Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1991, Qupperneq 17
16
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991. FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991.
25 "
íþróttir _________________
Sport-
stúfar
Ensk lið í Þýskalandi
t.• Enska 1. deíldar
I I keppnin í knattspyrnu
I //, 1 hefst 17. ágúst. Undir-
'..búningur liðanna
stendur nú sem hæst Nokkur
þeirra eru á keppnisferðalagi á
meginlandi Evrópu. Liverpool
lék í vikunni æfmgaleik gegn
Bayer Leverkusen og lyktaöi
leiknum með markalausu jaín-
tefli. Leikurinn þótti fjörugur og
komust nýju leikmennimir hjá
Iáverpool vel frá Ieiknum, þeir
Wright og Saunders. Manehester
City tapaði í Berhn fyrir Dynamo
Dresden, 2-1. Nail Quinn gerði
mark City. Þá tapaði Aston Villa
fyrir Borussia Mönc-
hengladbaeh, 1-0.
Stuttgart virðist sterkt
• EyjóIQ. Sverrissyni og félögum
hans í Stuttgart hefur vegnað vel
í æfmgaleikjum fyrir keppnis-
tímabilið sem hefst um helgina.
Stuttgart sigraði í síðustu viku á
móti í Sviss og skoraði Eyjólfur
eitt mark í sigri á Flamengo frá
Brasilíu, 0-5, í síðasta leik móts-
ins. 37 þúsund áhorfendur sáu
Stuttgart sigra Inter Milan, 2-1, á
Necker Stadion. Fritz Walter, viti,
og Dubajic skoruðu fyrir Stuttg-
art. Battistini skoraöi fyrir Milan.
Eyjólfur þótti leika vel og hefur
verið í byrjunarliðinu í æfinga-
leikjunum.
Black eftirsóttur
• Kingsley Black, leikmaður Lu-
ton, er undir smásjánni hjá bæði
Nottingham Forest og Arsenal,
Black er metinn á 1,5 milljónir
og Brian Clough er tilbúinn að
borga þá upphæö og bjóða jafnvel
Nigel Jemson með í skiptunum
fyrir Black.
Townsend líklega kyrr
• frski landshösmaðurinn Andy
Townsend verður likiega kyrr
hjá Celsea. Mörg lið hafa sýnt
honum áhuga og Arsenal og Tott-
enham boðið hátt í 2 milljónir
punda fyrir leikmanninn. Nú hef-
ur Aston VUla bæst i hópinn en
forráðamenn Cheisea eru
ákveönir að halda í Townsend.
Hins vegar er hklegt að Kerry
Dixon og Gordon Durie séu á leið-
inni frá Lundúnahðinu. Everton
er tilbúiö aö kaupa Dixon og Ran-
gers hefur sýnt Durie mikinn
áhuga.
Francis vill kaupa meira
• Trevor Francis, framkvæmda-
stjóri Sheffield Wednesday, er til-
búinn aö halda veskinu á iofti ef
með þarf til að styrkja lið sitt.
Francis keypti á dögunum Paul
Warhurst frá Oldham fyrir 70
þúsund pund og leitar nú aöfleiri
leikmönnum til að styrkja lið sitt.
Sá sem er aðallega i sigtinu er
Paul Simpson hjá Oxford.
Moriey búinn aö ná sér
• Trevor Morley, leikmaður
West Ham er kominn aftur í siag-
inn eftir nokkra mánaða fjar-
veru. Morley var stunginn meö
hníf af kærustu sinni í apríl sl.,
lék með liðinu í æfingaleik á dög-
unum. Morley særðist alvarlega
og var i lifshættu á timabih.
UBKvann
Einn leikur var í 1. deild kvenna
í gærkvöldi. Breiöablik vann KA
á Akureyrí, 0-2. Vanda Sigur-
geirsdóttir skoraði fyrra markið
á 34. mínútu og Ásta B. Gunn-
laugsdóttir bætti öðru markinu
viö á 54. mínútu.
