Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1991, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1991, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991. 15 Þá grundvallar- atriði gleymast Nýju krataráðherrarnir virðast óttast tímaskort í embætti, svo á- kafir eru þeir að láta á sér bera í starfi. T.d. líður naumast sá frétta- tími sjónvarps nú í sumar, að ekki birtist annar hvor eða báðir á skjánum, og fer nú að minna á umsvif fyrrverandi fjármálaráð- herra í fjölmiðlunum, þegar hæst lét. Ekki er að efa, að hér býr að baki vilji til að láta gott af sér leiða, en því miður vill oft loða við aðsóps- mikla dugnaðarmenn, að þeir gefa sér ekki tíma til íhugunar og sam- ráðs. Það er slæmt, því oft næst betri árangur með samráði, lagni og bpurð en einræði, hávaða og látum. Tiltektarsamur heilbrigðis- ráðherra Heilbrigðisráðherra hefur verið einkar tiltektarsamur frá fyrsta degi í embætti. Hann hefur fengið mikbvægan málaflokk í sinn hlut og ákaflega kostnaðarsaman. Ára- tugiun saman hefur verið rætt um sparnað og hagræðingu í heb- brigðiskerfinu, nauðsyn þess að lækka lyfjakostnað og veita lækn- um aðhald. Fyrrverandi heilbrigðisráöherra gbmdi einkum við lyfjakostnaðinn eins og margir fyrirrennarar hans og átti þeirri gbmu ólokið, þegar hann missti embættið. Almenning- ur styður sbka viðleitni heils hug- ar, að því tilskildu að grundvallar- atriði laga um hebbrigðisþjónustu KjaHarinn Kristín Halldórsdóttir starfskona Kvennalista séu virt, þ.e. að albr njóti bestu fáanlegrar þjónustu án tilbts tb efnahags. Núverandi heilbrigðisráðherra var naumast tekinn við, þegar hann greip tb úrræða, sem hingað til hafa verið eiginlegri frjáls- hyggjumönnum en þeim sem kenna sig við alþýðu og jöfnuð. Hann gjörbreytti snarlega reglu- gerð um lyfladiostnað og jók þar með hlut neytenda um mörg hundruð prósent í mörgum tbvik- um. Svo mjög lá ráðherra á, að enginn tími var gefinn tb samráðs, og ráð- stafanir tb að létta þennan skatt á herðum þeirra, sem síst geta borið hann, iba eða ekki kynntar. Þannig eru þegar mörg dæmi um fólk, sem snýr heim án lyfja, sem læknir hefur vísað á, vegna þess að það á ekki fyrir greiðslunni. Þá blöskraði Alþýðuflokknum Þetta minnir á það þegar heb- brigðisráherra úr röðum sjálfstæð- ismanna hækkaði stórlega hlut sjúkbnga í lyfla- og lækniskostnaði í maí 1984. Þá blöskraði mörgum jafnaðarmönnum, og butt var tb- laga á Alþingi um afnám þessarar hækkunar. Flutningsmenn tibög- unnar voru Jóhanna Sigurðardótt- „Það felur auðvitað í sér mikla stefnu- breytingu í heilbrigðisþjónustunni þeg- ar svo er komið að efnalítið fólk getur ekki nýtt sér þá heilbrigðisþjónustu sem í boði er...“ Þingflokkur Alþýðuflokksins. - „Ekkert hefur heyrst frá þessu sama fólki nú...“ ir, Kjartan Jóhannsson, Karl Stein- ar Guðnason, Eiður Guðnason, Jón Baldvin Hannibalsson og Karvel Pálmason, þ.e.a.s. þáverandi þing- flokkur Alþýðuflokksins eins og hann lagöi sig. Jóhanna færði rök fyrir þeirri til- lögu í ítarlegu máb á Alþingi 30. okt. 1984 og sagði þá m.a. „Þær stór- felldu hækkanir sem urðu á lyfja- og lækniskostnaði í maí sl. hafa að vonum verið mjög umdeildar og þykir mörgum að með þessari ráð- stöfun höfum við færst áratugi aft- ur í tímann að því er varöar heb- brigðisþjónustu við sjúka. Þeirri stefnu hefur í öllum megindráttum verið fylgt á undanfórnum árum og áratugum að tryggja öbum