Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1991, Qupperneq 28
36
FIMMTUDAGUR í. ÁGÚST 1991.
Af mælismót DV
Laugardaginn 5. október næstkomandi veröur hald-
iö 80 ára afmælismót DV (Vísis) í bridge. Mótið er öll-
um opið, spilað verður um vegleg peningaverðlaun en
spilaformið er barómetertvímenningur. Spilamennsk-
an hefst klukkan 12 að hádegi og spilalok um kvöldið
ákvarðast af fjölda keppenda.
Peningaverðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin:
1. - 70.000
2. - 40.000
3. - 30.000
Stefnt er að því að spila 2 spil milli para, allir við alla.
Þátttökugjald er kr. 4.000 á parið og spilað er um silfur-
stig. Keppnisstjóri á mótinu er ísak Örn Sigurðsson
og Kristján Hauksson sér um tölvuútreikning. Spilað
verður í Sigtúni 9, húsi Bridgesambandsins. Keppend-
ur eru beðnir að skrá sig sem fyrst, því lokað verður
á skráningu við 38 pör. Skráningarsímar í mótið eru
689360 sími Bridgesambandsins, og 27022 (ísak).
Sumarbridge 1991
Ágætis mæting var í sumarbridge mánudaginn 29.
júlí en þá komu 28 pör til leiks. Spilaður var Mitc-
helltvímenningur og efstu skor í NS náðu:
1. Gylfi Baldursson-Gísli Haíliðason 315
2. Baldur Bjartmarsson-Rúnar Hauksson 305
3. María Haraldsdóttir-Lilja Halldórsdóttir 301
4. Hulda Hjálmarsdóttir-Hjálmar S. Pálsson 296
- og efstu skor í AV-áttimar hlutu:
1. Kjartan Jóhannsson-Helgi Hermannsson 346
Bridge
ísak Sigurðsson
2. Láras Hermannsson-Guðrún Jóhannnesdóttir 313
3. Guðjón Bragason-Magnús Sverrisson 311
4. Jón Stefánsson-Ragnar Þorvaldsson 279
Ástæða er til þes að benda á að á mánudögum, þriðju-
dögum og miðvikudögum hefst spilamennska klukkan
18.30. Ef spilarar mæta eftir þann tíma er vonlítið að
komast aö.
-ÍS
Andlát
Aldís Reynisdóttir, Bárðarási 9, Hell-
issandi, lést 31. jiilí.
Ásgeir Pétursson, Maryland, USA,
lést 30. júlí.
Elías Halldórsson, Snorrabraut 58,
lést miövikudaginn 31. júlí.
Jaröarfarir
Guðleifur Sigurðsson, Einigrund 28,
Akranesi, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju á morgun, fóstudag-
inn 2. ágúst, kl. 11.
Oddný Grimsdóttir, Stigahlíð 36,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju á morgun, fóstudaginn 2. ág-
úst, kl 15.
Aðalsteinn Hansson, Bræðraborgar-
stíg 5, Reykjavík, verður jarðsettur
frá Fossvogskirkju á morgun, föstu-
daginn 2. ágúst, kl 13.30.
Árni Sveinsson, Stakkholti 3, Reykja-
vík, sem lést 24. júlí sL, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu á morg-
un, föstudaginn 2. ágúst, kl. 15.
Ágústa Sigurðardóttir, Túngötu 9,
Álftanesi, sem lést 23. júlí sl., verður
jarðsett frá Fossvogskirkju á morg-
un, föstudaginn 2. ágúst, kl. 10.30.
Ágústa fæddist 23. júní árið 1941.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sig-
urbjömsson yfírtollvörður en hann
lést árið 1975 og Ingibjörg Sigurðar-
dóttir. Eftirlifandi eiginmaður henn-
ar er Sigurbjöm Pálsson og áttu þau
þrjú börn, Margréti, Sigurö og Hall-
grím Pál.
Safnaðarstarf
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisverður í Safnaðarheimil-
inu að stundinni lokinni.
Tilkyimingar
Hugmyndasamkeppni
Búnaðarbanki íslands efnir til hug-
myndasamkeppni um útlit og skipulag
afgreiðslusala í útibúum bankans i sam-
vinnu við Arkitektafélag íslands. Útibú
bankans í Kópavogi og við Háaleitisbraut
verða notuð sem umgjörð um hugmyndir
keppenda. Vegna breyttra afgreiðslu-
þátta þarf að breyta mörgum afgreiðslu-
sölum bankans með tilliti til nýrra tíma.