-ih
Þrjúgullá
ólympíuleikum
þroskaheftra
- í Minneapolis um helgina
íslendingar unnu til þrennra guh-
verðlauna á ólympíuleikum þroska-
heftra sem fram fóru í Minneapolis
í Bandaríkjununum og lauk aðfara-
nótt sunnudagsins. íslendingar
gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í
knattspyrnukeppninni, sigruðu
Thailendinga í úrslitaleik, 3-2. ís-
lenska liðið lék í 3. deild en keppt var
eftir styrk liða og voru sex lið í hverri
deild.
Liðsmenn voru eftirtaldir: Magnús
P. Korntop, Hreinn Hafliðason,
Björgvin Kristbergsson, Ottó A.
Birgisson, Ottó Á. Ingvason, Pétur
Jóhannesson, Jón G. Hafsteinsson
og Ólafur Ólafsson.
Þrír einstakhngar tóku þátt í knatt-
þrautum og krækti Ottó Arnar Birg-
isson þar í gullverðlaun, Björgvin
Kristbergsson í bronsverðlaun og
Hreinn Hafliðason lenti í sjöunda
saeti.
í frjálsum íþróttum hlaut Kristófer
Ástvaldsson silfurverðlaun í fimmt-
arþraut. íris Gunnarsdóttir vann
gullverðlaun í boltakasti og silfur í
kúiuvarpi. Guðrún Ósk Jónsdóttir
vann bronsverðlaun í boltakasti.
í sundkeppninni vann Halldór B.
Pálmason th tvennra silfurverð-
launa, í 25 metrum með frjálsri að-
ferð og í 4x25 metrum með sömu
aðferð. Sigurður Gíslason vann silfur
í 4x25 metrum með frjálsri aðferð og
silfur einnig fyrir 25 metra bringu-
sund. Bergur Guðmundsson vann
tvö silfur fyrir 25 metra með frjálsri
aðferð og 25 metra bringusund. Aðal-
steinn Friðjónsson vann silfur í 50
metra baksundi og í 4x25 metra
frjálsri aðferö.
Leikamir voru stórkostleg lífs-
reynsla fyrir íslensku keppendurna
sem og aðra keppendur. íslensku
keppendurnir voru ahs 18 á leikun-
um en þátttakendur voru 6000 frá 90
þjóðum. Leikamir voru stofnaðir af
Kennedy-fjölskyldunni 1968 og eru
vel þekktir í Bandaríkjunum. 50 þús-
und sjálboðaliöar störfuðu við leik-
ana sem nutu gífurlegs stuðnings
stórfyrirtækja í Bandaríkjunum.
-JKS
• Jani Zilnik hefur betur í viðureigninni við Bjarka Pétursson í leik liðanna á KR-vellinum í gærkvöldi. Á innfelldu myndinni er Guðmundur Steinsson sem lék
með sérstaka hiífðargrímu i leiknum en hann kinnbeinsbrotnaði fyrr í sumar og var frá i nokkrum leikjum. Guðmundur lét grímuna ekki aftra sér og lék ágætlega
í gærkvöldi. DV-mynd GS
Er KR að gef a eftir?
- tapaði nú á heimavelli fyrir Víkingi, 1-2, í gærkvöldi
Dæmið gengur ekki upp hjá KR-
ingum þessa dagana, ólánið virðist elta
hðið á öllum sviðum. Vítaspyrnur fara
hver af annarri í súginn og liðið nær
ekki að sýna þann leik sem það sýndi
framan af tímabilinu. KR-ingar urðu
að játa sig sigraöa á heimavehi í fyrsta
skipti í sumar þegar Víkingar komu
þangað í heimsókn í gærkvöldi. Víking-
ar sigruðu, 1-2, og verða það að teljast
mjög sanngjörn úrslit. Víkingar komu
í leikinn til að berjast og hafa fyrir hlut-
unum og uppskáru samkvæmt því. Með
sigrinum eru Víkingar komnir upp að
hhð KR-inga, í annað th þriðja sætið.
