Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Qupperneq 30
42
MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 1991.
Afmæli
Marta Pétursdóttir
Marta Pétursdóttir húsfreyja, Víöi-
mel 38, Reykjavík, er níræö í dag.
Starfsferill
Marta er fædd í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún var við nám í Kvenna-
skólanum í Reykjavík 1915-18 og
starfaði á skrifstofu Sameinaða
gufuskipafélagsins í Reykjavík
1918-25. Marta hefur verið heima-
vinnandi húsfreyja síðan 1926. Hún
hefur búið alla ævi í Reykjavík,
nema árin 1928-30 á Eskifirði og á
Siglufirði 1948-51. Marta er einn af
stofnendum Kvenfélags Neskirkju
og var í stjórn þess 1941-45 og átti
einnig um skeið sæti í stjórn Nem-
endasambands Kvennaskólans í
Reykjavík.
Fjölskylda
Marta giftist 27.12.1926 Guðfinni
Þorbjörnssyni, f. 11.11900, d. 4.4.
1981, framkvæmdastjóra, en for-
eldrar hans voru Þorbjöm Finns-
son, b. í Ártúni í Mosfellssveit, og
Jónína Jónsdóttir.
Marta og Guðfinnur eignuðust 3
börn. Þau eru Vigdís, f. 8.10.1927,
bréfritari, búsett í Reykjavík, gift
Lofti J. Guðbjartssyni, fyrrv. banka-
útibússtjóra, og eiga þau 2 böm og
4 barnabörn; Pétur, f. 14.8.1929,
framkvæmdastjóri Sjónvarpsins,
kvæntur Stellu Sigurleifsdóttur og
eiga þau 4 börn og 4 barnaböm;
Þorbjörn, f. 1.4.1945, rennismiður,
búsettur í Reykjavík, var í sambúð
með Arnþrúði Lilju Gunnbjörns-
dóttur, látin, en þau eignuðust 1
barn og eru bamabörnin 2.
Bróöir Mörtu var Erlendur Ólaf-
ur, f. 30.5.1893, d. 1958, forstjóri og
lengi formaður KR.
Foreldrar Mörtu voru Pétur Þórð-
arson, f. 1868, d. 1942, skipstjóri og
síðar hafnsögumaður í Reykjavík,
og Vigdís Teitsdóttir, f. 1866, d. 1922.
Ætt og frændgarður
Bróðir Péturs var Jón faðir Láru,
ömmu Lám Ragnarsdóttur alþing-
ismanns og Árna Tómasar Ragnars-
sonar læknis. Jón var einnig faðir
skipstjóranna Jóns Otta og Guð-
mundar á Skallagrími, föður Jóns á
Reykjum íMosfellssveit. Dóttir Jóns
var Ásta, amma Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur. Önnur dóttir Jóns
var Guðrún, móðir Jóns Guð-
mundssonar menntaskólakennara.
Systir Péturs var Guðrún, lang-
amma Arnar Erlingssonar, skip-
stjóra i Keflavík. Pétur var sonur
Þórðar, b. og skipasmiðs í Gróttu,
bróður Ingibjargar, langömmu Pét-
urs Sigurðssonar, fyrrv. alþingis-
manns. Þórður var sonur Jóns,
skipasmiðs í Engey, Péturssonar,
b. í Engey, föður Guðrúnar,
langömmu Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra. Pétur var einnig
faðir Guðfinnu, ömmu Bjarna Jóns-
sonar vígslubiskups. Pétur var son-
ur Guðmundar, lögréttumanns í
SkOdinganesi, Jónssonar, sem var
annar þeirra sem mældi út lóð
Reykjavíkur eftir að hún var gerð
að sérstökum kaupstað 1786. Móðir
Þórðar í Gróttu var Guðrún Þórðar-
dóttir, dbrm í Skildinganesi, Jóns-
sonar og konu hans, Margrétar
Guðmundsdóttur, systur Péturs í
Engey.
