Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Side 36
18
LÁUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991.
Meiming
Myndgáta
Blóðlítill Brahms
Þriöjudaginn 14. ágúst sl. voru enn sem oftar tónleik-
ar í sáfni Siguijóns myndhöggvara á Laugarnestanga.
Tónleikastaður þessi fer að verða svo vinsæll, að gildi
hans sem mælistiku á aðdráttarafli tónhstarfólksins
hverju sinni er varla lengur marktækt. En þó skal
ekki efast um raunverulegan áhuga tónleikagesta á
Tónlist
Ríkarður Ö. Pálsson
ljóðasöngstónleikum þeirra Jóhönnu Þórhallsdóttur,
Dagnýjar og Bryndísar Björgvinsdætra.
Á dagskrá voru eingöngu verk eftir Brahms og helg-
uðu flytjendur tónleikana minningu Margrétar Björ-
gólfsdóttur.
Ráðist var á garðinn þar sem hann var hæstur með
Vier ernste Gesánge, Op. 121, er marka hápunkt í ljóða-
söngverki Brahms, perlur háþroskans en að sama
skapi óárennilegar í túlkun. Hefði e.t.v. verið viturlegt
að hefja fangbrögðin við meistarann með vöggulögun-
um tveimur Op. 91, er næst komu. Jóhanna virtist
nokkuð óstyrk undir niðri, en harkaði af sér með að-
dáunarverðum sjálfsaga. Kannski er það ímyndun
mín, en það var eins og röddin hefði þétzt og víbratóið
orðið skaplegra en þegar síðast heyrðist í henni í
menningarmiðstöðinni Hafnarborg fyrr í sumar, og
eitthvað hefði líka áunnizt á efstu tónunum, sem virt-
ust fyrirhafnarminni en áður.
Verra var, hversu undarlega þreytt röddin virtist
nú, líkt og eftir of miklar (og skyndilegar?) æflngar;
mikið loft í tóninum og tilhneiging til að „lafa“ stund-
um í hendingarlokum, nokkuð sem hlýtur að hafa
spillt fyrir þeirri eðhlegu sönggleði, er einkennir Jó-
hönnu í betra formi. Það var eins og söngkonunni
auðnaðist ekki að syngja sig almennilega upp í þetta
sinn fyrr en kom að aukalaginu, hinum ægifagra Saf-
físka óð meistarans, eftir lokanúmerið, Acht Zigeun-
erlieder.
Að vísu ber að árétta, að troðfullur Sigurjónssalur
er ekki óskahús fyrir söng; þar er ekkert balsammjúkt
bergmál sem breiðir sig sem smyrsl um söngröddina
Jóhanna V. Þórhallsdóttir, söngkona.
og örvar sjálfstraustið, líkt og t.d. er um að ræða í
Skálholtskirkju.
En fæstir fullafgreiða ljóðaperlur Brahms í snatri,
hvorki í fimmtu né tíundu atrennu, og Jóhanna hefur
örugglega ekki sungið sitt síðasta á því sviði. Hinn
sérkennilegi, málmkenndi djúpi alt-tónn hennar á
neðra sviði á væntanlega eftir að færast ofar, og söng-
konan mun að líkindum vinna meira úr veika registr-
inu og fólleitri raddbeitingu og glæða þar með eftir-
væntingu og mystík í túlkun til jafns við þá dramatík
sem hún þegar býr yfir, svo maður tali ekki um bless-
unarlegt næmi hennar fyrir húmor, sem örlaði á í
Tataralögunum, en þó minna en maður bjóst við.
Þær systúr, Bryndís á selló (aðeins í vöggulögunum)
og Dagný, léku vel og snyrtilega, en án meiriháttar
dramatískra tilþrifa. Það vill oft gleymast, að Brahms
var fyrrverandi knæpupíanisti; hann var vissulega
maður fegurðar og fágunar, en líka maður fólksins.
Hér vantaði meiri andstæður, meiri kraft, meiri gleði.
Jarðarfarir
Útfór Þorsteins Guðjónssonar fer
fram í dag, laugardaginn 17. ágúst,
frá Seyðisfjarðarkirkju kl. 14.
Elísabet Albertsdóttir frá Hesteyri
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 19. ágúst kl.
13.30.
Þjóðarflokkurinn
Landsfundur Þjóðarflokksins verður haldinn á Lauq-
arbakka í Miðfirði 23.-25. ágúst. Mæting á föstudag
kl. 20-22. Fundarslit á sunnudag kl. 17. Gisting á
Hótel Eddu, Laugarbakka. Allir stuðningsmenn eru
velkomnir á fundinn. Nánari upplýsingar á flokks-
skrifstofunni í síma 96-11424.
n
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39 - 108 Reykjavík -
Sími 678500 - Fax 686270
FELAGSRAÐGJAFI
Laus er 75% staða félagsráðgjafa á félagsráðgjafa-
sviði öldrunarþjónustudeildar í Síðumúla 39.
Starfið er fólgið í ráðgjöf og aðstoð við aldraða, mat
á húsnæðis- og þjónustuþörf og meðferð umsókna
um húsnæði og fjárhagsaðstoð. Nánari upplýsingar
veita yfirmaður öldrunarþjónustudeildar, Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir, og forstöðumaður félagsráðgjafa-
sviðs, Ásta Þórðardóttir, í síma 678500.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.
