Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Síða 7
FQSTtfDAGUR 5. JÚLÍ1991. 7 Fréttir Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður um íslensku bækumar: Pappírinn molnar í höndunum á okkur - lélegur pappír stefnir skriílegum heimildum þessarar aldar í hættu „Við stöndum andspænis mikl- um erfiðleikum við að varðveita menningima til framtíðar. Bækur eru mjög áreiðanlega á hverfanda hveli og ýmsar prentaðar heimildir eru að glatast. Sá pappír, sem not- aður hefur verið á þessari öld, er þannig tilbúinn að hann súrnar og verður brotgjam. Hann hreinlega molnar í höndunum á okkur. Sann- leikurinn er sá að gömlu skinn- handritin eru ekki í nærri því eins mikilli hættu og til dæmis fundar- gerðir Hannesar Hafstein. Hér hjá okkur liggja heimildir frá því í lok síðustu aldar og byrjun þessarar sem hreinlega eru að eyðast," segir Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð- ur. Ólafur segir ástæðu þessa vera hversu lélegur sá pappír er sem notaður hefur verið. Framan af hafi pappír verið mjög dýrt og vandað efni en eftir að menn hafi farið að fjöldaframleiða hann hafi gæðunum hrakað verulega. Hann segir Þjóðskjalasafnið hafa um nokkurt skeið barist um á hæl og hnakka fyrir auknum fjárveiting- um til að ljósmynda þær heimildir sem nú séu að glatast. „Ástandið hjá okkur er mjög slæmt og það er hætt við að margt geti gufað upp í höndunum á okkur ef við bregðumst ekki fljótt við vandamálinu. Málið er hins vegar það að við höfum þurft að horfa upp á 60 ára vanrækslu á þessu sviði. Það er varla að nokkur viti hvar Þjóðskjalasafnið er. Samt er það nú svo að við urðum sjálfstæð þjóð vegna þess að við varðveittum heimildir. okkar og allir okkar fremstu menn í sjálfstæðisbarátt- unni unnu í skjalasöfnum." Að sögn Ólafs veldur aukin notk- un endurunnins pappírs honum og öðrum er starfa við skjalavörslu miklum áhyggjum. Um sé að ræða pappír sem að mestu sé unninn úr lélegum og ódýrum dagblaðapapp- ír. Hann segir að þótt pappírinn sé endurunninn verði útkoman aldrei betri en hráefnið sem í hann sé sett. Með þessu segist hann þó ekki vera að gera lítið úr þessum pappír - nota megi hann til ýmissa hluta sem ekki sé ætlunin að varðveita. -kaa Útihúsin orðin að gistiheimili Öm Þórarinsson, DV, Fljótum: Á bænum Lónkoti í Sléttuhlið hefur óvenjuleg leið verið valin við að koma upp aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum. Hefur hlöðu og fjárhúsum verið breytt í þeim tilgangi að skapa aðstöðu til gist- ingar og dvalar. Er þar nú gistiað- staða í rúmum fyrir 20-30 manns og auk þess pláss fyrir talsverðan fjölda í svefnpokum. Eigendur eru hjónin Jón Snæ- hjömsson og Ólöf Ólafsdóttir. Þau hafa búið á jörðinni í sex ár og gert miklar endurbætur á húsakynnum og allri aðstöðu. Gistirými er bæði í tveggja manna herbergjum og á svokölluðu baðstofulofti, auk þess er eldhús, setustofa með sjónvarpi, píanói og fleiri þægindum að ógleymdum sturtum og heitu og köldu vatni. „Hér er mjög. friðsælt, góðar gönguleiðir í dalina hér fyrir ofan og eyjarnar á Skagafirði skammt undan. En það sem erlendum stór- borgarbúum, sem hér hafa dvalið í vor, finnst merkilegast er að sitja og horfa á kvöldsólina þegar hún merlar við hafílötinn í norðri og fikrar sig svo upp á austurhimin- inn án þess að hverfa yfir nóttina. Sama má raunar segja um að geta farið á árahát hér með ströndinni og rennt fyrir fisk,“ sagði Jón Snæ- björnsson. Hann sagði að skammt frá væru ágæt rjúpnaveiðilönd og hægt að renna sér á skíöum fram á sumar. Þau hjónin gera sér grein fyrir erfiðleikum samfara fjárfestingum sem þessari en þau hafa trú á staönum og telja