Móðir Mörtu var Vigdís, systir
Marteins skipstjóra, föður Guð-
mundar verkfræðings sem lengi var
formaður Skógræktarfélags Rvíkur,
föður Guðrúnar, hjúkrunarfor-
stjóra Landakotsspítalans. Vigdís
var einnig systir Helga, hafnsögu-
manns í Reykjavík, langafa Ásgeirs
Marta Pétursdóttir.
Elíassonar, þjálfara landsliðs ís-
lands í knattspyrnu. Vigdís var dótt-
ir Teits, sjómanns í Rvík, Teitsson-
ar, bróður Jóns, afa Benjamíns Ei-
ríkssonar bankastjóra. Móðir Vig-
dísar var Guðrún Þorláksdóttir,
hafnsögumanns í Rvík, Þorgeirs-
sonar, bróður Herdísar, ömmu
Margrétar, ömmu Ellerts B. Schram
og Gríms Valdimarssonar, for-
mannsÁrmanns.
Una Halldórsdóttir
Una Halldórsdóttir, húsmóðir og
iðnverkakona, Háaleitisbraut 40,
Reykjavík, er sextug í dag.
Starfsferill
Una er fædd og uppalin á ísafirði
og bjó þar til ársins 1978. Hún stund-
aði ýmis störf þar til hún fór í Hús-
mæðraskólann Ósk veturinn 1952-
1953. Hún var heimavinnandi hús-
móðir til 1965 er hún hóf störf á
Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur hf.
og starfaði þar meðan hún bjó á
ísafirði. Una hóf störf á saumastofu
Henson-sportfatnaður 1979 og vinn-
ur þar enn og hefur hún verið trún-
aðarmaður starfsfólks síðan 1981.
Una starfaði í skátafélaginu Val-
kyrjunni á ísafirði í fj ölmörg ár og
starfar nú 1 St. Georgsgildi skáta í
Reykjavík.
Una er félagi í Oddfellowreglunni.
Hún hefur setið í stjóm Iðju, félags
verksmiðjufólks, síðan 1986. Una er
félagi í Ættfræðifélaginu.
Fjölskylda
Una giftist 24.10.1953 Þorgeiri
Hjörleifssyni, f. 14.10.1924, trygg-
ingafulltrúa. Foreldrar hans voru
Elísabet Þórarinsdóttir og Hjörleif-
ur Steindórsson, þau eru bæði látin.
Börn Unu og Þorgeirs eru: Elísa-
bet Þorgeirsdóttir, f. 12.1.1955,
blaðamaður og ljóðskáld í Reykja-
vík. Barn hennar er Arnaldur Máni
Finnsson, f. 28.3.1978.
Dr. Halldór Þorgeirsson, f. 25.7.
1956, plöntulífeðlisfræðingur, maki
Sjöfn Heiða Steinsson, f. 14.31957,
sérkennari í Heyrnleysingjaskólan-
um. Þau eru búsett í Kópavogi og
eiga tvö börn, Berglindi, f. 8.7.1980,
og Hákon Atla, f. 16.10.1981.
Systkini Unu eru: Jón Páll, f. 2.10.
1929, framkvæmdastjóri á ísafirði,
maki hans er Hulda Pálmadóttir og
eiga þau þrjú börn; Guðmundur, f.
21.1.1933, skipstjóri í Bolungarvík,
maki Dagbjört Torfadóttir og eiga
þau sex börn; Ólfur Bjarni, f. 12.12.
1936, d. 23.5.1939; Ólafur Bjarni, f.
12.10.1944, framkvæmdastjóri á
ísafirði, maki Salbjörg Jósefsdóttir,
og eiga þau fjögur böm.
Foreldrar Unu vour Halldór Jóns-
son, f. 28.4.1890, d. 15.11.1981, verka-
maður, og Kristín Svanhildur Guð-
finnsdóttir, f. 6.12.1907, d. 16.05.1982,
húsmóðir. Þau bjuggu lengst af á
Una Halldórsdóttir.
ísafirði.
