Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1991, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1991, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1991. LífsstOl DV kannar grænmetismarkaðinn: Miklar verðlækk- anir á grænmeti - kartöflur á gjafverði í Bónusi og Fjarðarkaupi Nú er hagstætt að kaupa blómkál í matvöruverslunum því meðalverðið hefur lækkað um tæplega helming á einni viku. Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð á grænmeti í eftirtöldum verslunum: Bónusi í Faxafeni, Fjarð- arkauþi í Hafnarfirði, Hagkaupi á Eiðistorgi, Kjötstöðinni í Glæsibæ og Miklagarði vestur í bæ. Bónusbúðimar selja sitt grænmeti í stykkjatali og Fjarðarkaup selur einstaka grænmetistegundir einnig í Neytendur stykkjatali en hinar samanburðar- verslanirnar selja eftir vigt. Til þess að fá samanburð þar á milli er græn- meti í þeim versíunum, þar sem selt er í stykkjatali, vigtað og síðan um- reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló- verð. Miklar breytingar eru á meðal- verði grænmetis frá í síðustu viku og allar tegundimar í könnuninni lækka í verði nema gulrætur. Mest er lækkunin á blómkáli, tæplega helmingslækkun, en vínber lækka næstmest eða um rúman þriðjung. Það sem hefur einna mest áhrif til lækkunar er lækkun meðalverðs í Fjarðarkaupi sem virðist ve-ra að leggja í verðstríð á grænmeti við Bónus. Meðalverð á tómötum lækkaði um 15 af hundraði og er nú 252 krónur. Tómatar vom á lægsta verðinu í Fjarðarkaupi, 139, en næst kom verð- ið í Bónusi, 200, Kjötstöðinni og Hag- kaupi, 298, og Miklagarði, 329 krón- ur. Munur á hæsta og lægsta verði á tómötum er 142%. Lækkun meðalverðs á gúrkum milli vikna nam 27% og meðalverðið er nú 155 krónur. Gúrkur voru á lægsta verðinu í Fjarðarkaupi þar sem kílóverðið er 78 krónur. Þar á eftir kemur Bónus, 103, Kjötstöðin, 198, og Mikligarður og Hagkaup em með sama kílóverð, 199. Munur á hæsta og lægsta verði á gúrkum er 155%. Sveppir lækka litillega í meðal- verði og það er nú 497 krónur. Lægsta verðið á sveppum var að finna í Bón- usi, 393, en á eftir fylgja Fjarðar- kaup, 455, Hagkaup og Mikligarður, 545, og Kjötstöðin, 549. Munur á hæsta og lægsta verði á sveppum er 40%. Græn vínber lækka einnig vem- lega í meðalverði eða um 35% og það er nú 200 krónur. Lægsta verðið er að finna í Fjarðarkaupi, 125, en á eft- ir koma Kjötstöðin, 149, Bónus, 154, Hagkaup, 285, og Mikligarður, 288. Munur á hæsta og lægsta verði er 130%. Um 6% lækkun varð á meðalverði á grænni papriku milli vikna en meðalverðið er nú 259 krónur. Paprika hefur lækkað í verði um hartnær helming frá í júní. Lægsta verðið var aö finna í Fjarðarkaupi, 148, en næst kom Bónus, 233. Verðið í Kjötstöðinni er 297, í Miklagarði 299 og 319 í Hagkaupi. Munur á hæsta og lægsta verði er 130%. Meðalverð kartaflna er á hraðri niðurleiö og mestu munar um lágt verð hjá Bónusi og Fjarðarkaupi. Meðalverðið datt niður í 78 krónur úr 100 krónum í síðustu viku og verð- ið er mjög lágt í Bónusi, 29,50, og Fjarðarkaupi, 32,50. Kjötstöðin selur kílóið á 74,50 en Hagkaup 124,50 og Mikligarður 127,50. Þessar tölur eiga allar við um nýjar íslenskar gull- augakartöflur. Munur á hæsta og lægsta verði er ansi mikill eða332%. Meðalverö blómkáls lækkar úr 188 í 99 krónur á einni viku sem er hart- nær helmingslækkun. Lægsta verðið er í Fiarðarkaupi, 85 krónur kílóið, en síðan koma Mikligarður og Hag- kaup, 99, og Kjötstöðin, 112. Blómkál fæst ekki í Bónusi. Munur á hæsta og lægsta verði á blómkáli er 32%. Meðalverð hvítkáls lækkar um tæpan fimmtung af hundraði og er nú 120 krónur. Lægsta verðið var að finna í Bónusi, 78, en síðan koma í röð Fjarðarkaup, 112, Mikligarður, 115, Hagkaup, 147, og Kjötstöðin, 149. Munur á hæsta og lægsta verði á hvítkáli er 91%. Gulrætur eru eina grænmetisteg- undin þar sem meðalverð hækkar milli vikna í könnuninni. Þaö hækk- ar um 13 af hundraði og er nú 265 krónur. Gulrætur voru á hagstæð- asta verðinu í Fjarðarkaupi, 105, en síðan koma Bónus, 236, Hagkaup, 279, Kjötstöðin, 347, og Mikligarður, 359. Munur á hæsta og lægsta verði er heil 242%. -ÍS Sértilboð og afsláttur: Pitsur og pítur í Miklagaröi vestur í bæ gat að líta tilboðsverö á Rynkeby appelsínu- og eplasafa sem kostaði 79 krónur lítr- inn, Coop súkkulaöihúðuðu hafra- kexi, 200 g á 69 krónur, Tapir eld- húsrúllum, 4 stykki saman á 189 og Hraunbitum frá Góu, stór pakki á 145 krónur. í kjötborðinu í Kjötstöðinni var 23% aísláttur á dilkaskrokkum og grísahnakki með beini er seldur á 790 krónur kílóið. ískóla í 1 ‘A lítra flösk- um kostar 99 og Bluvit, fosfatfrítt þvottaefhi, 1,3 kg, er á tilboðsverðinu 445 krónur. í Hagkaupi á Eiðistorgi var sértil- boðsverð í gangi á lambaframparti á 498 krónur kílóið. Meðal annarra til- boðsvara mátti finna þrjú herðatré úr plasti saman á 99, Rískubba, 170 gramma pakka á 149 og McVities kremkex, 3x300 g á 199 krónur. Á tilboðstorgi Fjarðarkaups var afsláttarverð í gangi á Slotts sinnepi en kílóbrúsi er seldur á 234. Einnig gat þar að líta Negro kaffi, 'A kg á 138, Easy Off gluggahreinsi, 651 ml á 270 og Weetabix morgunmat, 215 grömm á 85 og 430 g á 152 krónur. í Bónusi í Faxafeni eru 9 tommu pitsur frá Stricklers, 300 grömm á 149, Falke Mel hveiti í tveggja kílóa pökkum kostar 59, Jacobs pítur, 6 stykki saman, 450 g, á 126 og Tobler- one, 6 lítil stykki (35 g) saman kosta I aðeins99krónur. -ÍS 100 JFMAMJJÁ -35% FJarðar- ■ kaup ■ 288 125 JFMAMJJÁ 1 -5% Bónus ■ 549 I 393

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.