það skilyrði velf- arnaðar. Hjónin að Lónkoti tóku það ráð að breyta útihúsum í gistiaðstöðu fyrir innlenda og erlenda ferðamenn. Á myndinni er Jón Snæbjörnsson i gestamóttökunni. DV-mynd Örn Þórarinsson Ullarþvottastöð Álafoss í Hveragerði hefur verið lokað og misstu 16 manns við það atvinnu sína. Bændur eiga mikið magn ullar hjá fyrirtækinu, eins og sjá má á myndinni, og er óvíst hvað verður um ullarsölu í framtíðinni. DV-mynd Sigrún Lovisa Ullarþvottastöð Álafoss lokað: Starfsfólkið atvinnulaust Sigrún Lovisa Siguijónsd., DV, Hvera gerði: Ullarþvottastöð Álafoss í Hvera- gerði hefur verið lokað og starfsemi fyrirtækisins lögð niður. Einn af bú- stjórum þrotabús fyrirtækisins, Brynjólfur Kjartansson, hélt fund með starfsmönnum og tilkynnti um þessa ákvörðun. Allir fyrrum starfsmenn verk- smiðjunnar eru nú atvinnulausir. Eru þeir 16 að tölu. Fyrsta verk þeirra var að ganga til sveitarstjórn- arskrifstofu Hveragerðisbæjar og láta skrá sig atvinnulausa en lítið er um atvinnu í bænum. Til að létta róðurinn ætlar verkalýðsfélagið Boðinn í Þorlákshöfn að leysa til sín allar launakröfur og greiða síðan starfsmönnum fljótlega eftir mán- aðamótin. Munu þeir eiga inni tals- vert af ógreiddum launum hjá þrota- búinu. Bændur eiga rúmlega 100 tonn af ull hjá fyrirtækinu en minnstur hluti þess er eign þrotabúsins. DV hafði samband við nokkra bændur sem litu heldur döprum augum til fram- tíðarinnar hvað ullarsölu varðar. Ekkert liggur fyrir um það hvort starfsemi heíjist aftur í Ullarþvotta- stöðinni. Er það von bæjarbúa að augu manna opnist fyrir nauðsyn þess að endurreisa starfsemi stöðv- arinnar svo að starfsfólk endur- heimti vinnu sína á ný. Bóndlnn á Stóru-Giljá í Austur-Húnavatnssýslu kjörinn æðsti maður Lions: Fyrsti bóndinn í slíku embætti „Fj ölumdæmisstj órinn er æðsti maður Lionshreyfingarinnar og er kosinn til eins árs í senn. Ég var kosinn á umdæmisþinginu sem hald- ið var á Akureyri í byijun júní. Sennilega er það einsdæmi að bóndi gegni æðsta embætti Lions og ég veit ekki til þess að það hafi gerst áður,“ segir Erlendur Eysteinsson, hóndi á Stóru-Giljá í Austur-Húnavatns- sýslu. Talið er að það sé ekki bara einsdæmi hér á landi að bóndi gegni æðsta embætti Lionshreyfingarinn- ar heldur í öllum heiminum. Um 3000 manns eru í Lionshreyfingunni á ís- landi. „Ég hef verið í Lionsklúbbi Blöndu- óss frá 1980 og mér hefur líkað það mjög vel. Það er mjög uppbyggilegt starf sem unnið er í hreyfingunni og virkilega gott að vinna með þessum mönnum og vel þess virði að gera það.“ Fjölumdæmisstjóri stjómar Lions- hreyfingunni á íslandi og með hon- um starfa tveir umdæmisstjórar. Starfið er sjálfboðaliðastarf og því ólaunað. „Þetta er nokkuð mikið starf og mun meira að sinna því norðan af landi heldur en í Reykjavík. Það eru mikil ferðalög vegna starfsins og fundahöld." - Hvernig samrýmist þetta starf þínum störfum sem bóndi? „Það getur allt samrýmst ef maður vill það og þá er bara að breyta skipu- lagingu og vinna samkvæmt því. Ég þarf náttúrlega oft að fara frá og þá er gott að hafa einhvern til að vinna fyrir sig. Ég er svo heppinn að búa með syni mínum í félagsbúi þannig að þetta fer ágætlega saman. En vissulega getur þetta verið erfitt stundum vegna ferðalaga. Ég er til dæmis búinn að vera úti í Ástralíu í þijár vikur á fjölumdæmisþingi sem á mættu um 35 þúsund manns. Þetta voru náttúrlega ekki allt umdæmis- stjórar eða íj öl u mdæmisstj órar. Um- dæmisstjórar í heiminum eru um 700 en fjölumdæmisstjórar um 350 tals- ins. En ég hlakka til að takast á við þetta starf.“ -ns

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.