Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991. íþróttir Enn útísigur hjá Víkingum - unnu KA á Akureyri í fyrsta sinn 19 ár Hermann Karlsson, DV, Akureyii: Víkingar viröast ekki sigra nema á útivelli í sumar. Þeir hafa enn ekki unnið leik á heimavelli á keppnis- tímabilinu en í gærkvöldi unnu þeir^ sinn 4. útileik á sumrinu. Þeir sigr- uðu KA, 0-1, og var þetta fyrsti sigur Víkings á KA á Akureyri í 9 ár eða síðan 1982. Víkingar byrjuðu af miklum krafti þrátt fyrir að þeir væru án Guð- mundar Steinssonar, sem er meidd- ur, og áttu algerlega fyrsta hálftíma leiksins. Strax á þriðju mínútu náði Atli Einarsson að skora eftir vam- armistök KA-manna. Löng sending kom fram völlinn og varnarmenn KA misstu gersamlega af boltanum sem féll fyrir fætur Atla sem var einn og óvaldaöur og hann skoraði með fallegu skoti. Víkingar voru mun aðgangsharðari og voru nálægt því að skora annað mark rétt fyrir hlé en þá varði Haukur Bragason dauða- færi frá Helga Sigurðssyni. KA-menn komu meira inp í leikinn í síöari hálfleik og Víkingar bökkuöu meira á vellinum. Páll Gíslason komst einn í gegn á 46. mínútu en skaut framhjá Pavel Vandas og náði að koma knettinum í net Víkinga en markið var dæmt af vegna brots inni í vítateignum. Gauti Laxdal átti hörkuskot á 73. mínútu sem Guð- mundur Hreiðarsson varði í stöngina og út. Sókn KA bar ekki árangur en undir lokin fengu Víkingar dauða- færi þegar Atli Einarsson komst í gegnum vörn KA, lék á Hauk mark- vörð, en hitti ekki á tómt markið. Erlingur Kristjánsson var yfir- burðamaður í liði KA en hjá Víking- um voru þeir Atli Einarsson og Guð- mundur Magnússon bestu menn. Siglingar á kjölbátum og kænum: Svala fyrst í mark Landsbankakeppnin í kjölbátasigl- ingum fór fram á Faxaflóa um miðj- an júní og var siglt frá Reykjavík til Keflavíkur og til baka. Sigurvegari varð Svala en skipstjóri á henni var Garðar Jóhannsson og aðrir í áhöfn þeir Snorri Vignisson, Ingi Ás- mundsson og Jóhannes Jónsson. í öðru sæti varð Eva, skipstjóri Áskell Agnarsson, og í þriðja sæti varð Pía, skipstjóri Hafsteinn Matt- híasson. Keppnin var nú haldin í annað sinn og keppt um glæsilegan farandbikar sem Landsbankinn gaf. Níu skútur tóku þátt i keppninni og veður var mjög hagstætt fyrir kjölbátasigling- ar, norðaustan kaldi og sólskin. • Þá fór fram keppnin Grand- Keflavík en þar voru þátttakendur þeir sömu og í Landsbankakeppn- inni. Þar sigraði Dögun, skipstjóri Steinar Gunnarsson, en Eva varö önnur og Pía þriðja. • Sigurborg, undir stjórn Páls Hreinssonar, hefur sigraö á tveimur síðustu þriðjudagsmótum sem fram fóru 18. og 25. júní. Á fyrra mótinu varð Svala (Jóhann Reynisson) önn- ur og Dögun þriðja, en á því síðara varð Gletta (Höskuldur Hauksson) önnur og Dögun þriöja. • Dögun sigraði síðan á Sólstöðu- mótinu sem fram fór um síðustu helgi á vegum Brokeyjar. Flóin, skip- stjóri Jón Hjaltalín