Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Qupperneq 34
46 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991. Sljóminál Suðnrlandskj ördæmi: Slást Arni og Eggert um jöf nunarþinsætið? Nokkur spenna er hlaupin í kosningabaráttuna á Suðurlandi þar sem menn sjá fram á slag milli Árna Gunnarssonar og Eggerts Haukdal þar sem Margrét Frimannsdóttir gæti jafnvel orðið þátttakandi. Myndin var tekin á sameiginlegum framboðsfundi í Vestmannaeyjum. DV-mynd GVA Framsókn heldur sínum tveimur mönnum, Jóni Helgasyni og Guöna Ágústssyni. Sjálfstæöisflokkur fær Þorstein Pálsson og Árna Johnsen á þing og menn leiða getum aö því aö Eggert Haukdal verði mjög nálægt því að verða kjörinn. Hins vegar er allt sagt í jámum milli Eggerts, Margrétar Frímannsdóttur frá Al- þýðubandalagi og Árna Gunnarsson- ar frá Alþýðuflokki. Hallast menn þó frekar að þeirri útkomu að Margr- ét verði kjörin en slagurinn um jöfn- unarþingsætið, 6. sætið, muni standa Fréttaljós Haukur L. Hauksson á milli Áma Gunnarssonar og Egg- erts Haukdal. Frjálslyndum er ekki spáð velgengni í kosningunum, þrátt fyrir nokkurt persónufylgi Óla Þ. Guðbjartssonar. Óskemmtilegar minningar Allt frá 1979 hafa framsóknarmenn fengið tvo menn kjöma á Suður- landi. í síðustu alþingiskosningum mátti þó ekki muna miklu að Guðni Ágústsson yrði sendur út í kuldann þar sem einungis 70 atkvæðum mun- aði á honum og Óla Þ. Guöbjarts- syni. Óli Þ. var landskjörinn en hefði hann fengið kjördæmakosningu hefði Framsókn misst Guðna. Fram- sóknarmenn á Suðurlandi þykjast vissir um að Guöni sé öruggur en fara varlega í fullyrðingar að feng- inni reynslu. Framsókn hefur gjör- nýtt atkvæði sín og því ekki átt kost á jöfnunarþingsætum. Fær Eggert jöfnunarþingsæti? Sjálfstæðismenn töpuðu verulegu fylgi í síðustu kosningum, hröpuðu úr tæpum 40 prósentum í 32,5 pró- sent. Borgaraflokknum mátti þar um kenna-að veralegu leyti en hann fékk þá tæp 11 prósent atkvæðanna í kjör- dæminu. 1983 fengu sjálfstæðismenn þrjá menn kjöma en tvo menn 1987, Þorstein og Eggert. Sú uppsveifla sem sjálfstæðismenn merkja í skoð- anakönnunum á einnig við um Suð- urland og þar gera bjartsýnir menn sér vonir um þrjá kjördæmakjörna þingmenn. Hófsamir sjálfstæðis- menn era þó á því að Eggert Hauk- dal fái jöfnunarþingsætið, á undan Áma Gunnarssyni. Undir högg að sækja Kratar hafa ekki unnið þingmann á Suðurlandi síðan í kosningunum 1979 þegar Magnús H. Magnússon úr Vestmannaeyjum var kjörinn. Síðan þá hefur fylgi þeirra minnkað stöðugt. í síðustu kosningum varþað 10,6 prósent en kratar segja að Ami eigi að sleppa inn með 12 prósent fylgi. En fær Alþýöuflokkurinn það fylgi? Ami Gunnarsson flutti sig um set fyrir þessar kosningar éií hann var áður oddviti krata í Norðurlandi eystra. í samtölum við Sunnlendinga kom fram að kratar tefldu djarft með því að stilla Áma upp í þessu mikla landbúnaðarkjördæmi þar sem hann þekkti ekki mikið til og byði þar að auki upp á umdeilda landbúnaðar- stefnu. Arni þykir þó hafa komið vel fyrir á framboðsfundum og getur hafa náð þar til margra nýrra kjós- enda sem telja 10,6 prósent atkvæða- bærra manna á Suðurlandi. Talið er að meginfylgi krata komi úr Vest- mannaeyjum en á fastalandinu eigi þeir undir högg að sækja. Margrét inni Alþýðubandalagið hefur fengið einn mann kjörinn í síðustu þremur kosningum. 