Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Page 28
40
MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 1991.
Sviðsljós
Örbylgjuofnapylsuhátíð
Sum börnin voru mjög vel máluð
eins og þessi unga dama, Maria
Björk, sem var með íslenska fánann
málaðan á andlitið.
Jón Einar var málaður eins og sjó-
ræningi.
Á vegum Dagnýjar Bjarkar dans-
kennara hefur verið starfandi
„Bamaklúbbur" nú í sumar. í
klúbbnum hefur verið margt
skemmtilegt gert. Farið hefur verið
á hestbak, í fjöruferðir, í húsdýra-
garðinn að ógleymdum hinu vinsælu
sundlaugaferðum. Einnig hefur ver-
ið farið í bæjarferðir í góða veðrinu,
keyptur ís og öndunum gefið. Dagný
hefur einnig farið að heimsækja fyr-
irtæki með börnin og hafa þau tekið
einstaklega vel á móti þessum ungu
gestum.
Föstudaginn 26. júlí var síðan hald-
in hátíð sumarsins fyrir öll börnin.
Ætlunin var að halda grillveislu ut-
andyra en vegna rigningar var
brugðið á það ráð að færa veisluna
inn í hús og pylsurnar, sem áttu að
fara á grillið, hitaðar í örbylgjuofni.
Bömunum líkað það ágætlega og
skemmti hópurinn sér mjög vel eins
og þau höfðu reyndar gert allt nám-
skeiðið.
Börnin höfðu búið til hatta og skreytt sig málningu fyrir hátiðina og hér má sjá hluta Barnaklúbbsins stilia sér upp
fyrir Ijósmyndara.
Hin glæsilega Stefanía prinsessa kemur hér á góðgerðardansleik í
Monte Carlo sem haldinn var á vegum Rauða krossins. Stefanía er
yngri dóttir Rainiers fursta af Mónakó og hefur hún tekið að mestu
við hlutverki Karólínu prinsessu, systur sinnar, að koma fram opinber-
lega með föður sínum en Karólína hefur litið sést opinberlega eftir
að hún missti mann sinn fyrir rúmu ári.
Símamynd Reuter
Paradís bamanna
Björn er mjög hugmyndarikur og smíðaði hann þessa klifurgrind úr afsöguð-
um greinum og trjám sem fólk hefur verið að henda. Á myndinni má einn-
ig sjá brúna sem Bjöm smiðaðl.
í Borgarnesi hafa heiðurshjónin geti haft not af.
Björn Guðmundsson og Ágústa Þor- Hann hefur einnig nýtt rekavið
kelsdóttir hannað og byggt paradís sem hefur rekið á fjörur hans og
fyrir börn á landareign sinni. búið til úr þeim skemmtileg furðu-
Á ári barnsins, 1979, vildu þau gera dýr. Björn hefur smíðað brú yfir
eitthvað fyrir blessuð börnin og hófst smágil sem þarna er svo börnin fari
Björn því handa við að byggja leik- sér ekki að voða og á henni stendur
völl fyrir þau. Allt frá því aö leikvöll-' skrifað: „Fjarlægðin gerir fjöllin blá
urinn var tekinn í notkun hafa gestir og mennina mikla“. Hann heldur
hans skrifað nöfn sín í gestabók sem brúnni mjög vel við og hefur hann
hefur legið frammi og hafa hjónin, endurbyggt hana þrisvar sinnum.
Björn og Ágústa, því haldið mjög Fólk í Borgarnesi hefur verið mjög
góða skrá yfir alla þá sem hafa haft ánægt með þetta framtak Björns og
viðdvöl á leikvellinum. á ári trésins gaf fyrirtæki á staðnum
Leikvöllurinn er ekki aðeins Birni nokkuð margar tijáplöntur til
skemmtilegur að gerð heldur eru að planta við leikvöllinn til að gera
leiktækin, sem eru fjölmörg, að umhverfi hans enn vistlegra.
mestu unnin úr afgangstimbri og Á landareigninni er líka berjaland
viðarbútum sem fólk hefur ætlað aö svo börnin, sem koma í heimsókn í
henda. Björn hefur hirt og nýtt vel paradis Björns og Helgu þegar
þetta timbur og nú er fólk farið aö hausta tekur, geta líka tínt upp í sig
sendahonumafgangstimburogstór- ber.
ar trjágreinar sem það telur að hann
Hjónin Björn og Agústa tylla sér
niður á bát sem Björn hefur smíðað
fyrir bömin að leika sér í, er þau
koma í heimsókn á leikvöllinn.
DV-myndir ÞM
Þeir byggja
á stálinu okkar
- til framtíðar
A* ratuga reynsla okkar í stálinnflutningi
,og sérþekking á steypustáli
fyrir íslenskar aðstæður skilar sér
til byggingaraðila í hörkusterku stáli
(opinber staðall ASTM A/615 Grade 60)
sem endist til framtíðar.
Allur stállager innandyra. Sendum á
staðinn (krani óþarfur). Hagstætt verð.
Fáiö ráö hjá fagmönnum okkar og
leitiö tilboöa.
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 SÍMI:62 72 22 • FAX: 62 30 24