Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991.
íþróttir
Sovétmenn
sigruðu
Kaiserslautera jók forystu sína í
þýsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöldí. Kaiserslaut-
em sigraöi St. Pauli á heimavelli,
1-0, og skoraöi Labbadia sigur-
markiö í síöari hálfleik. Labbadia
hefur verið iðinn við kolann aö
undanfomu en markið sem hann
skoraöi í gærkvöldi var hans sjötta
af níu siðustu mörkúm liðsins.
Bremen sótti án afláts gegn
Númberg en inn vildi knötturinn
ekki. Nando, leikmaður Hamburg
SV, var á skotskónum í gærkvöldi
og skoraði þrjú af mörkum liðsins
gegn Dortmund á Volkspark Stadi-
on í Hamborg.
Úrslit ieikja í gærkvöldi uröu
þessi:
Kaiserslautem-St. Pauli.1-0
Hamburg SV-Dortmund.....4-0
Leverkusen-Diisseldorf..2-0
Köln-Hertha Berhn....2-1
• Sovétmenn unnu mikilvægan
sigur á Ungveijum í 3. riðli Evr-
ópukeppni landsliða i knattspyrnu
í Búdapest í Ungverjalandi í gær.
Sovétmenn skomöu eina mark
leiksins og var þar á feröinni Mik-
hailichenko á 30. minútu. Ungveij-
ar leiöa riðilinn era með 6 stig eft-
ir 5 leiki en Sovétmenn koma
næstir með 5 stig eftir 3 leiki og
ítalir 4 stig eftir 3 leiki.
• Hollendingar báru sigurorð af
Finnum í 6. riðli, 2-0. Það voru
snillingamir í AC Milan, Van Bast-
en á 9. mínútu og Ruud Gullit á
75. mínútur sem tryggðu Holiend-
ingum sigurinn. Holland er í efsta
sæti með 8 stig eftir 5 leiki, Portúg-
alar koma næstir með 7 stig eftir
5 leiki.
• í 7. riðli sigraöi Pólland lið
Tyrkalands, 3-0, í Warsjá. Trasi-
ewics, Jan Urban og Roman
Kosecki skoruöu mök Pólveija í
síðari hálfleik. írar, Englendingar
og Pólveijar era öU jöfn með 4 stig
afloknum 3 leikjum.
-GH/ÞS
Enska knattspyman:
Arsenal
tapaði stigum
- gegn Manch. City á Highbury
Arsenal byrjaði vel á
Highbury gegn Manchest-
er City og eftir aðeins
stundaríjórðungs leik var
staðan 2-0 fyrir Arsenal. Kevin
Campbell og Paul Merson skoruðu
mörkin en á teggja mínútna leikkafla
undir lok fyrri hálfleiks jafnaði
Manchester City. Mark Ward minnk-
aði muninn úr vítaspymu og David
White jafnaði metin á 42. mínútu.
Uppselt var á Highbury í gærkvöldi
og sneru stuðningsmenn liðsins
heim á leið frekar daufir í bragði en
titillinn er samt innan seilingar.
Forysta Arsenal á
Liverpool sex stig
Arsenal hefur sex stiga forskot á
Liverpool sem á einn leik tii góða.
• Dennis Wise hinn snaggaralegi
útherji Chelsea skoraði eitt af mörk-
um liðsins gegn Norwich í gær.
Eric Young skoraði sigurmark
Crystai Ralace á Shelhurst Park gegn
Tottenham. Markið kom strax á O.
mínútu leiksins.
Gordon Duire skoraði tvívegis fyrir
Chelsea sem sigraði Norwich á úti-
velli, 1-3. Dennis Wise bætti við1
þriöja markinu en Polsten skoraði
eina mark Norwich.
Roy Wegerle og Simon Barker
gerðu mörk QPR í, 2-0, sigri á Leeds
United.
1. deild:
Arsenal-Manch. City..........2-2
Crystal Paiace-Tottenham.....1-0
Norwich-Chelsea..........*...1-3
QPR-Leeds....................2-0
Arsenal........34 21 12 1 63-16 73
Liverpool......33 20 7 6 66-34 67
Cr.Palace......34 18 8 8 44-38 62
Manch.Utd......34 15 11 8 55-38 55
Leeds..........34 16 7 11 54-40 55
Manch. City ......34 14 11 9 54-48 53
2. deild:
Ipswich-West Ham...................0-1
Newcastle-Sheff. Wed...............1-0
Oxford-Plymouth....................0-0
WestHam.......40 22 13 5 53-27 79
Oldham........41 21 13 7 7A47 76
Sheff.Wed.....40 19 14 7 6044 71
Miilwail......42 18 13 11 62-45 67
Brighton......41 19 7 15 60-62 64
Middlesbro....41 18 9 14 62-42 63
-JKS
Alþjóðlegt skíðamót í HMðarQaUi:
Guðrún stóð sig
best íslendinganna
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri:
Guðrún H. Kristjánsdóttir stóð sig
best íslensku keppendanna í tveimur
aiþjóðlegum stórsvigsmótum sem
fram fóru í Hiíðarfjaili nú í vikunni.
