Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUiR 13. MARS 1991. 15 Jú, það skiptir máli Stundum er haft á orði að stjórn- málamenn séu allir eins: Að það sé sami rassinn undir þeim öllum. Þeir sem á annað borð láta sig stjórnmál einhverju varða vita hins vegar að þessi gamla goðsögn er bábilja. Það skiptir nefnilega máli hvaða afstöðu fólk tekur í kjörklefanum því þótt ekki sé reg- inmunur á stefnu flokkanna eru áherslur þeirra og forgangsröð á verkum með afar misjöfnu móti. - Lítum nánar á. Allt frá árinu 1978 hafa Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur ráðið mestu um stjóm bæjarmála í Kópa- vogi og síðustu fjögur ár verið einir í meirihluta. Á þessum tíma hefur Kópavogur þróast í fyrirmyndar- bæjarfélag á flestum sviðum þar sem áherslan á manngildi og menningu hefur verið meiri en víð- ast annars staðar. Vorið 1990 skipuðust veður í lofti. Þá kræktu saman klónum fimm bæjarfulltrúar sjálfstæðismanna og einn framsóknarmaður og mynduðu meirihluta. Var fram- sóknarmaðurinn gerður að hæjar- stjóra á hærri launum en menn i hans stöðu eiga að venjast, eða 5-6 foldum meðallaunum kennara, svo að dæmi sé tekið. Mál aldraðra í svelti Fyrst skulum við líta á málefni aldraðra. Á þeim vettvangi hefur verið lyft grettistökum í Kópavogi á síðustu árum. Nú er því skeiði lokið. Ákveðið er að stöðva bygg- ingu þjónustumiðstöðvar fyrir aldraöa á miðbæjarsvæði og dregið er úr framlögum til bygginga í Kjallarinn Vaiþór Hlöðversson skipar 3. sæti G-listans í Reykjaneskjördæmi þeirra þágu í Vogatungureit. Sama er að segja um stuðning í verki við Sunnuhlíðarsamtökin: Á þessu ári mun bærinn ekki kaupa eina ein- ustu íbúö í nýbyggingum samtak- anna en áður hafði verið ákveðið að kaupa þar sex íbúðir fyrir aldr- aða skjólstæðinga bæjarins. Leikskólar í svelti Ekki tekur betra við þegar kemur að yngstu borgurunum. Strax eftir kosningar sl. vor var tekin ákvörð- un um að leggja niður leikskólann Kópasel í Lækjarbotnalandi en þar hefur Kópavogur rekiö afar sér- stæða starfsemi um margra ára skeið. Tillaga frá bæjarfulltrúum Alþýðubandalagsins um að halda þar áfram rekstri var felld með 9 atkvæðum gegn 2. Áfram er haldið á sömu braut. Taka átti nýjan leikskóla í Suður- hlíðum í notkun sl. haust. Það hús er ekki enn komið í fullan rekstur og verður sennilega ekki fyrr en síðla þessa árs. Hvað rekstur leik- skólanna í Kópavogi varðar eru framlög skorin við nögl og m.a. ákveðið að fækka starfsmanna- fundum og fjölga börnum á deild- um. Loks gæla bæjarfulltrúar fram- sóknaríhaldsins í Kópavogi við þá hugmynd að loka ungbarnadeild- um leikskólanna í Kópavogi með þeim rökum að þær séu of dýrar í rekstri! Og ekki þarf að taka fram að auðvitað er frekari bygging slíkra skóla í bænum ekki á döf- inni. Já, það skiptir máli hverjir stjórna. Heilsugæslan í svelti Kópavogsbúar eru nú um 16.500 talsins. Þeir mega láta sér lynda afar bágborna heilsugæsluþjón- ustu þar sem áðeins ein heilsu- gæslustöð er á miðbæjarsvæði. Sú stöð er mjög góð sem slík en býr við svo þröngan kost að hreint neyðarástand hefur skapast. A þessu ári er ekki sett ein ein- asta króna úr bæjarsjóði til að þrýsta á um byggingu eða leigu húsnæðis fyrir nýja stöð í austur- hluta bæjarins. Tillaga bæjarfull- trúa Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks um nokkurra milljóna króna framlag til þess verkefnis var felld í atkvæðagreiðslu. Jú, það skiptir máli hveijir stjórna. Menningarmál í svelti Strax að loknum kosningum árið 1986 ákvað meirihluti Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks í bæjar- stjórn að efna til starfs bæjarlista- manns. Hafa nokkrir Kópavogs- búar notið þessa stuðnings við menningariðkun sína. í nýsamþykktri fjárhagsáætlun er þetta starfsgildi lagt af. Er fróð- legt fyrir listunnendur í Kópavogi að íhuga slíka ráðstöfun, sérstak- lega þá sem ljáðu Framsóknar- flokki eða Sjálfstæðisflokki at- kvæði sitt í síðustu kosningum. Jú, það skiptir máli hverjir stjórna. Valþór Hlöðversson „A þessu ári er ekki sett ein einasta króna úr bæjarsjóði til að þrýsta á um byggingu eða leigu húsnæðis fyrir nýja stöð í austurhluta bæjarins.“ Ráðhús Reykjavikur: Kostnaður og framkvæmd Myndin sýnir skiptingu kostnaðar vegna hönnunar og framkvæmda milii ára. I Dagblaðinu þann 5. mars heldur Einar Árnason hagfræðingur því fram að ég hafl viljað bera fram- kvæmdakostnað við byggingu ráð- hússins saman við áætlanir sem gerðar hafi verið „eftir á“. Þetta er alrangt. Ég hef viljað miða við þá áætlun sem lögð var fram og sam- þykkt í borgarráði í janúar 1989. Þá voru 14 mánuðir síðan byijað var að hanna húsið, 30 mánaða hönnunarvinna óunnin, 8 mánuðir síðan framkvæmdir hófust en 40 mánuðir eftir af framkvæmdatím- anum, en eins og menn muna var fyrsta skóflustungan tekin 14. apríl 1988 og húsið verður fullbúið 14. apríl 1992. Nú eru horfur á því að kostnaður- inn verði þá orðinn 20% hærri en áætlunin, og það hef ég talið viðun- andi, en þegar áætlunin var lögð fram var einmitt kynnt að búast mætti við slíkum frávikum. Verkefnið „á hraðbraut“ Þeir sem vilja kynna sér feril ákvarðanatökunnar, og ég vona að einhverjir geri það af fróðleiksfýsn og til að læra af reynslunni, verða aö átta sig á því að ráðhúsið er hannað og byggt á miklum hraða og að það er einungis hægt með því að teikna og byggja að miklu leyti á sama tíma. Borgarstjórn sam- þykkti í okt. 1987 „að þar sem bygg- ingin stendur á viðkvæmum stað skal hraða framkvæmdum eins og frekast er kostur“. Því var beitt þeirri aðferð sem hér var lýst, að keyra verkefnið „á hraðbraut". Sú aðferð hefur auövitað hæði kosti og galla, og einn stærsti kosturinn er tímasparnaðurinn; heildarferill- inn er nánast helmingi styttri í þessu tilfelli heldur en ella hefði orðið þar sem hönnunin tekur tæp 4 ár. Nú er það svo að fullnaðarhönn- un er nauðsynleg forsenda fyrir Kjallarmn Stefán Hermannsson aðstoðarborgarverkfræðingur nákvæmri kostnaðaráætlun nema menn geti boriö verk saman við önnur svipuð verk sem áður hafa verið unnin. Þetta var ekki fyrir hendi haustið 1987. Tilefnið var tal- ið það mikilvægt að samkeppni fór fram um gerð hússins, dómnefnd, sem að meirihluta var skipuð arki- tektum, valdi það hús sem best mætti hæfa þessum stað, og borg- arstjórn ákvað að byggja sam- kvæmt þeirri tillögu sem hlaut fyrstu verðlaun. Hugmyndir voru nefndar um kostnað en þær voru ekki byggðar á áætlunum og ekki forsenda ákvörðunar heldur var þeim einungis varpaðvfram til að gefa hugmynd um stærðargráðu. Hönnuðir höfðu á þessum tíma ekki verið ráðnir og stærð hússins samkvæmt samkeppnistillögu var ekki endanleg. Til þess að ganga upp... Síðan hófst hönnun af fullum krafti og 22. febrúar 1988 liggur stærð yfirbygginga fyrir og verk- efnisstjórn skrifar borgarráði um það og birtir bráðabirgðaáætlun miðað við 90 bílastæði í kjallara á einni hæð, 979 millj kr„ sem svarar til 1591 millj. kr. á núverandi verð- lagi. Þó var haldið opnum mögu- leika á að fjölga bílastæðum í kjall- ara og er það lagt til með bréfi 25. júlí 1988 og er þá frumáætlun miö- uð við 1 'A kjallara með 130 stæðum kr. 1071 millj. sem svarar til 1843 millj. kr. á núverandi verðlagi. í janúar 1989 er svo lögð fram kostn- aðaráætlun eins og áður sagði og svaraði hún til 2234 millj. kr. á núverandi verðlagi sem var 21% hærri upphæð en frumáætlunin frá 1988 sagði til um. Eins og fram hef- ur komið er nú gert ráð fyrir að kostnaður verði 2700 millj. kr. og er það 45% hærra heldur en frum- áætlunin 1988 og 20% hærra en áætlunin frá 1989. í verkefnisstjórnarfræðum er stundum talað um hvaða skilyrði lausn verkefnis þurfi að uppfylla svo það teljist hafa gengið upp, „success criteria". Ef fjárfest er í verksmiðju eru skilyrðin þau að afköst verksmiðjunnar séu eins og við var búist, að gæði vörunnar, sem framleidd er séu viðunandi og að stofnkostnaður sé sem næst áætlun svo að ekki þurfi að hækka vöruverð til að bera uppi hærri afskriftir og vexti af stofnkostnaði. Ef þú lætur mála málverk hljóta skilyrðin að vera önnur. Borið saman við þjóðarbókhlöðu Endurbygging Viðeyjarstofu og framkvæmdir í Viðey urðu fimm- falt dýrari heldur en fyrst var talið. Enginn hefur á það deilt, enda ekki farið illa með fé, og allir eru sam- mála um að vel hafi tekist til. Á sama hátt mun fara með ráðhúsið, það mun standa eða falla með hst höfundanna, og hvort verðlaunatil- lagan var rétt valin, og kostnaður- inn verður þar ekki aðalatriðið, þó vissulega þurfi að sýna aðgát eins og frekast er unnt. Einar Árnason nefnir í sinni grein að hann hafi verið íbúi við Tjarnargötu haustið 1987. Lítið hef- ur heyrst í því fólki síðan þann vetur en í febrúar 1988 skrifuðu húseigendur við Tjörnina borgar- yfirvöldum bréf og höfðu af ýmsu áhyggjur. Spurt var um stöðu jarðvatns á byggingartímanum, um það hvort stálþilið kringum grunninn mundi leka, um gerð jarðlaga á svæðinu og um reynslu hönnuða og verk- taka, um stærð vörubíla á bygging- artímanum og um hávaða og titring frá vinnuvélum. Allt voru þetta eðlilegar áhyggjur en verkið hefur í alla staði gengið eðlilega og ekki valdið meiri truflun heldur en allt- af má búast við þegar byggt er í gömlum bæjarhluta. Ég hef til gamans fengið (að hluta til) upplýsingar um kostnað og framvindu við byggingu þjóðar- bókhlöðu svo menn geti borið sam- an sér til fróðleiks. Forsögn er gerð 1971. Skóflustunga tekin 1978. Fyrstu kostnaðaráætlun hef ég ekki fengið, heldur ekki þá síðustu, en kostnaðaráætlun frá 1988 var 100% hærri en áætlun frá 1983, allt reiknað upp til verðlags. Varla hef- ur tímapressan gert hönnuðunum erfitt fyrir í þessu verki, kannski hiö gagnstæða, en framkvæmdum er hvergi nærri lokið. Hvað halda menn að vextir á byggingartíman- um kosti í svona hægagangi? Stefán Hermannsson. . verkið hefur í alla staði gengið eðlilega og ekki valdið meiri truflun heldur en alltaf má búast við þegar byggt er 1 gömlum bæjarhluta.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.