Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 3
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ1991.
3
Fréttir
Fullnustumatsnefnd 1 máli margdæmds afbrotamanns 1 flkniefnamálum:
Mælir með reynslulausn
eftir helming afplánunar
- sérstakar ástæður, sem ég get ekki greint frá, segir formaðurinn
Fullnustumatsnefnd í fangelsis-
málum hefur mælt með að fangi á
Litla-Hrauni, sem hefur hlotiö sam-
tals 4 refsidóma frá árinu 1977 fyrir
fíkniefnamisferli, veröi veitt
reynslulausn eftir helming af afplán-
un. Ef ráðherra fer að tilmælum
nefndarinnar verður maðurinn laus
úr fangelsisafplánun næstkomandi
mánudag.
Samkvæmt heimildum DV ríkir
óánægja og undrun á meðal fanga á
Litla-Hrauni með ákvörðunina. Þor-
steinn Pálsson dómsmálaráðherra
segist ekki hafa afgreitt meðmæli
fullnustumatsnefndar ennþá með
undirskrift en kveðst þó treysta
ákvörðunum hennar.
Umræddur fangi hefur frá því á
síðasta ári verið að afplána tvo refsi-
dóma upp á samtals 29 mánaða fang-
elsi - honum verður því veitt
reynslulausn eftir 14Vi mánaðar af-
plámm. í júní 1989 dæmdi Hæstirétt-
ur manninn í 20 mánaða fangelsi fyr-
ir að hafa nokkrum árum áður haft
163 grömm af amfetamíni í vörslu
sinni. Rúmlega viku fyrr dæmdi
sakadómur í ávana- og fíkniefnamál-
um manninn í 9 mánaða fangelsi fyr-
ir annað fíkniefnamál. Þar var mað-
urinn sakfelldur fyrir að hafa haft
99,9 grömm af amfetamíni í vörslu
sinni og 8 grömm af hassi. Brotin
áttu sér stað 1986 og 1987.
Þegar maðurinn fór síðan í afplán-
un í fyrra átti hann aö sitja ofan-
greinda tvo dóma af sér. 1982 var
maðurinn einnig dæmdur fyrir fíkni-
efnabrot - í 2ja ára fangelsi. 1977
hlaut hann enn annan dóm fyrir
fíkniefnabrot.
„Nefndin íjallar um hvert mál mið-
aö við öll atvik málsins," sagði Jónat-
an Þórmundsson í samtali við DV.
„Það er ekkert sem er algilt í þessu
sambandi. Þetta mál lá þannig fyrir
að við töldum okkur fært að mæla
með reynslulausn. Annars ræðum
við yfirleitt ekki um einstök mál við
fjölmiðla og ég get ekki sagt mikið
meira um þetta.“
- Skýtur það ekki skökku við þegar
það orð hefur farið af fullnustumats-
nefnd á síðustu misserum að hún
veiti ekki reynslulausn eftir helming
afplánunar vegna alvarlegra brota?
„Jú, ég er mjög fús að staðfesta
það. Við mælum yfirleitt ekki með
reynslulausn á helmingi refsingar
þegar um er að ræða ofbeldisbrot,
kynferðisbrot, alvarleg fíkniefnabrot
og alvarleg líkamsárásarbrot. En ég
get ekki greint frá hvaða ástæður
og gömul
Regína Thorarensen, DV, Gjögri;
Ég fór nýlega að skoða gömlu kirkj-
una ásamt séra Jóni ísleifssyni sókn-
arpresti og þykir hún alltaf jafntign-
arleg og hiýleg. Auk þess er þetta
mjög vinalegt guðshús. Var Árnes-
kirkja máluð fyrir ferminguna 16.
júní og tekur hún 60-70 manns í sæti.
Verið er að reisa nýja kirkju og er
hún innréttuð af fagmönnum frá
Reykjavík. Eru múrarameistarar
þessa dagana að leggja norskar stein-
flísar á gólfiö sem er 150 fermetrar.
Kirkjan mun taka 100 manns í sæti
en auk þess fara 50 fermetrar undir
aðra aöstöðu. Er kirkjan í daglegu
tali kölluð borgarísjakinn vegna þess
hversu glæsileg hún er.
liggja að baki í þessu tiltekna máli.
Það eru sérstakar ástæður sem ég
get ekki greint frá,“ sagði Jónatan.
Þorsteinn Pálsson sagðist ekki geta
tjáð sig um ástæður fyrir meðmælum
fullnustumatsnefndarinnar þar eð
hann hefði ekki séð viðeigandi gögn:
„Þetta er ekki komiö inn á mitt
borð ennþá til undirskriftar. Ég fæ
tillögur frá fullnustumatsnefnd og
hef tekið þá ákvörðun að fara eftir
þeim og hef ekki gert neina breytingu
þar á. Ég hef lagt traust mitt á fulln-
ustumatsnefndina," sagði dóms-
málaráðherra.
-ÓTT
5 MANNA FÓLKSBÍLL MEÐ VÖRUPALLI
TRAUSTUR OG ENDINGARGÓÐUR
Búnaður:
■ Dieselhreyfill
11 Tengjanlegt aldrif
■ Tregðulæsing á afturdrifi
M Framdrifslokur
BÍLL FRÁ HEKLUBORGAR SIG
a m
MITSUBISHI HEKLA
MOTORS LAUGAVEGI174
SÍMI695500
Kjörinn bíll fyrir:
m Vinnuflokka
■ Bændur
!S Iðnaðarmenn
SS Útgerðarmenn
S Verktaka
□ Fjallamenn
Verð kr. 1.394.880.- m.vsk.
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