sem á þurfa að halda sem besta læknis- þjónustu óháð efnahag fólks. Það felur auðvitað í sér mikla stefnu- breytingu í hebbrigðisþjónustunni þegar svo er komið að efnalítið fólk getur ekki nýtt sér þá hebbrigðis- þjónustu sem í boði er nema í ýtrustu neyð. Það er ekki einasta þessi stefnubreyting sem umdebd hefur orðið og misboðið hefur rétt- lætiskennd fólksins í landinu, held- ur og það að hæstvirt ríkisstjóm skub í kjöbar mikbla kjaraskerð- inga og mikillar skerðingar á lb- eyri elb- og örorkulbeyrisþega fmna það helst ráð við efnahags- vanda ríkissjóðs að leggja stórfelld- ar gjaldtökur á þá sem síst skyldi í þjóðfélaginu, þannig að efnalítið sjúkt fólk þarf að hugsa sig tvisvar um áður en það leitar sér læknis- þjónustu". (Alþingistíðindi 1984). Þarf enn að breyta nafni flokksins? Megininntak þessara orða á jafn- vel við nú sem viðbragð við stjórn- valdsaðgerðum flokksbróöur fluti- ingsmanna tillögunnar, núverandi hebbrigðisráðherra, þótt þær væru með nokkuð öðram hætti aö formi tb. Ekkert hefur þó heyrst frá þessu sama fólki nú, þótt svo virðist sem núverandi hebbrigðisráðherra sé farinn að ryðga í grundvallaratrið- um jafnaðarstefnunnar. Vonandi sjá þau þó sóma sinn í þvi að hindra hinn aðsópsmikla ráðherra úr röðum jafnaðarmanna í því að setja gjaldmæla á sjúkra- rúmin, eins og hann mun hafa velt fyrir sér. Að öðrum kosti hlýtur flokkurinn að þurfa að skipta enn um nafn. Kristín Halldórsdóttir Uóðið í Ivf inu Bjöm Engholm, formaður þýskra jafnaðarmanna, „byggir pólitík sína ekki á mælskubrögðum, heldur talar i mannlegum raunsæistón". Vinkona mín, sem er leikkona, sagði við mig um daginn að það væri svo margt að breytast innan leikhússins. Núna giltu sömu lög- mál þar og ættu að gilda í öllu þjóð- félaginu - starf þess yrði að vera félagslegt, mannblendið en jafn- framt taka raunsærra mið af fjár- málum, það væri ekkert bstrænt við það að hugsa sem svo: bstin má kosta hvað sem er ef hún er bst. Við bfum á tímum þegar hug- takið félagsleg markaðshyggja hef- ur hlotið almenna viðurkenningu - bka í bstum eins og annars stað- ar, bka á hinum ljóðrænu sviðum mannbfsins. - Og það er fyrst og fremst af þ ví að hún er ábtin mann- úðlegri en leiðir skipulagshyggju og forsjárhyggju. Flokkur eins og þýskir græningj- ar hefur gert félagslega markaðs- hyggju að opinberri leið sinni í efnahagsmálum og er ekki lengur á neinn hátt frábrúgðinn þýskum jafnaöarmönnum að því leyti. Þetta er athygbsvert: flokkur, sem hefur talið sig vera ögrandi afl í þjóðfé- laginu og standa fyrir aöra hugsun og önnur, mýkri viðhorf til veberð- armála landsins, einkum varð- veislu náttúrunnar, er markaðs- sinnaður eins og aðrir. Og græn- ingjar segja: Félagsleg markaðs- hyggja er mannúðlegri en aðrar leiðir. Vorvakning í Prag Þjóöarsátt um félagslega mark- aðshyggju er góð og ákjósanleg. Hún tryggir festu í þjóðfélaginu, hún er bein braut og það hefur ekki lítið að segja. Fólk veit að það sem það hefur í höndunum í dag hefur það líka í höndunum á morg- un og þarf ekki að eyða tíma í að hugsa um það frekar: fólk getur í KjaUarinn Einar Heimisson stundar háskólanám í Þýskalandi staðinn notað tímann í annað - fé- lagsleg markaðshyggja styrkir þannig vitaskuld það sem viö skul- um kalla ljóðið í bfinu, það sem ég hugsaði mest um þegar ég var í Prag 1. maí, stemmninguna sem minnti á leikrit sem heitir Vor- vakning og samið