Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991. Afmæli Yngvi Guðnason Guðmar Yngvi Guðnason kenn- ari, Lækjarbakka 7, Steinsstaöa- byggð í Lýtingsstaðahreppi í Skaga- firði, verður fimmtugur á morgun, 17. maí. Starfsferill Yngvi fæddist að Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð í Rangárvallasýslu og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Skógum 1960- 1962, var í Menntaskólanum við Hamrahlíð veturinn 1975-76 og í Kennaraháskóla íslands 1979-1984. Yngvi var kennari við Fljótshlíð- arskóla 1965-66 og 1967-71 en var síðan skólastjóri sama skóla árin 1971 til 1973. Hann vann við smíðar 1973-75, við skrifstofustörf í Reykja- vík 1975-76, við Sigölduvirkjun 1976-77. Yngvi kenndi við Myllu- bakkaskóla í Keflavík 1977 til 1989 og síðan við Steinsstaðaskóla í Skagafirðifrál989. Yngvi hefur látið ýmis félags- og trúnaðarstörf til sín taka. Hann hef- ur verið trúnaðarmaður á vinnu- stöðum, í stjórn ýmissa félaga og nefnda, t.d. UMF Þórsmörk, Gide- onsfélagsins í Keflavík o.fl. Yngvi var forstöðumaður Hvítasunnu- safnaðarins í Keflavik árið 1984-89. Hann hefur skrifað fjölmargar greinar bæði í blöð og tímarit. Fjölskylda Yngvi kvæntist 11. júlí 1964 Re- bekku Jónasdóttur, f.15.1.1946, kennara. Hún er dóttir Jónasar S. Jakobssonar myndhöggvara, sem lést 1984, og Guðbjargar Guðjóns- dóttur sem er búsett í Reykjavík. Börn Yngva og Rebekku eru: Am- ar Yngvason, f.16.11.1964, verslun- armaður á Akureyri. Hann er kvæntur Önnu Ehsu Hreiðarsdótt- ur fóstm, f. 9.4.1965, og eiga þau tvær dætur. Guðný Heiða Yngvadóttir, f.10.4. 1967, tónlistarnemi, búsett á ísafirði. Hún er gift Kristjáni Kristjánssyni iðnrekstrarfræðingi, f. 15.10.1962, og eiga þau einn son. Jónas Yngvason, f. 22.5.1968, verkamaður ókvæntur. Jakob Yngvason, f.22.5.1968, verkamaður, ókvæntur. Systkini Yngva eru: Már Guðna- son smiður, f. 14.12.1945, búsettur í Kirkjulækjarkoti, kvæntur Önnu Óskarsdóttur húsmóður; þau eiga þrjú börn. Rebekka Guðnadóttir húsmóðir, f. 16.2.1953, búsett á Varmalandi í Borgarfirði, gift Ás- geiri Rafnssyni smið; þau eiga þrjú böm. Gunnar Rúnar Guðnason smiður, f. 30.3.1959, búsettur á Ak- ureyri, kvæntur Júhönnu Þórólfs- dóttur húsmóður; þau eiga tvo syni. Guðni Heiðar Guðnason lögreglu- þjónn, f. 30.1.1963, búsettur í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Jóns- dóttur sjúkraliða; þau eiga tvo syni. Foreldrar Yngva eru Guðni Guðnason smiður, f. 30.7.1918, og Jónheiður Gunnarsdóttir húsmóðir, f. 20.11.1921, búsett að Kirkjulækjar- koti í Fljótshlíð í Rangárvallasýslu. Faðir Guðna var Guðni, bóndi og smiður í Kirkjulækjarkoti, Markús- Guðmar Yngvi Guðnason. sonar, bónda og smiðs í Kirkjulækj- arkoti, Magnússonar, b. og sm. í Kirkjulækjarkoti, Magnússonar, b. ogsm. í Kirkjulækjarkoti, Jónsson- ar, b. og sm. í Kirkjulækjarkoti. Faðir Jónheiðar var Gunnar bóndi á Moshvoli í Hvolhreppi, Guð- mundssonar, bónda í