Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 5. JLJLÍ 1991. Viðskipti Stef nir í metfjölda erlendra ferðamanna - fleiriferðamennkomnirtillandsinsenámetárinuífyrra Nú stefnir í metfjölda erlendra feröamanna til landsins á þessu ári. Fyrstu sex mánuðina höíöu rúmlega tvö þúsund fleiri erlendir feröamenn komið til landsins en á sama tíma í fyrra. Ferðir íslendinga til útlanda voru mjög svipaðar og í fyrra. Fyrstu sex mánuði ársins voru er- lendir ferðamenn um 57.107 talsins miðað við um 54.978 sömu mánuði í fyrra. Því stefnir í met. í júní einum komu mun fleiri erlendir ferðamenn en í júní í fyrra. Tvöföldun ferðamanna frá árinu1980 Frá árinu 1980 hefur koma erlendra ferðamanna meira en tvöfaldast. Þeir voru tæplega 70 þúsund það ár en á metárinu í fyrra voru þeir tæplega 142 þúsund. Á síðustu þremur árum hefur er- lendum ferðamönnum tii landsins fjölgað skarpt. Þeir voru tæplega 129 þúsund árið 1988, fóru síðan í rúm 130 þúsund árið 1989 og í fyrra kom metið mikla eða tæplega 142 þúsund. Aukning erlendra feröamanna í júní var um 5,6 prósent frá júní í fyrra. Verði sú tala heildaraukningin stefnir í að erlendir feröamenn verði um 150 þúsund á þessu ári. Gott met það. 70 prósent yfir sumarið Reynslan sýnir aö um 70 prósent allra erlendra ferðamanna koma til landsins á aðeins fimm mánuðum, Ferðamannastraumurinn ’91 Til landsins fyrstu sex mánuðina ■ íslendingar □ Útlend. 56.287 56.069 „1n7 54.978 57'107 IG I ’90 ’91 Erlendir ferða- menn í júní: 22.251 Þýskaland 17%l Svíþjóð I2%j Bandar. J2%1 Danmörk 10%j England lO^J Noregur 9%j Aðrlr 30% | Ferðamannastraumurinn fyrstu sex mánuði ársins. Það stefnir í metár. Af þeim sem komu til landsins í júní voru Þjóðverjar og Svíar fjölmennastir. Fréttaljós Jón G. Hauksson frá maí til september. Þetta endur- speglast í því að nýting hótela er góð yfir sumarið en léleg á veturna. Júlí er sá mánuður sem langflestir erlendir ferðamenn koma til lands- ins. Búast má við að þeir verði hátt í fjörutíu þúsund í þessum mánuði. Af erlendum ferðamönnum koma langflestir frá Evrópu til landsins, sérstaklega yfir sumarmánuðina. í júní voru Þjóðverjar fjölmennastir, Svíar í öðru sæti og Bandaríkjamenn í því þriðja. Englendingar og hinar Norðurlandaþjóðirnar raða sér í næstu sæti. Þó er athyglisvert að í júní síðast- liðnum komu óvenjumargir Frakk- ar, Svisslendingar og Austurríkis- menn til landsins. íslendingar hafa ferðast mjög svip- að til útlanda á þessu ári og í fyrra. Fyrstu sex mánuðina komu 56.069 íslendingar til landsins miðað við 56.287 í fyrra. Islendingar sprengdu öll met árið1988 Frá árinu 1985 hefur orðið umtals- verð aukning á ferðum íslendinga til útlanda og hvað þá ef farið er aftar í tímann. Árið 1985 komu um 96 þús- und íslendingar frá útlöndum, um 112 þúsund árið 1986 og í góðærinu 1987 fór talan í um 143 þúsund. Svo kom sprengjan árið 1988, í upp- hafi kreppunnar, þegar yfir 149 þús- und landsmenn héldu til útlanda. í fyrra og hittifyrra slökuðu menn aðeins á og fóru þá um 142 þúsund Straumur erlendra feröamanna til