Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 9
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991.
Júgóslavneskur liðhlaupi kyssir dóttur sína við heimkomuna í gær.
Símamynd Reuter
Kólumbía:
Neyðarástandi af létt
eftirsjöár
Kólumbíska ríkisstjórnin til-
kynnti í gær aö hún ætlaði aö af-
létta neyðarástandslögum sem gilt
hafa í landinu í sjö ár. Þessi til-
kynning kemur í kjölfar þess að
Medellin kókaínhópurinn hefur
lofað að leysa upp vopnasveitir sín-
ar.
Samningur, sem undirritaður
var af forseta Kólumbíu, Cesar
Gaviria og ríkisstjórn hans, aflétti
neyðarástandslögunum frá mið-
nætti í gær um leið og ný stjórnar-
skrárlög landsins gengu í gildi.
„Við höfum nú aflétt neyðará-
standslögunúm sem notuð voru til
að reyna að binda enda á ofbeldið
í landinu," sagði forsetinn.
Hálfur mánuöur er liðinn síðan
Pablo Escobar, forystumaður Me-
delhnhópsins, gaf sig fram við yfir-
völd og situr hann nú í fangelsi. í
gær tilkynnti hinn vopnaði armur
Medelhnhópsins að hann hygðist
leysa upp vopnasveitir sínar.
Reuter
Búlgaría:
Mælt með lokun hættu-
legs kjarnorkuvers
Alþjóðakjamorkumálastofnunin
hefur lýst því yfir að eina kjarnorku-
ver Búlgaríu sé hættulegt og Alex-
ander Tomov aðstoðarforsætisráð-
herra segir að efnahagur landsins
muni hrynja ef því verði lokað.
Tomov sagði á fundi með frétta-
mönnum að Kozloduy kjamorkuver-
ið við Dóná framleiddi 40 prósent af
orku Búlgaríu og að lokun þess
mundi hafa mjög alvarlegar afleið-
ingar fyrir búlgarskt efnahagslíf og
jafnvel þróunina í lýöræðisátt.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
sendi nýlega eftirlitsmenn til kjarn-
orkuversins og niðurstaða þeirra var
sú að það væri í mjög bágbomu ásig-
komulagi. Stjórnvöld voru hvött til
að kippa því hðinn.
Kjarnorkuverið er sovéskrar gerð-
ar, svipað því sem var í Tsjemóbýl,
og sagði Tomov að helsta vandamál
þess væru fjórir kjarnaofnar sem
framleiddu 440 megavött hver um
sig. Hann sagði að Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunin hefði mælt með
því að ofnarnir yrðu stöðvaðir í sex
mánuði th að hægt yrði aö gera við
þá.
Tveir aðrir kjarnaofnar, sem hvor
um sig framleiða 1000 megavött, em
einnig í Kozloduy verinu en Tomov
sagði að þeir væru ekkert öruggari
enhinirfjórir. Reuter
Útlönd
Slóvenar láta alla
stríðsfanga lausa
- skærur í Króatíu milli þjóövaröliða og serbneskra þjóöemissinna
Tveir Slóvenar rannsaka júgóslavneskan skriödreka sem eyðilagðist i bar-
dögum milli sambandshersins og slóvenskra varnarsveita. Simamynd Reuter
Slóvenar samþykktu seint í gær-
kvöldi að sleppa öhum júgóslavnesk-
um hermönnum sem þeir hafa tekið
höndum í bardögum undanfarinna
daga og héldu þeir á brott með sér-
stakri lest í morgun.
Júgóslavneska fréttastofan Tanjug
sagði að samkomulag hefði náðst
milh slóvenskra yfirvalda og Rauða
kross lýðveldisins eftir að forsætis-
ráð Júgóslavíu fyrirskipaði að öhum
föngum skyldi sleppt kl. 22 í gær-
kvöldi að íslenskum tíma.
Rauði krossinn í Slóveniu hefur
sagt að meira en tvö þúsund sam-
bandshermenn og 130 lögregluþjónar
hafi verið handteknir í bardögimum
sem blossuðu upp 27. júní, tveimur
dögum eftir að Slóvenía lýsti yfir
sjálfstæði sínu.
Slóvenar höfnuðu í gær úrslita-
kostum forsætisráðsins um að láta
af hendi stjóm á landamærum lýð-
veldisins við Austurríki, Ítalíu og
Ungveijaland í síöasta lagi kl. 10 á
sunnudagsmorgun. Milan Kucan,
forseti Slóveníu, sagði í viðtali við
ítalska útvarpið í gær að þjóð hans
mundi berjast til að varðveita sjálf-
stjórn sína.