Gíslakoti í Holtum. Egill Kolbeinsson Egill Kolbeinsson tannlæknir, Breiðvangi 10, Hafnarfirði, er fer- tugurídag. Starfsferill Egill fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentspróíi frá MR1972 og cand. odont. - prófi frá HÍ1981 en tannlækningaleyfi öðlaðist hann sama ár. Egill flutti norður á Ólafsfjörð 1981 og stundaði þar tannlækningar á árunum 1981-84 en flutti þá aftur suður og hefur rekið tannlækna- stofuhér síðan. Egih er stjómarformaður hug- búnaðarfyrirtækisins Tansa hf. og situr í stjórn Skíðadeildar KR. Fjölskylda Egill kvæntist 6.7.1974 Guðbjörgu S. Hólmgeirsdóttur, f. 13.8.1951, hjúkrunarfræðingi en hún er dóttir Hólmgeirs Júlíussonar, bifreiða- stjóra í Hafnarflrði, og Kristjönu Bjargar Þorsteinsdóttur húsmóður. Börn Egils og Guðbjargar em Hjalti, f. 2.9.1973, Kristófer, f. 7.6. 1982 og Álfheiður Björg, f. 5.5.1983. Systur Egils eru Þórunn, f. 23.8. 1943, hjúkrunarfræðingur á Akur- eyri, gift Gísla Jónssyni, forstjóra Feröaskrifstofu Akureyrar, og eiga þau þrjú böm, og Þórdís, f. 15.12. 1947, meinatæknir í Reykjavík, gift Hafsteini Sæmundssyni lækni og eiga þau fjögur börn. Foreldrar Egils: Kolbeinn Kristó- fersson, f. 17.2.1917, yfirlæknir og prófessor, búsettur í Garðabæ, og Álfheiöur Óladóttir, f. 11.4.1919, húsmóðirþar. Ætt Kolbeinn er sonur Kristófers, járnsmiðs í Reykjavík, Egilssonar, og Þórunnar Friðriksdóttur, út- vegsb. í Bakkakoti á Seltjarnarnesi, Ólafssonar. Álfheiður er dóttir Óla, prests í Ögurþingum Ketilssonar, skósmiðs Egill Kolbeinsson. á ísafirði, Magnússonar, b. á Lauga- bökkum í Ölfusi, Ólafssonar. Móðir Óla var Helga Guðrún Bjamadóttir, smiðs á Akureyri, Jónssonar. Móðir Álfheiðar er María Tómasdóttir, fiskmatsmanns á ísaflrði, Gunnars- sonar. Guðmundur Bárðarson Guömundur Bárðarson, við- skiptafræðingur og kennari, til heimilis í Klöpp á Kleppjárnsreykj- um, er fertugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófum frá MA1973 og cand. oec- on.-prófi frá HÍ1978. Guðmundur var starfsmaður hjá Landssambandi iðnaðarmanna 1976-78, kennari við Reykjaskóla í Hrútaflrði 1978-81, auk þess sem hann stundaði framtalsaðstoð og rekstur Edduhótels á sama tíma. Þá var hann kennari og brautarstjóri í hálfu starfi við viðskiptabraut Gagnfræðaskóla Akureyrar 1981-82. Guðmundur flutti til Noregs 1982 og starfaði hjá IKEA í Osló á árun- um 1982-89, fyrst með búsetu í Osló og síðan hér á landi eftir 1985. Hann flutti aö Reykjaskóla er hann kom heim 1985 og bjó þar til 1987 en hef- ur búið í Klöpp síöan. Hann hefur stundað bókhalds- og rekstrarráð- gjöf frá 1985 og rekið litla gróðrar- stöð að Kleppjárnsreykjum frá 1987. Þá rekur hann ásamt öðrum Ferða- þjónustuna Borgarfirði sf. og hefur verið stundakennari í Reykholti frá 1989 og við Samvinnuháskólann að Bifröstfrál991. Fjölskylda Guðmundurkvæntist26.5.1972 Hugrúnu Óladóttur, f. 21.3.1953, líf- fraeðingi og kennara, en hún er dótt- ir