Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1991, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1991, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1991. Menning_____________________________ Ljóðasöngur í Sigurjónssafni sér rætur sem rekja megi til skáldskaparheföar fom- manna og má það áreiðanlega til sanns vegar færa. Efnisskrá þessara tónleika var að v.'.u ekki ættuð frá fornmönnum en öldruð samt. Flutt voru sönglög eftir Hándel, Brahms, Grieg og Dvorak auk íslensku höfundanna Sigfúsar Einarssonar, Áma Thorsteins- Tónlist Finnur Torfi Stefánsson sonar, Sigvalda Kaldalóns og Sigurðar Þórðarsonar. Ekki eitt einasta lag var á efnisskránni þetta kvöld sem unnt er að kenna þeirri öld sem við lifum á og brátt hnígur í aldanna skaut. Ef dæma má af verkefnavali því sem boðið hefur verið upp á á ljóðatónleikum hér í borg undanfarin misseri em söngvarar mestir íhalds- menn allra tónhstarmanna og skeytingarlausastir um að tryggja list sinni verðug ný viðfangsefni á komandi ámm. Með þessu er ekki sagt að skort hafi á ágæti þeirra laga sem þama voru flutt. Sönglögin eftir Hánd- el vom þrungin afslappaðri snilld þess sem kann, get- ur og verður aldrei orðfall. Lög Brahms vora full alvar- legs heiðarleika og með þjóðlegu ívafi sem oft einkenn- ir sönglög þessa ágæta höfundar. Lögin eftir Grieg vora Mtil og sæt, stundum jafnvel um of, svo jaðraði við dægurlagastíl. Það verður þó ekki sagt um „Jeg elsker dig“ sem er ágæt tónsmíð. Lögin sem kennd vora við Dvorak hljómuðu eins og þjóðlagaútsetningar þótt ekki væri þess getið í efnisskrá og höfðu til að bera jarðbundinn ferskleika sem oft prýðir slika tón- hst. Söngkonan unga sýndi þegar best tókst til að hún hefur fahega rödd sem áreiðanlega á eftir að þroskast og dafna með aukinni reynslu. Söngur hennar var svohtið misjafn en ágætir sprettir voru inni á milli. Píanóleikurinn var ef til vih ekki beint slæmur en til- þrifalíthl og stundum klunnalegur. Þegar áheyrendur gengu út voru seghn horfin af sundunum en í staðinn höfðu fjólubláir skýhnoðrar dregist á loft við sjóndeild- arhring í vestri og lýstu fólkinu leiðina heim. Eitt af því sem gerir þaö ánægjulegt að koma í Lista- safn Sigurjóns er staðsetning safnsins inni í Laugar- nesi þar sem viö blasa sund og eyjar með Esjuna í allri sinni dýrð í bakgranni. Á þriðjudagskvöld fóra þar fram ljóðatónleikar í fögru veðri og gátu tónleika- gestir á leið sinni til safnsins fylgst með seglbátum í sighngakeppni skoppa eftir öldum sundanna og glamp- aði á hvít seghn í htadýrð síðdegissólarinnar. Slíkt verður að teljast vænlegur aðdragandi þess að hlýða á fagra tónhst, enda var ekki annað að sjá en fólkið sem fyllti húsið þetta kvöld væri með léttu yfirbragði og móttækilegt fyrir því sem fram fór. Að þessu sinni var það ung söngkona, Sigrún Þor- geirsdóttir, sem stóð fyrir tónhstarflutningi ásamt píanóleikaranum Söru Kohane. Stöðugt koma fram á sjónarsviðið nýir söngvarar hér á landi og virðist ekk- ert lát vera á áhuga íslendinga á hinni göfugu Ust söngsins. Hlýtur þetta að vera enn ein greinin sem við erum heimsmeistarar í að magni til og eftir höfðatölu. Sigrún Þorgeirsdóttir söngkona. Jardarfarir Sveinn Erasmusson frá Háu-Kotey, Meðallandi, sem lést 12. ágúst sl„ verður jarðsunginn frá Langholts- kirkju, Meðallandi, á morgun, laug- ** ardaginn 24. ágúst, kl.15. ívar Helgi Óskarsson, sem lést 17. ágúst sl„ verður jarðsunginn frá Garðakirkju í dag, fóstudag, kl. 15. Svafar Steindórsson, Torfufelh 32, sem lést 15. ágúst sl„ verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju mánu- daginn 26. ágúst kl. 13.30. PIZZA- MEISTARINN SELJABRAUT 54 SÍMI 677040 Opiðfrá kl. 18.00-22.30. Höfum heimsend- ingarþjónustu eft- ir kl. 18.00áföstu- laugar- og sunnu- dögum. Ath. Heimsendingar- þjónustaer ein- göngu veittum Breiðholtssvæði. Undrun lýst á um- mælum vallarstjóra Eftirfarandi athugasemd hefur borist frá Hagsmunasamtökum knattspymukvenna vegna ummæla Jóhannesai’ Óla Garðarssonar, vall- arstjóra Laugardalsvallar, í DV á þriðjudag þar sem hann lýsir