ÞROSKAÞJÁLFI-
MEÐFERÐARFULLTRÚI
Fjölskylduheimili fatlaðra barna, Akurgerði 20, óskar
eftir að ráða þroskaþjálfa og/eða meðferðarfulltrúa.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með
fötluðum börnum. Um er að ræða dag-, kvöld- og
helgarvaktir. Nánari upplýsingar veitirforstöðumaður
í síma 681311 og 21682.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
Blái fuglinn flytur
Tískuvöruversluninn Blái fuglinn, sem
veriö hefur til húsa í Pósthússtræti und-
anfarin fimm ár, flutti nýlega í Borgar-
kringluna á aðra hæð. Blái fuglinn hefur
áfram á boðstólum undirfatnað, náttfatn-
að og ýmsar gjafavörur. Nýtt símanúmer
er 677488. - Á myndinni, sem tekin er í
hinu nýja húsnæði i Borgarkringlunni,
eru Sigrún Pálsdóttir afgreiðslustúlka
t.v. og Hanna Elíasdóttir, verslunar-
stjóri og eigandi, t.h.
Gömul Víðihlíðarsveifla
Laugardaginn 17. ágúst, þ.e.: kvöld, verð-
ur þess minnst með dansleik að 30 ár eru
liðin frá vígslu viðbyggingar félagsheim-
ilisins Víðihlíðar í Víðidal.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi en það var einmitt
hljómsveit Geirmundar, Rómó og Geiri,
sem lék á dansleik vegna vigslunnar. Því
er í raun um tvöfalt afmæli að ræða.
Margvísleg starfsemi hefur verið í húsinu
og dansleikir með Geirmundi orðnir hátt
í 200, auk annars. Líklegt er að ungir sem
aldnir muni Qölmenna af þessu tilefni og
rifja upp gamlar minningar.
Stöðupróf í framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum á haustönn 1991 eru
haldin sem hér segir:
Þriðjud. 20. ágústkl. 18.00 enska
Miðvikud. 21. ágúst kl. 18.00 franska, spænska
Fimmtud. 22. ágústkl. 18.00 þýska
Föstud. 23. ágúst kl. 18.00 stærðfræði, norska,
sænska
Prófin eru haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
og eru opin nemendum úr öllum framhaldsskólum.
Þeir sem ætla að gangast undir þessi próf eru beðn-
ir um að tilkynna þátttöku sína á skrifstofu Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Skráning er hafin.
Tilkytmingar
Jafnréttisráð
Á síðustu dögum þingsins í vor voru sam-
þykkt ný lög um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla. Það nýmæli er í
lögum að skipuð skal nefnd þriggja lög-
fræðinga, kærunefnd jafnréttismála, sem
tekur til meðferðar kærur vegna meintra
brota á lögunum. Félagsmálaráðherra
hefur jafnframt skipaö kærunefnd jafn-
réttismála til næstu þriggja ára. Nefndina
sitja: Ragnhildur Benediktsdóttir, for-
maður, Sigurður Helgi Guðjónsson og
Margrét Heinreksdóttir. Skrifstofa Jafn-
réttisráðs og kærunefndar er aö Lauga-
vegi 13, Reykjavik.
Happdrætti í Galtalæk
Að venju voru miðar að mótinu í Galta-
lækjarskógi númeraöir sem happdrættis-
miðar fyrir böm og unglinga. Dregið var
í happdrættinu sunnudaginn 4. ágúst og
fengu eftirtalin númer vinning:
Bamamiði: Útvarpstæki: 1112. Teikni-
dúkur: 103,142, 480, 484, 589, 619, 787, 788,
1642, 1708, 2044, 2141, 2188, 2932, 2989.
Bíómiði: 112, 168, 221, 448, 508, 615, 767,
854, 897, 943, 1190, 1337, 1420, 1609, 1703,
1721,1765,1838,1844,1970,1982,2059,2095,
2137, 2479, 2642, 2677, 2800, 2852, 2972.
Unglingamiði: Útvarpstæki: 1405. Coca
Cola útvarp: 56, 58,451, 620, 641, 774,1182,
1383, 1493.
Bíómiði: 11, 43, 81, 91, 92, 109, 175, 268,
279, 522, 525, 565, 635, 714, 719, 721, 722,
771, 783, 837, 882, 895, 941,1111,1183,1192,
1324, 1354, 1443, 1466
Fulbright-styrkir
til háskólanáms í USA
Menntastofnun ísiands og Bandaríkj-
anna, Fulbright-stofnunin, var sett á fót
með samningi ríkisstjóma landanna 1957
til að auðvelda framkvæmd fræðslustarf-
semi sem ríkin komu sér saman um að
standa að. Stofnunin styrkir íslendinga
til náms og rannsóknarstarfa við banda-
rískar menntastofnanir og Bandaríkja-
menn til náms, kennslu- og rannsóknar-
starfa á íslandi. Yflr 5000 einstaklingar
notuðu sér þessa þjónustu á síðasta ári.
Árið 1991 hljóta 14 íslendingar styrks til
náms í ýmsum greinum. Umsóknarfrest-
ur um styrki fyrir skólaárið 1991-92 verö-
ur auglýstur síðar en umsóknareyðublöð
liggja frammi á skrifstofu stofnunarinnar
að Laugavegi 59 og er opið kl. 13-17 virka
Má veiða gæsir eftir
20. ágúst, ekki fyrr
Umhverfisráðuneytið hefur óskað eftir
því við dómsmálaráðuneytið að lög-
gæslumenn fylgist sérstaklega með því
að gæsaveiðar hefjist ekki fyrr en leyfi-
legt er lögum samkvæmt en það er 20.
ágúst samkvæmt ákvæðum laga nr.
33/1966 um fuglaveiðar og fuglafriðun.