Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 1991. 15 Leyndar upplýsingar Á móti kemur aðgangur að ódýrara (jármagni og stærri markaðsmögu leikar. Evrópudómstóllinn hefur nýlega úrskurðað óheimilt að setja skil- yrði í bresk sighngalög að til veiða innan 12 mílna þyrftu útgerðaraðil- ar að vera minnst 75% breskir þegnar. Erlend fiskiskip geta í dag siglt undir breskum fána og veitt fisk af kvóta Breta en landað í heimahöfnum. í kjölfarið urðu harðar umræður í breska þinginu og féllu mörg stór orð, m.a. að þjóðinni hefði ahs ekki verið skýrt frá því hve mjög Bretar hefðu afsalað sér völdum og frelsi við inngöngu í EB. Framkvæmda- stjórn EB fagnaði dóminum hins vegar og taldi hann staðfestingu á því að grundvallarreglan væri að ekki mætti mismuna þegnum EB- ríkja vegna þjóðernis. Hefur þessi dómur einhver áhrif á afstöðu okkar til EES-samning- anna? - Utanríkisráðherra hefur oft lýst því yfir að við munum setja öryggisákvæði að eignaraðhd út- lendinga verði bönnuð í íslenskri útgerð. Fimmta frelsið -sjávarútvegur Viðræður EFTA- og EB-ríkja tengjast fyrst og fremst viðskiptum með iðnaðarvörur og fjórfrelsið. Hagsmunir okkar íslendinga liggja aftur á móti á fimmta sviðinu, frelsi í viðskiptum með sjávarafurðir. Allir eru samt sammála um að aldrei verður það keypt því verði að framselja yfirráð yfir fiskveiði- stjórnun. Sjávarútvegurinn er tvímæla- laust mikilvægasta atvinnugrein okkar og skilar um 16% af lands- framleiðslu og 70% af vöruútflutn- ingnum. Fríverslunarsamningur íslands og EB tók gildi frá 1972 en bókun 6 um sjávarafurðir frá 1976 KjaUarinn Sigurður Helgason viðskipta- og lögfræðingur vegna landhelgisdeildna. Var samningur þessi í anda EFTA-sátt- málans og mjög hagkvæmur. Hann kveður á um tollfrelsi á um 70% af heildarútflutningi okkar til þess- ara landa, enda seljum við þangað 60% af framleiðslunni. Tollar eru enn töluverðir á t.d. saltfiski, skreið og ferskum flat- fiski, svo að nokkuð sé nefnt. EB hefur því með stórfelldum styrkj- um reynt að bæta afkomuna. Námu þessir styrkir fyrir árin 1987-1990 alls 80,9 millj. Langstærsti hluti þeirra fer til kaupa á fiskveiðiheim- ildum, tíl fiskveiða og í fjárfesting- arstyrki. Samkeppnisstaða iðnaðarins Samkvæmt aðferðafræði beitt á vegum EB kom í ljós að íslensk fyrirtæki eru veik. Tahð er að um 40 iðngreinar af 120 séu mjög næm- ar fyrir væntanlegum breytingum í árshyrjun 1993. Má þar nefna skipasmíðar, öl- og gosdrykkjagerð og ýmsan matvælaiðnað. Ljóst er að mikil samkeppni verður og verðlækkun. Á móti kemur að- gangur að ódýrara fjármagni og stærri markaðsmöguleikar. Hinu má ekki gleyma að hér er um allt aðra stærðardreifingu að ræða. Árið 1988 voru 92% íslenskra iðnfyrirtækja með undir 20 starfs- mönnum, þar af 53% með 1-2 starfsmenn og aöeins 1% með yfir 100 starfsmenn. Talið er að fyrir- tæki er keppa um markaði í EB þurfi að vera af vissri lágmarks- stærð til þess að ná fullri hag- kvæmni. Sementsframleiðsla þarf að fram- leiða 1-2 milljónir tonna á ári en okkar verksmiðja framleiðir árlega um 110 þúsund tonn. Málningar- verksmiðjur um 38 milljón lítra á ári en í dag er heildarframleiðslan hér 3-4 milljónir tonna. Svipað kemur í ljós í fleiri greinum. Al- gjört frelsi eftir röskt eitt ár hefur mikil áhrif og vekur óneitanlega ugg um