Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1991, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1991. 25 <L. æsilegt skot Atla Helgasonar eftir aukaspyrnu. Víkingar náðu með þessu marki undsson dómari við Víkinginn Guðmund Inga Magnússon sem rakst harkalega á DV-myndir GS amundan Víkinga á Blikum í Kópavogi 1 gærkvöldi því að horfa á boltann og síðan var þetta bara spuming um hvorum megin við stöngina hann lenti,“ sagði Ath. Hörður Theodórsson kom Víkingi í 0-2 um miðjan síðari hálfleik, skaut frá vítateig og holtinn breytti stefnu af vamarmanni og sveif yfir Þorvald, markvörð Blikanna. Á sömu mínútu fengu Blikar vítaspymu þegar boltinn fór í hönd Þorsteins Þorsteinssonar og úr henni minnkaði Arnar Grétarsson muninn í 1-2. Guðmundur Hreiðarsson, markvörð- ur Víkinga, kom hði sínu þrívegis vel til bjargar og bestu tilþrifm sýndi hann með því að verja þrumuskot Hilmars Sighvatssonar uppi við samskeytin rétt fyrir hlé. Víkingar fengu þrjú galopin færi til að auka forskot sitt í síðari hálf- leiknum en Guðmundi Inga, Herði og Atla Helgasyni brást öllum bogahstin. Hjá Víkingum áttu Janez Zilnik og Atli Helgason mjög góðan leik á miðj- unni, aftasta vörnin var sterk og Helgi Björgvinsson átti þaðan skæðar rispur fram völhnn og Guðmundur varði markið af öryggi. Hraði Atla Einarsson- ar kom vörn Blika oft í opna skjöldu. Af Blikum komst Amar Grétarsson best frá leiknum, var yfirvegaður á miðjunni og átti góðar sendingar. Ing- valdur sýndi oft skemmtilega takta á vinstri kantinum og Siguröur Víðisson áttigóðanleikívörninni. -VS Fimmta tap KRíröð - Eyjamenn aftur á sigurbraut eftir 3-2 sigur Berglind Ómaisdóttír, DV, Eyjum; „Það var æðislegt að vinna þennan leik enda var hann hreinlega upp á líf og dauða. Við voram miklu hetri og hefðum átt að vinna stærra en það eru stigin sem gilda,“ sagði Tómas Ingi Tómasson, leikmaður ÍBV, eftir að Eyjamenn höfðu unnið 3-2 sigur á heillum horfnum KR-ingum í Eyj- um í gærkvöldi. Þetta var 5. tapleikur KR í röð og sá fjórði í deildinni og hðið virðist endanlega vera búið að missa af toppbaráttunni. Eyjamenn náðu með sigrinum að komast af mesta hættusvæðinu eftir slakan ár- angur undanfarið. Þaö voru KR-ingar sem byijuðu betur og náðu að skora á 8. mínútu með marki Ragnars Margeirssonar. Eftir markið fengu bæði hð mörg dauðafæri en það var ekki fyrr en á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks sem annað mark kom og það voru Eyjamenn sem það gerðu. Hlynur tók hornspyrnu og Tómas Ingi skallaði í netið og jafnaði. í seinni hálfleik voru Eyjamenn mun betri og léku mjög góða knatt- spyrnu. Þeir náðu sanngjarnt forystu á 71, mínútu þegar Tómas Ingi var fehdur af Ólafi Gottskálkssyni og Amljótur Davíðsson skoraði úr vít- inu. Á 80. mínútu bætti Leifur Geir Hafsteinsson þriðja markinu við eftir undirbúning Tómasar Inga. Aðeins tveimur mínútum síðar minnkaði Ath Eðvaldsson muninn fyrir KR með þrumuskoti af löngu færi. „Það virðist ekkert ganga upp hjá okkur og við fáum ahtaf á okkur ódýr mörk,“ sagði Ath eftir leikinn. Tómas Ingi, Hlynur Stefánsson og Nökkvi voru bestir í annars jafn- sterku hði ÍBV. Sigurinn var samt sigur hðsheildarinnar. Hjá KR yar Pétur Pétursson besti maður og Ólafur sýndi oft góða takta í markinu. „Ijúf ur sigur“ - sagði Gunnar Már eftir sigur Vals á KA „Svona er fótboltinn. Þetta er fljótt að breytast og það sannaðist í þess- um leik. Það sýndi sig að það er kar- akter í liðinu. Þetta var mikilvægur sigur og við komumst af mesta hættusvæðinu, aha vega í bih,“ sagði Ingi Bjöm Albeptsson, þjálfari Vals, eftir að hð hans hafði sigrað KA, 3-1, í baráttuleik á Hhðarenda í gær- kvöldi. Valsmenn náðu að tryggja sér sigur á 'síöustu 7 mínútunum eftir að „súper-varamaðurinn“ Gunnar Már Másson hafði komið inn á sem varamaður. Gunnar Már lagði upp jöfnunarmarkið og skoraði tvö síð- ustu mörkin sjálfur og þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann skorar mikil- væg mörk í sumar. Leikurinn var annars mjög daufur lengst af og einkenndist af geysilegri baráttu á miðjunni. Fyrri hálfleikur- inn var vægast sagt hundleiðinlegur. Nánast ekkert markvert gerðist. Það var