Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991. It started as an innocent fishing trip. It became a murder hunt. Suddénly, he was the number one suspect. □□[EöuF STEREO TENNESSEE-NÆTUR Saklaus veiölferö varö aö martröö þegar hann var grunaöur um morö en fleiri en lög- reglan voru ó hælum hans. Myndin er byggð á skáldsögunni Minnie eftir Hans Wern- er Kettenbach. Hörkuþriller meö Julian Sands, Stacey Dash, Ned Beatty, Brian McNam- ara og Rod Steiger. Tónlist I flutningi Johnnys Cash. Leikstjóri Nicholas Gessner. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 Utlönd íraksher lætur undan kröfum Bandaríkjamanna: Herinn fer frá byggðum Kúrda írakar hafa ákveöiö að láta undan hótunum Bandaríkjamanna og draga allt herlið sitt frá griðasvæðinu í norðurhluta landsins. Hermenn ír- aka höfðu látið ófriðlega í bænum Zakho og vakið verulegan ugg meðal Kúrda sem ekki treysta hernum þrátt fyrir að svo eigi að heita sem samkomulag hafi orðið milli leiðtoga Kúrda og Saddams Hussein, forseta íraks, um að Kúrdar fái í framtíðinni heimastjórn í héruðum sínum. í morgun voru um tvö þúsund Kúrdar á leið til Zakho en bærinn var að mestu mannlaus meðan her- menn íraka voru þar. Enn var þó sagt að Kúrdar vildu vita vissu sína um að írakar væru farnir áður en þeir sneru heima á ný. Bandaríkja- menn leggja mikla áherslu á að Kúrdar snúi aftur til síns heima því að mjög erfitt er að veita þeim aðstoð meðan þeir hafast við í fjalllendinu við landamæri Tyrklands. Kúrdar kalla flóttamannabúðirnar þar „Bílaborg" því að þeir hafast einkum við í flutningabílum, hjól- hýsum og öðrum vögnum. Öll hrein- lætisaðstaða er þar hörmuleg og erf- itt að koma við sjúkrahjálp. Stjórnin í Bagdad þráast enn við að viöurkenna að Bandaríkjamenn hafi nokkuð að segja um málefni Kúrda og krefjast þess að Sameinuðu þjóðirnar taki við öllu hjálparstarfi þar. Samningar Kúrda við Saddam Bandarikjaher ræður nú bænum Zakha í Norður-írak eftir að írakar ákváðu að kalla menn sina þaðan frekar en að lenda í átökum við Bandaríkjamenn. Símamynd Reuter Hussein hafa mælst illa fyrir meðal uppreisnarmanna af trúflokki sjíta í Suður-írak. Þeir segja að með þessu hafi Saddam keypt sér frið viö Kúrda til aö geta einbeitt sér að öðrum upp- reisnarmönnum. Það muni síðan koma á daginn að samningarnir við Saddam reynist einskis virði því að hann gangi alltaf á bak orða sinna þegar það henti honum. Kúrdar segjast hins vegar ekki hafa ástæðu til annars en að treysta á þessa samninga, enda viti Saddam að hann kalli yfir sig reiði heimsins á ný bijóti hann nú rétt á Kúrdum. Kúrdar hafa þó engar tryggingar fyr- ir samningnum þótt hann verði vafa- laust virtur meðan Bandaríkjamenn eru með herlið á svæðinu. Reuter Lista- Rokk húsið QUIRE BOYS SLAUGHTER OG THUNDER X.G.C.D OG RISAEÐLAN 16. júní 1991 kl. 12-24 úti undir berum himni 1 barn yngra en 10 ára í fylgd með fullorðnum fær frítt inn Kaplakrika í Hafnarfirði Fyrstu 2.500 miðarnir verða seldir með 1000 kr. afslætti. Verð 4.500 kr. Verð 5.500 kr. Miðapantanir í síma 91 -674915 og 91-673745 Pepsi og matur selt allan daginn ATH.I Allir þeir sem ekki fengu endurgreitt hjá Whitesnake vinsamlega hringi i sima 91-674915 Miðasala og allar betri plötuverslanir á landinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.