framtíð innlends iðnaðar. Heildarjafnvægi í drögum að EES-samningi kem- ur fram í 4. gr. að tryggja þurfi heildarjafnvægi ábata, réttinda og skyldna. Ýmsar stofnanir hafa sent frá sér skýrslur þar sem reynt er að leggja mat á heildaráhrifin. Þjóðhagsstofnun telur höfuðniður- stöður vera að þaö sé mögulegur ávinningur á þátttöku íslands í EES en ekki er um stórar fjárhæð- ir að ræða. Fjármálaráðuneytið segir að mikil óvissa ríki en gengur út frá 1-1,5% aukningu á lands- framleiðslunni. Nýlega birtust í viðskiptaþætti DV útreikningar sem byggja á að tollfrjáls markaður með sjávaraf- urðir spari 2 milljarða. Ekkert er fjallað um að krafist hefur verið eins milljarðs ársgreiðslu af okkur í þróunarsjóð né verulegra útgjalda vegna mikhs kostnaðar EFTA-ríkj- anna við nýja Evrópusvæðið. Ekk- ert er heldur fjallað um áhrif og þýðingu víðtæks framsals valds til ákvörðunar sem ógnar undirstöð- um lýðveldisins. Má helst líkja þessum vinnu- brögðum í hehd við sígilt dæmi um einfeldningshátt úr viðskiptalífinu. Afhent er tilbúin óútfyllt ávísun en síðan er það annarra að ákveða að eigin geðþótta upphæðina. Sigurður Helgasoii „Ekkert er fjallað um að krafist hefur verið eins milljarðs ársgreiðslu af okk- ur 1 þróunarsjóð né verulegra útgjalda vegna mikils kostnaðar EFTA-ríkjanna við nýja Evrópusvæðið.“ Stjórn f iskveiða Umræða um stjórn fiskveiða heldur áfram og er það vel. Þar er um að tefla stórmál sem snertir hvern mann í landinu. Það er ákaf- lega flókið og vandasamt úrlausn- ar. Deilan stendur einkum um það hvort taka skuli gjald fyrir veiði- leyfi. Minna fer fyrir umfjöllun um það hvort kvótakerfið skuli standa áfram. Sú hlið málsins má þó alls ekki falla í skuggann. Kvótakerfið, sem nú er notað, er í stórum dráttum þannig: Sjávarút- vegsráðherra gefur árlega út skrá er sýnir hve mörg kíló hvert skip má veiða á árinu af hverri fiskteg- und, þorski, ýsu, ufsa, karfa, síld, loðnu og svo framvegis. Veiðheyfi eru ókeypis. Úthlutunin fer eink- um eftir sögulegum heimildum um veiðar hins thtekna skips árin á undan en einnig getur skipt máli vitneskja um veiðar fyrri skipa sama eiganda, kaup útgerðar- manns á veiðiréttindum sem öðr- um hefur verið úthlutað og margt fleira. Miklir ókostir kvótakerfis Þróun kerfisins hefur einkum verið fólgin í því að sehast lengra aftur í tímann í sögulegri rann- sókn, teygja kerfið yfir fleiri teg- undir sjávarafla og láta það ná yfir allar fleytur, hversu smáar sem þær eru. Kvótakerfið hefur mikla ókosti. Það er flókið og verður þeim mun flóknara sem það þróast lengur. Það er ranglátt meðal annars vegna þess að hin sögulega reynsla, sem úthlutun kvóta byggist á, er thvilj- unum háð. Það kahar á mikla og vaxandi skriffinnsku og eftirht. Það heftir framtak einstakling- anna. Hætt er við að það sé misnot- að, meðal annars þannig að menn hendi afla sem ekki er hagstæður KjaHarinn Jón Erlingur Þorláksson tryggingafræðingur vegna kvótans: slík hætta eykst eftir því sem kerfið stendur lengur og menn læra betur á það. Kvótakerfið hefur á sér blæ fáránleikans. Það minnir einna helst á mynfiverk eftir súrrealist- ann Salvador Dalí. Hefði einb.ver spáð því fyrir 15 árum að allar fisk- veiðar við ísland yrðu reyrðar í viðjar slíks kerfis heföi sá hinn sami verið álitinn ruglaður. Flotastærð og sókn