1979 og 1983 fékk Al- þýðubandalagið um 15 prósent fylgi en í kosningunum 1987 hrapaði fylgið í 11,5 prósent þegar Margrét Frí- mannsdóttir komst á þing. Margrét er héraðsmanneskja, frá Stokkseyri, og þykir geta státað af nokkuð traustu fylgi. Hún þykir þar að auki hafa staðið sig vel á framboðsfund- um. Þó menn hallist að því að Margr- ét sé öragg búast menn við ágjöf þar sem þeir sækja að henni, Árni Gunn- arsson og Eggert Haukdal. Óli úti Óla Þ. Guðbjartssyni er ekki spáð áframhaldandi setu á Alþingi. í kosn- ingunum 1987 naut Óli bæði persónu- legs fylgis og uppsveiflu Borgara- flokksins. Með framboði Fijáls- lyndra telja menn að rekunum haíi verið kastað yfir Borgaraflokknum og fylgismenn hans séu velflestir horfnir heim til fóðurhúsanna. Borg- araflokkurinn hefur ekki mælst í skoðanakönnunum DV það sem af er árinu og til þessa hafa Frjálslynd- ir ekki getað fagnað uppsveiflu. Á framboðsfundum í kjördæminu hef- ur vakið athygli að meðflokksmenn Óla, sem þar hafa mætt, hafa varla sagt aukatekið orð. í viðtölum við Sunnlendinga kom fram að þetta fyr- irkomulag Fráslyndra vekti undran og efasemdir um framboðið. Kvennalista er ekki spáð þing- manni í þessum kosnirigum né held- ur Heimastjórnarsamtökunum eða Þjóðarflokki - Flokki mannsins. Spenna Nokkur spenna er hlaupin í kosn- ingabaráttuna á Suðurlandi þar sem menn sjá fram á slag milli Árna Gunnarssonar og Eggerts Haukdal þar sem Margrét Frímannsdóttir gæti jafnvel orðiö þátttakandi. Nái Margrét inn slást Ámi og Eggert. Nái Eggert inn slást Árni og Margrét og mögulega Guðni Ágústsson. Hveijir sem slást verður slagurinn um 6. sætið. Austurland: Fá kratar sinn fyrsta þingmann í áratugi? Sameiginlegur fundur á Höfn með frambjóðendum i Ausfurlandskjördæmi. Á Austurlandi verður þeirrar spumingar mjög vart hvort Álþýðu- flokkurinn komi þingmanni aö, Gunnlaugi Stefánssyni, í fyrsta skiptií áratugi (1956), marga áratugi ef horft er til suðurhluta kjördæmis- ins. Ef af verður telja flestir viðmæl- endur DV að Gunnlaugur færi inn á kostnað Hrafnkels A. Jónssonar sem skipar annað sætið hjá Sjálfstæðis- flokknum. Þá ber nokkuð á vanga- veltum þess efnis að fylgi Alþýðu- bandalagsins fari svo þverrandi að Hjörleifur verði úti í kuldanum eftir kosningar. Halldór og Jón inni Á Austurlandi era fjórir kjör- dæmakjömir þingmenn og einn jöfn- unarmaður. Hvað sem baráttu um jöfnunarþingsætið, það fimmta, Mður virðast allir sammála um að fram- sóknarmenn haldi í það fylgi sem þeir hafa haft í gegn um árin, um og yfir 40 prósent.. Þeir Halldór Ás- grímsson og Jón Kristjánsson teljast öraggir með sín þingsæti og hafa menn ekki haft um það mörg orð. Snúum okkur því að baráttunni. Einn eða tvo í síðustu kosningum fengu sjálf- stæðismenn, með Sverri Hermanns- son í broddi fylkingar, rúmlega 16 prósent atkvæðanna. Það var tölu- vert fylgishran en flokkurinn fékk rúm 24 prósent í kosningunum 1983. Egill -Jónsson- fór inn sem jöfnunar- þingmaður en meðan