Ólafsson, varö önnur og Andra (Jón Skaftason) þriðja. • Um helgina fór líka fram Dodda- mótið á kænum. í opnum flokki sigr- aði Gunnlaugur Jónasson á Europe- báti, Guðjón I. Guðjónsson á Europe varð annar og Páll Hreinsson á Laser þriðji. í optimist-flokki sigraði Rakel Jóhannsdóttir, Ragnar Þórisson varð annar og Gísli Kristjánson þriöji. • í dag klukkan 16 hefst Faxaflóa- keppnin utan við Reykjavíkurhöfn en þaðan er siglt til Ólafsvíkur. Þar verður síðan keppt um Ólafsvíkur- bikarinn á sunnudag. -VS Þeir bestu verðlaunaðir Eins og áður hefur komið fram munu DV og Samskip hf. standa saman að kjöri á leikmanni, þjálfara og dómara hvers mánaðar í 1. deildinni í knatt- spyrnu í sumar. Samskip hf. er styrktaraðili deildarinnar sem nefnist opin- berlega Samskipadeildin. Þar sem aðeins ein umferð var leikin í maí var hún sameinuð umferðunum fimm í júnímánuði og kjörið fyrir júní verður opinberað í helgarblaði DV á morgun. Fram-dagurinn á sunnudag Fram-dagurinn 1991 verður á sunnudaginn kemur, 7. júlí. Knatt- spyrnuleikir í yngri flokkum verða á Fram-vellinum við Safamýri og veitingar Fram-kvenna verða bomar fram í Fram-heimilinu frá kl. 14. HVALEYRARHOLTSVÖLLUR HAUKAR - FYLKIR í KVÖLD KL. 20 EIGNABÆR Í3XXEK7 Bæjarhrauni 8, sími 654222 V Sport- stúfar Mikil spenna í 3. deild í knattspyrnu • Eftir leikina í 3. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í fyrra- kvöld er baráttan þar orðin mjög tvísýn. Öll lið hafa unnið og öll tapað eftir að Skalla- grímur beið ósigur fyrir ÍK, 4-1, í Kópavogi. Staðan í 3. deild er nú þannig: II Leiftur ...6 4 1 1 12-4 13 Skallagrímur. 6 3 2 1 14-13 11 BI ...6 3 1 2 10-5 10 Reynir Á ...6 3 1 2 10-11 10 Dalvík ...6 '2 2 2 10-10 8 ÍK ...6 2 2 2 9-10 8 Völsungur... ...6 2 2 2 8-10 8 Magni ...6 2 0 4 12-17 6 Þróttur N ...6 1 2 3 8-7 5 KS ...6 1 1 4 4-10 4 Tryggvi í fjórða sætinu • Tryggvi Sigmansson náði best- um árangri íslenskra skotmanna á Eyjaleikunum á Álandseyjum í síðustu viku. Hann varð í fjórða sæti í keppni með staölaðri skammbyssu. Þorsteinn Guð- jónsson varð fimmti og Gunnar Bjarnason sjötti í keppni með enskum rifíli, Björn Halldórsson sjöundi í haglabyssuskotflmi og Theodór Kjartansson áttundi í sömu grein. Tátumót4. flokks í knattspyrnu | • Tátumót KSÍ í 4. I flokki verður .haldið I //» um helgina og hefst á ' laugardaginn með riðlakeppni. Úrslitakeppnin verður síðan haldin síðar í mán- uðinum. í Á-riðli, sem leikinn verður á KR-velli, leika: Fjölnir, Sindri, KR, KA og FH. í B-riðli, sem leikinn verður í Mosfellsbæ, leika: Stjarnan, Afturelding, ÍA, Týr og Valur og í C-riðli, sem leik- inn verður í Kópavogi, leika: Sel- foss, UBK, Víðir, Haukar og Skallagrímur. Aldursflokkameistaramót íslands í sundi • Aldursflokkameist- aramót íslands í sundi verður haldið í Hafn- arfirði um helgina. Þetta er eitt stærsta sundmót árs- ins og verða keppendur um 