Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Side 32
F R ÉTTASKOTIÐ o2 • Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Stmi 27022 Frjálst, óháð dagblað FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991. Stjómarmyndun: Davíð fær líklega um- boð í dag Þótt engin formleg ákvörðun hafi veriö tekin um það á fundi þingflokks Alþýðuflokksins í nótt að leggja til við forseta íslands að Davíð Odds- syni, formanni Sjálfstæðisflokksins, verði veitt umboð til sljórnarmynd- unar telja heimildir DV nær öruggt að sú verði niðurstaöan. Forsetinn ræðir við foringja stjórnmálaflokk- anna síðdegis. „Um tveir þriðju hlutar flokks- stjómarmanna voru fylgjandi við- ræðum við Sjálfstæðisflokkinn í gær og fáir hinna mjög á móti því. Ég held að það sé raunsætt mat, miðað við þá vitneskju sem við búum við núna, að viðræðurnar við Sjálfstæð- isflokkinn séu fremur líklegar til að mikflvæg stefnumál Alþýðuflokks- ins nái fram að ganga. Það var ágreiningur um ýmis veigamikfl mál meðal fyrrverandi stjórnarflokka. Ég sé ekki að sá ágreiningur hafi horfið áæinni nóttu þó að menn tali þann- ig,“ sagði Eiður Guðnason, formaður þingflokks Alþýðuflokks. Eiður segir að á óformlegum þing- flokksfundi, sem haldinn var í nótt, hafi engin ákvörðun verið tekin um næstu skref. Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Sigurösson sögðu við DV í morgun að ákvörðun um að mæla með því við forseta að Davíð Oddsson fengi stjómarmyndunarumboð hafi enn ekki verið tekin. Samkvæmt heim- ildum DV bendir hins vegar flest til að svo muni verða. Foringjar flokkanna munu hitta forseta að máli í dag. -hlh/kaa Kærðurfyrir að nauðga dóttur sinni Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verðið úrskuröaður í gæsluvarðhald vegna kæru um nauðgun á dóttur sinni. Atburðurinn átti sér stað í sjávarplássi á Norðurlandi í síðustu viku. Grunur leikur á að maðurinn hafi ógnað stúlkunni með skotvopni við verknaðinn. Hann var ölvaður. Lögreglunni var gert viðvart og úrskurðaði héraðsdómari hann í gæsluvarðhald til 30 apríl. Ekki er ljóst hvort krafist verður úrskurðar um áframhaldandi gæsluvaröhald. Maðurinn er vistaður í Síðumúla- fangelsinu í Reykjavík. -ÓTT LOKI Jón Baldvin er sem sagt á móti hlekkjaðri ást! QtrulniBa cioð^Hr Biiiifiir— w&wm wQwmwJwNM JMflfl^flflfl tektir við stef numál „Undirtektir formanns Sjálf- staeðisflokksins gagnvart helstu stefnumálum Alþýðuflokks hafa veriö ótrúlega góðar. Þessar stjórn- armyndunarviðræður hafa verið óvenjulegar að því leyti að þær hafa eingöngu farið fram milli for- ystumanna flokkanna. Þess vegna hljóta þær að lokum aö byggjast á gagnkvæmu trausti milli þessara manna og standa og falla með því,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson i samtali við DV um þær viöræður sem hann hefur átt við Davíð Odds- son síðustu daga. Jón Baldvin segir útilokað að horfa fram þjá þeim ágreiningi sem einkennt hefur stjómarsamstarf fráfarandi ríkisstjórnar. Ef koma eigi saman starfhæfri ríkisstjóm, sem skilað geti árangri, verði að nást trúverðug samstaða um hvernig eigi að taka á málunum á kjörtímabilinu. „Það verður ekkert spaslað eða púslað yfir þau ágreiningsmál sem hafa verið í ríkissijórninni, enda eiga þau sér djúpstæöar rætur. Hvaö varðar til dæmis Alþýðu- bandalagið hefur saga þess flokks óneitanlega einkennst af einangr- unarstefhu og andúð á samningum við erlenda aðila. Ég ber mikla vírðingu fyrir sjónarmiðum and- stæöinga minna. Ég tek það ékki mjög trúanlegt að menn, sem ég veit að eru á öndveröri skoöun viö mig á heíðarlegum forsendum, af- sali sér sannfæringu sinni, hlekkj- aðir á höndum og fótum í heflt kjör- tímabil.