Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1991, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1991.
Fréttir_________________________________________________________________________________dv
Breytt hlutverk Hagræðingarsjóðs:
Með þessu er verið að
skattleggja sjávarútveginn
- lagabreytingu þarf til, segir Halldór Ásgríinsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra
„Með þessu er veriö að taka
ákvörðun um að skattleggja sjávar-
útveginn. Mér sýnist að þá sé komið
í ljós að Davíð Oddsson og Jón Bald-
vin Hanniþalsson hafi samið um
þessa skattlagningu úti í Viðey og
sjávarútvegsráðherra sé nú að fadlast
á hana.
Hagræðingarsjóði var ætlað að
flýta fyrir hagræðingu í sjávarútveg-
inum og fækka fiskiskipum og það
er aldrei meiri þörf á fækkun þeirra
en í kjölfar þess að veiðiheimildir
dragast saman,“ sagði Halldór Ás-
grímsson, þingmaður og fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, þegar hann
var inntur álits á þeirri fyrirætlan
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra að fella niður öll núverandi
verkefni Hagræöingarsjóðs sjávarút-
vegsins og láta tekjur hans, sem
nema um 500 milljónum króna í
formi veiðiheimilda, renna til haf-
rannsókna.
„Auk þess var Hagræðingarsjóður-
inn hluti af þeirri sátt sem náðist í
kvótamálinu, ekki síst vegna þess að
honum var ætlað að selja veiðiheim-
ildir til byggðarlaga sem misstu
verulegan hluta af veiðiheimildum
sínum. Þar með er óöryggi byggð-
anna aukið til muna með því aö
breyta hlutverki sjóðsins.
Þetta verður ekki gert nema með
lagabreyíingu á Alþingi. Ég bendi
einnig á þaö að vegna loðnubrestsins
var ákveðið að verja aflaheimildum
Hagræðingarsjóðs fyrstu átta mán-
uðina til þess að koma í staðinn fyrir
aflaheimildir loðnuskipanna og
koma þannig í veg fyrir frekari
skerðingu hins hluta flotans. Ef
loðnuveiði verður lítil í vetur stend-
ur sjávarútvegsráðherra frammi fyr-
ir þeirri ákvörðun að skerða hlut
annarra skipa til þess að láta loðnu-
skipin hafa. Það er engin leið til að
skerða aflaheimildir flotans frekar.
Þar með er ríkisstjórnin búin að taka
burt hugsanlegt svigrúm hvað varð-
ar loðnumálin.
Mér finnst þetta mjög óskynsam-
legt og er andvígur því að fella niður
núverandi verkefni sjóðsins. En mér
kemur þetta þó ekki á óvart miðað
við hvemig formenn stjórnarflokk-
anna hafa talað. Mér kemur þó á
óvart að núverandi sjávarútvegsráð-
herra skuli hafa látiö bjóða sér það
að samþykkja þessa óskynsamlegu
samninga þeirra Jóns og Davíðs í
Viðey,“ segir Halldór.
-J.Mar
Hagræðingarsj óður:
Ósáttur við að hlutverki
sjóðsins verði breytt
- segir Benedikt Valsson sem á sæti 1 stjóm sjóðsins
„Samningaviðræðunum er lokið í
bih. Ég hef trú á að þetta eigi eftir
að koma upp aftur og menn reyni í
fjórða sinn að sameina frystihúsin á
Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Það
vantaði lítið upp á að þetta næði að
ganga í gegn á hluthafafundinum,“
segir Jónas Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Stöðv-
arfjarðar.
„Við höfum undirbúið sölu á hluta-
bréfum, fyrirtækið uppfylhr öU skil-
yrði tíl að komast á fijálsan hluta-
bréfamarkað. Það tekur að vísu ein-
hverja mánuði að komast inn á
markaðinn. Staða fyrirtækisins hef-
ur skánaö mikið að undanfomu. Sem
dæmi um það má nefna aö um ára-
mótin 1988/89 var eigið fé neikvætt
um 190 milljónir, áramótin eftir er
eigið fé neikvætt um 87 mflljónir en
um síðustu áramót var eigið fé nei-
kvætt um 18 milfjónir. Fyrstu sex
mánuði var.eigið fé orðið jákvætt um
13,6 mflljónir. Það sýnir að batinn er
mjög góður. Það sama gildir raunar
um Hraðfrysdhús Breiðdalsvíkur,
þar hefur einnig orðið umtalsverður
bati,“ segir Jónas.
Hlutafjársjóður á stóran hlut í
hraðfrystihúsunum á Stöðvarfirði og
Breiðdalsvík. En ætlar sjóðurinn að
markaðsetja bréf sín nú?
„Ég gaf þá yfirlýsingu á hluthafa-
fundinum á Stöðvarfirði að Hluta-
fjársjóður myndi ekki setja sín bréf
á markaö í trássi við vilja stjórnar
fyrirtækisins ef hluthafar sam-
þykktu að sameina þau,“ segir Guð-
mundur Malmquist, formaður
Byggðastofnunar.
„Ef spurt er hvort sjóðurinn muni
setja bréfin á markaö nú, eftir að
sameiningunni var hafnað, þá ber
að geta þess að Hlutafjársjóður á
samkvæmt lögum að selja þessi bréf
sem hann á í fyrirtækjum innan fjög-
urra ára. Það verður farið að und-
irbúa með haustinu sölu á bréfum í
þeim félögum sem það á við. Um sölu
á hlutabréfum Hlutafjársjóðs gilda
ákveðnar reglur. Sjóðurinn á til aö
mynda aö bjóða öðrum hluthöfum í
félögunum og starfsmönnum for-
kaupsrétt. Þessi atriði hafa verið í
endurskoðun og á meðan menn eru
að mynda sér skoðun um hvort þeim
verði hreytt á ég ekki von á að það
verði gengið að því að setja hiuta-
bréfin á markaö í þessum tveimur
hraðfrystihúsum.
