Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Page 24
48
rwi ?HAV HIIOAaUHIVCÖM
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991.
Valið er auðvelt
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. „Davíð er miklu hættu-
legri maður en Þorsteinn," segir greinarhöfundur m.a.
Óðum styttist nú í alþingiskosn-
ingar sem (eins og stendur) allar
horfur eru á að verði 20. apríl nk.
Þær verða þá færðar fram um
margar vikur eftir kröfu Sjálfstæð-
isflokksins og þarf til þess laga-
breytingu sem Alþingi væntanlega
samþykkir áður en það fer í kosn-
ingafríið. Forsendur þeirrar til-
færslu sýnast þó veigalitlar. Auk
þess er mjög svo hæpið að treysta
á brúklegt tíðarfar kosningadaginn
- hvað þá allan tímann sem barátt-
an og fundirnir standa yfir.
Sumir eru fljótir að gleyma
Hingað til hafa menn talið sjálf-
sagt mál aö hafa lögbundnar al-
þingiskosningar að sumarlagi
(maí-júni) á fjögurra ára fresti en
nú skulu þær færðar á veturinn.
Hefði þó mátt ætla að ekki væru
allir búnir að gleyma því að síðast
í fyrra var hin versta tíð með stór-
hríðum og ófærð fram yfir sumar-
mál og til 1. maí. En þeir í Sjálfstæð-
isflokknum telja e.t.v. best að fólk
komist ekki á kjörstaði á lands-
byggðinni, enda hefur sá flokkur
hlutfallslega langmest fylgi í stór-
Reykjavík.
Ekki munu alhr hafa verið hrifn-
ir af þessari tilfærslu kjördagsins.
Forsætisráðherra, Steingrímur,
mun hafa viljað láta kjósa 11. maí
en látið var undan kröfu Sjálfstæð-
isflokksins (til að halda friðinn?).
Óvanalegt, óyndislegt
og óviðfelldið
Búist var við að það yrði meðal
síðustu verka Þorsteins Pálssonar
sem formanns að fá kosningunum
flýtt og færa þær á veturinn og
búist var við að skipt yrði um for-
mann á landsfundinum síðasta.
Það er þó mjög óvanalegt og óynd-
islegt að skipt sé um formann í
miðri kosningabaráttu og jafn-
framt ill meðferð á Þorsteini sem
eflaust hefur starfað eftir bestu
getu og samvisku. Hins vegar er
talið að flokkseigendaklíkan hafi
ráðið stefnunni þar á bæ og nú
virðist klíkan ætla að taka völdin
í landinu og hikaði þá ekki við að
KjaUarmn
Rósmundur G.
Ingvarsson
bóndi, Hóli, Tungusveit,
Skagafjarðarsýslu
sparka formanhinum þar eð hún
telur að Davíð muni fiska fleiri at-
kvæði.
Ljómasveipur um kóng
Alveg er það ósannað að Davíð
verði betri stjórnandi fyrir íhaldið,
enda sýnist óhjákvæmilegt að
meiri háttar árekstrar verði þegar
hann kemur inn á Alþingi. í borg-
arstjórn er hann nánast alveg ein-
valdur en á Alþingi verður að ætla
að hann komist ekki upp með ein-
ræði í þingflokknum en maðurinn
ráðríkur og skapþungur mjög.
Mikill ljómi er um Davíð sem
borgarstjóra og halda margir að
hér sé mikill snillingur á ferð. En
hafa menn hugleitt þann mikla
mismun sem er á því hve auðvelt
er að stjórna kaupstað eins og
Reykjavík, sem hefur óhemjumikil
fjárráð og eðli málsins samkvæmt
mjög vel hæfum starfsmönnum á
að skipa (yfirmönnum borgar-
mála), og hins vegar Akureyri og
öðrum kaupstöðum sem eiga við
erfiða og sums staðar mjög erfiða
fjármála- og atvinnustöðu að
glíma? Þar sem peningar eru nógir
er enginn vandi að stjórna. Það
getur hver sæmilega skynsamur
maður - og þeir eru margir, sem
betur fer. Þar sem skuldabaslið er
og samdráttur eða kyrrstaða í at-
vinnumálum þar er erfitt að
stjórna svo að vel fari og eigi á
færi meðalmanna. Hvað yrði úr
Davíð Reykjavíkurkóngi við slíkar
aðstæður? A það hefur ekki reynt.