Guðni Kjartansson, þjálfari KR, gerði
stöðubreytingar í þessum leik, færði þá
bræður Pétur og Bjarka Péturssyni
framar á völlinn en þær tilfæringar
báru ekki tilætlaðan árangur. KR-ingar
voru meira með knöttinn í fyrri hálfleik
en sköpuðu sér að sama skapi ekki
mörg tækifæri. Hins vegar voru skyndi-
sóknir Víkinga stórhættulegar. KR-
ingar léku oft og tíðum vel úti á vellin-
um en þegar upp að marki andstæð-
ingsins kom fór allt í handaskolum.
Víkingar ná forystunni á 29. mínútu.
Atli Einarsson virtist eiga sakleysislegt
skot af rúmlega 20 metra færi, knöttur-
inn stefndi beint á Ólaf Gottskálksson
markvörð en hann virtist renna á rass-
inn og boltinn hafnaði í netinu, 0-1.
Skömmu síðar voru Víkingar nærri því
að bæta við öðru marki en í þetta sinn
var Ólafur vel á verði og varði frá Guð-
mundi Steinssyni. Boltinn fór af Ólafi
í stöngina en varnarmenn KR bægðu
hættunni frá.
í tvígang skömmu fyrir leikhlé voru
KR-ingar nálægt því að jafna metin en
allt kom fyrir ekki.
Skyndisóknir Víkinga héldu áfram aö
vera hættulegar í síðari hálfleik. Atli
og Helgi Bjamason áttu báðir ákjósan-
leg færi en báðum brást þeim bogalist-
in. Á 65. mínútu ná KR-ingar upp
snöggri sókn, Bjarki Pétursson leikur á
tvo andstæðinga, gefur síðan á Heimi
Guðjónsson sem skorar undir Guð-
mund Hreiðarsson í markinu, 1-1. Með
jöfnunarmarkinu héldu margir að KR-
liðið væri hrokkið í gang en það reynd-
ist öðru nær. KR-ingar voru varla hætt-
ir að fagna marki sínu þegar Víkingar
voru á nýjan leik búnir að ná foryst-
unni. Víkingar brunuðu strax í sókn,
Guðmundur Steinsson gefur knöttinn
fyrir markiö við endamörk og beint á
kolhnn á Atla Einarsson sem skallar
knöttinn í netið, 1-2.
Sex mínútum síðar fengu KR-ingar
vítaspyrnu eftir að togað hafði verið í
Bjarka Pétursson innan vítateigs. Ath
Eðvaldsson tók vítið en Guðmundur
varði. Svo virtist sem Guðmundur hefði
hreyft sig áður en spyrnan var tekin
en dómarinn sá ekkert athugavert.
„Tökum sigrinum með
stakri ró“
„Ég er himinlifandi með sigurinn. Það
býr mikið í liðinu og breytingar, sem
gerðar hafa verið, hafað skilað sínu.
Við erum komnir að alvöru í toppbar-
áttuna en við tökum á því með stakri
ró,“ sagði Loftur Ólafsson, þjálfari Vík-
ings, í samtali við DV eftir leikinn.
KR-ingar verða greinilega að taka
sinn leik til athugunar, liðið hefur alla
burði til að gera betur. Þormóður Eghs-
son stóð upp úr í liöinu eins og oft áður
í sumar. Aðrir léku undir getu. Atli
Einarsson var mjög ógnandi í sókninni
hjá Víkingum og Helgi Björgvinsson
var öryggið uppmálað í vörninni.
-JKS
Reykjavíkurmaraþon 18. ágúst -1991:
Hjartasjúklingar fjölmenna
Þaö eru ekki aðeins
fremstu hlauparar lands-
ins sem munu mæta í Rey-
ukjavikurmaraþoniö sem
fram fer 18. ágúst. Heyrst hefur af
ýmsum hópum sem erú að thkynna
þátttöku og þar má nefna hóp hjarta-
sjúklinga sem hyggjast spreyta sig á
götum borgarinnar.
