Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991. Iþróttir Hvað gerir kvennaliðið? • Guðríður Guðjónsdóttir. í dag hefst á Norður-Ítalíu, C-heimsmeistarakeppni kvenna í handknattleik. Þar keppa 13 þjóðir um fimm sæti í næstu B-keppni og er íslenska landsliðið á meðal þátttak- enda. íslensku stúlkumar héldu utan í gær og mæta ítölum í sínum fyrsta leik á morgun. Liðunum 13 er skipað í tvo riðla. í A-riðli eru ísland, Holland, Ítalía, Portúgal, Finn- land og Belgía en í B-riðli eru Tékkóslóvakía, Ungverjaland, Spánn, Sviss, Grikkland, Tyrkland og ísrael. Tvær efstu þjóðir í hvoram riðli komast beint í B-keppnina og síðan mætast hðin sem hafna í þriðja sæti riðlanna í úrslitaleik um 5. sætið. Taldar eru nokkrar líkur á að ísland geti náð öðru sætinu í A-riðli en reiknað er með að Holland vinni þann riðil. ísland hefur sjaldan teflt fram sterkara eða reyndara kvennalandsliði en í þessari keppni. Leikið er við Ítalíu á morgun, Portúgal á sunnudag, Finnland á mánudag, Holland á miðvikudag og loks við Belgíu á fimmtudaginn í næstu viku. Um aðra helgi verður síðan leikið til úrshta um einstök sæti. -VS Broddi Krisíjánsson. Badminton: Broddi sterkur Broddi Kristjánsson lék í gær gegn Dananum Peter Knudsen á All England-stórmótinu í bad- minton sem fram fer í Englandí. Broddi sigraði með algerum yfirburðum í íyrri lotunni, 15-0, og í þeirri síðari, 15-12. Broddi er kominn í aðalkeppnina í ein- hðaleiknum. -SK Körfuknattieikur: Thomas áfram hjá Haukum? Bandaríkjamaðurinn Glenn Thomas mun að öllum líkindum stýra úrvalsdehdarhði Hauka í körfuknattleik álram á næsta ári. Forráðamenn Hauka eru mjög ánægðir með störf hans þó svo að liðinu hafi ekki tekist aö vinna sér sæti í úrslitakeppninni. Thomas hefur gert góða hluti og hefur unnið gott starf í þjálfun yngri fiokka félagsins og þá er hann mjög ánægður með dvöl sína hér á landi. Hann var á dög- unum ráðinn astoöarþjálfari landshðs karla og kvenna í fullu samráði viö Haukana. Ekki er enn ljóst hvort Damon Vance leiki áíram meö liðinu á næsta keppnistímabili. Vance hélt heimleiðis til Bandaríkjanna í gær en forráðamenn körfu- knattleiksdeildar Hauka eru með drög af samningi við leikmann- inn. -GH Robinson varð stigakóngur - í úrvalsdeild og skoraði alls 748 stig Rondey Robinson, Bandaríkja- maðurinn í liði Njarðvíkinga, varð stigakóngur úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Robinson skoraði 748 stig í 26 leikjum Njarðvíkinga, eða tæp 29 stig að meðaltali í leik. Ivan Jonas, Tékkinn hjá Tinda- stóli, varö annar og Jonathan Bow, Bandaríkjamaðurinn hjá KR, þriöji. Magnús Matthíasson, Val, varð fjórði og jafnframt stigahæsti íslendingur- inn í deildinni í vetur. Hér á eftir fer hsti yfir 40 stiga- hæstu leikmenn úrvalsdeildarinnar 1990-1991: 1. Rondey Robinson, Njarðvík...748 2. Ivan Jonas, Tindastóli......690 3. Jonathan Bow, KR............634 4. Magnús Matthíasson, Val.....608 5. Falur Harðarson, Kefiavík...559 6. Jón Amar Ingvarsson, Haukum 543 7. Franc Booker, ÍR............531 8. ValurIngimundarson,Tindast..524 9. Dan Krebbs, Grindavík.......523 10. Bárður Eyþórsson, Snæfelli.515 11. TeiturÖrlygsson,Njarðvík...492 12. David Grissom, Val.........482 13. Sigurður Ingimundars, ÍBK..480 14. Sturla Orlygsson, Þór......475 15. Guðmundur Bragason, UMFG .457 16. Brynjar Harðarson, Snæfelli.... 