan leik í seinni hlutanum,
einkum þegar skerst í odda. Áflogaatriði á mhli
þeirra var vel unnið með eðhlegum pústrum og
sviptingum.
Jón Sigurbjömsson leikur föður þeirra, full-
orðinn bónda sem verður að þola þá niðurlæg-
ingu dag eftir dag að fá enga vinnu á meðan
yngri mennirnir eru látnir ganga fyrir. Jón skh-
ar þarna ljóslifandi mannlýsingu. Jafnvel með
þögninni túlkar hann uppgjöf og vanmáttuga
reiði meistaralega.
Margrét Helga Jóhannsdóttir náði hka fyrir-
taksvel að túlka móðurina, Helgu, kjölfestuna í
fjölskyldunni sem skhur og sér aht en grípur
ekki inn í rás viðburðanna nema tilneydd.
Hvernig sem árar á Helga alltaf heitt á könn-
unni, enda kaffið allra meina bót. (Fyrir utan
það að látlaust kaffiþamb virðist hér sem endra-
nær vera algjör nauðsyn. þegar fjallað er um
íslenskan veruleika.)
Systurinni Auði eru ekki gerð eins glögg skil
en saga hennar fléttast þó inn í viðburði. Hún
fer í vist th fyrirfólks og lendir þar í ástarsam-
bandi við soninn í húsinu. Þegar það kemst upp
er henni óðara vísað á dyr. María Sigurðardótt-
ir leikur Auði og vinnur skýra og geðþekka
mynd úr þeim efnivið, sem fyrir hendi er, en
hann er ekki mikill.
Kvenlýsingarnar eru fremur staðlaðar í verk-
inu. Þannig er Ásta, sem Sigrún Edda Björns-
dóttir leikur, buguð og ráðalaus, fyrirfram
dæmd th þungra örlaga. Það er mikið tárfellt,
og hlutverkið fremur vanþakklátt, en Sigrún
Edda tekst þó hetjulega á við það og reynir að
gera ekki of mikiö úr öllum bágindunum.
Katrín heitir kaupmannsdóttirin sem þeir
bræður Einar og Páll elska báðir og hún fær
varla að lifna við sem persóna þó að Arnheiöur
Ingimundardóttir fari snyrtilega með hlutverkið
svo langt sem það nær.
Margir aðrir leikarar koma viö sögu, bæði sem
verkamenn og betri borgarar, og nokkrar smá-
myndir lukkast sérlega vel. Má þar nefna þá
Steindór Hjörleifsson og Karl Guðmundsson í
hlutverkum verkamanna og Valgerði Dan sem
hina ísköldu frú Guðrúnu.
í því broti af baráttusögu, sem fram kemur í
verkinu, er leitast við á persónulegan hátt áð
bregða ljósi á kreppuárin. Sumt er undirstrikað,
úr öðru dregið,
Við úrvinnsluna er ekki kafað djúpt eftir lang-
sóttum rökum eða sett fram mergjuð heimsá-
deila heldur ræður mannúðleg söguskoðun ferð-
inni og áhugi á því hvernig ytri aðstæður og
þjóðfélagslegt óréttlæti skapa persónunum ör-
lög.
Áhorfendur geta síðan spáð í að hve miklu
leyti við stöndum enn í sömu sporum og 1932.
Leikfélag Reykjavikur sýnir á Stóra sviðinu í Borgar-
leikhúsl:
1932
Höfundur og leikstjóri: Guómundur Ólafsson
Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir
Lýsing: Lárus Björnsson ,
Umsjón með tónlist: Jóhann G. Jóhannsson
Sýningarstjóri: Ingibjörg Bjarnadóttir
-AE
Fjölimðlar
Burt úr sviðsljósinu
Fyrsteftir að nýsteinöld lauk í
útvarpi og einokun Ríkisútvarpsins
var aflétt þá var ekkert á íslandi
eins fínt og að vinna á útvarpsstöð.
