Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991. 13 Sælkeri góður, hvað er að? í grein sem ber yfirskriftina „ís- lenskir bakarar, hvaö er að?“ og birtist á sælkerasíðu DV laugar- daginn 2. mars sl„ verður höfundur ber að meiri vanþekkingu um ís- lenska bakara og framleiðslu þeirra en trúað hefði verið að óreyndu. Vélar og efni Höfundur byijar á því að riíja upp fyrir lesendum sínum hvernig ástandið var í brauðmálum þjóðar- innar fyrir 20 árum þegar einungis voru fáanlegar 3-A brauðtegundir. Síðan hafi íslenskir bakarar tekið að bjóða upp á alls konar úrvalsteg- undir úr ótal korntegundum. Hins vegar telur höfundur að nú sé öldin aldeilis önnur því að farið sé að framleiða brauð í vélum. Höfundur „Sælkerasíðunnar" skal upplýstur um það að framleiðsluhættir í bak- aríum hafa í grundvallaratriðum ekkert breyst á sl. tuttugu árum. Brauö hafa um áratugi verið bökuð í vélum á sama hátt og gert er í dag. Næsta fullyrðing greinarhöfund- ar er sú að farið sé að setja í brauð alls konar efni til þess að þau geym- ist betur. Með þessu er hann að segja að rotvamarefni sé sett í öll brauð sem bökuð eru hér á landi. Staðhæfing þessi er í raun atvinnu- rógur af verstu gerð. Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins hefur rannsakað þetta sérstaklega og hafa 700 brauðtegundir verið inni- haldsgreindar á undanfórnum árum. Langt innan við 1% þessara brauða hafa reynst innihalda rot- vamarefni og raunar hefur þessi hundraðstala lækkað enn á allra síðustu árum. Þannig aö í raun má segja að rotvarnarefni séu ekki sett í íslensk brauð. Þessu næst heldur höfundur því ■ fram að íslensk brauð séu að verða einkennalaus og það skipti varla nokkru máli hvaða brauð keypt eru, þau séu öll eins. Hér er hann væntanlega einungis að miða við eigin smekk. Staðreyndin er hins vegar sú að algengast er að bakarí hafi á boðstólum um tuttugu brauðtegundir hvert. Brauð þessi eru af öllum gerðum, bæði gróf og fín og allt þar á milli. Bakaríin í landinu eiga í mikilli samkeppni um hylh neytendanna og byggist því afkoma þeirra á því hversu vel þeim tekst að ná til þeirra. Við slík- ar aðstæður er erfitt að ímynda sér annað en að bakarun, hvert um sig, reyni að ná fram einhverjum séreinkennum á framleiðslu sinni sem neytandinn falli fyrir. Þá spyr höfundur „Er ekki hægt að fá sykurminni brauð?“. Með þessu gefur höfundur til kynna að óhæfilegt magn sykurs sé yfirleitt í brauðum hér á landi. Enn skal höfundur upplýstur um þaö að mikill meirihluti þeirra brauð- Kjallarinn Haraldur Friðriksson formaður Landssambands bakarameistara haft metnað til þess að vera fljótir að tileinka sér nýjungar. í því sam- bandi skal hann upplýstur um að helstu einkenni þeirrar brauðbylt- ingar sem hann nefnir í grein sinni voru þessi: Auknar trefiar í brauð- um (gróft korn), minni sykur og minni fita. Það má fullyrða að á þessu sviði voru íslenskir bakarar 15 til 20 árum á undan starfsbræðr- um sínum annars staðar á Norður- löndum. Þótt margumrædd grein sé ómerkt verður að ætla að höfundur hennar sé umsjónarmaður „Sæl- kerasíðunnar", Sigmar B. Hauks- son. Sigmar þessi hefur nokkur undanfarin ár gert sitt ýtrasta til að skapa sér þá ímynd hjá almenn- ingi í þessu landi að hann sé einn mestur sérfræðingur hérlendur á sviði matargerðarlistar. Sjálfsagt „Bakaríin í landinu eiga í mikilli sam- keppni um hylli neytendanna og bygg- ist því afkoma þeirra á því hversu vel þeim tekst að ná til þeirra.“ tegunda sem bakaríin hafa á boð- stólum eru án sykurs, þannig að það er ekki erfiðleikum bundið fyr- ir íslenska neytendur að verða sér úti um sykurlaus brauð. Þessu til staðfestingar skal enn bent á rann- sóknir þær sem Rannsóknastofnun landbúnaðarins hefur gert á þessu sviði. Á undan starfsbræðrum á Norðurlöndum Undir lok greinarinnar er eins og höfundur vilji bæta fyrir það sem áður hefur verið sagt þegar hann segir að íslenskir bakarar séu góðir fagmenn. Þar fer hann þó með rétt mál. íslenskir bakarar hafa ætíð hefur honum tekist þessi ætlan sín að nokkru leyti, þótt honum muni reyndar skorta alla faglega mennt- un á sviði matargerðar. Vilji maðurinn hins vegar láta taka sig alvarlega, sem maður verður að ætla að hann vilji, væri viturlegt af honum að afla sér betri upplýsinga um staðreyndir mála áður en hlaupið er með staðlausa stafi í fiölmiðla eins og gert var í þessari grein. íslenskir bakarar munu hins vegar, í ljósi þessarar reynslu, taka öllum yfirlýsingum hans á sviði matargerðar af full- kominni varfærni. Haraldur Friðriksson „ ... algengast er að bakarí hafi á boðstólum um tuttugu brauðtegundir hvert.