talning stóð yfir var lengi óvíst hvort hann kæm- ist aö. Munaði ekki nema 7 atkvæð- um á Agli og efsta manni Alþýðu- flokks, Guðmundi Einarssyni. Fréttaljós Haukur L. Hauksson Uppsveiflu í átt til Sjálfstæðisflokks verður nokkuð vart á Austfjörðum, uppsveiflu sem skila ætti tveimur kjördæmakjörnum þingmönnum. Telja menn sig þó sjá þess merki að Hrafnkell verði heldur jöfnunar- þingmaður og muni þurfa að beijast fyrir 5. þingsætinu. Austurlandskjördæmi er stórt landfræðilega og fylgi manna því misjafnt eftir stöðum. Egill Jónsson sækir fylgi sitt mjög til Hornafjaröar- svæðisins en Hrafnkell til Eskifjarð- ar og nágrennis og Héraðs. Hrafn- kell velti Kristni Péturssyni frá Bakkafirði óvænt úr ööru sæti list- ans í prófkjöri í haust. Ekki skal orð- um eytt í sætaskipan á lista sjálf- stæðismanna en um hana eru engu að síður deildar meiningar sem geta frekar orðiö flokknum fjötur um fót heldur en hitt. Klerkurinn? Bjartsýnir kratar á Austfjörðum eru kokhraustir og óhræddir að-spá Gunnlaugi Stefánssyni, presti frá Breiðdalsvík, Kjördæmakjömu þing- sæti. Hófsamari menn telja þó lík- legra að hann hreppi jöfnunarsætið. Andstæðingar krata telja hins vegar af og frá að hann nái á þing. í kosningunum 1987 vantaði krata 7 atkvæði til að ná manni á þing. Þá var Guðmundur Einarsson efstur á lista þeirra. Eitthvað púður mun hafa farið í að réttlæta framboð Guð- mundar sem aðkomumanns en nú telja kratar sig geta eytt púðrinu á ábatasamari hátt þar sem Gunnlaug- ur er álitinn heimamaður eftir nokk- uð langa búsetu eystra. Komist Gunnaugur á þing verður hann fyrsti Austfjarðakratinn á þingi í næstum þijá áratugi. Maraþonræðan Alþýðubandalagið hefur löngum verið sterkt á Austíjörðum. í tíð Helga Seljan, meðal annars í kosn- ingunum 1979 og 1983, fengu þeir tvo menn kjörna, Helga og Hjörleif. Frá 1979 hefur fylgið saxast af Alþýðu- bandalaginu á Austfjörðum. Það fór úr tæpum 30 prósentum í 23 prósent í síöustu kosningum. Kannanir benda til frekara fylgishruns, niður fyrir 16 prósent. Hér skal ekki farið í langar útskýringar á fylgishruni Alþýðubandalagsins en í samtölum við Austfirðinga hefur þess orðið vart að þeim svíður sáran undan maraþonræðu Hjörleifs í þinglok þegar hann talaði þar samfleytt í sex tíma og hélt, að flestra mati, uppi málþófl. Er Hjörleifi meðal annars kennt um að frumvarp um jöfnun orkukostnaðar náði ekki í gegn í lok þingins en það mál brennur meðal annars á Austfirðingum. Kvennalisti, heimastjórnarsamtök eða Þjóðarflokkur - Flokkur manns- ins eru ekki taldir fá mann inn þó að Kvennalistinn sé ekki svo langt frá því ef hann bætir vel við sig fylgi frá 1987 en þá fengu konur 6,3 pró- sent atkvæða. Slagur Sumir ganga svo langt að fullyrða að Hjörleifur verði úti í kuldanum eftir kosningar, sjálfstæðismenn fái tvo, Framsókn tvo og kratar einn. Verði Hjörleifur inni, sem flestir telja raunhæft að vænta, er útlit fyrir hörkuslag milli annars manns Sjálf- stæðisflokks og fyrsta manns Al- þýðuflokks, Hrafnkels og Gunn- laugs, um jöfnunarþingsætið. Að því leyti verði um endurtekið efni frá síðustu kosningum að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.