Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Qupperneq 9
;im SflAWI SIIOACIUXr/QIM MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991. Uflönd PLO reiðubúin að gefa ef tir gagnvart ísrael Pólitískur ráögjafi Yassers Arafat, leið’toga Frelsissamtaka Palestínu, PLO, kvaöst í gær myndu tilkynna á fimmtudaginn um eftirgjöf gagnvart ísrael tíl að auðvelda viðræður um myndun palestínsks ríkis. Breska sjónvarpsstöðin Sky News greindi frá þessu í morgun. Samkvæmt sjónvarpsfréttinni eru helstu atriði áætlunarinnar þau aö PLO lætur af kröfu sinni um að fá að taka þátt í viðræðunum við ísra- elsk yfirvöld. í staðinn verða út- nefndir til viðræðnanna Palestínu- menn sem ekki eru félagar í PLO. Samtökin eru einnig sögð sam- þykkja að fá ekki yfirráð yfir öllum Vesturbakkanum og Gazasvæðinu og vera reiðubúin til málamiðlunar- samkomulags um landamæri palest- ínsks ríkis. Hernaðarafskiptum ísra- ela yrði aflétt á vissu aðlögunartíma- bili en á meðan myndu Sameinuðu þjóðirnar tryggja öryggið. Sam- kvæmt Sky News er einnig gert ráð fyrir kosningum í áætluninni. ísraelsk yfirvöld hafa neitað bein- um viðræðum við PLO á þeim for- sendum að þau séu hryðjuverkasam- tök. ísraelar hafa einnig verið mót- fallnir því að yfirgefa herteknu svæðin gegn friði við Palestínumenn og ítrekuðu þeir það í viðræðum sín- um við James Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í gær. Fréttin um væntanlega eftirgjöf PLO kom eftir að Baker hitti fulltrúa Palestínumanna í Jerúsalem í gær. í kjölfar þess fundar gaf bandarískur embættismaður í skyn að Bandarík- in kynnu að taka upp viðræður sínar við PLO á ný. Leiðtogar Palestínu- manna, sem ínttu Baker í gær, tjáðu fréttamönnum að bandaríski utan- ríkisráðherrann hefði tekið það fram að viðræðunum hefði einungis verið frestað, þeim væri ekki lokið. Banda- rísk yfirvöld hættu opinberum sam- skiptum við PLO eftir að samtökin neituðu að fordæma árás palest- ínskra byssumanna á ísraelskar strendur í maí 1990. Háttsettur bandarískur embætt- ismaður vildi ekki nefna nein skil- yrði fyrir því að viðræðurnar við PLO yrðu teknar upp á ný. Hann sagði hins vegar að harðari tónn myndi einkenna þær vegna stuðn- ings PLO við íraka í Persaflóastríð- inu. Reuter James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem verið hefur i heim- sókn í ísrael, flaug í gær í þyrlu yfir Jerúsalem og Vesturbakkann. Símamynd Reuter Hernaðaráætlunum bandamanna stolið? Dagblaðið The Times 1 Lundúnum segir að skömmu áður en sókn bandamanna á landi gegn írökum hófst hafi tölvu með leynilegum hernaðaráætlunum verið stolið frá háttsettum breskum herforingja. Þama átti m.a. að vera að finna áætlanir um blekkingar herhðsins. Norman Schwartskopf, yfirmaður herliðs bandamanna, hefur sagt að þessar blekkingar hafi verðið úrshta- atriðið í sókninni gegn írökum. Breska varnarmálaráðuneytiö vhl engar yfirlýsingar gefa um málið. Þó er nú viðurkennt að einhverju var stohð frá hershöfðingjanum en á sín- um tíma var bannað að segja frá máhnu. í ráðuneytinu er sagt að því sem stolið var hafi verið skilað. Reuter Ford Econoline 350, dísil, árg. 86, m/gluggum. V. 1.250.000, sk. á ód. Ford Econoline, dísil, 6,9, árg. ’85, m/siðum gluggum og háum toppi, 6 d„ álfelg., tvfl. o.fl., einnig árg. '86. Ford Econoline 350, árg. ’88, 7,3, disil, 15 manna, m/háum toppi o.fl. aukahlutum. Ford