Nöfn hinna ýmsu plötusnúða voru
á flestra ef ekki ahra vörum. Hlust-
endur hringdu inn og tjáðu þeim ást
sína og við þá voru bir t viðtöl i blöð-
um, tímarítum, útvarpi og sjón-
varpi. Þar gat fólk séð hvernig þess
ar elskur litu út, hvað þær borðuðu,
hjá hverjum þær sváfu, hvað þær
gerðu í frístundum sínum og ég veit
ekki hvað. Svo má ekki gleyma því
að plötusnúðar voru óskaplega iðnir
við að taka langa viðtalsþætti hver
viðannan.
Engan þarf að undra þótt frægðin
stigi mörgum th höfuðs. Afleiðingin
varð sú að margir töldu vist aö þaö
mætti aht i útvarpinu. Hlustendum
þætti vænt um þá og væru jafnvel
tilbúnir til að hlusta á þá flissa sam-
fleytt i tvo líma. Allt var leyfilegt
efþað bara var í beinni útsendingu.
Þessir tímar eru liðnir, sem betur
fer. Nýjabrumið fór af og allt í einu
stóöu plötusnúðarnir uppi eins og
keisarinn forðum, ekki í neinu. Nú
hefur enginn maður áhuga á því
hver snýr hvaða plötum hvenær eða
á hvaða rás. Samt lifa nokkir plötu-
snúðanna ennþá í fortíðinni ogláta
rigna upp í nefið á sér í beinni út-
sendingu og varðveita stjörnuhlut-
verkið.
Það verður sennilega aldrei nóg
brýnt fyrir þeim sem vinna viö fjöl-
miðla að það er innihaldið sem
skiptir máli og efnistökin. Blaða-
menn hafa sem betur fer flestir
roynt aö halda sig utan sviðsljóssins
eftir því sem kostur er. Það sem
skrifaö er skiptir máli en ekki hver
skrifar dálkinn eða segir orðin. Þeir
sem vinna \úð ijölmiðla eiga helst
að vera nafnlausir í augum við-
takendanna. Þá varðar ekkert um
hver maðurinn bak við röddina,
pennann eða skjámy ndina er. Lifi
nafnleysið.
Páll Ásgeirsson
Veður
Vaxandi norðan- og siðar norðaustanátt, viða all-
hvasst eða hvasst þegar liður á daginn, einkum um
norðanvert landið. Sunnanlands og vestan verður
bjart veður að mestu en þó verður viða skýjað í kvöld
og nótt. Norðanlands 03, austan snjóar fram eftir
degi en siðar lítur út fyrir slyddu eða rigningu á
Austurlandi. Lítið eitt hlýnar suðaustan og austan-
lands en annars breytist hiti litið.
Akureyri slydda 0
Egilsstaðir snjókoma 0
Hjarðarnes léttskýjað 1
Galtarviti snjókoma -2
Keflavíkurflugvöllur léttskýjað -1
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 2
Raufarhöfn snjókoma -1
Reykjavik heiðskírt -3
Vestmannaeyjar heiðskírt -1
Bergen rign/súld 4
Helsinki þokumóða -2
Kaupmannahöfn þokumóða 2
Ósló þokumóða 1
Stokkhólmur þokumóða 0
Þórshöfn léttskýjað 4
Amsterdam mistur 10
Barcelona þokumóða 11
Berlín þokumóða 3
Feneyjar þokumóða 12
Frankfurt skýjað 6
Glasgow mistur 6
Hamborg þokumóða 4
London rigning 10
LosAngeles heiðskírt 14
Lúxemborg mistur 8
Madrid skýjaö 4
Malaga skýjað 7
Mallorca skýjað 14
Gengið
Gengisskráning nr. 47. - 8. mars 1991 kl. 9.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 56,380 56,540 55,520
Pund 105,966 106,267 106,571
Kan. dollar 48,518 48,655 48,234
Dönsk kr. 9,4478 9,4747 9,5174
Norsk kr. 9,2891 9,3154 9,3515
Sænsk kr. 9,8010 9,8288 9.8370
Fi. mark 15,0350 15,1278 15,1301
Fra. franki 10,6563 10,6866 10,7399
Belg. franki 1,7619 1,7669 1,7744
Sviss. franki 41,6704 41,7886 42,2205
Holl. gyllini 32,1978 32,2892 32,4394
Þýskt mark 36,2864 36,3894 36,5636
it. líra 0,04860 0.04874 0,04887
Aust. sch. 5,1547 5,1694 5,1900
Port. escudo 0,4173 0,4185 0,4181
Spá. peseti 0,5833 0,5849 0,5860
Jap. yen 0,41404 0,41522 0.41948
irskt pund 96,661 96.935 97,465
SDR 78,9833 79,2075 78,9050
ECU 74,5710 74.7826 75,2435
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
7. mars seldust alls 195,325 tonn.