“ Hugmyndafræði Vilt þú fræðast um hugmyndafræði Kvennalistans. Fundur í kvöld kl. 20.30 að Laugavegi 17, 2. h. Allar velkomnar. Kvennalistinn Nauðungaruppboð á eftirtalinni fasteign fer fram í skrifstofu embættisins á neðangreindum tíma: Vesturgata 25, miðhæð, þingl. eigandi Landsbanki íslands, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Landsbanka Islands. BÆJARJARFÓGETINN Á AKRANESI Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins á neðangreindum tíma: Bakkatún 26,26A, 26B, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppaboðsbeiðend- ur eru Iðnþróunarsjóður, Guðjón Ár- mann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Bakkatún 28, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Iðnþróunarsjóður, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Bakkatún 28A, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Iðnþróunarsjóður, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Bakkatún 30, þingl. eigandi Þorgeir og EUert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Iðnþróunarsjóður, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Bakkatún 32, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Iðnþróunarsjóður, Gjaldskil sf„ Ásgeir Thoroddsen hdl„ Guðjón Armann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Garðabraut 45, 01.01., þingl. eig. Ás- geir Gunnarsson, Elínborg Sigurðar, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Lögþing hf„ Magnús Haukur Magnússon hdl„ Veðdeild Landsbanka íslands, Indriði Þorkelsson hdl. og Jakob J. Havsteen hdl.__________________________ Garðabraut 45, 01.02., þingl. eig. Har- aldur Ásmundss., María Gunnars- dóttir, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Lög- mannsstofan Kirkjubraut 11 og Veð- deild Landsbanka fslands. Háholt 12, neðri hæð, þingl. eigandi Sigríður Andrésdóttir, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka íslands, Gjaldskil sf„ Sigurður I. Halldórsson og Lögmannsstofan Kirkjubraut 11. Háholt 26, þingl. eigandi Guðmundur Bjamason, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Inn- heimtumaður ríkissjóðs og Sigríður Thorlacius hdl. Höfðabraut 12, neðsta hæð, þingl. eig- andi Sigurður Ámason, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeið- endur em Lögmannsstofan Kirkju- braut 11, Tryggingastofoun ríkisins og Guðjón Ármann Jónsson hdl. Krókatún 22, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Iðnþróunarsjóður, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Krókatún 24, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Iðnþróunarsjóðm-, Guðjón Armann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Krókatún 24A, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Iðnþróunarsjóður, Guðjón Armann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Krókatún 26, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Iðnþróunarsjóður, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Krókatún 26A, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf„ föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Iðnþróunarsjóðm-, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Iðnlánasjóður. Krókatún 5, efri hæð og bílskúr, þingl. eig. Gróa L. D. Haraldsd., Hjörvar Jóhannsson, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands og Lög- mannsstofan Kirkjubraut 11. Presthúsabraut 24, þingl. eigandi Jó- hann Adolf Haraldsson, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeið- endur em Veðdeild Landsbanka ís- lands, Lögmannsstofan Kirkjubraut 11, Hafsteinn Hafsteinsson hrl. og Guðjón Armann Jónsson hdl. Sandabraut 14, neðri hæð, þingl. eig- andi Kristjana Ágústsdóttir, föstudag- inn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðs- beiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Akraneskaupstaður og Sig- ríður Thorlacius hdl. Vallholt 13, kjallari, þingl. eigandi Guðni Jónsson, föstudaginn 15. mars 1991 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Innheimtumaðm- ríkissjóðs. ' BÆJARJARFÓGETINN Á AKRANESI FERÐAGETRAUN og Flugleiða Má bjóða þér til Amsterdam? Það eina sem þú þarft að gera til að eiga möguleika á að vinna farseðla fyrir tvo til Amsterdam og heim aftur og þar að auki gistingu í tveggja manna herbergi á góðu hóteli í fjórar nætur er að svara spurningum sem birtust 18. og 25. febrúar og 4. mars. Skilafrestur er til 15. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.