Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1991, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 8. MARS 1991.
33
Lífsstm
Kartöflur
901 Verð í krónum
Ag Sept.Okt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mars
#
Tómatar
Verð í krónum
Kartöflur virðast vera eina grænmetistegundin þar sem meðalverðið tekur ekki miklum breytingum á milli vikna.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Miklar sveifl-
ur á verði
- meðalverð papriku lækkar um nær helming
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð á grænmeti í eftirtöldum
verslunum; Bónusi, Skútuvogi,
Fjarðarkaupi, Hafnarfirði, Hag-
kaupi, Kringlunni, Kjötstöðinni
Glæsibæ og Miklagarði viö Sund.
Bónusbúðirnar selja grænmeti í
stykkjatali á meðan hinar saman-
burðarverslanirnar selja eftir vigt.
Til að fá samanburð þar á milli er
grænmeti í Bónusi vigtað og um-
reiknað eftir meðalþyngd yfir i kíló-
verð.
Meðalverð á tómötum hækkaði um
7% frá því í síðustu viku og er það
nú 275 krónur. Tómatar voru á
lægsta verðinu í Bónusi á 176 krónur
kílóið. Næst á eftir kom verð í Kjöt-
stöðinni, 236, Fjarðarkaupi, 268,
Miklagarði, 295, og Hagkaupi, 399.
Munur á hæsta og lægsta verði var
127%.
Engin breyting varð á meðalverði
á gúrkum milli vikna og er meðal-
verðið enn 224 krónur. Gúrkur voru
ódýrastar í Bónusi á 128, Kjötstöð-
inni, 172, Fjarðarkaupi, 226, Mikla-
garði, 255 og Hagkaupi, 339 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði var
165%.
Fjórðungslækkun varð á meðal-
verði á sveppum frá því í síðustu
viku og er meöalverðið nú 354 krón-
ur. Sveppir fengust á lægsta verðinu
í Kjötstöðinni á 299 krónur og voru
þeir einnig mjög fallegir. Næstódýr-
astir voru sveppir í Bónusi á 314,
Mikligarður var með kílóverð 545,
Fjarðarkaup ■ 550 og Hagkaup 564.
Munur á hæsta og lægsta verði var
89 af hundraði.
Meðalverð á grænum vínberjum
er nokkurn veginn það sama og í síö-
ustu viku eða 302 krónur. Lægsta
verðið á grænum vínberjum var í
Bónusi, 147, en þar á eftir kom Fjarð-
arkaup, 260, Hagkaup, 325, Mikli-
garður, 345, og Kjötstöðin, 435. Mun-
ur á hæsta og lægsta verði á grænum
vínberjum var mikill eða 196%.
Meðalverð á grænni papriku lækk-
aði ótrúlega frá í síðustu viku eða
um 46% og er það nú 246 krónur.
Græn paprika var ódýrust í Fjarðar-
kaupi á 120 krónur kílóið en á eftir
fylgdi verðið í Bónusi, 125, Kjötstöð-
inni, 189, Hagkaupi, 339, og Mikla-
garði, 459. Munur á hæsta og lægsta
verði var þar af leiðandi mjög mikill
eða heil 267%.
Eilítil hækkun varð á meðalverði á
kartöflum frá í síðustu viku og nam
hækkunin 3%. Meðalverðiö nú er 82
krónur. Kartöflur voru ódýrastar í
Bónusi á 68,50 en síðan kom Fjaröar-
kaup, 75,50, Mikligarður, 82,50, Kjöt-
stöðin, 89, og Hagkaup, 94,50. Munur
á hæsta og lægsta verði á kartöflum
var 38 af hundraði.
Meðalverð á blómkáli lækkaði um
6% frá í síðustu viku og er það nú
291 króna. Blómkál var ódýrast í
Hagkaupi en þar var kílóverðið 229
krónur. Verðið var 259 í Fjarðar-
kaupi, 304 í Kjötstöðinni, 372 í Mikla-
garði en blómkál fékkst ekki í Bón-
usi. Munur á hæsta og lægsta verði
var 62%.
Þrettán prósent lækkun varð á
meðalverði á hvitkáli frá því í síð-
ustu viku og er það nú sléttar 100
krónur. Hvítkál var ódýrast í Kjöt-
stöðinni á 79 krónur en næst kom
verðið í Miklagarði, 98, Bónusi, 99,
Hagkaupi, 109, og Fjarðarkaupi, 116
krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði á hvítkáli var 47%.
Nokkur hækkun varö á meðalverði
á gulrótum en verðið er nú 142 krón-
ur. Það er hækkun um 15% frá í síð-
ustu viku. Gulrætur voru á lægsta
verðinu í Bónusi á 96, næst kom
Fjarðarkaupsverðiö, 138, Mikligarð-
ur, 144, Hagkaup, 155, og Kjötstöðin,
176 krónur. Munur á hægsta og
lægsta verði á gulrótum nam 83%.
ÍS
Sértilboð og afsláttur:
Folaldakjöt af nýslátruðu
í Bónusverslunum var 472 g Cocoa
Puffs morgunkorn á tilboðsverðinu
218 krónur, Homeblest kex, 200 g, á
82 krónur, Libero bleiur fyrir 9-18
kílóa börn, 64 stk., á 1499 og allar
tegundir Maarud léttsnakks í 85 g
pokum á 129 krónur.
í kjötborðinu í Fjarðarkaupi var
hægt að fá kjúklingabita á 379 kr kíló-
ið og svínslæri á 495 krónur kílóið.
Einnig var á tilboðsverði White
Magic rúðuúði með dælp, 650 ml, á
165 krónur og pylsubrauð, 5 stykki
saman, á 49 krónur.
í Miklagarði við Sund var hægt að
gera góð kaup í þriggja kílóa salt-
kjötsfötu á 1299 krónur, Pepsi í 2 1
flöskum kostaði 148 krónur, Cirkel
kafFi, 250 g, var á 79 krónur og til
viðbótar voru verkfærakassar frá
Contico, 19 tomma, á 1695 krónur.
í kjötstöðinni Glæsibæ gat að líta
folaldakjöt af nýslátruðu með 10%
afslætti. Nautafillet og nauta innra
læri voru á tilboöi á 1495 krónur kíló-
ið, Havre Fras morgunkom, 375 g,
kostaði 189 kr. og Toffee Crisp sæl-
gæti, 3 stykki saman, voru á 139
krónur.
í Hagkaupi i Kringlunni var hægt
að gera góð kaup í 2 kg af Kornax
hveiti, sem selt er á 69 krónur, Lion
bar súkkulaðistykki, 3 saman, voru
á 135, kíló af rækjum var á 499 krón-
ur og lambalæri, snyrt og frosið, var
á565krónurkílóið. ÍS
í Ílp
SVEPPIR
-25%
I
I
566 299