Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1991, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1991, Side 5
 Reykjavíkurmaraþon: Rúmlega tvö þúsund hlauparar hlupu í Reykjavíkurmaraþoni - Kevin Brown og Susan Bendley sigruðu í maraþonhlaupinu • Hlaupararnir komnir af stað í Lækjargötunni í gær. Hér sjást þeir sem leiddu hlaupiö í upphafi en að baki þeirra eru þeir rúmlega tvö þúsund hlaup- arar sem tóku þátt í Reykjavikurmaraþoninu. DV-mynd GS „Fyrsta og ekki það síðasta" - sagði Stefán Jasonarson Það voru ungir jafnt sem aldnir sem létu sig hafa það að taka þátt í Reykja- víkurmaraþoni. Margir ungir krakkar tóku þátt í skemmtiskokkinu en minna var um fólk sem komið er á efri árin. Einn af þeim elstu sem tók þátt í skemmtiskokkinu var Stefán Jasonarson, bóndi úr Vorasbæ, en hann verður 77 ára gamall í næsta mánuði. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek þátt í Reykjavíkurmaraþoni og því get ég lofað þér að þetta er ekki það síð- asta. Það var frábært að taka þátt í hlaupinu, fallegt kvenfólk var hlaup- andi allt í kringum mig og fyrir mann sem er jafn kvenhollur og ég þá var þetta mjög gaman,“ sagði Stefán í sam- tali við DV. Stefán blés varla úr nös þegar hann kom í markiö og víst er að þessi hressi bóndi úr Vorsabæ mun verða með í Reykjavíkurmaraþoni að ári liðnu og þá hleypur hann kannski hálft mara- þon. -GH • Stefán Jasonarson verður 77 ára i næsta mánuði og hann lauk skemmtiskokkinu með glans. DV-mynd GS Mettþátttaka var í Reykjavíkur- maraþoni sem haldið var í 8. sinn í gær. Um 2300 hlauparar tóku þátt í hlaupinu, flestir þeirra í 7 kíló- metra skemmtiskokki. í maraþon- hlaupi sigraði Skotinn Kevin Brown mjög örugglega, hljóp 42 kílómetrana á 2:32,25 klukkustund- um en íslandsmeistari varð Jó- hann Heiðar Jóhannsson á tíman- um 2:56,07 klukkustundum en Jó- hann varð þriðji í hlaupinu. í kvennaflokki sigraði Susan Bendley frá Bretlandi á 2:48,26 klukkustundum og er það einn besti timi sem náðst hefur í kvennaflokki í Reykjavíkurmara- þoni. Ursula Junemann varð fyrst íslensku keppendanna í mark. i hálfu maraþoni sigraði Frímann Hreinsson og hann varö jafnframt íslandsmeistari. Frímann hljóp rass að undanskildum Kristjáni Skúla. Önnur í skemmtiskokki í kvennaflokki varð Nína Jensen og í þriðja sæti varð Hulda Pálsdóttir. Það viðraði ekki sem best á hlauparana, strekkingsvindur var á hlaupaleiðinni og frekar kalt í veðri en fólk lét það ekkert á sig fá. -GH kílómetrana 21 á tímanum 1:10,25 klukkustundum. Annar varð Bret- inn Toby Tanser, sem búsettur er hér á landi, á 1:10,59 og tæpri mín- útu á eftir honum varð Sigurður P. Sigmundsson. í hálfu maraþoni kvenna sigraði Margrét Brynjólfsdóttir nokkuð örugglega á tímanum 1:29,46 klukkustundum. í skemmtiskokki karla fagnaði • Sigurvegararnir i maraþonhlaupinu. Skotinn Kevin Brown og Susan Bendley frá Englandi fagna hér sigri að loknu hlaupinu. Kristján Skúli Ásgeirsson sigri. Kristján hljóp 7 kílómetrana á tím- anum 23,18 mínútum. Annar varð Gunnar Guðmundsson og þriðji í skemmtiskokki varð Ólafur Gunn- arsson. í skemmtiskokki kvenna komu úrslitin fáum á ávart. Martha Ernstdóttir vann þar öruggan sig- ur, hljóp á tímanum 24,07 minútum og skaut öllum körlunum ref fyrir DV-mynd GS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.