Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Page 25
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991.
33
Stórsöngvarará
Kirkjulistahátíð
Andreas Schmidt og Frieder
Lang eru þýskir stórsöngvarar
sem munu syngja í hinu mikla
verki Felix Mendelssohn, Páli
postula, á Kirkjulistahátíð ’91.
Ásamt þeim munu Sigrún Hjálm-
týsdóttir og Alina Dubek syngja
einsöng í verkínu. Flutningur á
verki þessu er hápunktur hátið-
arinnar og verður það flutt 24.
maí i Hallgrímskirkju. Auk ein-
söngvara taka Módettukór Hall-
gi'ímskirkju og Sinfóníuhljóm-
sveit íslands þátt í flutningnum.
Stjórnandi verður Hörður
Áskelsson. Andreas Schmidt, ba-
ríton, fer með hlutverk Páls post-
ula. Hróöur hans fer sívaxandi
og hefur hann undanfarna þrjá
mánuði sungið á Metropolitan í
New York. Frieder Lang, tenór,
er ekki aðeins einn virtasti
söngvari Þýsklands heldur eínnig
einn sá menntaðasti með próf i
kirkjutónlistarfræðum. Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur er óþarft að
kynna, hún er nú meðal vinsæl-
ustu óperusöngvara sem við eig-
um. Aiina Dubek, messósópran
frá Póllandi, býr hér á landi
vegna starfa eiginmanns hennar.
Trúarlegljóð
Nýlega kom út Jjóðabókin
Sálmar á atómöld eftir Matthias
Johannessen. í bókinni eru sex-
tiu og sex trúarleg ljóð og birtust
fjörutíu ogníu þeirra í samnefnd-
um Ijóðaflokki í bókinni Fagur
er dalur sem kom út 1966. Dr.
Gunnar Kristjánsson ritar inn-
gang að þóðunum þar sem Jiann
lýsir þeim trúarviðhorfum og
trúartilfinningum sem í þeim
speglast. Gerir Gunnar grein fyr-
ir því hversu sálmar Matthíasr
séu ólíkir þeim sem sungnir eru
í kirkjum. Segir hann meðai ann-
ars að þar séu engar trúfræöileg-
ar kenningar og ekki heldur bæn-
ir en hvað eina, bæði stórt og
smátt, veröur skáldinu tilefni til
lofgjörðar.
Skáld semur
lögviðljóðsín
Kristján Hreinsson fjóðskáld
hefur geflð út plötu, Skáld á nýj-
um skóm, með frumsömdum
ljóðum og lögum. Höfundur segir
sjálfur að hér sé um að ræða
sneiðmynd af tónsmíðum og Ijóð-
um síðustu tuttugu ára. Honum
til aöstoðar á plötunni eru
Tryggvi Hubner, gítar, Pétur
Hjaltested, hijómborð, og Pálmi
Gunnarsson, bassa. Hann ásamt
Magnúsi Þór Sigmundssyni sér
svo um bakraddir. Eftir Kristján
Hreinsson liggja fimm Ijóðabæk-
ur, eitt leikrit og flöldinn allur
af textum á hljómplötum.
Tværíslenskar
kvikmyndirfrum-
sýndaráárinu
Það mun ljóst að það verða að-
eins tvær leiknar íslenskar kvik-
myndir i fullri lengd frumsýndar
á árinu og er önnur þeirra gerð
í samvinnu við önnur Norður-
lönd. í byrjun júlí verður frum-
sýnd nýjasta kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Börn náttúr-
unnar, sem segir frá tveimur íbú-
um á elliheimili í Reykjavík sera
strjúka og lialda á æskustöðvar.
Aöalhlutverkin loika Gísli Hall-
dórsson og Sigríður Hagalín. 1
haust verður svo frumsýnd kvik-
mynd Hrafns Gunnlaugssonar,
Hvíti víkingurinn. Þetta er þriðja
vikingamynd Hrafns og sú lang-
viðamesta. Aðalhlutverkin eru
leikin af ungum leikurum, Gott-
skálki Sigurðarssyni, og norsku
stúlkunni Maria Bonnevie.
Reyndustu kvikmyndaleikarar
qkkar, Helgi Skúlason og Egill
Olafsson, leika einnig stór hlut-
verk í Hvíta vikingnum.