Ætt
Foreldrar Halldórs voru Ólöf
Jónsdóttir frá Kirkjubóli í Skutuls-
firði og Jón Bjarnason frá Fossum
í Skutúlsfiröi.
Foreldrar Kristínar vora Halldóra
Jóhannsdóttir frá Rein í Hegranesi
í Skagafirði og Guðfinnur Einars-
son, útvegsbóndi á Litlabæ í Skötu-
firði.
Ólafía Salvarsdóttir
Ólafía Salvarsdóttir húsfreyja,
Vatnsfirði i Vatnsfjarðarsveit, N-
ísaijarðarsýslu, er sextug í dag.
Starfsferill
Ólafia er fædd í Reykjarfirði og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún
var við nám í húsmæðrafræðum að
Löngumýri í Skagafirði. Ólafía var
aðstoðarmatráðskona á Reykja-
lundi í 1 vetur og ráðskona við
Barna- og héraðsskólann á Reykja-
nesi í 2 vetur. Hún hefur verið árum
saman í stjóm Kvenfélagsins
Sunnu, endurskoðandi sveitarsjóös
um árabil og á sæti í sveitarstjóm.
ÆTTARTRÉ
Rekjum og skrautritum
litprentuð ættartré.
Ættfræðistofa Þorsteins
S. 641710 og 46831
Fjölskylda
Ólafía giftist 6.10. 1957 Baldri Vil-
helmssyni, f. 22.7.1929, presti og síö-
ar prófasti í Vatnsfirði, en föreldrar
hans voru Vilhelm Erlendsson,
póstafgreiðslumaður á Hofsósi, og
kona hans, Hallfríður Pálmadóttir.
Ólafía og Baldur eiga 5 böm. Þau
eru Hallfríður, f. 25.9.1957, bóka-
safnsfræðingur; Ragnheiður, f. 6.10.
1958, stöðvarstjóri Póst og síma á
Súðavík, gift Kristjáni B. Sigmunds-
syni vélstjóra og eiga þau 2 börn,
Ólafíu og Baldur; Þorvaldur, f. 20.5.
1959, bifreiðarstjóri; Stefán Oddur,
f. 5.4.1966, starfsmaöur hjá Heklu
hf.; Guðbrandur, f. 2.5.1968, af-
greiðslumaður hjá Skeljungi hf. Ól-
afía átti áður Evlalíu S. Kristjáns-
dóttur, f. 1.6.1951, gift Jóhanni H.
Jónssyni húsgagnasmiði og eiga þau
3 syni, Jón Svan, Kristján Heiðar
og Ragnar Karl, en Evlalía átti áður
Salvar Sveinsson.
Ólafía á 4 systkini. Þau eru Gróa
Jóhanna, fyrram símstjóri á Arn-
gerðareyri, var gift Halldóri Víg-
lundssyni, látinn, smiði og vitaverði
á Dalatanga og Hombjargsvita; Há-
kon, bóndi í Reykjarfirði, kvæntur
Steinunni Ingimarsdóttur; Sigríður
gift Baldri Bjamasyni, bónda í Vig-
ur; Amdís, ljósmóðir, gift Júlíusi
Jónssyni, bónda í Noröurhjáleigu í
Álftaveri.
Ólafia Salvarsdóttir.
Foreldrar Ólafíu voru Salvar Ól-
afsson, f. 4.7.1888, d. 3.9.1979, bóndi
í Reykjarfirði, og Ragnheiður Há-
konardóttir, f. 16.8.1901, d. 19.5.1977.
Ætt
Faðir Salvars var Ólafur, sonur
Jóns, er lengi bjó í Reykjarfirði, og
konu hans, Evlalíu S. Kristjánsdótt-
ur.
Faðir Ragnheiöar var Hákon, son-
ur Magnúsar, og konu hans, Bryn-
dísar Bjamadóttur, Þórðarsonar á
Reykjahólum.
Ólafía tekur á móti gestum á heim-
ili sínu á afmælisdaginn.
afmælið
85 ára
Guðrún Stefánsdóttir,
Setbergi, Nesjahreppi.
