Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Side 8
8 FIMMTUÐAGUR 18. APRÍL 1991. Útlönd DV Japanar gefa ekki eftir - vilja Kúrileyjamar aftur eða enga samninga við Sovétmenn Leiðtogar Sovétríkjanna og Japans reyna í dag til úrslita að ná ein- hverjum árangri er þriggja daga fundi, þar sem samskipti ríkjanna hafa verið rædd, lýkur. í gærkvöld var búist við að þeir sendu frá sér yfirlýsingu um að eitthvað hefði þok- ast í rétta átt en eftir morgunfund var ákveðið að halda viðræðunum áfram. Engar fréttir berast af því sem þeim Gorbatsjov forseta og Kaifu forsætis- ráöherra fer á milli en blaðamenn eru nú almennt á því máli að þeir eigi þaö eitt eftir að bjarga andlitinu því raunverulegt samkomulag verði ekkert. Það sem stendur í veginum fyrir að leiðtogarnir nái saman er að hvor- ugur vill gefa eftir í deilunni um yfirráö yfir fjórum smáeyjum við norðurströnd Japans. Japanar setja það sem skilyrði fyrir samkomulagi á öðrum sviðum að Sovétmenn skili aftur eyjunum, sem þeir tóku í lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Þeir Gorbatsjov og Kaifu hafa nú komið saman á fimm fundi og emb- ættismenn telja allt eins líklegt að fundimir verði fleiri og er jafnvel talið að Gorbatsjov verði lengur í Japan en áætlaö var í upphafi. Hann ætiaði að kveðja keisarahjónin í kvöld en óvíst er hvort af kveðjuat- höfninni verður fyrr en á morgun. Með fór sinni til Japans vonaðist Gorbatsjov eftir að geta samið við heimamenn um verulega efnahags- aðstoð. Honum er mjög mikilvægt að fá stuðning við áform sín um að lífga við hnignandi efnahag í Sovét- ríkjunum. Sumir sérfræðingar taka Mikhail Gorbatsjov hefur ekki náð þeim árangri í ferð sinni sem hann vonaðist eftir. Toshiki Kaifu, forsætisráð- herra Japans, heldur fast við kröfur landa sinna um að fá aftur fjórar smáeyjar i Kúrileyjaklasanum og semur ekki um efnahagsaðstoð við Sovétríkin nema það mál komist i höfn fyrst. Simamynd Reuter svo djúpt í árinni að segja að valda- tími Gorbatsjovs gæti verið senn á enda nái hann ekki árangri í Japans- förinni. Gorbatsjov áþómjög óhægt um vik að ganga að kröfum Japana um að skila eyjunum fjórum því það yrði vatn á myllu harðlínumanna ef hann neyddist til að láta af hendi sovéskt land. Yfírráðin yfir eyjunum eru táknræn fyrir Sovétmenn ekki síður en Japana vegna þess að með þeim er staðfest hveijir sigruðu og hveijir töpuðu í síðari heimsstyijöldinni. Reuter Baker samþykk- urþátttökuEBí friðarráðstefnu James Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, samþykkti í gær aö Evrópubandalagið, EB, ætti á einhvern hátt aö taka þátt í ráðstefhu um frið í Miðaustur- löndum. Þaö er þó enn óljóst hver þáttur bandalagsins verður. Bak- er, sem er á leið til Miöaustur- landa, kom viö í Lúxemborg í gær þar sem hann ræddi við utanrík- isráðherra Evrópubandalagsins. Bandaríkjanna. Simamynd Reuter Yflrvöld í ísrael, þangað sem Baker kemur í dag, hafa tilkynnt aöþau vilji einungis að EB fylgist með á ráðstefnunni en verði ekki beinn þátttakandi. Það vill hins vegar taka þátt í tilraunum til að finna varanlega lausn á deilumál- um araba og ísraela og koma á friði í Miðausturlöndum. Sérfræðingar telja að Banda- rikln vilji hafa sem fæsta þátttak- endur í viöræöum araba og ísra- ela og séu þess vegna andvíg beinni þátttöku EB. Baker hefur lagt fram tillögu um svæðisbundna ráðstefhu um frið í Miðausturlöndum. Hann er nú að fara í þriðju heimsókn sína til þessara landa frá því að stríð- inu við íraka lauk. Evrópubanda- lagið hefur lýst yfir fullum stuðn- ingiviðfriöarfórhans. Reuter REYKN ESIN G A R! Styðjum Steingrím Þjóðin þarfnast hans við stjórnvölinn áfram. Þitt val - Þín framtíð! við á laugardag er okkar framlag I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.