Aðstandendur Reykjavíkurmara-
þonsins sögðust í samtah við DV x
gær verða varir við gííurlegan áhuga
almennings fyrir hlaupinu og án efa
yrði um metþátttöku að ræða að
þessu sinni,
Eins og fram hefur komið í DV
verður efnt til sérstakrar sveita-
keppni í skemmtiskokki og hálfú
maraþoni. Gífuriegur fjöldi sveita
mun ætla að verða með og þar má
nefna að íslenska landsliðið i bridds
hefur thkynnt þátttöku tveggja
sveita en hveija sveit skipa þrír
keppendur. Sameiginlegur timi ahra
keppenda í hverri sveit ræður úrslit-
um. Veglegur bikar verður veittur
þeirri sveit sem bestum tíma nær og
að auki verða dregin út mörg auka-
verðlaun fyrir sveitakeppnina.
Fellur brautarmetið i
hálfu maraþoni kvenna?
Brautarmetið í hálfu maraþoni
kvenna verður í mikilli hættu 18.
ágúst en það á franska stúlkan Sylvie
Bomet. Martha Emstdóttir var rétt
við brautarmetið í hálfu maraþoni
kvenna í fyrra og mxmaði aðeins
einni sekúndu þá að metið féhi
Mörthu í skaut. Brautarmet frönsku
stúlkunnar er 1:17,43 klst. Martha er
í mjög góöri æftngu um þessar mund-
ír og verulegar hkur era á þvi að
brautarmetiö verði hennar eftir
Reykjavikurmaraþoniö 18. ágúst.
• Skráningu í Reykjayíkurxnara-
þonið á að tilkynrxa hjá Úrval-Útsýn
í Pósthússtræti 13 og Álfabakka 16 í
Mjódd. Ekki er hægt að skrá sig i
gegnum síhia en upplýsingasimar
era 620683 og 603060.
-SK
1 íslenska knattspyrnuliðið vann til gullverðlauna.
Yevsyukov vann
í spjótkastinu
JJ-mótið í frjálsum íþróttxxm
fór fram í Mosfehsbæ í gær-
kvöldi. Þetta var afmæhsmót Jó-
hanns Jóhannssonar. Helstu úr-
slit á mótinu urðu þau að Sovét-
maðurinn Yevsyukov sigraði í
spjótkastinu, kastaði 81,40 m, en
Sigurður Matthíasson varð annar
með 76,12 m. Einar Vilhjálmsson
var ekki með og því var keppni í
spjótinu ekki eins spennandi og
búist hafði verið við.
Ubartas frá Litháen sigraði í
kringlukastinu, kastaði 63,44 m,
landi hans, Kitikas, varð annar
með 62,46 m og Vésteinn Haf-
steinsson þriðji með 62 m.
íris Grönfeldt sigraði í spjót-
kasti kvenna en hún kastaði 55,44
m. -RR
Ársþing Glímusambandsins:
Mikið starf unnið
í útbreiðslumálum
Ghmusamband íslands hélt síðari
hluta ársþings í Reykjavík um síð-
ustu helgi. Á framhaldsþinginu voru
lagðir fram endurskoðaðir og sund-
urliðaöir ársreikningar GLÍ 1989 og
1690 og voru þeir samþykktir ein-
róma.
Helstu mál þingsins voru umræður
um fjármál og stefnumótun í erlend-
um samskiptum. Erlend samskipti
GLÍ hafa stóraukist á undanfórnum
áram og var mótuð sú stefna að
leggja megináherslu á samstarf við
þjóðir keltneska fangbragðasam-
bandsins en á meistaramóti þess í
Frakklandi í haust verður ghman ein
af þrer.'.ur keppnisgreinum ásamt
axlatökum og gouren.
Mikið starf hefur verið unnið í út-
breiöslumálum og hafa 10 þúsund
nemendur notið ghmukynningar í
skólum árið 1990.