„Þjóð okkar mun beijast. Hún
gerði svo i heimsstyrjöldinni síðari
og hún mun gera það aftur,“ sagði
hann.
í viðtali við slóvenska sjónvarpið
sagði hann að úrslitakostum fylgdu
fleiri úrslitakostir og þeim fylgdi síð-
an stríð.
Lojze Peterle, forsætisráðjierra
Slóveníu, sagði að hann óttaðist frek-
ari árásir sambandshersins og Sló-
venar komu upp nýjum tálmum á
helstu þjóðvegi inn í höfuðborgina
Ljubljana. Sprengjum var komið fyr-
ir í vegatálmunum og brýr í borginni
voru einnig lagðar sprengjum.
Forsætisráðið fyrirskipaði sló-
vensku varnarsveitunum að hverfa
aftur til búða sinna fyrir klukkan tíu
í gærkvöldi og fjariægja alla vega-
tálma á hádegi í dag. Ekki fylgdi kröf-
unni til hvaða aðgerða yrði gripið ef
henni yrði ekki hlýtt. Þess sáust ekki
nein merki í gærkvöldi að varnar-
sveitimar væru á leið tíl búða sinna.
Byssumar vom hljóðar í Slóveniu
í gær en í Króatíu kom til átaka milli
króatískra þjóðvarðhða og manna
úr serbneska minnihlutanum í lýð-
veldinu. Serbía og Króatía eru
stærstu lýðveldi Júgóslavíu og hthr
kærleikar hafa verið á milli þeirra.
Átök þeirra í mhli gætu leitt af sér
allsherjar borgarastyrjöld í landinu.
Tanjug-fréttastofan sagði að tveir
króatískir varðhðar hefðu verið
drepnir og margir hefðu særst í skot-
bardögum í austurhluta lýðveldiSins.
Króatíska sjónvarpið skýrði frá því
að nokkrir hefðu látið lífið í þorpinu
Borovo Naselje og flestir þeirra hefðu
verið Serbar.
Hrvoje Hitrec, upplýsingamálaráð-
herra Króatíu, sagði að tíu brynvarð-
ir bílar hersins og serbneskir þjóð-
ernissinnar, sem kallaðir eru Tsjetn-
ikkar, hefðu haldið inn í austurhluta
Króatíu og hann óttaðist að þeir
mundu reyna aö leggja svæðið undir
Serbíu.
Peterle, forsætisráðherra Slóveníu,
flýgur til Brussel í dag til að knýja á
um að Evrópubandalagið viðurkenni
sjálfstæði Slóveníu. Utanríkisráð-
herrar Evrópubandalagsins hittast
síðan í Haag í dag til að ræða ástand-
ið í Júgóslavíu.
Ráðstefna 35 þjóða um öryggi og
samvinnu í Evrópu, RÖSE, lýsti því
yfir í Prag snemma í morgun að hún
mundi senda nefnd th Júgóslavía th
að fylgjast með herflutningum og til
að tryggja að vopnahléið haldist.
Deiluaðilar vom hvattir til að láta
ekki byssurnar tala og kveðja allar
sveitir sínar aftur til búða sinna. Þá
sagði RÖSE að Slóvenía og Króatía
ættu ekki að gera neitt frekar til að
slíta tengshn við Júgóslavíu í þijá
mánuði.
Mikið hefur verið um hðhlaup úr
sambandshemum eftir að bardagar
í Slóveníu lognuðust út af. Hermenn,
sem höfðu hlaupist undan merkjum,
sögðu í gær að í einum herbúöum í
borginni Maribor hefði um þriðjung-
ur hermannanna, 150 óbreyttir liðs-
menn og foringjar, gengið út á
fimmtudagsmorgun.
í bænum Vrhnika gerðu áhyggju-
fullar mæður aðsúg að júgóslavnesk-
um ofursta og kröfðust þess að fá
syni sína aftur. Sex rútur komu með
foreldra alls staðar að úr Júgóslavíu
til Slóveníu í gær í heimsókn til sona
sinna, sem flestir eru á táningsaldri.
Ein serbnesk kona sagði: „Viö höfum
ekkert á móti sjálfstæði Slóveníu.
Þeir geta farið. Við viljum bara fá
börninokkaraftur." Reuter
SPORTFATriAÐUR
POrtY 520
LINDA 592
AnriA 507
KR. 4.233 Kft. 2.980 KR. 3.984
Gott úrval
af
frábærum
fatnaði á
verði sem
allir ráða
við.
Opið frá kl. 10-16
laugardaga