Heimild til þátttöku hafa félagar Arki-
tektafélags íslands og innréttinga- og inn-
anhússhönnuðir. Keppnislýsing liggiu:
frammi hjá Arkitektafélagi íslands,
Freyjugötu 41, en önnur gögn fást hjá
trúnaðarmanni keppninnar og skal skila
tillögum til hans eigi síðar en 5. nóvemb-
er nk.
Frá Norræna húsinu
Höggmyndasýning
Fimmtudaginn 1. ágúst kl. 18 verður opn-
uð sýning á höggmyndum eftir Sæmund
Valdimarsson í anddyri Norræna húss--
ins. Sæmundur fór að setja saman mynd-
ir úr steinum og rekaviði fyrir u.þ.b. 20
árum og voru þessar myndir sýndar fyrst
í Gallerí SÚM árið 1974. Sæmundur hefur
haldið 9 sýningar, þar af eina í Osló, auk
þess tekið þátt í nokkrum samsýningum
þ. á m. í Hollandi í apríl sl. Sýningin
stendur til 26. ágúst og verður opin alla
virka daga frá kl. 9-19 og á sunnudögum
frá kl. 12-19.
Sjöunda dags aðventistar
á Islandi halda árlegt mót
Um verslunarmannahelgina verður ár-
legt mót Sjöunda dags aðventista haldið
að Hlíðardalsskóla, Olfusi. Mótið hefst á
fóstudaginn með samkomu kl. 20.30 og
mun vera fram á mánudag.
Aðalræðumaður mótsins veröur Guð-
mundur Ólafsson, kennari við Newbold
College í Englandi og fyrrverandi kenn-
ari í Hlíðadalsskóla.
Yfirskrift boðskapar hans er, „Kostum
kapps um að þekkja Drottin". Mun hann
örugglega hafa kjammikmn og tímabær-
an boðskap handa öllum. Hægt er að fá
gistingu á staðnum og matur verður á
boðstólum gegn vægu gjaldi. Nánari upp-
lýsingar í s. 91-679260. Allir eru velkomn-
ir.
Tímaritið Heilsuvernd
er komið út í arrnað sinn á árinu. í blað-
inu eru greinar um ætar snyrtivörur, ís-
lenskar nytjajurtir og tegerð, heilsu-
drykki og megrun. í blaðinu er m.a. við-
tal við Guðnýju Guðmundsdóttur, versl-
unarstjóra í Grænu Línunni, um ætar
snyrtivörur sem eingöngu eru unnar úr
hreinum jurta- og náttúruefnum. Guðný
segir frá frumhönnuði þessarar fram-
leiðslu og þróun í gerð hollustuefna fyrir
notkun á húð sem og til inntöku. Blaðið
er 48 bls. Ritstjóri er Kolbrún Sveinsdótt-
ir.
Norræna húsið „Opið hús“
Fimmtudaginn 1. ágúst talar Hrafnhildur
Schram listfræðingur um íslenska
myndlist frá árunum 1945-1970. Hún tal-
ar á sænsku og nefnir fyrirlesturinn ein-
faldlega Islándsk konst. Eftir kaöihlé
veröur kvikmyndin Surtur fer sunnan
sýnd. Hún er með norsku tab. Kaffistofa
og bókasafn eru opin til kl. 22 eöa þar til
dagskrá lýkur.
<
f-.
Jeppa-
eigendur
ADJUSTABLE "E" er stillanlegur
höggdeyfir með sverum stimpli.
Hentar sérlega vel fyrir
stóra jeppa og VAN-bíla.
Norræna húsið - dagskrá
Sunnudaginn 4. ágúst: „Island í
dag“.Einar Karl Haraldsson talar um ís-
lenska lifshætti og félagslíf. Hann talar á
sænsku og svarár fyrirspumum á eftir.
Kl. 16.30 verður sýnd kynningarmynd um
ísland með dönskum texta og síöan með
fmnskum texta.
Miðvikudaginn 7. ágúst: ljóðakvöld
kl. 20.30. Ingegerd Lindaráng les sænsk
ljóð við tónlist eftir Ralph Lundsten.
Fimmtudaginn 8. ágúst: opið hús fyr-
ir norræna ferðamenn. Rikharður Óm
Pálsson spjallar um íslenska tónlist.
Hann talar á dönsku. Kl. 21 verður kvik-
myndin Sveitin milli sanda sýnd með
norsku tali. Bókasafn og kaffistofa veröa
opin til kl. 22. Ókeypis aðgangur, allir
velkomnir. Sýningarsalur í kjallara er
opinn aha daga kl. 13-19 með sýningu á
málverkum eftir Þorvald Skúlason. í
anddyri er höggmyndasýning eftir Sæ-
mund Valdimarsson.