Magn i Verö í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Blandað 0,282 32,71 5.00 86,00
Hellur 0,075 310,45 305,00 325,00
Hrogn 2,589 54,19 50,00 260,00
Karfi 80,464 40,78 39,00 44,00
Keila 0,594 39,42 31,00 40,00
Kinnar 0,020 160,00 160,00 160,00
Langa 1,998 94,35 54,00 67,00
Lúða 0,217 401,36 325,00 560,00
Skarkoli 0,321 53,00 '53,00 53,00
Steinbítur 3,670 34,80 32,00 39,00
Þorskur, sl. 8,115 '96,10 73,00 99.00
Þorskur, ósl. 28,192 96,65 71,00 105,00
Ufsi 54,301 48,18 43,00 51,00
Ufsi, ósl. 1,354 45,00 45,00 45,00
Undirmál. 1,904 70,42 59,00 75,00
Vsa.sl. 9,818 100,05 92,00 1 37,00
Ýsa, ósl. 1,405 98,93 78,00 112,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
7. mars seldust alls 97,000 tonn.
Rauðm/gr. 0,015 95,00 95,00 95.00
Smáýsa, ósl. 0,058 60,00 60,00 60,00
Ufsi, ósl. 0,693 21,00 21,00 21,00
Smáþorskur, ósl 0,091 30,00 30,00 30,00
Langa, ósl. 0,027 30,00 30,00 30,00
Keila, ósl. 0,039 10,00 10,00 10,00
Skötus. 0,067 515,00 515,00 515,00
Skata 0,031 75,00 75,00 75,00
Keila 0,048 25,00 25,00 25,00
Þorskur, ósl. 14,598 88,61 79,00 97,00
Smárþorskur 0,012 30,00 30,00 30,00
Steinbítur, ósl. 13,843 28,92 24,00 37,00
Vsa 2,338 97,31 82,00 100,00
Þorskur 39,501 96,17 75,00 104,00
Steinbitur 0,400 32,43 28,00 33,00
Skötuselur 0,022 209.00 209,00 209,00
Lúða 0,462 352,15 290,00 455,00
Langa 0,972 30,00 30,00 30,00
Karfi 10,686 41,70 38,00 42,00
Hrogn 1,426 182,50 105,00 210,00
Ufsi 9,538 43,88 38,00 45,00
Koli 0,586 54, 54,00
54,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
7. mars seldust alls 234,580 tonn.
Lýsa 0,016 10,00 10,00 10,00
Skötuselur 0,012 170,00 170,00 170,00
Hrogn 0,164 220,00 220,00 220,00
Hlýri 0,099 30,00 30,00 30,00
Hlýri/Steinb. 0,316 33,00 33,00 33,00
Blandað 1,414 24,89 6,00 45,00
Kinnar 0,068 93,00 93,00 93,00
Ufsi 24,511 41,54 15,00 47,00
Lúða 0,456 405,95 295,00 495,00
Þorskur 161,955 97,06 61,00 115,00
Keila 5,459 24,53 23,00 26,00
Rauömagi 0,169 110,59 109,00 114,00
Karfi 3,348 43,02 38,00 47,00
Vsa 19,260 98,86 56,00 111,00
Skarkoli 1,118 72,58 60,00 78,00
Langa 10,338 63,68 20,00 69,00
Steinbitur 5,868 33,14 25,00 36,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900