var fyrir hundr- að árum og fjallar um það að ahir eigi að vera eins og þeir vbja sjábir vera. Við þurfum ljóðið í lífinu á öllum sviðum þjóðfélagsins, í vinnunni, í stjórnmálunum, á heimilunum. Tb þess að styrkja ljóðið í lífinu þurf- um við opið þjóðfélag sem er laust við höft á mannlegu eðb. Og núna komum við að staðreynd sem ýms- ir endurskoðendur félagslegrar markaðshyggju, eins og Oskar La- fontaine, hafa bent á: það hlýtur að verða framtíðarverkefni þjóð- anna að auka frelsi einstakbng- anna enn frekar, vísa enn meiri ábyrgð af eigin veberð beint til þeirra. Sumir eru A-menn, aðrir eru B-menn - við þurfum að nota tækniframfarir og aukinn bpur- leika þjóðfélagsins til að auka sveigjanleikann í mannlífinu, virða ólíkar þarfir manna og ólíkan bfs- stíl, leyfa þeim að vinna á morgn- ana sem það vilja og ekki síður: leyfa þeim að vinna á kvöldin sem það vilja frekar. Og athugum þetta: grundvöbur þess að styrkja ljóðið í lífinu er ein- mitt félagsleg markaðshyggja. Sumir hafa haldið því fram að markaðshyggja af einhverjum toga geti varla verið mannúðleg, hvað þá tengd bstum eða menningu - hún hljóti því að vera andstæð ljóð- inu í lífinu. Þýskir græningjar eru þessu algjörlega ósammála og telja félagslega markaðshyggju mjög mannlega. Sambandslýðveldið í heild sinni er einmitt athygbsvert fyrir þetta. Þar er einstaklingsfrels- ið og sjálfsábyrgðin bklega ein sú mesta í Evrópu, menn ráða sér sjálfir, þar er frítíminn einhver sá mesti í ábunni, ferðalög manna tíð- ust, jafnvel áfengishöftin eru ein- hver þau minnstu - en samt eru afköst manna þau mestu í ábunni. Með öðrum orðum: þetta er líklega eitt mesta lbsnautnaland í ábunni. Ljóðið í lífinu má þannig sarinar- lega tengja við félagslega markaðs- hyggju. Og sú markaðshyggja er í rauninni mjög mjúk stefna, ekki hörð. Stjórnmálamenn tíunda ára- tugarins Stjómmálamenn tíunda áratug- arins standa frammi fyrir þeirri staðreynd að endanleg sannindi eru hluti af fortíðinni, ekki þýðir að tala eins og menn höndb þau. Og þannig hljóta stjórnmálamenn tíunda áratugarins að verða öðru vísi en áður ef þeir ætla að vinna samúð kjósenda; ekki þýðir að þykjast vita abt, hafa abt á hreinu því enginn hefur allt á hreinu - stjórnmálamenn verða að hlusta á andstæðinga sína og stjórna með öðrum hætti en áður: ekki sem áberandi alvitringar eða töffaraleg- ir orðhákar, sem tala andstæöinga sína í kaf af mikilh íþrótt - heldur sem kyrrlátir hugsuðir, stjórnend- ur sem ekki gera sífellt vart við að þeir séu að stjórna: svona koma mýkri og mannlegri hliðar bfsins, ljóðið í lífinu, inn í stjórnmál nú- tímans. Þannig hafa tb dæmis þýskir jafnaðarmenn vabð sér nýjan formann sem einmitt er dæmi um mann sem stendur fyrir þetta: byggir póbtík sína ekki á mælsku- brögðum heldur talar í mannlegum raunsæistón: Björn Engholm. Þannig getum viö sagt sem svo: Núna verður markaðshyggja alghd en þaö hlýtur að verða félagsleg markaðshyggja og þeir sem halda henni fram verða félagslegir stjómmálamenn, hógværir raun- sæismenn, sem ekki gera tilraun til að sýnast vera ofurmenni og umfram allt: skbja ljóðið í bfmu. Einar Heimisson „...Stjórnmálamenn verða að hlusta á andstæðinga sína og stjórna með öðr- um hætti en áður: ekki sem áberandi alvitringar eða töffaralegir orðhákar sem tala andstæðinga sína í kaf af mik- illi íþrótt...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.