Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1991, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991.
STRAUMAR í HVÍTÁ
Nokkrir dagar lausir í ágúst.
Upplýsingar í síma 656308 eftir kl. 18.
LOKAÐ
laugardaginn fyrir verslunarmannahelgina, 3. ágúst.
Útlönd__________________________________________pv
Litháen:
Þingið ræðir morð-
in við landamærin
BORGARBILASALAN
GRENSÁSVEGI 11, SÍMAR 813085 OG 813150
Litháíska þingiö hefur verið kvatt
heim úr sumarfríi og kemur saman
til neyðarfundar í dag vegna morö-
anna á sex landamæravörðum. Verð-
irnir voru drepnir í dögun í gær í
verstu árás á landamærastöð í Lithá-
en frá því það lýsti yfir sjálfstæöi
sínu frá Moskvu á síðasta ári.
Marionus Misiukonis innanríkis-
ráðherra sagði á fundi með frétta-
mönnum að svo virtist sem mennim-
ir hefðu verið þvingaðir til að leggj-
ast á gólf varðskýlisins og þeir síðan
skotnir með vélbyssu. Flestir þeirra
voru skotnir í höfuðið.
Tveir verðir til viðbótar voru þungt
haldnir á sjúkrahúsi í Vilnius eftir
skurðaðgerð.
Engin samtök hafa lýst ábyrgð
verknaðarins á hendur sér og lithá-
ísk stjórnvöld sögðu aö þau vissu
ekki hverjir stæðu á bak við árásina.
„Þetta var gert af mönnum sem
þekkja byssur, sem vita hvernig á
að nota þær,“ sagði Misiukonis í
gærkvöldi. „Það er greinilegt að þess-
ir menn komu til að drepa.“
Mikhaíl Gorbatsjov Sovétforseti og
George Bush Bandaríkjaforseti
hörmuðu báöir morðin og Gorbatsj-
ov hét því að haft yröi uppi á morð-
ingjunum.
Litháíska þingið lýsti yfir þjóðar-
sorg næstkomandi laugardag en þá
veröa mennimir jarðsettir.
Landamærastöðvar Eystrasalts-
lýðveldanna hafa margsinnis orðið
fyrir árásum sérsveita innanríkis-
ráðuneytisins, svonefndra svart-
húfna, á undanfórnum mánuðum.
Foringjar svarthúfusveitanna neit-
uðu því hins vegar í gær að menn
þeirra hefðu yfirgefið búðir sínar allt
kvöldið.
Reuter
Ákveðið hefur verið að hafa handboltaskóla fyrir
börn fædd 1977-1985 dagana 6.-16.8. nk.
Hópnum verður þrískipt, strákar og stelpur saman.
Hópur 1: (1982-’85) kl. 9.00-12.00
Hópur 2: (1979- 81) kl. 13.00-16.00
Hópur 3: (1977- 78) kl. 16.00-18.00
Kennt verður í Iþróttamiðstöðinni, ýmist úti eða inni
eftir aðstæðum.
Gjaldið er kr. 4.000 fyrir hópa 1 og 2 en kr. 3.000
fyrir hóp 3. 15% systkinaafsláttur. Innritun í síma
611149 og 17830.
Unglingaráð handknattleiksdeildar Gróttu
MEMOREX
HÁGÆÐA HLJÓÐ- OG MYNDBÖND
*•'
MEMOREX
MEST SELDU KASSETTURNAR
í BANDARlKJUNUM
Á BETRA VERÐI
Króatar kalla til fleiri varaliða
Leiðtogar Króatíu hafa hvatt til
þess að fleiri varaliðar verði kallaðir
í lögreglulið lýðveldisins til þess að
stöðva sókn serbneskra skæruliða
og þeir segjast einnig vera reiðubún-
ir að bjóða serbneska minnihlutan-
um sjálfsstjórnarsvæði.
Þessar aðgerðir leiðtoganna vöktu
þó litla bjartsýni um að hægt yrði
að binda enda á sívaxandi ofbeldi í
Júgóslavíu sem braust út þegar Kró-
atía og Slóvenía lýstu yfir sjálfstæði
sínu 25. júní síðastliðinn.
„Þetta er líklega of lítið og of seint,“
sagði vestrænn stjórnarerindreki.
„Króatar hefðu átt að bjóða þetta
fyrir mörgum mánuðum áður en
fjandinn varð laus. Hvers vegna
skyldu Serbar fallast á málamiðlun
þegar sigur þeirra er í sjónmáli?"
Serbneskir skæruliðar hafa náö
undir sig fjöldamörgum þorpum að
undanfómu og talið er að þeir séu
að kortleggja landamæri Stór-Serbíu
sem mundi ná yfir þau svæði Króatíu
þar sem Serbar era í meirihluta.
Ákvörðun leiðtoganna um aukna
herkvaðningu verður væntanlega
samþykkt í króatíska þinginu í dag.
Króatar tilkynntu ákvörðun sína á
sama tíma og sendinefnd frá Evrópu-
bandalaginu kom tii Júgóslavíu tii
að reyna aö koma á vopnahléi og
undirbúa komu utanríldsráöherra
frá bandalaginu til Júgóslaviu um
helgina.
Júgóslavneska forsætisráðið fund-
Símamynd Reuter
aði aftur í gær tii að reyna að binda
enda á ofbeldið en árangurinn varð
lítill. Forsætisráðið tilkynnti aðeins
að það mundi leggja aðra vopnahlés-
tillögu fyrir Króata.
Reuter
ísrael býður málamiðlun
ísraelsmenn munu leggja til að
jórdanskur embættismaöur, sem
fæddur er í Jerúsalem, veröi í sam-
eiginlegri sendinefnd Jórdaníu og
Palestínumanna á væntanlegri frið-
arráðstefnu um Mið-Austurlönd.
Með því ætla þeir að leysa deiluna
um fulltrúa Palestínumanna úr
þeirri sjálfheldu sem hún er komin í.
„Þetta er málamiðlun sem við gæt-
um fallist á,“ sagði ísraelskur emb-
ættismaður í samtali við Reuters-
fréttastofuna.
Embættismaðurinn, sem fór fram
á nafnleynd, sagði að ísraelsmenn
mundu stinga upp á þessari lausn
þegar James Baker, utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna, kæmi til ísra-
els í dag.
Harðlínustjómin í ísrael hefur gef-
ið það í skyn að hún muni segja já
við tillögum Bandaríkjanna um frið-
arráðstefnu á svæðinu en hún er enn
að leita eftir skýringum Bandaríkja-
stjórnar á því hverjir eigi að vera
fulltrúar Palestínumanna.
„Það kemur ekki til greina að gefa
Baker neikvætt svar,“ sagöi Benja-
min Netanyahu, aðstoðarutanríkis-
ráðherra ísraels, i viðtali við ísra-
elska sjónvarpið í gærkvöldi.
Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í
gær að hann ætlaði að kveðja friðar-
ráðstefnuna saman í október og það
væri á ábyrgð ísraelsmanna að hún
lukkaðist.
Reuter
Bíiasaia Matthíasar Vantar þig bíl fvrir mestu
v/Mikiatorg ferðahelgi ársins?
VERSLUNARMANNAHELGARTILBOD!
BJÓÐUM40 BÍLA Á ALLT AÐ 40% AFSLÆTTI í DAG OG NÆSTU DAGA!
Bílasala Matthíasar v/Miklatorg
S. 24540 og 19079
Þciv sem viöstciptin gevastl