Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25; Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991.
Riðu um og
kveiktu
sinuelda
. Skemmdir urðu á trjáplöntum af
völdum sinubruna í ræktunarreit
roskinna hjóna í nágrenni við skóg-
ræktina á Akranesi í gær. Trjáplönt-
ur skemmdust einnig af völdum elds
við Árbæjarsafn í gærkvöldi.
Mikill reykjarmökkur lá yfir Akra-
nesbæ fram á kvöld þar sem ung-
menni og fleiri höfðu kveikt sinuelda
í nágrenni bæjarins. Bæjarstarfs-
menn, lögregla og fleiri unnu hörð-
um höndum við að slökkva eldana.
Tveir piltar á hestum fóru um svo-
kallaðan Flóa og kveiktu elda á ýms-
um stöðum. Þeir voru greinilega á
ferð til að valda sem mestum usla.
Lögreglan náði að lokum í þá. Þeir
gátu ekki gefið neinar haldbærar
skýringar á athæfi sínu.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
„logaði Suðurlandið í gær“ af völd-
um elda sem bændur höfðu lagt að
löndum sínum til að nýta sér tíðar-
farið. Litlu munaði að eldur kæmisc
að sandgræðslulandi í nágrenni Eyr-
arbakka.
Tilkynnt var um sinuelda á 12 stöð-
um í Reykjavík. - -ÓTT
Stórbruni á
Geldingalæk
Bráðabirgðalögin:
Ríkið sýknað
LOKI
Hrekur Hjörleifur næst
sjálft álmálið út úr þing-
húsinu?
Eg sH ekki undir
ofbekli Hiorleifs
„Ég frestaðí þessum fundi og
ætlaði að halda honum áfram í dag
en iðnaðarráðherra réðst í það að
láta shta fundinum. Þar með verð-
ur þetta mál ekki á dagskrá í dag
og með öllu óvíst hvenær málið
verður rætt á ný,“ sagði Guðrun
Helgadóttir, forseti Sameinaðs Al-
þingis, í samtali við DV í morgun.
Þingforeti frestaði umræðum um
álmálið um klukkan þrjú í nótt og
yfirgaf húsið án þess að shta fundi.
Þingmenn héldu aö um stutta frest-
un væri að ræða.
Um þrjúleytið tilkynnti þingfor-
seti að hún hefði í hyggju að halda
fundi áfram til klukkan fjögur. Bað
hún þá sem voru á mælendaskrá,
Hjörleif Guottormsson og tvær
kvennalistakonur, að koma máli
sinu fyrir innan þess tima.
Hiörleifur Guttormsson lýsti yflr
óánægju sinni með þessar tímatak-
markanir þar sem hann hefði beðið
í meira en sólarhring eftir að fá
oröið. Sagðist hann vart verða bú-
inn með inngang að máli sínu
klukkan fjögur. „Þá frestaði þing-
forseti fundi og hvarf úr þinghús-
inu,“ sagði Hjörleifur við DV í
morgun.
„Ég harma það mjög að almennar
þingheföir eru ekki virtar. Það hef-
ur verið dagljóst að Hjörleifur
Guttormsson hefur sérálit á þessu
máli. Það hefur fyrir löngu komið
fram og óþarfi að eyða tíma í það.
Það hefur verið venja hingaö til,
þegar þingi er að ljúka, að menn
virða samkomulag mihi stjórnar-
flokkanna og samkomulag viö
stjórnarandstöðuna um framgang
nauðsynlegustu mála. En það varð
þvi miður Ijóst að Hjörleifur Gutt-
ormsson ætlar að beita því ofbeldi
sem hann hefur rétt til samkvæmt
þingskaparlögum og taka allan
tíma í þetta mál svo að engin önnur
störf verði unnin i þinginu á með-
an. Forseti er ekki skyldugur að
sitja undir slíku. Klukkan þrjú i
nótt var ekki um annað að ræða
en fresta fundi,“ sagði Guðrún.
Salóme Þorkelsdóttir varaþing-
forseti hafði yfirgefið Alþingis-
húsið og var að leggja úr hlaði á
bíl sínum þegar hún var stöðvuð
og beðin um aö koma inn og slita
fundinum. Gerðí hún það á káp-
unni. Guðrún sagði i morgun að
álmálið yrði ekki rætt fyrr en þing-
ið heföi lokið öðrum störfum.
-hlh
Lögreglan lagði hald á áfengi og bruggtæki í gær:
Bruggarinn svaf
Mikill bruni varð á bænum Geld-
ingalæk í Rangárvallahreppi í gær-
kvöldi og nótt. 300 kinda fjárhús,
hlaða með nokkur þúsund heybögg-
um og tengibygging eyðilögðust al-
veg í brunanum en tvö fjárhús
skemmdust minna.