landsins hefur stóraukist á undanförnum þremur áratugum. Frá árinu 1980 hefur hann tvöfaldast. Lækkandi Evrópugjaldmiðlar og snarjiækkandi dollar: Stefnir í lakari afkomu hótela vegna gengistaps Þrátt fyrir að nú stefni í met- fjölda erlendra ferðamanna til landsins stefnir hins vegar í mun lakari afkomu hótela og gistihúsa vegna gengistaps. Tekjur flestra hótelanna eru í Evrópugjaldmiðlum og skuldir í dollurum. í fyrra hækkuðu Evr- ópugjaldmiðlar og dollarinn lækk- aði. Þá stórbatnaði aikoman. Nú í ár er þessu algjörlega öfugt farið og afkoman er lakari. Dollarinn var um 56 krónur um áramót. í febrúar var hann kominn niður í um 53 krónur. Nú fjórum mánuðum síöar er hann kominn í tæpar 64 krónur. Breska sterlingspundið var um 108 krónur um áramótin. Nú er pundið í kringum 102 krónur. Fleiri Evrópugjaldmiðlar hafa lækkað. jónas Hvannberg, hótelstjóri á Hótel Sögu, segir að þeir hafi hækk- að gistinguna um 8 til 10 prósent í Evrópugjaldmiðlum en megnið af þeirra viðskiptum séu í þeim gjaldmiðlum. „Miðað við gengisþróunina frá áramótum er ljóst að þessi hækkun er étin upp og rúmlega það,“ segir Jónas. „Þetta er mjög undarleg staða sem við búum núna við, íslenska krónan er sterkari gjaldmiðill en þýska markið, svissneski frankinn og pundið. Þetta er fyrst og fremst vegna þess hve dollarinn vegur þungt í gengiskörfunni. Auk þess erum við með innan- landshækkanir á hráefni. Þar sem við höfum samið við hina erlendu aðila um matarverð í viðkomandi gjaldmiðlum er afkoma okkar aug- ljóslega mun verri fyrir vikið.“ Jónas segir að líklega sé ofmælt að hótelin í landinu séurekin með tapi enda sé skuldastaða þeirra mjög mismunandi, hins vegar stefni í mun lakari afkomu en á síðasta ári. -JGH Ævintýri vodkans Eldurís lokið í Bandaríkjunum: Þeir virðast vera hikandi - segir Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR Vodkinn Eldurís. Framhaldiö vest- anhafs er nú óljóst. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, segir að svo virðist sem Glen- more-fyrirtækið í Bandaríkjunum, sem annast hefur sölu á íslenska vodkanu Eldurís vestanhafs, sé hik- andi um framhald sölusamningsins. Höskuldur segir ennfremur að ÁTVR hafi ekki orðið fyrir neinum kostnaði vegna auglýsinga vestan- hafs á drykknum. Glenmore hafi kostað þær að fullu. „Sá fimm ára samningur, sem ver- ið hefur í gildi á milli okkar og Glen- more-fyrirtækisins, rennur út þann 22. ágúst í sumar. Fyrirtækið hefur endumýjunarrétt þangað tfi. Ef samningurinn verður ekki end- urnýjaður er salan augljóslega búin vestanhafs." Höskuldur segir ennfremur aö honum virðist sem hik sé á Glen- more-mönnum um endurnýjun samningsins. „Það vantar núna eins htra flösk- ur. Ég tel það stafa af hiki hjá þeim við að leggja út í þá fjárfestingu sem framleiðsla flasknanna er fyrst þeir á annað borð geta losnað út úr þess- um samningum núna á næstunni." Höskuldur segir að í samningi ÁTVR við Glenmore sé kveðið á um að ekki séu gefnar upplýsingar um sölutölur vestanhafs. Hann segir hins vegar ekki hægt að draga dul á að velgengni Eldurís vodkans hafi ekki orðið sú sem menn áttu von á. „Enda væri vart hik á mönnum ef salan hefði staðið undir væntingum.