Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
Utlönd
VÖKVASTÝRÐIR VINNUPALLAR
Vinnuhæö 12 * 15* * 17 metrar
Snúningur 360° - vinnufjarlægð frá mfðju 7 m
Burðargeta 180 kg = 2 menn
MARKAÐSÞJÓNUSTAN
Símí 26984 - Fax 26904
síminnJ /Ifggi ^ ÁSKRIFTARSÍMINN V/ FYRIR LANDSBYGGÐINA: r 99-6270
- talandi dæmi um þjónustu
Leiðtogakreppa í reynd í Sovétríkjunuin:
Ekkert leiðtogaef ni
í stað Gorbatsjovs
Boris Jeltsin þykir hafa brugðist umbótasinnum i Sovétrikjunum meö því
að ganga til liðs við Mikhail Gorbatsjov. Símamynd Reuter
„Samkomulag þeirra Gorbatsjovs
og Jeltsins er í mínum augum ekki
annað en brjálæði því að ekkert er
gert til að leysa efnahagsvanda Sov-
étríkjanna. Samkomulagið sýnir að
enn á að reyna að fela efnahagsvanda
ríkisins í stað þess að ráöast gegn
honum,“ sagði Anders Aslund, einn
helsti sérfræðingur á Vesturlöndum
í málefnum Sovétríkjanna, á sameig-
inlegri ráðstefnu Alþjóða gjaldeyr-
issjóðsins og Alþjóðabankans í gær.
Aslund er með þessum orðum að
víkja að óvæntum stuöningi Boris
Jeltsins, forseta Rússlands, viö Mik-
hail Gorbatsjov forseta í baráttu
hans við verkfallsmenn í landinu. í
samkomulaginu felst að ekki verður
um skipulega andstöðu ráðamanna í
Sovétríkjunum við að verkfallsmenn
verði beittir hörðu.
Þá tókst Gorbatsjov í kjölfarið að
styrkja enn stööu sína innan Komm-
únistaflokksins þegar hann hótaði
að segja af sér en flokksmenn neit-
uðu að taka mark á afsögninni.
Stjórnmálaskýrendur eru þó flestir á
því að þessi niðurstaða sýni veikleika
flokksins því að hann hafi engan til
að taka við völdum af Gorbatsjov.
Eftir að þessi niðurstaða varð ljós
sögöu flokksmenn í miðstjórn
Kommúnistaflökksins að allir vissu
að þaö myndi aðeins auka enn á erf-
iðleikana í Sovétríkjunum ef Gor-
batsjov færi frá og barátta hæflst um
hver ætti að taka við af honum.
Jeltsin hefur ekki stuðning til að
taka við stjórn ríkisins og nú virðist
hann hafa helst hug á að styöja Gor-
batsjov. Efnahagssérfræðingar á
Vesturlöndum óttast nú að Sovétrík-
in komist endanlega í þrot á þessu
ári ef ekki tekst að rétta við efnahag-
inn í sumar.
Þetta kemur skýrt fram í máli sér-
fræöinga eins og Aslunds sem segir
að Gorbatsjov hafi enga skýra stefnu
í efnahagsmálum og í peningamálum
hafi til þessa ekkert verið gert af viti.
Aslund spáir því að fyrr en síðar taki
herinn völdin og komi á stjórn með
líkum hætti og varð í Póllandi árið
1981 þegar herlög voru sett til að
koma í veg fyrir allsherjarupplausn
ríkisins.
Reuter
TILBOÐ ÁRSINS
VEGNA HAGSTÆÐRAINNKAUPA
GETUM VIÐ BOÐIÐ
UM 47.000,- KR. VERÐLÆKKUN
Rubin ljós eik, 160 x 200 cm, með náttborðum og dýnum
(spring- eða latexdýnur).
Veró kr. 102.457,- stgr. og lánaverð kr. 109.457,-
Áður kr. 146.355,- stgr. og lánaverð kr. 156.529,-
Dæmi um sreiðslumáta:
1) Visa/Euro raðgreiðslur í
11 mánuði, ca 10.888,-
hvern mánuð.
2) Munalán í 30 mánuði.
Útborgun 27.364,-, afborgun
á mánuði ca 3.500,-
V' (X Jt
Grensásvegi 3 0 si'mi 681144
Umboðsmenn: Austurland: Hólmar hf, Reyðarfirði.
Norðurland: Vörubær, Akureyri. Vestflrðir: Húsgagnalofdð, ísafirði.
Eiginkona Björns Borg
reyndi sjálfsmorð
Eiginkona tennisleikarans Björns
Borg, ítalska söngkonana Loredana
Berte, reyndi að fremja sjálfsmorð
með því að taka mikiö magn róandi
lyíja eftir að eiginmaöur hennar
hafði reynt að sanna sig sem tennis-
leikari á nýjan leik eftir átta ára hlé
með hraksmánarlegum árangri.
Hann tapaði fyrsta leik sínum í
Monte Carlo fyrir lítt þekktum tenn-
isleikara.
Það var vinur frúarinnar sem lét
lögreglu vita aö ekki væri allt með
felldu eftir að hún hafði hringt í
hann. í kjölfariö braust lögreglan inn
í íbúð hennar og Björns Borg í Míl-
anó.
Lögreglan fann nokkur tóm piilu-
glös í íbúðinni og á veggi hennar
hafði hún ritaö: Ég, Loredana Berte
Borg, fel sál mína guði og miskunn
hans. Guð hefur sagt að hann muni
fyrirgefa þeim sem syndga.
Loredana mun vera á batavegi og
fer að öllum líkindum heim af
sjúkrahúsinu á laugardag. Eigin-
maður hennar heimsótti hana í gær
ítalska poppsöngkonan Loredana
Borg, eiginkona Björns Borg, var
uppgefin á lífinu og reyndi aö fremja
sjálfsmorð. Simamynd Reuter
en hann neitaði alfarið að ræða við
blaðamenn um málið.
Reuter
Fjögurra f lokka hægri
stjórn í Finnlandi
Ný ríkisstjórn tekur formlega við
völdum í dag undir forsæti Esko Aho
frá Miðflokknum. Miðflokksmenn
unnu frækinn sigur í kosningum til
flnnska þingsins 17. mars og hefur
frá því verið unnið að myndun nýrr-
ar stjórnar.
Stjórn Aho markar tímamót í
fmnskri stjórnmálasögu því aö nú
er lokið 25 ára forystu jafnaöar-
manna í finnskum stjórnmálum.
Aho er 36 ára gamall og er yngstur
þeirra sem orðið hafa forsætisráð-
herrar í Finnlandi.
Fjórir flokkar standa saman að
hýju stjórninni. Miöflokkurinn legg-
ur til átta af sautján ráðherrum, enda
er hann langstærstur stjórnarflokk-
anna. Með í stjórninni eru einnig
íhaldsmenn með sex ráðherra,
Sænski þjóðarflokkurinn meö tvo
ráöherra og Kristilegir skipa einn
ráðherra.
Til stóð að Græningjar yrðu einnig
með en upp úr samningum slitnaöi
þegar viðræður um myndum stjórn-
ar voru komnar á lokastig vegna
ósamkomulags um stefnuna í orku-
málum. Aho hefur þó sagt að Græn-
ingjar gætu komið inn í stjórnina
síðar.
Reuter