Rögnvaldur Ólafsson var endur-
kjörinn formaður GLÍ án mótfram-
boðs og er þetta sjöunda starfsár
hans. Aðrir í stjórn voru kjömir ein-
róma, Siguröur Jónssqn, Hjálmur
Sigurðsson, Jón M. ívarsson og
Gxmnar Jóhannesson. Úr stjórn gekk
Lárus Björnsson en Gunnar var kos-
inn í staðinn. Aörir voru endurkjörn-
ir. í varastjóm vora kjörnir Jóhann-
es Jónasson, Árni Unnsteinsson og
ÓlafurHaukurÓlafsson. -JKS
FH heppið
í Eyjum
Berglind Ómaisdóttir, DV, Eyjum;
Ólafur Sveinsson dómari kom mik-
ið við sögu í leik ÍBV og FH í Eyjum
í gærkvöldi. Hann flautaði th hálf-
leiks í þann mund sem Tómas Ingi
Tómasson var að skora fyrir Eyja-
menn og vhdu menn meina að 45
minúturnar hefðu þá ekki verið hðn-
ar. Staðan var þá 2-0 fyrir heima-
menn en í lok síðari hálfleiks lét Ólaf-
ur leikinn ganga 4 mínútur yfir tím-
ann og það nýttu FH-ingar sér til að
jafna leikinn, 2-2.
„Það var engin ástæða til fyrir
dómarann að bæta öllum þessum
tíma við í lokin. Það vora ekki minni
tafir í fyrri háhleik en þá lá honum
svo á að flauta af að hann tók mark
af Tómasi,“ sagði Leifur Geir Haf-
steinsson, leikmaður ÍBV, og var
ekki ánægður með gang mála í gær-
kvöldi.
Eyjamenn byrjuðu vel og komust í
2-0 snemma leiks. Leifur Geir skor-
aði í tvígang, fyrst á 9. mínútu með
þrumuskoti sem fór upp í vindinn
og hafnaöi í bláhorninu í marki FH.
Aðeins tveimur mínútum síðar var
Amljótur Davíðsson felldur í teign-
um og Leifur skoraöi úr vítinu. Á 34.
mínútu var Jóni Braga Arnarsyni
vikið af leikvelli fyrir gróft brot á
Izudin Dervic en Jón Bragi hafði þá
þegar fengið áminningu. Eyjamenn
héldu áfram að sækja einum færri
með strekkingsvindi og fengu góð
færi. Undir lokin náðu FH-ingar und-
irtökunum og þremur mínútum fyrir
leikslok minnkaði Hallsteinn Arnar-
son muninn með laglegu marki. Þeg-
ar þrjár mínútur vora komnar yfir
leiktímann náði Hörður Magnússon
að jafna með marki af stuttu færi
eftir homspyrnu og tryggja FH-
ingum eitt stig.
Eyjamenn börðust vel einum færri
lengst af. Hlynur Stefánsson var
besti maður liðsins. Hjá FH var
Hörður besti maöur og var alltaf
hættxhegur nálægt vítateig Eyja-
manna.
ÍJ '
■
■ v
' ''
■ ■
: ■
• Valur Valsson i baráttu við Víðismann í Kópavogi í gærkvöldi.
DV-mynd EJ
Mjög dapurt
- Blikar og Víðir gerðu 0-0 jafntefli í daufum leik
Breiðablik og Víðir gerðu marka-
laust jafntefli í mjög döprum leik á
sandgrasinu í Kópavogi í gærkvöldi.
Það var fátt markvert sem gerðist í
leiknum og knattspyrnan ekki upp á
marga fiska.
Breiöabliksmenn sóttu mun meira
í fyrri hálfleik en fengu ekki nema
eitt umtalsvert færi. Það kom á 37.
mínútu en Wiftum Þórsson skallaði
þá yfir mark Víðis þegar auðveldara
virtist að skora. Víðismenn fengu tvö
þokkaleg færi úr sárafáum sóknxun
sínum en þau fóra forgörðum.
Seirrni hálfleikur var ögn skárri og
þá komu Víðismenn aðeins meira inn
í leikinn og fengu eina umtalsverða
færið. Þorvaldur Jónsson, mark-
vörður Blikanna, kastaði beint fyrir
fætur Steinars Ingimundarsonar
sem skaut fram hjá opnu marki
Breiðabliks. Blikamir sóttu ahstíft
undir lokin en ekkert gekk. Víðis-
menn voru fastir fyrir í vömirmi og
hreinsuðu langt fram völhnn ef
hættu bar að.