Econoline 150 4x4, árg. '84, loftl. + spil, 36" dekk, 351 vél, svefnb., gasm. o.fl. V. 1.680.000. Höfum úrval af Econoline- og pickupbílum. . Þar sem viðskiptin gerast. Bílasala MATTHÍASAR v/Miklatorg Sími 24540 - 19079 Blóðbað í írak - Bush beðinn um hjálp írákar í útlegð segja sérsveitir Leiðtogi Kúrda sagði í Beirút í Saddams Hussein íraksforseta Líbanon 1 gær að hermenn Sadd- sýna enga miskunn í því að bæla ams hefðu tekið fimm þúsund kon- niður uppreisnina og hafi hk hrúg- ur og börn í gislíngu og að þeir ast upp í þeim helgu borgum sem hótuðu að lífláta þau ef á þá yrði óbreyttirborgararleituðuskjólsi. ráðist. Bandarískur embættismaöur, írakarbúsettiríLondonfóruþess sem ekki vill láta nafns síns getið, á leit í opnu bréfi til Bush Banda- sagði augljóst að blóöbað ætti sér ríkjaforseta aö hann kæmi í veg stað en engar sannanir fyrir þvl að fyrir tilraun Saddams til að útrýma menn Saddams hefðu beitt efna- írösku þjóðinni. vopnumgegnuppreisnarmönnum. Reuter fermingar. Gefðu alvöru tæki í fermingargjöf! SJÁ BLS. 33 í AUKABLAÐI Kiko, prinsessa i Japan, og Akishino, maður hennar, eiga von á erfingja. Áhrifanna er þegar farið að gæta í kauphöllinni i Tokýo. Simamynd Reuter Tllkynnt um þungun prinsessu í Japan: Hlutabréf í mjólkur- búum snarhækkuðu Hlutabréf í japönskum mjólkurbú- um snarhækkuðu í kauphöhinni í Tokýo þegar tilkynning barst frá keisarahöhinni þess efnis að Kiko prinsessa væri ólétt. Verð á öðrum hlutabréfum féh heldur. Sérfræðingar í hlutabréfa viðskipt- um eru þess fiUMssir að þungun prinsessunnar sé helsta ástæðan fyr- ir að bréfin hækkuðu. Það sama gerðist þegar Kiko trúlof- aðist Akishino, yngri syni keisarans, á síðasta ári. Þá voru það þó perlu- kaupmenn sem nutu góðs af fréttinni því að prinsinn gaf sinni heittelskuðu perlufesti. í kjölfarið fylgdi æði í Jap- an og aUar konur urðu að eiga perlu- festar. Verðbréfasalar höfðu einnig spáð því að bleiuframleiðendur mættu eiga von á að hlutabréf í fyrirtækjum þeirra hækkuðu við fréttina. Svo fór þó ekki og er það skýrt með því að enginn Japani trúi því að í keisara- fjölskyldunni séu einnota bleiur lagðar við bossa afkomenda sonar sólarinnar. Reuter Aðalfundur íslenska hlutabréfasjóðsins hf. Aöalfundur íslenska hlutabréfasjóösins hf. veröur haldinn þriðjudaginn 26. mars, 1991 kl. 16:00 í Þingstofu A að Hótel Sögu, Reykjavík. Dagskrá 1. Venjuleg aöalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga aö útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Tillaga um breytingu á 6. gr. samþykkta félagsins um heimild til stjórnar til aö hækka hlutafé með sölu nýrra hluta. 4. Önnur mál löglega upp borin. 5. Staöa og horfur á íslenska hlutabréfamarkaðnum; erindi flutt af Davíö Björnssyni deildarstjóra hjá Landsbréfum h.f. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síöar en 7 dögum fyrir aöalfund. Dagskrá, endanlegar tillögúr svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu Landsbréfa h.f. hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Fundargögn veröa afhent á fundarstað. Reykjavík 11. mars, 1991. Stjórn íslenska hlutabréfasjóðsins hf. LANPSBRÉF H.K « Landsbankinn stendur meö okkur S ÍSLENSKI Suöurlandsbraul 24,108 Reykjavík, simi 91-679200 HLIITABRÍFASJÓDURINN HF. Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi Islands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.