Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Síða 12
LAÚGARDAGÚR 17: ÁGÚST 1991. Tívolí - Hveraportið Glæsilegt markaðstorg alla sunnudaga í Hveraportinu. Góðar vörur á lágu verði. Pantanir á sölubásum í s. 91-676759 (Kristín) og 98-34673 (Tívolí). Tívolí er opið alla daga vikunnar. Kínverskir töframenn sýna alla daga Hinhliðin SVARSEÐILL UIKKU Mcð því að svara þrcmur laufléttum spurningum rétt áttu þess kost að vinna þér inn glœnýjan FIAT IJNO. I P y R N I N 6 A R 0 (* 1. Hvað kemur DV oft út í viku? 2. Frá hvaða landi er Fiat? 3. Hvað heitir morgunþáttur FM 957 milli kl. 9.00 og 12.00 alla virka daga? NAFN_ HEIMILl- S / MI ALDUR. 8 ..I N B t S T T \ l t FM 957, Pósthólf 9057, 129 Reykjavík. ES3 FM#95T BDESO Tívolí, Hveragerði Hörður Magnússon, fótboltakappi úr FH. Stefni á að gifta mig á næsta ári - segir Hörður Magnússon, markakóngur og sölustjori Hörður Magnússon hefur verið markakóngur sl. tvö ár í fótboltan- um og stefnir á að halda þeim titli í ár. Hann er efstur ásamt einum öðrum með tíu mörk en enn eru fjórir leikir eftir. Hörður segist ætla að vinna bikarinn á móti Val og segist bjartsýnn á að FH-ingar séu á mikilli uppleið. „Okkur gekk illa í byijun en mjög vel í júlí og ágúst. Það er því engin ástæða til að efast um velgengnina," segir Hörður Magnússon sem sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. Fullt nafn: Hörður Magnússon. Fæðingardagur og ár: 19. febrúar 1966. Maki: Ég er trúlofaður Deliu Krist- ínu Howser. Börn: Magnús Haukur, 5 ára. Bifreið: Ford Escort, árg. ’87. Starf: Sölustjóri Háskólabíós. Laun: Þau eru þokkaleg. Áhugamál: Fótbolti, tónlist og kvikmyndir. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Ég hef mest fengið þrjár tölur. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Skora mörk auðvitað og eyða tíma með fjölskyldunni. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Tapa. Uppáhaldsmatur: Mér finnst allur matur góður sem Delia býr til. Uppáhaldsdrykkur: ísköld létt- mjólk. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Nick Faldo golfspilari og Johan Barnes, knatt- spymumaður hjá Liverpool. Uppáhaldstímarit: Ætli það sé ekki einna helst fóboltablöð á borð við Shootmatch. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Kath- leen Turner. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Hlynntur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Phil Collins. Uppáhaldsleikari: Gene Hackman og Jack Nicholson. Uppáhaldsleikkona: Jodie Foster í kvikmyndinni Lömbin þagna. Uppáhaldssöngvari: Paddy Mcalo- on. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav- íð Oddsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Garfield. Uppáhaldssjónvarpsefni: fþróttir og góðar bíómyndir. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Hlynnt- ur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Mér finnst þetta allt sama tóbakið nema íþróttalýsingar eru bestar á rás tvö. Uppáhaldsútvarpsmaður: Bjarni Felixson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Svipað á báðar. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég hef mikið dálæti á Bjarna Fel. Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer lítið út að skemmta mér, helst ein- stöku sinnum á krá. Fjörukráin í Hafnarfirði er ágæt. Uppáhaldsfélag í íþróttum? FH. Stefnir þú að einhverju sérstöku i framtíðinni? Já, að gifta mig á næsta ári. Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég tók tvær vikur í sumarfrí og þær fóru í fótboltann. Venjulega er ekki hægt að taka sumarfrí á annatíma í fótboltanum þannig að það verður að bíða til haustsins. -ELA HRINGDU OG FÁÐU SENT EINTAK. Pöntunarlislinn kostar250kr. + póstburöargjald PÖNTUNARLÍNA 91-653900 BÆJARHRAUNI 14, 220 HAFNARFIRÐI A LAUSAM0L FERDAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.