Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Side 18
18' FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991. Stjómmál Vestflarðakjördæmi: Fátt bendir til mikilla vendinga á Vestfjörðum - aðalátökin virðast vera á milli Alþýðuflokks og Kvennalista Elstu menn muna ekki jafndaufa kosningabaráttu á Vestfjörðum og nú. Ekkert einasta mál hefur komið upp sem deilt er um. Myndin er tekin á sameíginlegum framboðsfundi á Reykhólum. DV-mynd GVA Öfugt við Vesturlandskjördæmi, þar sem óvissa um úrslit er mikil, virðast línur vera nokkuð skýrar í Vestfjarðakjördæmi. Það er sam- dóma álit þeirra sem DV hefur rætt við og það kemur raunar heim og saman við skoðanakönnun Gallup að D-listi fái tvo menn kjörna og B- listi einn mann. Þetta sé öruggt. Síð- an sé óvissa um hvort A-listi fái mann kjörinn eða hvort V-listinn fái Ijórða kjördæmakjörna þingmann- inn. Það er hald manna aö ef A-listi fær kjördæmakjörinn mann fái V- listi jöfnunarsætið eða öfugt. Flestir . eru á því að Alþýðubandalagið eigi ekki möguleika á að ná þingsæti, hvað þá minni flokkamir. Dauf kosningabarátta Um það eru allir sammála, sem rætt hefur verið við fyrir vestan, að elstu menn muni ekki jafndaufa kosningabaráttu og nú. Ekkert ein- asta mál hafi komið upp sem deilt sé um. Allir frambjóðendur séu á móti kvótanum og allir vilji betri samgöngur í kjördæminu. Þá hefur kosningabaráttan á Vest- fjörðum verið stutt, mun styttri en fyrir alþingiskosningar áður. Að vísu hefur verið nokkuð snjóþungt fyrir vestan að undanfórnu og því ekki auðvelt fyrir frambjóðendur að kom- ast um kjördæmið fyrr en fyrir svo sem eins og tveimur vikum. Fækkun á kjörskrá í Vestfjarðakjördæmi hefur fækkað á kjörskrá um 236 kjósendur frá því 1987. Þá voru á kjörskrá 6.812 en nú 6.576 manns. Við síðustu alþingis- kosningar kusu 5.996 á Vestfjörðum. Þá hlaut A-listi 1145 atkvæði og einn mann kjörinn en 2. maður á listanum fór inn á jöfnunarsæti. B-listi hlaut 1237 atkvæði og einn mann kjörinn og D-listi hlaut 1742 átkvæði og tvo menn kjörna. G-listi hlaut 676 at- kvæði og engan mann, M-listi fékk 57 atkvæði, S-listi fékk 158 atkvæði, V-listi 318 og Þ-listi 663 atkvæði. Skipt um lista Það vakti mikia athygli hve Þ-listi Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson Þjóðarflokksins fékk mörg atkvæöi í síðustu alþingiskosningum á Vest- fjörðum. Þaö munaði í raun sáralitlu að flokkurinn næði þar inn manni. Hvergi á landinu náði flokkurinn eins miklum árangri. Þessi góöa út- koma var þökkuð Jónu Valgerði Kristjánsdóttur sem skipaði efsta sæti listans. Hún nýtur mikilla vin- sælda og virðingar á Vestfjörðum. Nú hefur hún skipt um flokk og skip- ar efsta sætið á V-lista Samtaka um kvennalista. Því er talið að Kvenna- listinn muni heyja einvígi við Al- þýðuflokkinn um fjórða kjördæma- kjörna manninn. Hvert fara Karvelsmenn? Svo virðist, ef marka má skoðana- könnunina, að fylgi Alþýðuflokksins hafi minnkað nokkuð. Á sama tíma hefur fylgi Framsóknarflokksins aukist. Menn greinir á um ástæðuna. Sumir halda því fram aö það mikla persónufylgi, sem Karvel Pálmason á fyrir vestan, skili sér ekki til Al- þýðuflokksins eftir að Karvel hefur hætt þingmennsku. Þetta fylgi hafi að stórum hluta farið yfir á Fram- sóknarflokkinn. Aörir segja þetta ekki rétt. Þeir telja ástæðu þess að fylgi Alþýðu- flokksins hafi minnkað vera óein- ingu meðal krata á ísafirði sem er höfuðvígi