Listsýningar
Þorkell G. Guðmundsson og Rúna
Þorkelsdóttir sýna í Slunkaríki á
ísafirði dagana 2.-9. ágúst. Sýningin er
tileinkuð fuglum og sýnir Rúna graflk-
myndir en Þorkell höggmyndir. Þorkell
starfar sem kennari og hönnuður í Hafn-
arfirði en Rúna hefur starfað að myndlist
í Hollandi. Sýningin er opin alla daga frá
kl. 16-19.
Myndgáta
“WV
093
/>M,
-EYÞO«s—
Myndgátan hér að ofan
lýsir lýsingarorði.
Lausn gátu nr. 92:
Með hendur
í vösum
Tónleikar
Tónleikar í Kringlunni 4
Miðvikudaginn 31. júli leikur kvartett
gítarleikarans Bjöms Thoroddsen á
Kringlukránni, Kringlunni 4. Með Bimi
leika þeir Rúnar Georgsson, Guðmundur
Steingrímsson og Bjami Sveinbjömsson.
Efniskráin verður fjölbreytt að vanda en
gamlar djassperlur verða í fyrirrúmi.
Kvartetinn leikur frá kl. 22 og aðgangur
er ókeypis.
Sex-í-kór
Sex ungir söngvarar, allir tónlistar-
menntaðir, hafa sett saman og æft söng-
dagskrá til flutnings í samkvæmum, á
hátíðum og viö mannamót. Fjölbreytt
lagaval er á söngskránni, t.d. lög sem
Elvis Presley söng, Neil Sedaka, Man-
hattan Transfer o.fl. Einnig lög úr söng-
leikjum sem flestir þekkja. Vinnunafn
hópsins hefur verið Eldfjörug en nú heit-
ir hópurinn Sex-í-kór. Hópinn skipa
Dagný Þ. Jónsd., Guðrún Ingimarsd.,
Hanna B. GuðjÓnsd., Jenný Gunnarsd.,
Halldór Óskarsson og Oddgeir Sigurðs-
son.
Hópurinn mun skemmta í Galtalækjar-
skógi um verslunarmannahelgina.
Tveir vinir
og annar í fríi
Tveir vinir og annar í fríi ætla ekki í
Húnaver um helgina heldur verður ýmis-
legt á döfinni hjá þeim. Föstudags- og
laugardagskvöld skemmtir hljómsveitin
Sprakk ásamt Karli Örvarssyni og Sigur-
geiri Sigmundssyni. Sunnudagskvöld
verða tónleikar og dansleikur með Infero
5. Á undan mun Ami Valur, sem kemur
alla leið frá Akureyri, flytja borgarbúum
tölvupopp.
Ferðalög
Hafnarganga og sjóferðir
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands
Á laugardag stendur Náttúruvemdarfé-
lag Suðvesturlands fyrir skoðunarferð
með gömlu höfninni í Reykjavík og
Sundahöfn. Siglt verður milli hafnanna.
Ferðin hefst kl. 13.30 við Hafnarhúsið að
vestanverðu og verður gengið um gömlu
höfnina og ýmislegt markvert skoðað.
Síðan verður siglt og svæðið skoðað. í
sjóferðinni verður lífríki grunnsævisins
skoðað.
Frá Útivist -dagsferðir
Laugardagur 3. ágúst kl. 9, Skarðs-
heiði. Gengið verður á Heiðarhorn sem
er hæsti tindur fjallsins. Leiðin liggur frá
Efraskarði í Svínadal. Gott útsýni.
Sunnudagur 4. ágúst kl. 9, Heklu-
ganga, 10. áf„ Kaldbakur - Laxárdal-
ur - Þjórsárholt. Gengið verður frá
Kaldbak og austur yfir Sfóru-Laxá á
göngubrú hjá Árfelli og niður með ánni
að Laxárdal, síðan austur yfir ásana að
Skáldabúðum og áfram niður með Kálfá.
Krókatjörn - Selvatn - Vilborgarkot
kl.13. Gengið um Miðdalsheiðina frá
Krókatjöm um Selvatn og Vilborgarkot,
með Hólmsá, létt ganga.
Mánudagur 5. ágúst kl. 13, Kaupstað-
arferð. Gengið í Hólmakaupstað. Að
venju gengur Útivist gamla leið í kaup-
stað á frídegi verslunarmanna. Að þessu
sinni verður gengið frá Árbæ í Hólma-
kaupstað í Örfyrisey. Frá Árbæjarsafni
kl. 13 og síðan gengið þar sem gamla þjóð-
leiðin lá til Reykjavíkur, yfir Elliðaámar,
eftir Bústaðaholti, meðfram Arnarhóls-
holti, yfir Amarhól og út í Örfyrisey.
Stansað við Ártún, Bústaði, skroppið nið-
ur að Rauðará. Rúta til baka.