421 17. Jón Kr. Gíslason, Keflavík.403 18. Pétur Guðmundsson, UMFT ....369 19. Konráð Óskarsson, Þór......369 20. Tomas Lytle, Keflavík......359 21. ívarÁsgrímsson, Haukum.....357 22. JóhannesKristbjöms.,UMFG .351 23. Jón Öm Guðmundsson, Þór.....335 24. Páll Kolbeinsson, KR.......327 25. Cedric Evans, Þór..........317 26. Damon Vance, Haukum.........316 27. SteinþórHelgason, Grindavík.. 315 28. Friðrik Ragnarsson, Njarðvík.. 311 29. Douglas Shouse, ÍR.........305 30. Dan Kennard, Þór...........296 31. Axel Nikulásson, KR........295 32. Einar Einarsson, Tindastóli.284 33. Albert Óskarsson, Keflavík..283 34. PálmarSigurðsson,Haukum...277 35. Henning Hennings, Haukum.... 275 36. Tim Harvey, Snæfelli.......274 37. Matthías Einarsson, KR......258 38. ísak Tómasson, Njarðvík....249 39. KristinnEinarsson, Njarövík...231 40. Karl Guölaugsson, ÍR.......223 -VS • Bjarki Sigurðsson átti ágætan leik í liði Vikings gegn FH í gærkvöldi og hér engum vörnum við frekar en Bergsveinn Bergsveinsson markvörður. Meistarar - FH-ingar enn án sigurs í úrslitakepp „Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur í baráttunni um íslandsmeistara- titilinn. Ég var ánægður með sóknar- leikinn en varnarleikurinn var lélegur og við þurfum svo sannarlega aö bæta hann,“ sagði Bigir Sigurðsson, línu- maðurinn snjalli í liði Víkings, sem átti frábæran leik með hðið sínu þegar Vík- ingur lagði FH að velli, 30-27, í úrslit- keppninni í handknattleik í gærkvöldi. Það ópnuðust allar flóðgáttir strax í byrjun leiks og liðin skiptust áað skora og eftir 15 mínútna leik voru mörkin orðin 18 eða, 9-9. Þá skoraði Árni Frið- leifsson 4 mörk í röð og þá má segja að með þessu forskoti hafi Víkingur lagt grunninn að sigrinum. Staðan í leikhléi var 17-13 og mestur munur í síðari hálf- leik var 7 mörk, 21-14. FH-ingar náðu að rétta sinn hlut, vamarleikur liðsins lagaðist um tíma og tvívegis var mun- urinn aðeins 2 mörk en nær komust Hafnfirðingar ekki. Þetta var þriðji leikur hðanna í úrsli- takeppninni, Víkingar eru á toppnum, hafa sigrað í tveimur leikjum og tapað einum en FH-ingar hafa enn ekki unnið leik og víst er að íslandsmeistaratitill- inn er genginn úr greipum Hafnfirðing- anna. Eins og sést á úrslitum leiksins „Hefur liðið vel á lslandi“ segir bandaríski stigakóngurinn, Rondey Robinson, hjá Njarðvík „Mér finnst körfuboltinn hérna mjög góður og mun betri en ég átti von á. Sérs- taklega finnst mér mikið af góðum skyttum í úrvalsdeildinni. Það er jákvætt fyr- ir íslenskan körfubolta að leyfa erlenda leikmenn og margir íslenskir leikmenn gefa okkur erlendu leikmönnunum lítið eftir,“ segir Rondey Robinson, 23 ára Bandaríkjamaður frá Chicago, sem leikið hefur með liði Njarðvíkinga í úrvals- deildinni í vetur en DV spjahaði við hann á dögunum. að taka því hvernig dómarar dæma. Sumir dómarar eru mjög góðir hér og aðrir mjög slæmir eins og gerist og gengur alls staðar." „í Reykjanesmótinu í haust var ég far- inn að heyra það að menn væru óá- nægðir með mig og jafnvel að það ætti að reka mig. Ég spilaði ekki vel þá og fyrst eftir að ég kom hingaö var ég bæði þjálfari og leikmaður og það gekk einfaldlega ekki upp hjá mér.