“ Jón Baldvin segist ekki vera mjög trúaöur á að Framsóknarflokkur- inn sé í raun tilbúiim aö.fram- kvæma nauðsynlegar breytingar í sjávarútvegi og landbúnaði. Stefna Alþýðuflokks sé meöal annars að koma á gjaldtöku fyrir fiskveiðar, auknu frjálsræði í markaðsmálum, sjávarútvegs- og landbúnaðarmál- um, uppbyggingu fiskmarkaða og uppstokkun í milliliðakerfi land- búnaðæ ins. Hann segir Framsókn- arflokkinn hafa staðið alfarið gegn slíkum breytingum í atvinnulífinu í fráfarandi rikisstjóm og þannig staðiö í vegi fyrir nýju vaxtarskeiöi og auknu frelsi í íslensku atvinnu- lifi. Jón Baldvin kvaðst ekki óttast þau hörðu skoðanaskipti sem eiga sér stað innan flokksins. „Það væri dauöur flokkur þar sem allir væru einhuga i máli af þessu tagi. Pólitik er allt í senn: trúnaöur viö málefni, spurning um hæfni manna og getu til að bera þau fram og heitar tilfinningar bundnar sögulegum táknum. Ég skil því ákaflega vel það fólk sem kann aö hafa eitthvert annað mat en ég á hvað heppilegast sé að gera í stöðunní,“ segir Jón Baldvin. __ -kaa Það getur verið þreytandi að renna sér á skiðum og því fengu þessir krakk- ar að kynnast í gær. Þeir eru þátttakendur í Andrésar andar leikunum sem nú eru haldnir á Akureyri. Þetta er í 16. skipti sem leikarnir eru haldnir. Þeir eru eitt stærsta íþróttamót sem haldið er þvi að þátttakendur eru 750 talsins á aldrinum 6-12 ára. Þeir koma frá 14 stööum á landinu og með þeim eru 200 þjálfarar og fararstjórar. Sjá nánar á bls. 16 og 25. DV-mynd GK Jeppamenn í hrakningum á Vatnajökli: Misstu einn bíl niður í snjópott - vitlaust veður að skella á og 12-13 stiga frost „Það er aö koma 50-70 hnúta brjál- að veður eftir örfáa tíma. Það eru alla vega 2-3 dagar í að við komumst niður. Við hreyfum okkur ekkert í svoleiðis veðri. Ég sé aðeins um 10 metra út núna. Þetta er ekkert venju- legt. Það er 12-13 stiga frost núna,“ sagði Benedikt Eyjólfsson, forystu- maður í 30 manna hópi á 12 jeppum sem tókst að koma jeppabifreið upp á Hvannadalshnjúk á Vatnajökli í gær. DV ræddi við hann á áttunda tím- anum og voru menn þá um það bil að ákveða hvort þeir ætluðu að hald- ast við í bílunum eða bijótast áfram. „Við sendum fyrst tvo léttustu bíl- ana niður við hnjúkinn á meðan við vorum að fara niður með bílinn og ganga frá vírum og festingum," sagði Benedikt. „Við biðum í eina sjö tíma eftir þeim. Þeir duttu síðan niður í eina sprungu. Þetta er mjög sprungið svæði þannig að við treystum ekki stærri bílunum niður. Þeir eru enn að berjast þarna við Rótarfellsjökul niður af Öræfajökli og gengur mjög seint. Síðan höfum við verið að berj- ast upp á Snæbreiðina í 7-8 tíma. Við erum komnir en urðum að skilja eftir einn bíl sem fór í snjópott en fólkið er komið upp úr honum. Mannskapurinn er orðinn úrvinda. Flestir eru búnir að ganga þrisvar upp á tindinn á tveimur dögum og það var gífurleg vinna að hreinsa upp anker og víra og koma bílnum aftur niður. Við sendum tvo bíla á undan okkur inn að Grímsfjalli, þeir eru hálfnaðir þaðan og eru orðnir frekar bensínlithr. Síðan eru menn uppi í Grímsvötnum og þeir eru að leggja í hann með 300 lítra af bensíni til okk- ar. Það sem er verst er að nú er að koma bijálað veður. Við ætlum að ganga núna niður að jeppanum sem fór niður í snjópott- inn. En það líður engum illa. Ómar Ragnarsson henti mat niður fyrir okkur," sagði Benedikt. Hann sagöi einnig að hópurinn hefði lent í ýms- um hrakningum: „Viö urðum að toga bílinn, sem fór upp á hnjúk, yfir eina sprungu sem hefði gleypt 10 hæða blokk. Viö urðum að draga hann yfir en ísinn ofan á hélt. Við vorum með tryggingar beggja megin," sagði Benedikt. -ÓTT Veðrið á morgun: Slydda á Vestfjörðum Á morgun verður breytileg vindátt, víða allhvöss. Slydda verður á Vestfjörðum en annafs staðar skúrir. Hiti verður á bilinu -2 til 4 stig. NiYÐARHNAPPUR FRÁ VARA fyrir heimabúandi sjúklinga og aldraða | © 91-29399 m/f/ A>hliðo 1 Wwb öryggisþjónusta VARI síðan 1 969

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.