Peningafurstarnir
hafa tögl og hagldir
Menn skyldu hafa í huga að þótt
skipt sé um formann eru engar lík-
ur til aö Sjálfstæðisflokkurinn
batni. Peningafurstarnir, flokks-
klíkan, mun áfram hafa tögl og
hagldir. Að auki hafa þeir Þor-
steinn og Davíð í flestu sömu
stefnu. Báðir stefna að inngöngu
íslands í Efnahagsbandalag Evr-
ópu eins og fram hefur komið og
það er hið stóra mál sem kosið
verður um nú í lok vetrar (eða
hvenær sem kjördagurinn verður).
Þar er um að tefla líf eða dauða
sjálfstæðis íslendinga, hvort ísland
verður áfram frjálst og fullvalda
ríki eða hvort sjálfstæði þess verð-
ur fórnað fyrir einhver ímynduð
heimsins gæði og þjóðin koðnar svo
niður í efnahagslegu ósjálfstæði og
jafnvel hverfur í þjóðahafið eftir
aö hafa horft á útlendinga leggja
smám saman undir sig auðlindir
landsins og atvinnuvegi. Því fer
mjög fjarri að forystu Sjálfstæðis-
flokksins sé nú trúandi fyrir fjör-
eggi þjóðarinnar og enn síður eftir
að skipt hefur verið um formann.
Davíð er miklu hættulegri maður
en Þorsteinn.
Nýtt frjálshyggjuævintýri
er of dýrt
Þaö er gefið mál að ef Sjálfstæðis-
ílokkurinn vinnur kosningarnar
og tekur við stjórn þá verða dagar
þjóðarsáttar taldir og frjálshyggju-
öflin svonefndu hleypa vöxtum upp
og verðbólgu á skrið. Við það eru
jafnvel heildsalarnir, sem ílestir
eru sjálfstæðismenn, hræddir.
Hvorki þeir né aðrir hugsandi
menn vilja kynnast frjálshyggju-
dellunni aftur. Menn voru búnir
að fá nóg af þeirri hugsjón margra
sjálfstæðismanna sem hafði nær
gengið af mörgum atvinnuvegum
og fyrirtækjum dauðum.
Þar sem annarra og betri kosta
er völ kemur ekki til greina að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Við vilj-
um ekki fórna efnahagslegu sjálf-
stæði þjóðarinnar. Viö viljum ekki
sleppa verðbólgudraugnum og íjár-
mála-markaðs-ófreskjunni laus-
um. í báðum þessum málum er
hins vegar óhætt að treysta Fram-
sóknarflokknum og jafnvel Al-
þýðubandalaginu.
Rósmundur G. Ingvarsson
„Því fer mjög fjarri að forystu Sjálf-
stæðisflokksins sé nú trúandi fyrir fjör-
eggi þjóðarinnar og enn síður eftir að
skipt hefur verið um formann.“
Dagsbrún sf.?
„Og þá á ég náttúrlega ekki von á öðru
svari frá miðstjórn ASÍ en að það eigi
að fara eftir þessum lögum og að þau
séu gagnkvæm.“
Aðalfundur félagsins Dagsbrúnar
hefur ekki verið haldinn enn sem
komið er og virðist ekki standa til
hjá forráðamönnum félagsins aö
fara eftir lögunum um aðalfundinn
frekar en öll síðastliðin ár.
Dagsbrún kærð
Fyrir nærri því ári var Dagsbrún
kærð fyrir að fara ekki eftir lögum
um aðalfund félagsins til miö-
stjórnar ASÍ. Það var svo spuming
samkvæmt lögunum sem segja að
hver sá maður, sem brýtur lög fé-
lagsins, sé í raun og veru rækur
úr félaginu og ef þessi lög eru gagn-
kvæm ætti Guðmundur J. Guð-
mundsson að vera rækur úr félag-
inu.
Guðmundur hefur sjálfur bent á
í einu af mörgum áróðursblöðum
Dagsbrúnar aö menn eigi að fara
eftir þessum lögum og hvað það sé
í raun og veru mikilvægt.