ástæð- um þess að KSÍ var meinaður að- gangur að Laugardalsvelh fyrir bik- arúrshtaleik kvenna. „Hagsmunasamtök knattspyrnu- kvenna lýsa undran sinni vegna ákvörðunar vaharstjóra Laugardals- vallar að loka vehinum fyrir úrshta- leik bikarkeppni KSÍ í knattspyrnu. Úrslitaleikur bikarkeppni er jafnan einn af hápunktum hvers keppnis- tímabils í knattspyrnu. Því þykir hæfa að hann fari fram við viröuleg- ustu aðstæður, leikmönnum og íþróttinni th heiðurs. Öruggt má telja að úrshtaleikur bikarkeppni kvenna hefði unnið Laugardalsvelh minna tjón en hver þeirra leikja sem þar munu fara fram á næstunni og hafa farið þar fram í sumar. í ljósi þessa hlýtur ákvörðun vallarstjórans að teljast óþörf og lítt rausnarleg.“ -ih Leiðrétting í Sandkomi 20. ágúst var sagt að Ellert Kristinsson hefði sóst eftir stöðu bæjarstjóra í Stykkishólmi. RAUTT LJOS þf&vi RAUTT LJÓS! Sturla Böðvarsson bæjarstjóri segir að hann hafi ekki sóst sjálfur eltir stöðunni en hins vegar hefði verið þrýst á hann að taka stöðuna að sér. -PÍ Athugasemd í Sandkorni 21. ágúst var greint frá þreifingum Hahdórs í Máh og menn- ingu og Þorgeirs í Odda varðandi útgáfu á nýju félagshyggjublaði í kjölfar væntanlegs gjaldþrots Þjóö- viijans. Þorgeir segir engar slíkar þreifingar hafa átt sér stað enda sé Oddi prentfyrirtæki en ekki útgáfu- fyrirtæki. -pj Myndgátan hér að ofan lýsir orðatiltæki. Lausn gátu nr. 109: Vasaþjófur Fréttir DV Utskýring frá VIS Það hefur ekki verið venja okkar að ræða iðgjalda- eða tjónamál ein- stakra viðskiptamanna í fjölmiðlum, en að gefnu thefni vegna fréttar yðar í Dagblaðinu nýlega óskum við leið- réttingar á misskhningi þeirra aðila sem að fréttinni standa. Það er stefna VÍS að iðgjöld ein- stakra tryggingagreina skuh í aðal- atriðum vera í samræmi við þá áhættu er félagið ber. Þetta þýðir aö sjálfsögðu að þeir hópar tryggingataka sem stöðugt valda tjónum langt umfram iðgjöld verða að greiða hærri iðgjöld en þeir sem valda lægri tjónum. Regluleg endurskoðun tryggingafélaga á gjaldskrám, m.a. með tílhti th þessa, er grandvallaratriði í starfi þeirra. VÍS annast tryggingar á tugum þúsunda húseigna um land allt. Við nýlega skoðun á tryggingum fjölbýlishúsa á höfuðborgarsvæðinu kom í ljós að nokkur hópur sker sig úr að því er tjónaþunga varðar. Slík skoðun byggist að sjálfsögðu á reynslu fleiri ára og nær allt aftur th ársins 1981. Það er því bæði rangt og vhlandi, sem gert var í fyrr- nefndri frétt, að taka eitt tjón úr sam- hengi árið 1991 og ennfremur rangt að ætla það, samkvæmt eðU máls, að tjónum sé þar með lokið í stiga- húsi því sem nefnt er í frétt yðar. Sérstakar heimildir eru fyrir því að segja upp gildandi kjörum vá- tryggingarsamnings allt að 15 dögum eftir uppgjör tjóns. Við útsendingu gagna th fyrrnefnds hóps trygginga- taka var, vegna mistaka félagsins, ekki gætt fuhnustu tilskiUnna forms- atriða hjá 12 aðhum og hefur þeim þegar verið sent bréf meö leiðrétt- ingu og þeir beðnir afsökunar á mis- tökum þessum. Viðkomandi tryggingatakar munu að sjálfsögðu njóta allra þeirra rétt- inda sem ghdur tryggingasamningur þeirra við félagið segir til um á hverj- um tíma. Aðgerð okkar gagnvart þessum 12 aðilum beinist að því að gefa viðkom- andi kost á sériðgjaldi, en sérstökum tjónaþunga þeirra verði ekki velt yfir á iðgjöld hehdarinnar með almennri iðgjaldahækkun. Við hefðum áhuga á umfjöhun um vátryggingarmál í hehd til þess að kynna almenningi starfsemi félags- ins eða almennt um vátryggingar- markaðinn og eram fúsir til þess að veita aha okkar aðstoð í því sam- bandi. Virðingarfyllst, Vátryggingafélag íslands hf. bifreiðin Y-16515? Rannsóknarlögregla ríkisins óskar efth’ upplýsingum um bifreið sem stohð var af bhastæöi við Fannborg í Kópavogi helgina 10.-12. ágúst. Hér er um að ræöa rauða Peugeot-bifreið, árgerð Skráningarnúmer bílsins, 1987. að minnsta kosti þegar honum var stohð, var Y-16515. Þeir sem geta gefiö upplýsingar um hvarf bílsins eða hvar hann er niðurkominn era beðnir að hringja í RLR í síma 44000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.