Menning
Listahátíð í Hafnarfirði:
Fjórtán stór höggmyndaverk
þekktra listamanna reist
ef selja ætti verkin í útlöndum næmi söluverðmæti þeirra 250 milljónum króna
Þorgeir Olafsson og Sverrir Olafsson eru báðir i undirbúningsnefnd Listahátíðar í Hafnarfirði. Þeir eru hér fyrir
framan vinnustofu listamanna í Straumi þar sem myndverkin verða smíðuð. Með þeim á myndinni er myndarleg-
ur hundur sem er í eigu Sverris.
DV-mynd: GVA.
Þessa dagana er mikið unnið 1
vinnustofu listamanna í Straumi í
Hafnarfirði. Járnsmiðir eru í óða önn
að smíða stór listaverk eftir fjórtán
listamenn. Munu þau prýða Hafnar-
fjörö meðan á listahátíð stendur þar
1. júní til 13. júlí.
Fyrst í stað verður verkunum kom-
ið fyrir í Strandgötu, við Hafnarborg,
á Thorsplani og við Fjarðargötu. Þau
verða síðan flutt í fyrsta almenna
höggmyndagarðinn á íslandi sem
verður komið fyrir á útivistarsvæð-
inu við Víðistaðakirkju. Verður þessi
höggmyndagarður vígður 21. júní
með þátttöku allra erlendu og inn-
lendu listamannanna sem hingað
munu koma til að fullklára verk sín.
Áætlað er að Sverrir Ólafsson búi til
skúlptúr sem síðan allir listamenn-
irnir rafsjóði nöfnin sín í.
Listamennirnir, sem margir hverj-
ir eru heimsfrægir, gefa Hafnarfjarð-
arbæ verk sín og munu þessi verk
mynda kjarnann í garðinum sem síð-
an er áætlað að auka við þegar fram
í sækir.
Heimsþekktir
skúlptúrlistamenn
Listamennirnir, sem taka þátt í
vinnustofunni, eru frá níu löndum.
íslendingarnir eru flestir eða fjórir,
frá Finnlandi og Mexíkó koma tveir
og einn frá Japan, Frakklandi, Sví-
þjóð, Sviss, Bandaríkjunum og
Þýskalandi. Kjarninn úr þessum
hópi hefur hist tvisvar áður á al-
þjóðlegum vinnustofum skúlptúr-
listamanna, síðast í Mexíkó í fyrra-
haust. Þá var þátttakandi í hópnum,
Sverrir Ólafsson sem hefur átt mik-
inn þátt í að fá alla þessa listamenn
hingað.
Erlendu listamennirnir eru mis-
þekktir. Þeirra þekktastir eru Se-
bastian frá Mexíkó, Atsushi frá Jap-
an, Júrg Altherr frá Sviss og J.B.
Moroles frá Bandaríkjunum. Allt eru
þetta listamenn sem hafa sýnt verk
sín um allan heim.
íslensku listamennirnir, sem taka
þátt í vinnuhópnum, eru Kristján
Guðmundsson, Brynhildur Þorgeirs-
dóttir, Magnús Kjartansson og Stein-
unn Þórarinsdóttir og er þaö í fyrsta
skipti sem þau tvö fyrstnefndu gera
útiverk. Verður spennandi að sjá
verk þeirra, sérstaklega verk Kristj-
áns en hann hefur nær eingöngu
formað lítil myndverk.
60 tonn af járni
Þorgeir Ólafsson, sem er í undir-
búningsnefnd, sagði að listahátíðin
þyrfti ekki að greiöa kostnað við ferð
listamannanna hingað til lands.
Þeim hefðu verið send formleg boðs-
kort og í langflestum löndum væri
þannig málum háttað að þegar kæmi
slíkt boð þá væri borgað farið fyrir
listamennina heima, en allt uppihald
væri á vegum listahátíðarinnar.
Hann sagði einnig að auk kostnaðar
við veru listamanna hér á landi þá
væri mikill kostnaður við gerð sýn-
ingarskrár og litprentaðs bæklings
þar sem eru litmyndir af öllum verk-
unum sem smíðuð verða. Verður sá
bæklingur prentaður í flörutíu þús-
und eintökum og sendur út um allan
heim. Þorgeir sagði einnig að þegar
væru farnar að berast fyrirspurnir
erlendis frá um sýningu þessa og
mætti búast við erlendum sérfræð-
ingum og blaðamönnum í tilefni
þessarar höggmyndasýningar.