Stjórnmálamenn boða að ríkis- valdið eigi að setja ramma um at- vinnustarfsemina en ekki stjórna henni að öðru leyti. í reyndinni er allt annað gert. Við höfum á fáum árum fengið yfir okkur kvótakerfi í tveimur höfuðatvinnuvegum, • landbúnaði og sjávarútvegi. Þetta gerist á sama tíma og skriffinnsku- kerfi Austur-Evrópu eru lögð niður eftir að hafa sannað skaðsemi sína svo að ekki verður um villst. Markmið í opinberri stjórn fisk- veiða er einkum það að veiðarnar gefi sem mestan arð í þjóðarbúið. Til þess að ná því marki þarf í fyrsta lagi að gæta þess að ekki sé gengið of nærri fiskstofnunum. í öðru lagi þarf að koma í veg fyrir að flotinn verði of stór. Flotinn á helst að vera mátulegur til þess að sókn í fiskstofnana sé hæfilega mikil þegar skipin eru fullnýtt. Þessi tvö atriði, flotastærð og sókn, eru nátengd. Flotinn er of stór nú. Nefnd á vegum Rannsóknaráðs ríkisins, skipuð útgerðarmönnum og sér- fræðingum, komst að þeirri niöur- stöðu að þorskveiðiflotinn hefði verið „allt að þriðjungi of stór“ árið 1983. Einkum taldi nefndin brýnt að fækka togurum þar sem þeir sækja meira í smáfisk. Frá 1983 til 1991 hefur togurum fjölgað úr 103 í 110. Bátum hefur fjölgað hlutfahs- lega meira. Veiðigetan hefur auk þess vaxið meö bættri tækni. Með kvótakerfinu hefur ekki tekist að halda stærð flotans í skefjum. í því efni hefur okkur miðað aftur á bak en ekki áfram. Sú skoðun hefur komið fram að réttur til framsals kvóta muni leiða til þess að flotínn minnki. Ég tel að því sé alls ekki treystandi. Að vísu kann aukning flotans að stöðv- ast um hríð meðan fiskstofnar eru í lægð. Það mundi hafa gerst hvort sem var, En aflinn eykst aftur og afkoma veiðanna batnar. Þá er ahs óvíst og raunar ólíklegt þegar htið er th reynslunnar að pólitískur vhji verði th þess að hamla gegn fjölgun skipa. Rannsóknir eru skilyrði Það er skoðun höfundar að kapp- kosta eigi að losna við kvótakerfið en taka upp í staðinn almennari reglur. Ekki verður reynt hér að setja fram hugmyndir að slíkum reglum en vikið aö fáum atriðum. Mikilvægast er að draga úr stærð flotans. í því sambandi má minna á að ríkisstofnun, Fiskveiðasjóður íslands, veitir enn lán til byggingar fiskiskipa. Væri ekki ráð að stöðva slíkar lánveitingar um sinn? Ef árangur næst í þá átt að fækka skipum og afli eykst af þeim sökum virðist augljóst að skattleggja beri hagnað af veiðunum. Hér getur orðið um að ræða mikinn gróða ef tekst að minnka flotann í þeim mæh sem nefnd Rannsóknaráðs lagði th. Ekki má nota gömlu að- ferðina til skattlagningar, þá að selja erlendan gjaldeyri lágu verði. Það getur lagt aðr«r atvinnugrein- ar í rúst. Aflagjald hlýtur að koma til greina. En má þá ekki eins skatt- leggja skipin sjálf? Það er einfald- ara og útheimtir minna eftirht. Að sjálfsögðu þarf að hafa vak- andi auga með viðgangi fiskstofn- anna. Beita má meðal annars frið- un svæða, varanlegri og tímabund- inni, og möskvastærð. Rannsóknir eru lykhatriði. Jón Erlingur Þorláksson „Kvótakerfið hefur á sér blæ fáránleik ans. Það minnir einna helst á mynd- verk eftir súrrealistann Salvador Dalí. Hefði einhver spáð því fyrir 15 árum að allar fiskveiðar við ísland yrðu reyrðar í viðjar slíks kerfis hefði sá hinn sami verið álitinn ruglaður.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.