Keppt var bæði í karla- og kvenna-
flokkum og erlendu keppendumir
komu m.a. frá Noregi, Svíþjóð,
Tékkóslóvakíu, Frakklandi, Bret-
landi og Holiandi.
í fyrra mótinu sigraði Mogore
Malgorzata frá Frakklandi í kvenna-
flokki, fékk tímann 2:07,44 mín. Guð-
rún H. Kristjánsdóttir varö önnur á
2:08,98 mín. og Eva Jónasdóttir þriðja
á 2:12,02 mín.
í síðara mótinu sigraði Guðrún
hins vegar, fékk þá tímann 1:58,31
min., Malgorzata fékk -þá tímann
1:59,77 mín. og Ásta Halldórsdóttir
varð þriðja á 2:00,11 mín.
Erlendu keppendurnir voru mun
fleiri í karlaflokki og röðuöu sér
margir þeirra í efstu sætin báða dag-
ana. Fyrri daginn sigraði Einar Jo-
hansen, Noregi, á 2:17,41 mín. en
Arnór Gunnarsson, sem fékk besta
tíma íslensku keppendanna, varð í
11. sæti með 2:22.08 mín.
í síöara mótinu sigraði Pewter
Jurko frá Tékkóslóvakíu á 2:07,44
mín. en Valdimar Valdimarsson náði
bestum árangri okkar manna, varð
í 7. sæti á 2:08,91 mín.
• Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíðakona frá Akureyri, stóð sig vel á alþjóðlegu skíðamóti á Akureyri nú í vikunni.
Hér er hún á fleygiferð á móti fyrr í vetur.
• Magnús Matthíasson, leikmaður úrvalsdeildarinnar i körfuknattleik, skorar hér
Skotum í gærkvöldi.
Slappir Sk
skotnir á bó
- í sland sigraði með 84 stigum gegn
íslendingar unnu ótrúlega léttan sigur
á Skotum í landsleik í körfuknattleik í
gærkvöldi. Leikurinn fór fram í íþrótta-
húsi Fjölbrautaskólans í Breiðholti og
var jafnframt fyrsti landsleikurinn sem
fer fram í þessu nýja og glæsilega
íþróttahúsi. Leiknum lyktaöi með sigri
Islendinga, 84-61, en íslenska Uðið hafði
mest þijátíu stiga forskot en lék samt
langtímum saman undir getu.
íslendingar og Skotar eru að undirbúa
Uð sín fyrir C-keppni Evrópumótsins og
bar leikur beggja Uða þess merki aö þau
eru ekki langt komin í undirbúningnum.
Skotar leika í B-riðU keppninnar í Sviss
í næsta mánuði og fékk undirritaður
stundum á tilfinninguna aö þeir ættu
ekkert erindi þangaö.
ísland hafði undirtökin í leiknum frá
fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. íslend-
ingar voru seinir í gang og var hittnin
framan af mjög slök. Um miðjan fyrri
hálfleik hafði íslenska liðið aðeins skor-
að fimmtán stig en þá var hraðaupp-
hlaupum beitt óspart með góöum ár-
angri. íslendingar höfðu mikla yfirburði
í síðari hálfleik og aðeins spuming um
hversu stór sigurinn yrði.
„Þurfum að lagfæra
ýmislegt í leik okkar“
„Hittnin var léleg og það er alveg ljóst
að við þurfum aö lagfæra ýmsilegt í leik
okkar fyrir Evrópukeppnina. Það er
mjög gott að fá þessa leiki fyrir keppnina
og ég er bjartsýnn á að okkur takist að
fínpússa það sem betur má fara áður en
stóra stundin rennur upp,“ sagði Torfi
Magnússon landsliðsþjálfari.
Allir leikmenn íslenska hðsins skor-
uðu stig en aliir geta þeir gert mun bet-
ur og munu eflaust gera það þegar fram