Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
Meiming_____________
í tröllahöndum
Á Akureyri stendur nú yfir kirkjulistavika og einn
þáttur hennar er flutningur leikritsins Skrúðsbónd-
anum í Akureyrarkifkju. Verkið er eftir Björgvin
Guðmundsson og byggist á þekktu þjóðsagnaminni
um tröll sem heillar til sín unga prestsdóttur.
Verkið fjallar um baráttu góðs og ills, um ferð manns-
sálarinnar um dimman dal og það hvernig hún um
síðir snýr aftur til ljóssins. Það er þess vegna ekkert
illa við hæfi að flytja leikritiö í kirkju þó aö illar vætt-
ir fari þar á kreik um skeið því að kærleikurinn og
hiö góða sigrar að lokum.
Leikfélag Akureyrar flytur verkið í samvinnu við
kór Akureyrarkirkju. Inn í sýninguna er fléttað tón-
list eftir Björgvin, bæði lögum úr upphaflegu leik-
gerðinni og einnig öðrum tónsmíðum hans. Björn
Steinar Sólbergsson stjórnar tónlistinni, sem er fallega
flutt og vönduð, bæði orgelleikur, kórsöngur og ein-
söngur. Hún á að sjálfsögðu einkar vel heima í þessu
umhverfi og tækifærið var snoturlega nýtt til þess að
koma á framfæri ýmsum þeim verkum tónskáldsins
sem ekki heyrast á hverjum degi.
Skrúðsbóndinn er í frumgerðinni harla viðamikið
verk og ef dæma má af lýsingum hafa fyrri sýningar
L.A. á því (1941 og 1966) veriö veglegar skrautsýning-
ar, bæði íjölmennar og mikið í þær lagt.
Leikgerðin, sem Jón St. Kristjánsson leikstjóri.vann
fyrir þessa sýningu, er hins vegar bæði stytt og ein-
fólduð. Hún byggir mikið á flutningi textans en ytri
umgjörð er höfð sem látlausust. Leikið er fyrir altari
kirkjunnar og kórinn myndar eðlilegan bakgrunn.
Mér er líka til efs að uppbygging og texti verksins
stæði undir viðameiri uppfærslu í dag. Sjálfsagt hefur
verkið fyrst og fremst tilfmningalegt og sögulegt gildi
og þess vegna er það vel við hæfi að halda minningu
höfundarins á lofti á þennan hátt.
Eins og fyrr sagði er efnisþráðurinn byggður á þjóð-
söguminnum og línurnar skýrar á milli góðs og ills.
Höfundi er töluvert niðri fyrir og boðskapurinn er
ekkert látinn liggja í láginni. Persónurnar eru ýmist
algóðar eða alvondar, allar nema aðalpersónan, Heið-
ur. Hún er breysk og fellur fyrir ímynduðum ævintýra-
prinsi, öðlast beiska reynslu og fær fyrirgefningu í
lokin.
í fyrri hluta verksins segir frá því að þessi unga
prestsdóttir er haldin einhverjum óróa, enda þótt hún
sé heitbundin vænum pilti. Ráðskonan, Gríma, á trún-
að hennar en sú reynist vera hið versta flagð í tygjum
við tröllin.
Skrúðsbóndinn sjálfur (tröllið) birtist Heiði í líki
jaröfræðings og Gríma telur henni trú um að hann sé
konungssonur. Heiður verður bergnumin, ástvinir
hennar mega sín einskis og foreldrar hennar lifa ekki
sorgina af.
Eftir margra ára vist meðal illvætta er Heiöur orðin
hugstola en þá birtist henni vættur eða fórukona sem
vísar henni heim og þar hlýtur hún um síöir frið.
Hlutverki Heiðar er skipt í tvennt. í fyrri hlutanum
leikur Helga Hlín Hákonardóttir Heiði unga og túlkar
hlutverkið einlægt og fallega. Hún hefur góða rödd og
framsögn og eðlilegar hreyfmgar en á í nokkrum vand-
Leiklist
Auður Eydal
ræðum meö hendurnar á sér. Vilborg Halldórsdóttir
lék Heiði í seinni hlutanum, þegar hún er orðin vit-
stola eftir dvölina hjá Skrúðsbóndanum. Vilborg túlk-
ar hugarangur og iðrun Heiðar á lágu nótunum og
vinnur vel úr hlutverkinu, svo langt sem það nær, en
persónana verður hálf utangátta þegar horfið er aftur
í tímann og rifjað upp hvernig Heiður hljópst á brott
foröum í miðri messu.
Illþýðið, Grímu og Friðþjóf, Skrúðsbónda, leika þau
Kristjana Jónsdóttir og Valgeir Skagíjörð. Kristjana
fór út á ystu nöf í formælingaatriðum en var að öðru
leyti prýðilega lymskuleg og flá, eins og til stóð. Val-
geir fór létt með hlutverk Skrúðsbónda, slægur og
ógnvekjandi í senn án þess að ofgera.