Alþýbuflokksins á Vest- fjörðum. Enn aðrir segja að Alþýðuflokkur- inn hafi ekki veriö kominn fram með lista sinn og ekkert farinn í gang þegar skoðanakönnun Gallups var gerð. Kratar hafi hrokkið við þegar þeir sáu niðurstöðu skoðanakönnun- arinnar og séu nú komnir á fulla ferð í kosningabaráttunni. Alla vega virðist ljóst, samkvæmt skoðanakönnuninni, að Alþýðu- flokkurinn gerir ekki betur en kom einum manni inn að þessu sinni. Karvel Pálmason leiddi listann við síðustu kosningar og þá fóru þeir báðir á þing, hann og Sighvatur Björgvinsson, sem nú skipar efsta sæti A-listans. Sjálfstæðisflokkurinn í sókn Enda þótt svo virðist sem Fram- sóknarflokkurinn hafi unnið á í Vest- fjarðakjördæmi þá muni hann ekki ná tveimur mönnum þar á þing. Það muni Sjálfstæðisflokkurinn aftur á móti gera. Allt bendir til þess aö flokkurinn muni vinna á umtalsvert í þessum kosningum. Því er haldið fram fyrir vestan að Matthías Bjamason, sem skipar efsta sæti listans, muni hætta þing- mennsku á næsta kjörtímabili og þannig standa upp fyrir Guðjóni A. Kristjánssyni skipstjóra. Guðjón skipar 3. sæti listans og nýtur mikill- ar virðingar vestra sem einn mesti aflaskipstjóri landsins. Alþýðubandalagið á niðurleið Kristinn H. Gunnarsson úr Bol- ungarvík skipar 1. sæti á lista Al- þýðubandalagsins. Kristni gekk mjög vel í bæjarmálapólitík í Bolung- arvík og G-listinn vann þar sigur undir forystu hans. Honum hefur aftur á móti gengið illa í landsmála- pólitíkinni. Kristinn skipaði 1. sæti G-listans 1987 og náði þá ekki kjöri og listinn fékk aðeins 676 atkvæði. Alþýðubandalagið hefur ekki átt þingmann á Vestfjörðum síðan Kjartan Ólafsson náði kjöri 1978 en féll svo við næstu kosningar á eftir. Ekki er talið að F-listi Frjálslyndra eða Þ-listi Þjóðarflokks - Flokks mannsins muni ná umtalsverðu fylgi á Vestfjörðum að þessu sinni. Strik í reikninginn Þingmenn Vestfjarða gagnrýndu nokkuð dagsetningu kjördags þegar það mál var til umræðu á Alþingi seinnipart vetrar. Þeir bentu á að út apríl gæti allra veðra verið von á Vestljörðum. Samgöngur þar væru erfiðar og ekki þyrfti mjög hart norð- anáhlaup til þess að hluti kjósenda kæmist ekki á kjörstað. Svo virtist sem þingmenn úr öðrum kjördæm- um óttuðust ekki að veður yrðu það hörð seinni hluta aprílmánaðar að samgöngur myndu teppast. Það mun vera reiknað með að þetta geti gerst og myndi þá sunnudagur- inn 21. apríl einnig verða kjördagur. Það myndi aftur á móti færa kosn- inganóttina til aðfaranætur mánu- dags. Þá væri búið að telja í öllum öðrum kjördæmum og endanleg úr- slit birt strax og kjörstöðum á Vest- fjörðum yröi lokaö. Spennan í kring- um - nýjustu tölur úr . . . - væri þar með úr sögunni nema í Vest- fjarðakjördæmi einu. -S.dór Norðurlandskjördæmi vestra: Fellir Vilhjálmur Jón Sæmund eða Ragnar? Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Það er mál manna í Norðurlands- kjördæmi vestra að Sjálfstæðis- flokkurinn eigi nú möguleika á að fá þar tvo menn kjöma og Vil- hjálmur Egilsson hagfræðingur, sem skipar annað sætið hjá flokkn- um, yrði þá nýr þingmaður fyrir kjördæmið. Þessi skoðun á umtal- svert fylgi, en menn eru ekki jafn sammála þegar kemur að því á hvers kostnað Vilhjálmur yrði kjörinn. Margir hallast að því aö sá sem yrði að gefa eftir sæti sitt sé al- þýðuflokksmaðurinn og þingmaö- urinn Jón Sæmundur Sigurjóns- son. Sumir eru reyndar á því að sæti