Talið er að um sextíu tonn af járni
fari í listaverkin og munu 3-5 járn-
smiðir vinna við gerð verkanna fram
að opnun. Ef selja ætti þessi listaverk
á erlendum markaði er talið að þau
myndu seljast á 250 milljónir króna.
Frá 1. júni getur almenningur fylgst
með gerð verkanna í Straumsvík.
Að kvöldi 21. júní, þegar búið er að
vígja höggmyndagarðinn, verður
haldin sólstöðuhátíð að Straumi.
Munu allir skúlptúrlistamennirnir
koma saman og búa til einn „risa“
eins og Sverrir Ólafsson orðaði það
og verður hann svo brenndur á mið-
nætti við undirleik blússveitarinnar
Vinir Dóra.
Eins og áður sagði eru verkin öll
frekar stór. Sverrir Ólafsson sagði
að stærsta verkið yrði verk eftir Se-
bastian, það yrði að öllum líkindum
fimm metra langt og þriggja metra
hátt.
Listahátíð á
tveggja ára fresti
Þetta er í fyrsta skipti sem haldin
er listahátíð í Hafnarfirði. Þorgeir
sagðist vonast til að þessi listahátíð
yrði haldin á tveggja ára fresti og þá
yrði ávallt ein listgrein meira áber-
andi en önnur. í ár væri það skúlpt-
úrinn. Að tveimur árum liönum væri
ætlunin að setja tónlistina í hásæti.
Þorgeir sagði einnig að hstahátíð sem
þessi væri geysimikið fyrirtæki sem
endalaust væri að veíja upp á sig í
kostnaði. Aðalstyrktaraðilinn væri
Hafnarfjarðarbær, ríkið styrkti einn-
ig listahátíðina lítillega og svo ein-
staka fyrirtæki sem styrkja myndar-
lega. Þorgeir kvað þessa höggmynda-
sýningu og listahátíðina í heild vera
mikla lyftistöng fyrir Hafnarfjörð, en
auk myndlistarinnar verða margir
tónlistarkonsertar þar sem þekktir
íslenskir tónhstarmenn munu leika
og syngja. í Hafnarborg, menningar-
miðstöð Hafnarfjarðar, verða mál-
verkasýningar í tengslum við hsta-
hátiðina. -HK
Módel af einu listaverkinu sem mun prýða höggmyndagarð Hafnarfjarðar
i framtiðinni, simi sem verður þrir metrar á breidd. Höfundurinn er Sonia
Renard frá Frakklandi.
Síðustu áskriftartónleikar Sinfóníunnar:
Hundrað manna hljómsveit í Vorblóti Stravinskís
Meira er lagt í flutning en oftast
áður á síðustu áskriftartónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands sem
verða í kvöld í Háskólabíói. Hljóm-
sveitina munu skipa um það bil eitt
hundrað manns og mun þessi stækk-
un njóta sín best í flutningi síðasta
verksins, Vorblóti eftir Stravinskíj.
Önnur verk, sem verða á tónleik-
unum, eru Poeme d’extase eftir
Scirabin og Píanókonsert í g-moll eft-
ir Dvorák. Hljómsveitarstjóri verður
Petri Sakari.
Vorblótið er eitt af tímamótaverk-
um í tónlist á 20. öldinni. Það íjallar
um forna rússneska helgisiði og
mannfórnir. Fáar tónsmíðar hafa
haft eins mikil áhrif á önnur tón-
skáld og Vorblótið. í verkinu kastar
Stravinskíj fyrir borð öUum veujum
og hefðum sem fram til þessa tíma
höfðu tíðkast í tónsmíðum.
Einleikari í Píanókonserti Dvoráks
er Rudolf Firkusny. Hann fæddist í
Tékkóslóvakíu 1912 og er því nærri
áttræður. Firkusny kom fyrst fram
á tónleikum í Bandaríkjunum 1938
og á löngum ferli hefur hann leikið
með öllum þekktustu hljómsveitum
vestan hafs og austan. Hann er talinn
með mestu píanóleikurum þessarar
aldar í túlkun klassískrar og ró-
mantískrar tónlistar sem og tónlistar
frá fyrri hluta 20. aldarinnar. Firk-
usny mun einnig koma fram á Minn-
ingartónleikum um Rudolf Serkin
sem Tónlistarfélagið gengst fyrir
næstkomandi laugardag í íslensku
óperunni. -HK
Rudolf Firkusny, einleikari með Sin-
fóniuhljómsveit íslands i kvöld.