Og þá á ég náttúrlega ekki von á
öðru svari frá miðstjóm ASÍ en að
það eigi að fara eftir þessum lögum
og að þau séu gagnkvæm.
Þá er það spurning hvort Guð-
mundur J. eigi rétt á lífeyrissjóðs-
láni eða fullum sjúkrabótum þar
sem hann hefur brotið þessi log
hvað eftir annað.
Það er svo spurning út af fyrir
Kjallarirai
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
verkamaður hjá Eimskip
og nemi í TÍ
sig af hveiju lögum félagsins hefur
ekki verið breytt fyrir löngu þar
sem formaður þess á að hafa eftir-
lit með að lögum félagsins sé fram-
fylgt. Einnig ætti Guðmundur J.
að hafa vit á að láta breyta þeim
þar sem hann hefur brotiö þau
svona oft eða í mörg ár og ekki
getaö farið eftir þeim sjálfur.
Þrátt fyrir aö það kosti allsherjar-
atkvæðagreiðslu til þess að fá þess-
um lögum breytt þá ætti formaður-
inn að hafa vit á að beita sér fyrir
því en þaö hefur hann alls ekki
gert enn sem komið er.
Mér var ekki boðið í veisluna
Það er ekki hægt að saka Guð-
mund J. um neitt annaö en víta-
vert gáleysi í starfi og ef hann verð-
ur gerður rækur úr félaginu á hann
ekki von á neinum atvinnuleysis-
bótum þar sem hann er sjálfur
valdur að sinni eigin uppsögn.
Aðalfundurinn verður núna
haldinn seint og síöar meir eins og
gefur að skilja og þá mun Guö-
mundur J. útskýra það fyrir mönn-
um að hann hafi veriö færður
vegna breytinga á fyrirkomulagi
innheimtu og að endurskoðun
reikninga sé ekki lokið eins og hef-
ur sjálfsagt átt sér stað í félaginu
öll síðastliðin ár ef maður á að
marka það sem Guðmundur J. hef-
ur verið að segja. Hann mun þá
útskýra þaö fyrir félagsmönnum í
næsta Dagsbrúnarblaði ásamt
þeim stórmerkilegu atburðum sem
áttu sér stað við veisluhöldin, og
þá á maður ekki von á öðru en að
birtar verði myndir af þessum at-
burði í næsta áróðursblaði, hvenær
nú sem það kemur út.
Þá skil ég ekkert í þessum for-
ráðamönnum hjá Dagsbrún að hafa
ekki boðið mér í þessa veislu þar
sem ég er fullgildur félagsmaður í
Dagsbrún og þar sem Guðmundur
J. bauð mig svona innilega velkom-
inn í félagið á sínum tíma. Hvemig
getur þetta eiginlega hafa átt sér
stað? Það kemur mér gjörsamlega
á óvart að þeir skuli hafa gleymt
mér.
Kostnaður og
lagabreytingar
Það væri hins vegar mjög fróðlegt
fyrir félagsmenn í Dagsbrún að fá
að vita eitthvað frá forráðamönn-
um Dagsbrúnar hvað þessi veislu-
höld kostuðu. En það fá félagsmenn
náttúrlega ekkert aö vita um í
næsta áróðursblaði en hugsanlega
gefst mönnum tækifæri til að
spyrja um það á næsta aðalfundi
félagsins en ég stórlega efast um
að forráðamenn Dagsbrúnar svari
slíkum fyrirspumum sem beint er
að þeim sjálfum.
Nú hef ég frétt að það stendur til
áð setja á stofn sérstaka laganefnd
í félaginu og muni þá hlutverk
hennar hugsanlega vera ætlað að
semja lög sem banna allt sem hefur
að gera með mótframboð í félaginu.
Og þá verður Guðmundur J. ráðinn
sem formaður félagsins næstu 150
árin og eftir daga Guðmundar
verður trúlega sérstakur miðill
sem mun hafa beint samband við
Guðmund J. um starfsemi félags-
ins. í framhaldi af því verður lögum
breytt, þannig aö ekki sé hægt að
nota þau gegn forráðamönnum
Dagsbrúnar á einn eða annan hátt.
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson