Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991.
UtLönd
Júgóslavía:
Nýjum f or-
seta haf nað
Forsætisráð Júgóslavíu mun halda
skyndifund í dag vegna þess ástands
sem ríkir eftir að þaö hafnaöi í gær
Króatanum Stipe Mesic í embætti
forseta. Fulltrúar júgóslavnesku lýð-
veldanna sex og tveggja sjálfstjórn-
arhéraða, sem sitja í forsætisráðinu,
skiptast á um að gegna forsetaemb-
ættinu í eitt ár og átti Mesic að taka
við af Serbanum Borisav Jovic í gær.
Búist er við að atkvæðagreiðslan
verði endurtekin í dag.
Þaö voru fulltrúar Serbíu og sjálf-
stjórnarhéraðanna Vojvodina og
Kosovo sem greiddu atkvæði gegn
Króatanum Mesic. Fimm atkvæði
þarf til að ná kjöri.
Spennan milli Serba og Króata hef-
ur aukist síðan frjálsar kosningar
voru haldnar í fyrra í lýðveldunum
sex. Kommúnistar töpuðu í Króatíu
en héldu aftur á móti völdum í Serb-
íu. í Króatíu eru um sex hundruð
þúsund Serbar og krefjast þeir að
þau svæöi þar sem þeir eru í meiri-
hluta verði sett undir yfirráð Serbíu.
Hafa þeir komið upp vegatálmum á
ýmsum stöðum og eru vopnaðir
menn þar á verði. Um tuttugu manns
hafa undanfarnar vikur látið lífið í
átökum Serba og Króata i Króatíu.
Króatía og Slóvenía eru fylgjandi
laustengdu bandalagi sjálfstæðra
ríkja en Serbía vill áfram sama
skipulag og nú ríkir. Mesic lýsti því
yfir að Króatía myndi segja sig úr
júgóslavneska ríkjasambandinu
fengi hann ekki forsetaembættið.
Reuter/TT
»
HAFNARBAKKI
Höfðabakka 1, pósthólf 12460,132 Reykjavík, sími: 676855, fax: 673240
Útleiga og sala á gámum, vinnuskúrum, verkpöllum,
og dráttakerrum.
Gámar:
8, 20 og 40 feta þurrgámar, kæligámar og einangraðir gámar til
leigu eða sölu. Hentugir sem geymsla til lengri eða skemmri tíma.
20 feta vinnuskúrar:
Einangraðir vinnuskúrar með fullkominni innréttingu og rafmagnstöflu
fyrir eins og þriggja fasa straum. Viðarklæddir með dúk á gólfum,
rafmagnshitun og þurrklósetti. Um er að ræða 20 feta gáma sem hafa
verið innréttaðir og er auðvelt að tengja saman tvo eða fleiri gáma.
Einnig eru gámamir auðveldir í flutningum.
Sérlega hentug lausn fyrir byggingaaðila og verktaka.
m
MO*4»l*UKI
StHI KDll
B
íTrrr
Vínnupallar:
HB vinnupallar eru framleiddir úr áli og hannaðir þannig að
þeir eru mjög auðveldir í uppsetningu og meðförum. Efni og
frágómgur er í mjög háum gæðastaðli og eru pallamir
viðurkenndir af Vinnueftirliti Ríkisins. Bjóðum einnig fótstignar
lyftur, sem geta náð yfir 9 metra hæð.
Dráttarkerrur:
Hafnarbakki hf. leigir út dráttarkerrur, bæði eins og tveggja
hásinga, með burðargetu allt að tveim tonnum.
James Baker heilsar hér Yitzhak Shamir við komuna til ísrael þar sem til-
gangurinn var að ræða um hugsanlega friðarráðstefnu Mið-Austurlanda.
Simamynd Reuter
Úrslitatil-
raun Bakers
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hitti Yitzhak Sham-
ir, forsætisráðherra ísraels, að máli
í morgun, í íjórða skiptið á síðasthðn-
um sólarhring, til að gera úrslitatil-
raun til aö fá Shamir til að skrifa
undir einhvers konar samkomulag
áður en Baker heldur aftur til Was-
hington síðar í dag. Utanríkis- og
varnarmálaráðherra ísraels, David
Levy og Moshe Arens, voru einnig á
fundinum.
Baker hefur undanfarnar vikur
gengið á milli leiötoga Mið-Austur-
landa og reynt að fá ísrael, Palestínu
og arabaríkin til að hittast á ráð-
stefnu með það að markmiði að
reyna að koma á friði á þessu svæði.
„Það er ekki ætlunin að gefa út
sameiginlega yfirlýsingu Bandaríkj-
anna og ísrael eftir fund Bakers og
Shamirs heldur einungis að fá það á
hreint hvaða atriði aðilarnir eru ó-
sammála um og hvaða atriði þeir eru
sammála um,“ sagði háttsettur
bandarískur embættismaður í gær.
Samkvæmt heimildum ísraelska
útvarpsins hafði Baker meðferðis
uppkast að skjali þar sem þessi atriði
voru sett á blað, en tilgangurinn er
að fá Shamir til að skrifa undir ein-
hvers konar samkomulag svo hægt
sé að vinna út frá því í framtíðinni.
Aðspurður sagðist Baker halda að
einhver árangur hefði náðst í við-
ræðunum við Shamir, en svo virðist
þó sem hann hafi hliðrað sér hjá því
að ræða um tvö helstu ágreinings-
máhn, þ.e. hvort Sameinuðu þjóðirn-
ar taki þátt í friðarráðstefnunni og
hvort hún verði einungis haldin einu
sinnieðareglulega. Reuter
Ceausescu rændi
Frakklandsforseta
Þegar Ceausescu, fyrrum forseti
Rúmeníu, og kona hans, Elena, voru
í opinberri heimsókn í París 1978
tóku þau allt verðmætt úr íbúðinni
sem frönsk yfirvöld buðu þeim að
dvelja í. Fyrrum forseti Frakklands,
Valery Giscard d’Estaing, á að hafa
sagt í viðtali við breska sjónvarpið
BBC að meira aö segja hlutir á bað-
herberginu hafi verið skrúfaðir úr
veggjum. Þetta kom fram í breska
blaðinu Sunday Express um helgina.
Ceausescu-hjónin voru sögð hafa
stolið verðmætum fyrir þúsundir
dollara úr gestaíbúðinni og stór göt
fundust á veggjum hennar þegar
hjónin voru farin. Taliö er að örygg-
isverðir Rúmeníuforsetans hafi veriö
að leita að hlerunarútbúnaði.
Áður en parið fór til London, beint
frá París, hringdi Frakklandsforseti
til Elísabetar drottningar í Bucking-
hamhöll til þess að vara hana við.
Eftir símtalið skipaði drottningin svo
fyrir að úr gestaherbergi Ceausescu-
hjónanna skyldu fjarlægðir alhr
verðmætir munir. Drottningin skip-
aði einnig öryggisvörðum hallarinn-
ar að fylgjast vel með hjónunum.
Fyrir heimsóknina hafði Ceauses-
cu heimtað að hann og kona hans
fengju að aka um London í opnum
vagni ásamt Elísabetu drottningu.
Samkvæmt BBC á drottningin að
hafa lýst heimsókninni sem einu
versta tímabili í lífi sínu.
DN/Reuter
f
FERÐAVINNINGUR NR. 3 DREGINN ÚT 17. MAÍ
Við drögum eftir 2 daga
'ÉKT PÚ ÖRUGGLEGA ORÐINN ÁSKRIFANDI?
SlMI 27022 0G 99-6270 (GRÆNISÍMINN)