300 talsins. Mótið fer fram á vegum Sundsambands íslands en hin ýmsu félög sjá um að halda mótið ár hvert. Að þessu sinni er það Sundfélag Hafnarfjarðar sem hef- ur veg og vanda af mótshaldinu. Mótið fer fram í Suöurbæjarlaug sem er öll hin glæsilegasta. Mótið er opið almenningi og er fólk hvatt til að koma og fylgjast með frammistöðu fremsta sundfólks landsins í þessum aldursflokk- um, 17 ára og yngri. I.deild karla Fram 8 5 1 2 12-8 16 KR ....8 4 3 1 14-4 15 UBK ....7 4 2 1 13-8 14 ÍBV ....7 4 1 2 12-10 13 Valur ....7 4 0 3 9-7 12 Víkingur ....8 4 0 4 13-15 12 KA ....8 3 1 4 8-9 10 FH ....8 2 2 4 8-11 8 Stjarnan ....7 1 2 4 6-12 5 Víðir ....8 0 2 6 6-17 2 Markahæstir: Steindór Elison, UBK..........7 Guömundur Steinsson, Vík......6 Hörður Magnússon, FH..........5 Jón E. Ragnarsson, Fram.......4 Leifur Hafsteinsson, ÍBV......4 • Það var hart barist í leik Fram og KR í gærkvöldi. Bæði lið fengu aragrúa dau< - tvimælalaust besti ieikur 1. deildar í sumar. Hér er Baldur Bjarnason að le Erekk orðinn - sagði Ásgeir Elíasson, þjálfai „Þetta var sigur en það er enn ýmis- legt sem við þurfum að laga fyrir næstu leiki. Ég er ekki ennþá orðinn ánægður með leik minna manna þrátt fyrir þennan sigur gegn KR og að Fram sé á toppi deildarinnar," sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, eftir að Fram hafði sigrað KR, 1-0, í toppslag liðanna í 1. deild íslandsmótsins í knattspymu í gærkvöldi. Leikur hðanna var stór- skemmtilegur og spennan á lokamín- útunum hreint ólýsanleg. Bæöi lið áttu þá mjög góð marktækifæri sem ekki nýttust. Það var Ríkharður Daðason sem skoraði sigurmark leiksins af stuttu færi á 43. mínútu leiksins. Hann fékk langa stungusendingu inn fyrir vörn KR sem Ólafur Gottskálksson átti að hirða. Ólafur hikaði hins vegar og eftir að hafa leikið snyrtilega á Gunnar Oddsson skoraði Ríkharður þetta mik- ilvæga mark fyrir Fram. Á 56. mínútu átti Ríkharður þrumuskot í þverslá meö vinstri fæti og sýndi þar mikil til- þrif. Annars höfðu KR-ingar verið sprækari fyrsta hálftímann en ekki náð að skora þrátt fyrir góð færi. Framarar sóttu í sig veðrið og léku mjög vel og aldrei betur en eftir að þeir komust yfir. Snilldarmarkvarsla Birkis Kristinssonar Þegar 10 sekúndur voru eftir af venju- iegum leiktíma átti Þormóður EgOsson bylmingsskot af löngu færi og knöttur- inn stefndi í bláhornið út við stöng. Birkir Kristinsson varði hins vegar skot hans á undraverðan hátt. „Ég var heppinn að vera þannig staðsettur í markinu að ég náði að veija skotið sem var mjög fast. Þetta var góður sigur og svo virðist sem örlítillar meistara- heppni sé farið að gæta hjá okkur," sagði Birkir eftir leikinn en í gær- kvöldi lék hann sinn 100. leik með Fram í 1. deild. Fimmti sigur Fram í röð Framarar léku mjög vel í gærkvöldi eftir slæman hálftíma í upphafi. Lang-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.