Aörir leikarar stóðu vel fyrir sínu. Þau Sunna Borg
og Þráinn Karlsson léku fremur stöðluð hlutverk
prestshjónanna, Þórey Aðalsteinsdóttir fór með hlut-
verk fórukonu og Eggert A. Kaaber lék Hjálmar.
Freygerður Magnúsdóttir annaðist ágæta hönnun
búninga sem flestir voru vel við hæfi. Þó fannst mér
búningur „fórukonunnar" misheppnaður og þykk-
botnaðir skórnir gerðu leikkonunni óþarflega erfitt
um hreyfmgar.
Flutningur Leikfélags Akureyrar og kirkjukórsins á
Skrúðsbóndanum var myndarlegt innlegg í kirkjulist-
arviku.
Leikfélag Akureyrar sýnir i Akureyrarkirkju ásamt kór kirkj-
unnar:
SKRÚDSBÓNDINN
Höfundur texta og tónlistar: Björgvin Guðmundsson
Leikgerö og leikstjórn: Jón St. Kristjánsson
Tónlistarstjórn: Björn Steinar Sólbergsson
Búningar: Freygeröur Magnúsdóttir
Lýsing: Ingvar Björnsson
Andlát
Guðmundur Gíslason, fyrrv. bóndi,
Ölfusvatni, Grafningi, lést á Sólvangi
í Hafnarfirði 23. apríl sl.
Adolf Valdimar Theodórsson málari,
Vitastíg 18, lést 23. apríl á Landspítal-
anum.
Páll Sveinsson, Miðleiti 3, Reykjavík
(áður Háaleiti 24, Keflavík), lést á
gjörgæsludeild Borgarspítalans
þriðjudaginn 23. apríl.
Jarðarfarir
Októ Guðnason, Svalbarðseyri, sem
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri laugardaginn 20. april verður
jarðsunginn frá Svalbarðskirkju
laugardaginn 27. apríl kl. 14.
Kristinn Friðbjörnsson bifreiðar-
stjóri, Hlégerði 3, Hnífsdal, lést á
heimili sínu 22. apríl sl. Jarðarfórin
fer fram frá Hnífsdalskapellu laugar-
daginn 27. apríl kl. 11.
Óskar Bergsson, Bragagötu 24,
Reykjavík, andaðist á heimili sínu
hinn 15. apríl sl. Útfórin hefur fariö
fram í kyrrþey.
Sigríður Ingibjörg Hannesdóttir, sem
lést á heimili sínu 22. apríl, verður
jarðsungin frá Ólafsíjarðarkirkju
laugardaginn 27. apríl kl. 14.
Ólafur Páll Pálsson, Skúlagötu 9,
Borgarnesi, sem lést af slysfórum
aðfaranótt 21. apríl, verður jarðsung-
inn frá Borgameskirkju laugardag-
inn 27. apríl kl. 14.
Útför Ragnars Runólfssonar, Ból-
stað, Eyrarbakka, verður gerð frá
Eyrarbakkakirkju l'augardaginn 27.
apríl kl. 14.
Auður Helga Óskarsdóttir, Skúla-
götu 40a, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 30. apríl kl.
13.30.
POKON
- BLÓMAÁBURÐUR
LÍFSKRAFTUR BLÓMANNA
Hólmfríður Margrét Jóhannsdóttir,
sem andaðist í Borgarspítalanum
þann 21. apríl, verður jarðsungin
mánudaginn 29. apríl kl. 10.30 frá
Fella- og Hólakirkju.
Minningarathöfn um Sigurð Hj. Sig-
urðsson, Hlíf 2, ísaflrði, fer fram í
Fossvogskirkju föstudaginn 26. apríl.
Athöfnin hefst kl. 10. Jarðsett verður
frá ísafjarðarkapellu mánudaginn
29. apríl kl. 16.
Ásta Teitsdóttir verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu í dag, 26. apríl,
kl. 15.
Valgerður Brynjólfsdóttir, áður
Hverfisgötu 9, Hafnarfirði, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag, 26. apríl kl. 13.30.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Opiö hús í Risinu í dag kl. 13-17. Frjáls
spilamennska.
Félag Snæfellinga og
Hnappdæla í Reykjavík
Hið árlega síðdegiskafliboð félagsins
fyrir eldra fólk og gesti þess verður hald-
ið í Félagsheimili Askirkju sunnudaginn
5. maí nk. kl. 15.00 að aflokinni guðs-
þjónustu í kirkjunni. Prestur séra Árni
Bergur Sigurbjömsson. Auk þess sem að
framan greinir verður sýnd kvikmynd
af kafflboðum félagsins árin 1986 og 1987
og úrdráttur úr myndaflokki sem nefn-
ist: „Ekið og gengið um Svæfellsnes
1987.“ Myndimar tók Heiðar S. Valdi-
marsson. Þá mun Snæfellingakórinn
syngja nokkur lög. Aðalfundur félagsins
hefst síðan kl. 17.30. Þar verður rætt um
hvort félagið eigi að selja húseign sína
að Dugguvogi 15, annað hvort að hluta
til eða alla. Þá hefur verið ákveðið að
efna til þriggja vikna sólarlandaferðar
næsta haust. Farið verður til Portúgals.