reyndar ekki fyrr en um miðjan síðari hálfleik að fyrsta verulega marktækifærið leit dagsins ljós. Þá skaut Steinar Adólfsson rétt yfir KA-markiö þegar auðveldara virtist að skora. Aðeins mínútu síðar náðu KA-menn forystunni. Eftir fahegt samspil sendi Einar Einarsson bolt- ann á Áma Hermannsson sem skor- aði snyrtilega frá markteigshomi. Á sömu mínútu kom Gunnar Már inn á sem varamaöur og þá fóra hlutim- ir að gerast. Valsmenn virtust lifna við en það var þó ekki fyrr en á 83. mínútu sem þeir jöfnuðu metin. Gunnar Már skallaði þá boltann lag- lega inn á Gunnar Gunnarsson sem skoraði af stuttu færi sitt fyrsta meistaraflokksmark fyrir Val í sín- um öðrum leik fyrir félagið. Aðeins mínútu síðar bættu Valsmenn öðru markinu við. Ágúst Gylfason sendi fyrir frá hægri og Gunnar Már skah- aði firnafast upp í þaknetið hjá KA- mönnum. Gunnar Már var síðan aft- ur á ferðinni tveimur mínútum fyrir leikslok. Löng sending kom fram á völlinn, Gunnar Már virtist vera rangstæður þegar hann stakk sér inn fyrir. Haukur Bragason, markvörð- ur KA, missti á ótrúlegan hátt af boltanum og Gunnar Már fylgdi vel á eftir, fleygði sér fram og skallaði í tómt netið. „Þetta var ljúfur sigur og við þurft- um á honum að halda. Það var gam- an að skora þessi mörk og ekki síöur að leggja upp jöfnunarmarkið fyrir nafna minn,“ sagði Gunnar Már sem var ótvírætt maður leiksins. Einar PáU Tómasson og Sævar Jónsson vora einnig sterkir í Valshðinu. KA-menn era nú í slæmri stöðu en það hefur sýnt sig að staðan er fljót að breytast. Liðsheildin var mjög jöfn hjá KÁ en Sverrir Sverrisson stóð einnahelstuppúr. -RR i leikmaður júlímánaðar í 1. deild karla að ð sjálfsögðu í liði mánaðarins. • Stefán Arnarson FH(2) • Þormóður Egilss. KR (2) • Helgi Björgvinss. Vikingi • Pétur Ormslev Fram (2) • Steinar Adolfsson Val • Þorvaldur örlygss. Fram • Guðm. I Magnúss. Víkingi • Sleingr. Birgisson KA • Hlynur Stefánsson ÍBV (2) • Ingólfur Ingólfsson Stjörnunni Iþróttír UBK-Víkingur 1-2 (0-1) 0-1 Atli H. (22.), 0-2 Hörður (65.), 1-2 Amar (66. víti). Lið UBK; Þorvaldur, Kretovic, Sigurður, Gústaf, Guömundur G. (Rögnvaldur 62.), Hilmar, Valur, Ingvaldur, Grétar (Jón Þórir 80.), Steindór. Lið Víkings: Guðmundur H„ Helgi Bjö., Þorsteinn, Helgi Bja., Hólmsteinn (Ólafur Á. 80.), Zilnik, Ath H„ Guðmundur Ingi, Höröur, Atli E„ Guðmundur S. Gul spjöld: Amar (UBK), Helgi Bjö. (Vík.), Guðmundur S. (Vík.) Rauð spjöld: Engin. Dómari: Sæmundur Víglunds- son var ákveðinn og komst all- þokkalega frá leiknum. Áhorfendur: 730. Skilyrði: Milt veður, skýjað, blautur völlur með splunkunýju og ótroðnu grasi. Valur-KA 3-1 (0-0) 0-1 Árni H. (67.), 1-1 Gunnar G. (83.), 2-1 Gunnar Már (84.), 3-1 Gunnar Már (89.). Lið Vals: Bjarni, Sævar, Einar Páll, Arnaldur (Gunnlaugur 76.), Jón H. (Gunnar Már 67.), Magni, Ágúst, Steinar, Baldur, Jón Grét- ar, Gunnar G. Lið KA: Haukur, Erlingur, Stein- grímur, Halldór K„. Gauti, Örn Viðar, Sverrir, Einar (Ámi F. 85.), Ormarr, Vandas, Árni H. (Páll 75.). Gul spjöld: Engin. Rauð spjöld: Engin. Dómari: Þorvarður Björnsson og haföi hann ekki nógu góð tök á leiknum. Áhorfendur: Um 300. Skilyrði: Þokkaleg, dáhtið kalt og blautt, völlurinn dálítið þungur. ÍBV-KR 3-2 (1-1) 0-1 Ragnar (8.), 1-1 Tómas (45.), 2-1 Amljótur (71.), 3-1 Leifur (80.), 3-2 Ath (82.). Lið ÍBV: Þorsteinn, Heimir, El- ías, Hlynur, Jón Bragi, Amljótur, Leifur, Bergur, Tómas, Nökkvi, Ingi (Martin 50.). Lið KR: Ólafur, Atli, Gunnar 0„ Þormóður, Þorsteinn H„ Sigurður, Heimir (Gunnar S. 25.), Pétur, Bjarki, Ragnar (Óskar 30.), Björn. Gul spjöld: Leifur (ÍBV), Bergur (ÍBV), Tómas (ÍBV), Þorsteinn H. (KR). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Gísh Guðmundsson og var góður. Áhorfendur: 750. Skilyrði: Gott veður en þungur vöhur. Fram Staðan ....14 9 3 2 21-10 30 Víkingur... ....14 9 0 5 27-19 27 KR ....14 6 3 5 25-13 21 UBK ....14 5 5 4 21-19 20 Valur ....14 6 2 6 18-17 20 ÍBV ....14 6 2 6 24-29 20 FH ....14 5 4 5 19-19 19 Stjaman... ....14 4 5 5 21-20 17 KA ....14 4 3 7 14-19 15 Víðir ....14 1 3 10 13-38 6 A I R JUSTD0IT. REYKJAVÍKUR MARAÞON DAGAR TIL STEFNU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.