80ára
Sigurbjört Lúthersdóttir,
Kaplaskjólsvegi 53, Reykjavík.
Brynbildur Stefánsdóttir,
Vallholti 34, Selfossi.
70ára
Magnús Pálsson,
Syðri-Steinsmýri, Skaftárhreppi.
60 ára
Kristján Rögnvaldsson,
Hávegi58, Siglufirði.
Þórarinn A. Guðjónsson,
Stiíluseli 5, Reykjavik.
Margeir Guðmundur Ásgeirsson,
Hólabraut 11, Keflavík.
Sigurður Guðmundsson,
Gunnólfsgötu 18, Ólafsfirði.
50 ára
Sigríður Sigurðardóttir,
12. ágúst
Urðarbakka 24, Reykjavík.
Sigríður Sigurmundsdóttir,
Birkigrund 44, Kópavogi,
Sonja O. Garðarsson,
Kambagerði 2, Akureyri.
40ára
Gróa Finnsdóttir,
Mjóstræti 6, Reykjavík.
Freydis Sjöfn Magnúsdóttir,
Hraunstíg 1, Bakkafirði.
Bjarni Vilhjálmsson,
Álfheimum 33, Reykjavik.
Svavar Helgason,
Hverafold 40, Reykjavík.
Eyjólfur Kristmundsson,
Lóurima9,Selfossi.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Frostaskjóli 65, Reykjavík.
íris Sigríður Guðmundsdóttir,
Stóru-Sandvík, Sandvíkurhreppi.
Skúli Bergmann Garðarsson, .
Einigrund 8, Akranesi.
Ingólfur H. Matthíasson,
Kirkjuvegi39, Keflavík.
Sigurður Sveinbj örnsson,
Baldursgötu 3, Reykjavík.
Björg Svavarsdóttir,
Vogabraut 2, Höfn í Homafirði.
Þorgeir Jónsson
Þorgeir Jónsson bóndi, Möðruvöll-
um í Kjós, er sjötugur í dag. Þorgeir
hefur ásamt Jónmundi bróður sín-
um búið að Möðruvöllum eftir lát
föður þeirra 1939 og hafa þeir búið
þarfélagsbúisíðan.
Fjölskylda
Þorgeir kvæntist 14.11.1953 Ingi-
björgu Sveinsdóttur, f. 12.1.1915,
húsmóður. Foreldrar hennar:
Sveinbjörn Sveinsson, bóndi að Há-
mundarstöðum í Vopnafirði, og
Guðbjörg Gísladóttir húsmóðir.
Böm Þorgeirs og Ingibjargar era:
GuðbjörgEgló, f. 23.9.1951, gift
Reyni Pálmasyni, þau eiga þrjú
börn; Ólöf Jóna, f. 10.12.1952, gift
Sigurði Ásgeirssyni og eiga þau þrjú
böm; Jón Bergþór, f. 20.12.1955,
hann á tvö böm; Hugrún, f. 25.4.
1960, gift Ólafi Sigurjónssyni og eiga
þau tvö böm; Ingibjörg átti áöur
Kára Jakobsson, f. 10.11.1946,
kvæntur Elínu Ingimundardóttur
og eiga þau tvö böm.
Bróðir Þorgeirs er Jónmundur f.
6.3.1920.
Hálfsystur Þorgeirs eru Svánlaug,
Þorgeir Jónsson.
f. 28.1.1929; Ólöf, f. 21.6.1924, látin,
og Anna Kristín f. 7.9.1927, sem
léstungbarn.
Foreldrar Þorgeirs voru Jón Berg-
þór Guðmundsson, f. 18.7.1888, d.
28.5.1939, bóndi, og Ólöf Jónsdóttir,
f. 8.6.1883, d. 28.4.1922, húsmóðir.
Þau bjuggu að Möðruvöllum í Kjós.
Þorgeir verður að heiman á af-
mæhsdaginn.