Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 11
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991. 11 Utlönd i stsr. afsl. 4 ■ 5 manna tjök Boniull (15.000) N.vlon (12.900) TJALDVAGNAR og allt í útileguna: Tjöld, svefnpokar, himnar, gönguskór, allur útilegufatnaður, stólar, grill, borð, sólskýli og margt margt fleira. OPIÐ ALLAR HELGAR í SUMAR Vatnsheldir með útöndun SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 • Crandagarði* Örfirisey • Reykjavík • S. 621780 Alþj óðagj aldeyrissj óðurinn: Minni hernadarút- gjöld auka velsæld Iönaöarþjóðir veröa aö fylgja framkomnum tillögum um takmörk- un vopnaútflutnings eftir með hertu eftirliti meö því hvemig íjárhagsað- stoð þeirra er notuð ef þær ætla sér að hafa hemil á útgjöldum til her- mála í þróunarlöndunum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lét framkvæma og þar sem dreginn er taumur samhæfðs samdráttar í hernaðarútgjöldum svo nota megi fjármagnið til hagsbóta fyrir efna- hagslíf viðkomandi landa. „Samhæfður samdráttur í hernað- arútgjöldum, sem breytir ekki hern- aðarjafnvæginu, mun auka efna- hagslega velsæld í heiminum," segir Daniel Hewitt úr fjármáladeild Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins í skýrslu sinni. Þessi óvenju berorði boðskapur gjaldeyrissjóðsins er settur fram mitt í umræðunni sem Persaflóastríðið kom af stað um hvernig eigi að stöðva útbreiðslu vopna, einkum til átaka- svæða. Bandaríkin, Bretland og Frakkland hafa öll lagt fram áætlanir um stjóm á vopnasölu og um síðustu helgi studdi Evrópubandalagið stofnun skrár um hefðbundin vopn á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þjóðimar fimm, sem eiga fastafulltrúa í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna, munu hittast í París 8. og 9. júlí til að ræða afvopnun og sama mál verður einnig á dagskrá leiðtogafundar sjö helstu iðnríkja heims sem fram fer í London dagana 15.-17. júlí næstkomandi. Hewitt komst að því að sum þróun- arlönd veittu allt að fjórðungi lands- framleiðslu sinnar og allt að helm- ingi ríkisútcriaifiQ v,q»~.í— milh áranna 1972 og 1988. Sum landanna eyddu meira að segja meim fé til hermála en til húsnæðismála og matvælakaupa. Tíu lönd hafa stöðugt veitt meira en 15 prósentum landsframíeiöslu sinnar til vopnakaupa og eru níu þeirra í Mið-Austurlöndum. ísraels- menn hafa eytt mestu en á eftir koma Angóla, Óman, Yemen, Jórdanía, Saudi Arabía, írak, Sýrland, Egypta- land og Líbýa. „Há útgjöld til hermála áttu vissu- lega sinn þátt í Utlum hagvexti og erfiðu efnahagsástandi í sumum löndum með því að taka fjármuni frá félagslegum framkvæmdum, efna- hagsþróunarverkefnum og einka- geiranum," segir Hewitt í skýrslu sinni. Reuter Sýrland er meðal þeirra landa sem eyða einna stærstum hluta landsfram- leiðslu sinnar i vopnakaup. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill að iðnríkin tak- marki vopnaútflutning og herði eftirlit með fjárhagsaðstoð sinni til þróunar- landanna. Simamynd Reuter Bretland: íhaldsflokk- urinn eykur fylgisitt Samkvæmt nýrri Gallup- könnun, sem breska blaðíð Da- py Telegraph birti í dag, hefur íhaldsfloklaium tekist að saxa á forskot Verkamannaflokks- ins. f könnuninni kemur fram að fylgi Verkamannaflokksins er 3,5 prósentum meira en fylgi íhaldsflokksins en í annarri skoðanakönnun fyrir mánuði var 8 prósenta munur á flokk- unum Verkamannaflokknum í vil. Verkamannaflokkurinn myndi samkvæmt könnuninni fá 40,5% atkvæða, íhaldsflokk- urinn 37%, Ftjálslyndi Demó- krataflokkúrinn 17% og aðrir flokkar 4%. 16 ára jQársvikamaður: þotumoggekk ummeð bílasíma Dómstólar í Englandi fengu nýlega inn á borð til sín mól 16 ára gamals Breta sem stundaði stórfelld svik. Strákurinn komst yfir kreditkort fóður síns og hóf hiö Ijúfa lif. Hann fór í verslunarleiðangra i dýrustu búðir Lundúna, leigði bestu svíturnar á bestu hótelunum og tókst að blekkia fjölda manns til að halda aö hann væri far- sæll fjármálamaður. Hann fékk lánafyrirtæki til að lána sér 47 milljónir króna tíl kaupa á einbýlishúsi í út- hverfi London og flaug með vini sína á einkaþotu til Parisar og Tenerife. Eftir skóla á daginn gekk hann um með bílasíma og fékk fólk til að halda að hann væri 25 ára gamall vellaunaður verðbréfasali. Þegar lögreglan loksins lagði hald á kauða nam fjársvikahal- inn um 63 milljónum króna. Strákurinn, sem nú er 18 ára gamall, hefur viöurkennt að hafa stolið kreditkortinu og komist yfir peninga, eignir og lán með blekkingum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.