Eldurinn kviknaði um klukkan
hálfátta í gærkvöldi en slökkvistarf
stóð enn yfir þegar DV fór í prentun
í morgun. Ábúendur að Geldingalæk
voru inni í íbúðarhúsi þegar þeir
urðu varir við reykjarlykt. Vindur
stóð af fjárhúsunum. Fólkið hélt í
fyrstu aö lyktin kæmi frá sinubruna.
Síðan kom í ljós að eldur var kvikn-
aöur við hlööuna og fjárhúsin. -ÓTT
í áfengisf nyknum
Dómur var kveðinn upp i morgun
í máli BHMR gegn ríkinu vegna setn-
ingar bráðabirgðalaganna síðastliðið
sumar. Dómsorð féhu á þann veg að
ríkið er sýknað af kröfum stefnanda
og málskostnaður felldur niður. í
dómnum segir að líta verði svo á að
löggjafanum sé heimilt að skerða
samningsbundin laun manna án þess
að bætur komi fyrir th að framfylgja
efnahagsstefnu. Dóminn kváðu upp
Friðgeir Björnsson yfirborgardóm-
ari, Allan V. Magnússon og Jón L.
Arnalds borgardómarar.
-kaa
Lögreglan í Kópavogi stóð 22 ára
karlmann að verki við bruggfram-
leiðslu í vesturbænum í Kópavogi í
gærmorgun. Maðurinn leigði bílskúr
fyrir bruggframleiðsluna og höfðu
nágrannar kvartað yfir þessari lykt-
9terku athafnasemi hans. Reyndar
hafði maðurinn verið aðvaraður áð-
ur en lögreglan var kölluð á staðinn.
Þegar lögreglumenn bönkuðu upp
á hafði maðurinn sofnað yfir brugg-
inu sem var í framleiðslu hjá honum
inni í skúrnum. Maðurinn kvaðst
hafa verið við bruggstörf um nóttina.
í bílskúrnum fundust mjög fullkom-
in bruggtæki og 200 lítra tunna með
slatta af svokölluðum gambra í.
Einnig fundust ýmis efni sem notuð
eru við bruggframleiðslu. Lögreglan
lagði einnig hald á um tíu lítra af
tærum og tilbúnum landa.
Við skýrslutöku sagðist maðurinn
hafa staðið einn að framleiðslunni.
Hann kvaðst sjálfur hafa ætlað að
drekka landann og hafði ákveðið að
gefa kunningjum sínum með sér.
Maðurinn sagðist einnig hafa brugg-
að á síðasta ári.
Lögreglunni hefur verið kunnugt
um nokkurt magn af bruggi í umferð
á síðustu misserum - sérstaklega á
skólaböllum. Þó virðist slíkt hafa
minnkað á síðustu mánuðum, að
sögn lögreglunnar, það er eftir að
rannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík stöðvaði umfangsmikla
bruggverksmiðju í Landeyjum í des-
ember og fleiri verksmiðjur í Reykja-
vík.
-ÓTT
Háskóliíslands:
Röskva sigraði í kosningunum
Jóhann Marteinsson, varðstjóri i lögreglunni í Kópavogi, með tilbúinn landa
á flöskum sem lagt var hald á i bílskúr í gær. Bruggtækin á myndinni var
eigandinn með í fullri notkun þegar lögreglan kom og vakti hann.
DV-mynd S
Röskva, samtök félagshyggjufólks,
vann sigur í kosningum til Stúdenta-
ráðs sem fram fóru í Háskólanum í
gær. Röskva fékk 1504 atkvæði og 7
fuhtrúa en Vaka, félag lýðræðissinna,
fékk 1498 atkvæði og 6 fuhtrúa.
Þar sem 13 fulltrúar sitja í Stúd-
entaráði er komin upp pattstaða þar
sem Röskva hafði fyrir 6 fulltrúa en
Vaka 7.
Röskva og Vaka fengu sinn fulltrú
ann hvor í háskólaráð en Vaka fékk
um 150 atkvæðum meira í þeim kosn-
ingum.
Alls voru 5046 á kjörskrá og kosn-
ingaþátttaka var um 60% sem er með
því mesta sem verið hefur undanfar-
mar.
Veöriöámorgun:
Úrkomulaust
sunnanlands
og vestan
Á morgun verður norðaustan-
átt, líklega nokkuð hvöss norð-
vestantil á landinu. Um norðan-
og austanvert landið verða dálíth
él eða snjómugga og hiti nálægt
frostmarki. Sunnanlands og vest-
an verður úrkomulaust að mestu
og léttir heldur th síðdegis. Allt
aö 5 stiga hiti verður syöst a
landinu um hádaginn en líklega
frost aðra nótt.
>
0\9.
HtlMSENDINGA
-P
&
&
15
mm
&
—
í