“ En ef Njarðvíkingar hafa áhuga þá er ég tilbúinn að vera áfram í Njarðvík." Verður líklega áfram í UMFN - Leikur þú með Njarðvík næsta vetur? „Njarðvíkingar hafa rætt við mig um næsta vetur og ég er filbúinn tU að vera hér áfram. Einnig hafa önnur hð haft samband við mig varðandi næsta vetur. Brjálaðir áhorfendur „Mér finnst áhorfendurnir hér á landi alveg brjálaðir. Sérstaklega á Suður- nesjum og á Sauðárkróki. Þeir styðja vel við bakið á sínum mönnum." Menn rífast of mikið - Hvernig finnst þér dómgæslan hér? „Mér finnst leikmenn hér rífast alltof mikið í dómuram. Það þýðir einfaldlega ekkert að gera það. Menn verða bara Við erum með besta liðið - Nú er úrslitakeppnin framundan. Hverjir verða meistarar? „Ég held að við í Njarðvík séum meö besta' liðið. Strákarnir þekkjast mjög vel og þaö hefur mikið að segja. Strák- arnir vita hvað þarf til að við verðum meistarar. Úrslitaleikurinn veröur gegn Keflavík en ég óttast Keflvíkinga mest. Jón Kr. Gíslason og Falur Harðar- son ná ótrúlega vel saman og eru nán- ast eins og tvíburar inni á vellinum." stæðingarnir? „Erfiðasti andstæðingurinn í dei inni er líklega Valur Ingimundarson hann nær að einbeita sér algerlega leiknum. Þá er hann illviðráðanleg Einnig finnst mér Magnús Matthíass í Val mjög erfiður. Þá má nefna T Örlygsson, þótt hann sé félagi mii sem er mjög skemmtilegur leikmað og hann gæti örugglega náð lang körfuknattleiknum í Bandaríkjunun Margir erfiðir andstæðingar Hvaða leikmenn era erfiðustu and- Kvenfólkið bætir upp verðið „Mér hefur liðið vel á íslandi en hér allt gífurlega dýrt og ég skil ekki hvei ig fólk getur lifað hér. Kvenfólkið h sem er mjög fallegt, bætir þó vöruvei ið örugglega upp að einhverju leyt sagði Rondey Robinson. -SK/ÆIV Hörkuleikir í kvöld • Jakob Sigurös- son fyrirliöi Vals. Þriðju umferð úrslitakeppninnar um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik lýkur í kvöld með tveimur leikjum, en í gærkvöldi mættust Víkingur og FH. Stjaman og Valur leika í Garðabæ klukkan 20 og er þar um einn af mikilvægustu leikjun- um að ræða. Takist Stjömumönnum að sigra veröa þeir komnir á fuht í slaginn um titil- inn, en það veröur hægara sagt en gert gegn Valsliði sem er í miklum ham um þessar mundir og hefur gjörsigrað ÍBV og FH í fyrstu tveimur umferðunum. Á sama tíma eigast Haukar og IBV við í Strandgötuhúsinu í Hafnarfiröi. Haukar hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum en ÍBV er með tvö stig eftir sigur á Víkingi. Eyja- menn gætu blandaö sér í baráttuna um efstu sætin með sigri og leikurinn er síðasta hálm- strá Haukanna til að láta eitthvað að sér kveða. • í fallkeppninni eru þrir leikir, allir klukkan 20. KR og ÍR mætast í Laugardalshöll, Selfoss og Fram á Selfossi og Grótta mætir KA á Seltjamarnesi. • í úrslitakeppni 2. deildar mætast Breiðablik og Keflavík í Digranesi klukkan 20. -VS FIRMA- OG FELAGSHOPAKEPPNI KR 1991 Keppnin fer fram 9.-18. mars í stóra sal KR. 4ra manna lið án markvarðar. 5 lið í riðli. Óheimilt að nota leikmenn sem spiluðu í 1. eða 2. deild 1990. Getum enn bætt við liðum laugardaginn 16. mars. Þátttaka tilkynnist fyrir kl. 19 fimmtudaginn 14. mars í síma 27181. Knattspyrnudeild KR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.