Bhkarnir hafa ekki náð að vinna í
síðustu 7 deildarleikjum sínum og
vinna varla ef þeir gera ekki betur
en í þessum leik. Enginn sérstakur
stóð upp úr hjá hðinu að þessu sirrni.
Víðismenn léku aftarlega og reyndu
að beita skyndisóknum meö löngum
sendingum sem ekki gengu upp á
sandgrasinu. Jón Örvar Arason
markvörður var besti maður liðsins
og Björn Vhhelmsson stóö sig vel á
miðjunni. -RR
Iþróttir
Samskipadeild
KR-Víkingur 1-2 (0-1)
0-1 Atli (29.), 1-1 Heimir (68.), 1-2
Atli (69.).
Lið KR: Ólafur, Sigurður, Þor-
steinn, Þormóður, Atli, Bjarki,
Gunnar, Hilmar (Arnar 70.), Ragn-
ar, Heimir, Pétur.
Lið Víkings: Guðmundur, Helgi
Björgvins, Ólafur, Guðmundur
Ingi, Zilnik, Ath Einars, Bosnjak,
Guðmundur Steins, Atli Helga,
Helgi Bjama, Hörður.
Gul spjöld: Zilnik (Vík.), Bosnjak
(Vík.).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Guðmundur Stefán
Maríasson og var slakur.
Áhorfendur: Um 900.
Skilyrði: Lygnt, hiti um 15 gráö-
ur og vallarskiíyrði meö besta
móti.
ÍBV-FH 2-2 (2-0)
1-0 Leifur (9.), 2-0 Lexfur (11.), 2-1
Hallsteinn (87.), 2-2 Hörður (90.).
Lið ÍBV: Ádolf, Friðrik, Bergur,
Jón Bragi, Leifur (Sindri 89.), El-
ías, Martin, Hlynur, Amljótur,
Tómas (Sigurlás 89.).
Lið FH: Stefán, Ólafur J„ Ólafur
K. (Guðmundur H. 43.), Björn,
Guðmundur Valur, Hallsteinn,
Þórhallur, Dervic, Pálmi (Kristján
71.), Andri, Hörður.
Gul spjöld: Jón Bragi (ÍBV).
Rauð spjöld. Jón Bragi (ÍBV).
Dómari: Ólafur Sveinsson og var
hann mjög slakur.
Áhorfendur: Um 1000.
Skilyrði: Strekkingsvindur, 8
vindstig á annað markið. Völlur-
inn prýðilegur.
UBK-Víðir 0-0 (0-0)
Lið UBK: Þorvaldur, Ingvaldur,
Sigurður, Willum, Gústaf, Arnar,
Grétar, Hilmar, Valur, Guðmund-
ur, Steindór (Jón Þórir 79.).
Lið Víðis: Jón Örvar, Ólafur,
Sævar, Daníel, Sigurður, Björn,
Klemens, Karl, Steinar (Hlynur
79.), Vilberg (Björgvin 89.), Grétar.
Gul spjöld: Engin.
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Egill Már Markússon
og stóð sig með prýði.
Áhorfendur: 520.
Skilyrði: Ágætisveður, logn og
þurrt en því miður býður sand-
grasið ekki upp á góða knatt-
spyrnu.
I.deild karla
Fram ...11 7 2 2 15-9 23
KR ...12 6 3 3 23-9 21
Víkingur ...12 7 0 5 19-18 21
FH ...12 5 3 4 16-14 18
UBK ...12 4 5 3 17-16 17
ÍBV ...12 5 2 5 21-21 17
Valur ...11 4 2 5 14-15 14
KA ...11 4 1 6 11-14 13
Stjaman ...11 3 3 5 13-17 12
Víðir ...12 1 3 8 13-29 6
Markahæstir:
Hörður Magnússon, FH.........9
Leifur Hafsteinsson, ÍBV.....8
A I R
JUSTD0IT.
REYKJAVÍKUR
MARAÞON
17
DAGAR
TIL STEFNU