alþýðubandalagsmannsins Ragnars Arnalds kunni að vera í hættu. Þótt fleiri hallist aö því að sæti Jóns Sæmundar sé „heitt“, er greinilegt að „skjálfti" er í herbúð- um alþýðubandalagsmanna sem m.a. kemur fram á þann hátt að á framboðsfundum er dæminu stillt þannig upp af þeim að hið raun- verulega val kjósenda sé á milli Vilhjálms og Ragnars Arnalds. Það er því greinilegur ótti meöal Al- þýðubandalagsins eins og Alþýðu- flokksins og hann virðist ekki vera að ástæðulausu. Framsóknarmenn öruggir Framsóknarþingmennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson viröast hins vegar öruggir um sæti sín og ekki þarf að ræöa um Pálma Jónsson, oddvita Sjálfstæðisflokks- ins í kjördæminu. Líklegustu kosn- ingaúrslitin eru semsagt talin vera þau að þessir þrír ásamt Vilhjálmi Egilssyni og Ragnari Arnalds verði þingmenn Norðurlands vestra. Ekki er talinn neinn möguleiki á að Kvennalistinn komi að manni og „smáflokkaframboðin“ svoköll- uðu eru ekki talin eiga neinn mögu- leika í þessu kjördæmi. Þau eru á vegum Þjóðarflokks-Flokks mannsins, Heimastjórnarsamtak- anna og Frjálslyndra. Það vekur Fréttaljós Gylfi Kristjánsson líka athygli að á framboðslista Heimastjórnarsamtakanna eru að- eins 7 nöfn en ekki 10 eins og leyfi- legt er. Fijálslyndir eru með lág- markstöluna 5 á sínum lista og þar af eru tveir sem búsettir eru í Reykjavík og einn í Kópavogi. Lág laun og atvinnuleysi Það eru fyrst og fremst atvinnu- mál sem tekist er á um í kjördæm- inu. Atvinnuleysi er óvíða meira en einmitt á Noröurlandi vestra og fyrirsjáanlegt að það ástand batnar ekki þegar framkvæmdum við Blönduvirkiun lýkur. Þá er það viðurkennd staðreynd að meðal- laun í kjördæminu eru lægri en víðast annars staðar og heima- menn tala sjálfir um Norðurland vestra sem láglaunasvæði. Sam- dráttur hefur orðið í landbúnaði sem bitnar á þjónustukjörnunum. Að sjálfsögðu er tekist á um hafnar- málin og þar ber hæst hafnargerð- ina á Blönduósi sem harðlega er deilt um í vesturhluta kjördæmis- ins. Verði miklar sveiflur á fylgi flokkanna í kjördæminu gæti það ekki síst verið vegna óánægju Sigl- firðinga, en á Siglufiri býr einmitt Jón Sæmundur Siguijónsson, þingmaður Alþýðuflokksins. At- vinnuleysið í kjördæminu er mest á Siglufirði og Siglfirðingar eru einnig mjög óánægðir með að þeir hafa veriö afskiptir hvað varðar samgöngumál. Siglfirðingar reiðir Eins og þeir vita sem hafa fariö landleiðina um kjördæmið er „hringvegurinn" lagður bundnu slitlagi alveg frá Brú í Hrútafirði að Öxnadalsheiði ef örstuttur kafli á Vatnsskarði er undanskilinn. Þetta vita Siglfirðingar auðvitað, en leiöin af „hringveginum" og heim til þeirra er ekki jafn glæsi- leg. Sérstaklega á þetta viö um leið- ina úr Fljótum til Siglufjarðar sem er „eitt moldarflag“ eins og margir þeirra orða það. Þingmenn kjör- dæmisins segja einingu um þaö í sínum hópi að vinna að þessu máli og raunar sé búið að taka ákvörðun um miklar framkvæmdir á þessari leið næstu árin. Það breytir ekki því að Siglfirð- ingar eru reiðir. Hvort sú reiði fær útrás í kjörklefunum á laugardag og hvert hún mun beinast verður hins vegar að koma í ljós. Verður Siglfirðingurinn Jón Sæmundur Sigurjónsson að taka á sig skellinn eða verður það Ragnar Arnalds, flokksbróðir samgönguráðherra? Þessar vangaveltur byggjast auð- vitað á því áð Vilhjálmur Egilsson nái kjöri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.