“ -JGH tfi útlanda. Sú tala virðist einnig ætla að gilda fyrir þetta ár. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR innlAnöverdtr. (%) hæst Sparisjóðsbækurób. Sparireikningar 5-6 ib.Lb 3ja mán. uppsogn 5,5-9 Sp 6 mán. uppsögn 6,5-10 Sp Tékkareikningar, alm. 1-3 Sp Sértékkareikningar ViSITÖLUB. REIKN. 5-6 Lb.lb 6mán.uppsögn 3-3,75 Sp 15-24 mán. 7-7.75 Sp Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisb. reikningar í SDR6.5-8 Lb Gengisb. reikningarí ECU8.7-9 ÓBUNDNIR SÉRKJARAR. Lb Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3,25-4 ' Bb óverðtr. kjör, hreyfðir SÉRST. VERÐBÆTUR (innan tímabils) 12-13,5 Sp Vísitölubundnir reikn. 6-8 Lb.lb Gengisbundir reikningar 6-8 Lb.lb BUNDNIR SKIPTIKJARAR. Vísitölubundinkjör 6-8 Bb óverðtr. kjör 15-16 Bb INNL. GJALDEVRISR. Bandaríkjadalir 4,5-5 Lb Sterling$pbnd 9,25-9,9 SP Vestur-þýsk mörk 7,5-9,25 Lb Danskar krónur 7.5-8.1 Sp ÚTLÁNSVEXTIR ÚTLÁN óverðtr. (%) lægst Almennirvíxlar(forv.) Viðskiptavixlar(forv.)(1) 18,5 kaupgengi Allir Almennskuldabréf 18,5-19,25 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) UTLÁN VERÐTR. 21,75-22 Bb Skuldabréf 9,75-10.25 Lb.Bb AFURÐALÁN Isl. krónur 18-18,5 Ib SDR 9.7-9.75 Sp Bandaríkjadalir 7,8-8.5 Sp Sterlingspund 13-13,75 Lb.Sp Vestur-þýsk mork 10,5-10,75 Bb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán Dráttarvextir 4.9 5-9 27,0 MEÐALVEXTIR Alm. skuldabréf júlí Verðtr. lán júli 18,9 9.8 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalajúli 3121 stig Lánskjaravísítala júni 3093 stig Byggingavísitala júli 595 stig Byggingavisitala júlí 185,9 stig Framfærsluvisitala júni 152,8 stig Húsaleiguvísitala 2,6% hækkun 1. júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,727 Einingabréf 2 3,077 Einingabréf 3 3,756 Skammtimabréf 1,912 Kjarabréf 5,615 Markbréf 3,001 Tekjubréf 2.118 Skyndibréf 1,666 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,749 Sjóðsbréf 2 1,893 Sjóðsbréf 3 1,899 Sjóðsbréf 4 1,656 Sjóðsbréf 5 1.144 Vaxtarbréf 1,9470 Valbréf 1,8120 islandsbréf 1,193 Fjórðungsbréf 1.101 Þingbréf 1,191 Öndvegisbréf 1,176 Sýslubréf 1,126 Reiðubréf 1,163 Heimsbréf 1,102 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Ármannsfell hf. 2.38 2,50 Eimskip 5,63 5,85 Flugleiðir 2.40 2,49 Hampiðjan 1,85 1,94 Hlutabréfasjóður VlB 1,03 1,08 Hlutabréfasjóðurinn 1,63 1.71 Islandsbanki hf. 1,64 1.72 Eignfél. Alþýðub. 1,66 1.74 Eignfél. Iðnaðarb. 2,40 2,50 Eignfél. Verslb. T.74 1,82 Grandi hf. 2,62 2,72 Olíufélagið hf. 5,45 5,70 Olís 2,15 2,25 Skeljungur hf. 6,00 6,30 Skagstrendingur hf. 4,70 4.90 Sæplast . 7.20 7.51 Tollvörugeymslan hf. 1,00 1,05 Otgerðarfélag Ak. 4,51 4,65 Fjárfestingarfélagið 1,35 1.42 Almenni hlutabréfasj. 1,10 1.15 Auðlindarbréf 1,02 1.07 Islenski hlutabréfasj. 1,07 1.12 Sildarvinnslan, Neskaup. 2,90 3,06 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, lb= Islandsbanki Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.