Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1991, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1991.
15
Hversdagurinn, Rík-
isútvarpið og kirkjan
„Hefur Rikisútvarpið gegnt hlutverki sinu illa?“ spyr greinarhöfundur
meðal annars. - Frá fundi í Útvarpsráði.
John Henry Newman sagði að
ekkert væri erflðara en um leið
eins hughreystandi og róandi og
að leitast við að vinna dagleg störf
af alúð. Enda þótt þessi kirkjunnar
maður og afkastamikli rithöfundur
virtist sí og æ vera að velta fyrir
sér hinum flóknustu spurningum
um Guð og menn, upptekinn af
helgisiðum og kirkjulegum athöfn-
um, kirkjufeðrum og postullegri
vígsluröð, var hversdagurinn hon-
um hið mikla viðfangsefni.
Margir ætla að vinna stór afrek
en gleyma því að fyrst verður að
vinna hversdagsstörfin af alúð og
virðingu fyrir því sem verið er að
gera.
Lexía fyrir okkur öll
Ekki veit ég hvernig öðrum tekst
að gera hversdaginn aö endalausu
viðfangsefni sem ekki verður leyst
skammlaust af hendi nema neytt
sé allrar orku en sæll er sá maður
sem aldrei hefur fórnað hversdeg-
inum fyrir dagdrauma um hin
miklu afrek og glæsta frama sem
hröpuðu á leiðinni um „vonlausu
klifin". Flestum er hversdagurinn
mikil blessun. - Vinnudagurinn er
sem betur fer mörgum eins konar
lausn undan vanda sem þeir eiga
við að stríða.
Ekkert er mannskepnunni svo
mikilvægt sem regla, reglubundið
líf, og reglubundnar athafnir færa
flestum rósemi. Kunnugleg endur-
tekning flytur okkur þau boð að
allt sé í himnalagi. - Agaleysi og
óvissa rýfur samhengið í lífinu.
Fyrir nokkrum dögum sá ég við-
tal í sjónvarpinu við bandaríska
maraþonhlauparann Frank Short-
er. Hann sagði þar að alla tíð hefði
hann leitast við aö hafa aga á námi
KjaUarinn
Haraldur Ólafsson
dósent
sínu og starfl og hann hefði lofaö
sjálfum sér því að fara ekki aö
hlaupa fyrr en hann hefði lokið
ákveðnu viðfangsefni. Hlaup voru
líf hans og yndi en þau máttu ekki
trufla skyldustörfin.
Þrátt fyrir þetta, eða öllu heldur
vegna þessa, tókst honum að kom-
ast í hóp hinna bestu. Sjálfsagi í
leik og starfi bar árangur. Hann
vann hversdagsstörfin af trú-
mennsku við sjálfan sig og gat svo
veitt sér þá ánægju sem frístund-
irnar buðu upp á.
Mér fannst þetta lexía fyrir okkur
öll, allan þennan mikla fjölda sem
er að fást við hitt og annað án þess
að markmiðin séu ætíð nógu skýr.
... af hljóölátum
iðjumönnum
Að undanförnu hefur þeim er
þetta ritar orðið tíðrætt um menn-
ingu, vitandi vits að ekkert er auö-
veldara en að skrifa og tala um
menningu en hins vegar harla erf-
itt að vera skapandi á menningar-
sviði. Fáum er gefið að skapa
merkileg verk í listum og bók-
menntum. Á hitt ber þó að líta að
öll iðja á því sviði er mikilvæg,
hvort heldur það er að móta eða
mála mynd, semja tónverk eða
skrifa og yrkja. Án þriðja flokks
listamanna væru engir fyrsta
flokks listamenn til. Kannski er
heldur engin menning til án
ómenningar.
Þaö er athyglisvert að meðan
jafnt ráðherrar sem sjálfskipaðir
landavarnamenn íslenskrar menn-
ingar hrópa hátt um „vanda" ís-
lenskrar menningar eða vanda
,.bókarinnar“ (það er mér að vísu
með öllu óskiljanlegt við hvaða
„vanda" mennirnir eiga) berst okk-
ur í hendur hvert stórvirkið á fæt-
ur öðru unnið af hljóðlátum iðju-
mönnum sem bera þá virðingu fyr-
ir verkum sínum að þeir hafa því
færri orð um þau sem þau éru
fremri flestu því sem auglýsinga-
fólk „markaössetur" af „snilldar-
verkum“.
Nægir að nefna þýðingar Helga
Hálfdanarsonar, Þorgeirs Þor-
geirssonar, Daníels Daníelssonar,
Sverris Hólmarssonar, Ingibjargar
Haraldsdóttur, Hjartar Pálssonar,
Guðbergs Bergssonar, og eru þó
aðeins fáein nöfn nefnd. Þetta fólk
hefur sumt hvað ekki látið þar við
sitja að færa okkur snilldarverk
heimsbókmennta í íslenskum bún-
ingi heldur einnig frumsamið
merkileg verk. Verið er að gefa út
stórverk eins og sögu íslands, ís-
lenska þjóðmenningu, Iðnsögu Ís-
lands.