Hefst ferðin 12. sept. nk. Nokkmm sætum
i þessa ferð er enn óráðstafað.
Fundur hjá Aglow
Aglow, Reykjavík, sem em kristileg sam-
tök kvenna, verða með mánaðarlegan
fund sinn í kafiisal Bústaðakirkju mánu-
daginn 29. apríl. Fundurinn hefst með
kafíiveitingum kl. 20. Gestir fundarins
verða Einar Gautur Steingrímsson lög-
fræðingur, sem verður ræðumaður
kvöldsins, og kona hans, Auðbjörg Reyn-
isdóttir, og munu þau sameiginlega þjón-
usta í fyrirbæn í lok fundarins.
Fyrirlestrar
Málstofa í hjúkrunarfræði
Helga Jónsdóttir lektor ílytur fyrirlestur-
inn: Tengsl hjúkmnarrannsókna og
þjúkmnarstarfsins mánudaginn 29. apríl
kl. 12.15-13 í setustofu á 1. hæð í Eir-
bergi, Eiríksgötu 34. Fjallað verður um
TONLIST/4RSKOU
KÓPINOGS
FRÁ TÓNLISTARSKÓLA
KÓPAVOGS
Aðrir vortónleikar skólans verða haldnir í salnum,
Hamraborg 11,3. hæð,
laugardaginn 27. apríl kl. 11.00.
Nemendur í efri stigum koma fram.
Skólastjóri
Myndsjá
ákveðna hugmyndafræði rannsókna í em aðallega í formi viðtala, verður til hjúkrun þar sem rannsakandinn líkt og ný þekking. Með þátttöku í rannsóknar- hjúkrunarfræðingurinn tekur virkan ferlinu er vonast til að skilningur hæði þátt í upplifun skjólstæðinga á llfi þeirra. hjúkrunarfræðingsins og skjólstæðinga á Leitast er við að skilja þá merkingu sem þeim sjálfum og manninum almennt auk- fólk gefur atburöum í lífi sínu. Á það ist. Þvi getur þátttaka í slikri rannsókn sérstaklega viö um samspil sjúkdóma og verið hjúkrunarmeöferð í sjálfu sér. Mál- lífsferil fólks. Við þessi samskipti, sem stofan er öllum opin.
Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum á neðangreindum tíma: Hammersminni 28, Djúpavogi, þingl. eig. Víkingur Birgisson, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 16.30. Uppboðsbeiðend- ur eru Sigríður Thorlacius hdl., Magnús M. Norðdahl hdl. og Grétar Haraldsson hrl.
Lambeyrarbraut 12, Eskifirði, þingl. eig. Ah Ragnar Mete, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Magnús M. Norðdahl hdl., Lands- banki Islands Eskifirði, Búnaðar- banki Jslands og Veðdeild Lands- banka íslands.
Ásvegur 27, Breiðdalsvík, þingl. eig. Þórey Ingimarsdóttir, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Breiðdalshreppur, Gjaldheimta Austurlands, Veðdeild Landsbanka íslands, Bjami G. Björgvinsson hdl., Magnús M. Norðdahl hdl., Jón Þórar- insson hdl., Jón Ingólfsson hrl. og Ásgeir Thoroddsen hrl.
Réttarholt 2, 2.h.t.h., Reyðarfirði, þingl. eig. Jón Hreiðar Egilsson, föstu- daginn 3. maí 1991 kl. 11.00. Uppboðs- beiðendur eru Magnús M. Norðdahl hdl. og Veðdeild Landsbanka fslands. Túngata 8, Stöðvarfirði, þingl. eig. Grétar Jónsson, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Ásgeir Thoroddsen hrl. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu Bæjarfógetinn á Eskifirði
Búland 16, Djúpavogi, þingl. eig. Ágúst Guðjónsson og Bergþóra Birg- isdóttir, föstudaginn 3. maí 1991 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson hdl., Búnaðarbanki Is- lands, Gjaldheimta Austurjands, Landsbanki íslands lögfrdeild, Ólafur Axelsson hrl. og Valgarður Sigurðs- son hdl.
Leikhús
STÚDENTALEIKHÚSIÐ
Lrihi in , sýnir í Tjarnabæ
J* L Ul/L J MENNMENNMENN
sýnir: þrjá leikþætti eftir Melkorku Teklu Olafsdóttur, Sindra Freysson og
Bergljótu Arnalds.
Dalur hinna blindu Leikstjóri: Ásgeir Sigurvaldason.
í Lindarbæ
Leikgerð úr sögu eftir H.G. Wells Föstud. 26.4.
Laugard. 27.4, kl. 20.00. Siðasta sýning.
Sunnud. 28.4 kl. 20.00. Mánud. 29.4. kl. 20.00. Takmarkaður sýningafjöldi.
Syningum fer fækkandi Sýningarnar hefjast kl. 20.00. Slmsvari 11322 allan sólarhring-
Símsvari allan sólarhringinn. Miðasala og pantanir í sima21971 inn.