Óla Gunnarssonar, fulltrúa KNÞ á Kópaskeri, og Þórunnar Pálsdótt- ur, húsmóðurþar. Börn Guðmundar og Hugrúnar eru Unnur Björk, f. 16.11.1974, og Jóhann Ölvir, f. 24.12.1976. Systur Guðmundar eru Margrét Bárðardóttir, f. 9.4.1953, sálfræðing- ur í Reykjavík, og á hún einn son, og Jóhanna Bárðardóttir, f. 6.5.1956, læknir í Stokkhólmi, gift John Burr- ifl rithöfundi, og eiga þau tvö böm. Foreldrar Guömundar: Bárður Guðmundsson, f. 24.6.1909, d. 14.2. 1985, og Móníka Ríkharðsdóttir, f. 27.1.1926, póstafgreiðslumaður í Þórshöfn í Færeyjum. Ætt Bárður var sonur Guðmundar, b. og trésmiðs í Ytri-Skógum í Rangár- vallasýslu, Kjartanssonar, b. i Drangshlíöardal undir Eyjaíjöllum, Guðmundssonar, b. í Drangshlíð, Jónssonar ríka, b. í Drangshlíö, Björnssonar. Móðir Kjartans var Sigríöur Guðmundsdóttir. Móðir Guðmundar á Ytri-Skógum var Ragnhildur Ólafsdóttir, b. á Núpi í Fljótshlíð, Einarssonar. Móðir Guðmundur Bárðarson. Ragnhildar var Guðrún Auðuns- dóttir, prests á Stóru-Völlum, Jóns- sonar. Móðir Bárðar var Margrét Bárð- ardóttir, b. á Ytri-Skógum, Bergs- sonar, b. á Fossi á Síðu, Jónssonar. Móðir Bárðar á Ytri-Skógum var Guðleif Helgadóttir. Móðir Margrét- ar var Katrín Þorláksdóttir, b. á Hörgslandi, Bergssonar. Móðir Katrínar var Kolfinna Magnúsdótt- ir. Móníka er dóttir Richard Hans Lösch, flugstjóra í Þýskalandi, og Johönnu Lösch, húsmóður þar. Guðmundur verður að heiman á afmælisdaginn. Guðrún Sigurðardóttir, Höfðastíg 14, Bolungarvík. Óli Haukur Sveinsson, fl-afossi LGrímsnesi. SofRa Guðmundsdóttir, Hafnarbraut 8, Dalvík. Auður Magnúsdóttir, Langagerði 78, Reykjavík. Páll V. Óiafsson, Dagverðartungu, Skríðuhreppi. Sigurður Björnsson, Framnesi, Akrahreppi. Hólmfríður Erla Benediktsdóttir, Ljárskógum 3, Reykjavík. Esther Bergþóra Gunnarsdóttir. Hamarsteigi 9, Mosfellsbæ. Sævar Kristinsson, Mánagötu 5, Reyðarfirði. Kristjana Sigurpálsdóttir, Karlsbraut9, Dalvik. Bertha Karlsdóttir, Suðurhólum 18, Reykjavík. Salómon Erlendsson, Árholti4,Húsavík. 60 ára Guðni Albert Guðj ónsson, Nesvegi 63, Reykjavík. Gunnar Haraldsson, Frostafold 42, Reykjavik. Gunnar tekur á móti gestum fóstud. 17.5., kl. 20, í Kiwanishús inu, Smiðjuvegi 13a. Arnþór Þórsson, Reykjamörk 16, Hveragerði. Stefán Ólafur Helgason, Miðstræti 5, Reykjavík. Þórunn E. Baldvinsdóttir, Sörlaskjóli 18, Reykjavík. Ríkey Andrésdóttir, Suðurgötu 37. Akranesi. Jónas Jóhannsson, Hlíðarhjalla 70, Kópavogi. Elín Kristjana Sigfúsdóttir, Ægisgrund 20, Garðabæ. HUGSUM FRAM A VEGINN INNRITUN IIÞROTTASKÓLA ÁRMANNS SIGTÚNI 10 Leikir og fjölbreyttar íþróttir Farið verður í stuttar ferðir Heitur matur Verð kr. 9.000 íþróttakennarar leiðbeina Innritun frá kl. 4-7 daglega í síma 688470 og 38140 1. NÁMSKEIÐ 03.-14. JÚNÍ 2. NÁMSKEIÐ 18.-28. JÚNÍ 3. NÁMSKEIÐ 01.-12. JÚLÍ 4. NÁMSKEIÐ 15.-26. JÚLÍ * Ath. Frá og með 27. maí er innritað frá kl. 1-5.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.