En ég tel hlutabréf í þessum fyrir-
tækjum markaösvöru. Bæði fyrir-
tækin eru glettflega vel stödd fjár-
hagslega þó þau geti að mínu mati
eignast enn meira með þvi að starfa
saman því það er svo mikfl hagræð-
ing möguleg þama og stutt á milli
staða,“ segir Guðmundur. -J.Mar
„Fyrir það fyrsta er ekki búið að
kynna þessa tillögu fyrir sfjóm Hag-
ræðingarsjóðs.
Ég skil orð sjávarútvegsráðherra
þó á þann veg að hann sé að setja
fram hugmynd en ekki sé um að
ræða beina tillögu. Ég ræð þó meðal
annars af orðum ráðherra að hann
sé að leggja niður upphaflegt hlut-
verks Hagræðingarsjóðs sjávarút-
vegsins sem er aö stuðla að aukinni
hagkvæmni í útgerð og koma til að-
stoöar byggðarlögum sem standa
skyndilega höllum fæti vegna fram-
sals aflaheimilda úr byggðarlaginu.
í slíkum tflvikum getur Hagræðing-
arsjóður komið til skjalanna og veitt
aflaheimfldir til eflingar vinnslu í
viðkomandi byggðarlagi. Ég er ekki
sáttur við að þetta hlutverk sjóðsins
sé lagt niður þar sem full þörf er á
slíku og ekki farið að reyna á það í
lögunum," segir Benedikt Valsson
sem á sæti í stjórn Hagræðingarsjóðs
fyrir hönd sjómannasamtakanna.
„Mín fyrstu viðbrögð eru þau að
ég er ósáttur við að þetta hlutverk
sjóðsins sé lagt niður. Það hefur sýnt
sig í núverandi kerfi að það er alltaf
hætta á að einstök byggðarlög geti
farið illa út úr framsali aflaheimilda
og þar tel ég að Hagræðingarsjóður
muni hafa hlutverki að gegna til að
koma í veg fyrir eða að draga úr
þyngstu höggunum sem kunna að
verða ef byggðarlag missir frá sér
verulegan fiskkvóta."
-J.Mar
Þeir félagarnir Jón L. Árnason og Jóhann Hjartarson gerðu jafntefli er þeir áttust við á Skákþingi íslands í gær.
önnur úrslit voru þau að Héðinn Steingrímsson vann Halldór Grétar Einarsson og Helgi Ólafsson vann Helga
Ás Grétarsson. Jafntefli gerðu Róbert Harðarson og Margeir Pétursson, Karl Þorsteins og Þröstur Þórhallsson
og Sigurður Daði Sigfússon og Snorri Bergsson. Önnur umferðin á Skákþingi verður tefld í dag í Garðaskóla í
Garðabæ og hefst hún klukkan 17. DV-mynd Hanna
Sala á hlutabréf um í
Hraðf rystihúsi Stöðvar-
fjarðar undirbúin
- samningaviöræðmn ekki lokið
Hraðfrystihús Stöðvarí]arðar:
Tvískinnungshátt-
ur á hluthaf af undi
„Það er tvískinnungsháttur í
þessu máli, þrír af fimm hrepps-
nefndarmönnum, sem sitja í stjóm
og varastjórn hraðfrystihússins,
voru að semja um þaö viö stjórn
Hraðfrystihúss Breiðdælinga að
sameina fyrirtækin. Þegar þetta er
borðið undir hluthafafund er þetta
sama fólk að fella samning sem það
hafði þegar gert,“ sagði Stöðfirð-
ingur sem ekki vildi láta nafns síns
getiö í samtah við DV.
Málið var borið undir Bryndísi
Þórhallsdóttur sem sæti á í stjórn
Hraðfrystihússins og í hrepps-
nefndinn:
„Hver segir að ég hafi greitt at-
kvæði á móti samningnum, viö’er-
um fimm sem sitjum í hrepps-
nefndinni en það þarf ekki að tákna
það að ég hafi greitt atkvæði á
móti honum.
- Greiddir þú atkvæði með sam-
eingu húsanna?
„Eg er að segja þér það að meiri-
hiuti hreppsnefndar greiddi at-
kvæði á móti sameiningartfllög-
unni. Annað er ég ekki að segja.
Ég vfl ekki tjá mig meira um þetta
mál,“ sagði Bryndís.
Björn Hafþór Guðmundsson, sem
einnig á sæti í hreppsnefndinni og
er jafnframt stjórnarformaður
Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar,
sagði þegar máhð var borið undir
hann: „Eg vísa þessu á bug. Ég tel
að ég sé búinn að tjá mig nóg um
þetta mál og mun ekki gera það á
þessum vettvangi.“
-J.Mar
Það þarf öf lugan
úreldingarsjóð
- segir Jónas Haraldsson, varaformaðurLÍÚ
„Þaö er sjónarmið út af fyrir sig
að leggja niður Hagræðingarsjóð
sjávarútvegsins. Ég tel þó að það
þurfi að vera til staðar öflugur úreld-
ingarsjóður til að ná því markmiði
að fækka fiskiskipunum. Það þarf að
vera sterkur sjóður sem er hvati til
að menn úreldi óhagkvæm skip og
ætti að ýta undir menn aö sjá sér hag
í því aö gera svo,“ segir Jónas Har-
aldsson, varaformaður Landssam-
bands íslenskra útvegsmaxma.
„Ég trúi því ekki aö það verði strik-
aö yfir úreldingarsjóðinn gamla. Því
tel ég að það sé ekki tímabært að tjá
sigfrekarumþetta.“ -J.Mar