Ekki eru mörg ár síðan hin mikla
Ensk-íslenska orðabók kom út,
Orðsifjabók Ásgeirs Bi. Magnús-
sonar og stööugt er unnið að hinni
stóru íslensku oröabók.
Látið Ríkisútvarpið í friði
Þegar þessi orð eru sett á blað
flytur útvarpið þá frétt að mennta-
málaráðherra sé „skotinn í þeirri
hugmynd“ að gera Ríkisútvarpið
að almenningshlutafélagi. Þetta
þokukennda hugtak „almennings-
hlutafélag" hefur nú um hríð verið
nokkurs konar rórill í ræðum
sumra stjórnmálamanna. Það er
eins og menn jafnvel trúi því að „ai-
menningshlutafélög“ komi öllu á
réttan kjöl.
Ríkisútvarpið hefur nú verið rek-
ið af ríkinu í nær sextíu og eitt ár.
Tekjur sínar hefur það af afnota-
gjöldum og auglýsingum. Hvaða
nauður rekur til aö breyta þessu
formi? Hefur útvarpið gegnt hlut-
verki sínu illa? Hefur stjórnun þess
verið svo ábótavant að taka þurfi
upp einhvers konar gervihlutafé-
lagsform til aö færa eitt og annað
í lag? Trúa menn því virkilega að
„einkaframtakið" geti rekið betra
útvarp en gert hefur veriö um rúm-
lega sex áratuga skeið? Hefur
einkarekstur útvarps- og sjón-
varpsstöðva verið með þeim hætti
að taka beri upp sama form í
rekstri Ríkisútvarpsins?
Ríkisútvarpið er eign íslensku
þjóðarinnar, ekki ríkissjóðs og það-
an af síður menntamálaráðuneyt-
isins.
Hvaða hugmynd næst? Hví ekki
að gera þjóðkirkjuna að almenn-
ingshlutafélagi ásamt með Ríkissp-
ítulunum og Vegagerðinni?
Látið Ríkisútvarpiö í friði og látiö
menn vinna hversdagsstörf sín í
friöi án afskipta ríkisvalds og
reglugerða.
Haraldur Ólafsson
„Þetta þokukennda hugtak „almenn-
ingshlutafélag“ hefur nú um hríð verið
nokkurs konar rórill í ræðum sumra
stj órnmálamanna. “
Dansinn við
Evrópubandalagið
„ ... ánægjulegt væri ef innan raða stjórnarflokkanna fyndust einhverjir
sem tækju fullveldi þjóðar sinnar fram yfir flokkspólitíska stefnu.“
Undarlegt er hvað þeir sem mest
hafa kvartað undan miðstýringu
íslenska ríkisins sækjast eftir að
komast undir miðstýringu erlends
valds. - Ekki hefur heyrst annað
en utanríkisráðherra sé sáttur við
að borga í þróunarsjóð EB og greiða
niður landbúnaðarvörur í fátækari
löndum eða héruðum Efncihags-
bandalagsins. Fróðlegt væri að fá
innsýn í hvað allt samningabrölt-
ið við EB hefur kostað þjóðarbú-
ið.
Það er engu hkara en þjóðsagan
um hina íslensku Bakkabræður sé
sífellt að sanna raunveruleika sinn
í íslensku stjórnarfari. En sá er
munur með þá gömlu Bakkabræð-
ur aö þeir höíðu aldrei vald eða
getu tfi að láta af hendi fullveldi
þjóðarinnar fyrir afglapahátt sinn
og verður saga þeirra því aðeins
skemmtileg skopsaga um skrítna
karla en það er því miður annað
en sagt verður um þessi nýju fyrir-
bæri ef svo heldur fram sem horfir.
- En kannski er þó von um að upp
úr þessum skollaleik slitni fyrir
fullt og allt fyrst ekki tókst að semja
fyrir mánaðamót júlí og ágúst. Oft
tilkynnti utanríkisráðherra að ef
ekki næðist samkomulag fyrir
þann tíma væri það þar með endan-
lega úr sögunni.
En eins og sannaðist í frægri Við-
eyjarför og heiðursmannasam-
komulagi þurfa orð slíkra manna
ekki að standa. - Þannig hefur ut-
anríkisráöherra líka þegar tilkynnt
að aftur hefjist samningaviðræður
í september og undir það tekur
Þorsteinn Pálsson.
KjaHarinn
Aðalheiður Jónsdóttir
verslunarmaður
Nú er nóg komið
Þó að nú virðist margar bhkur á
lofti í íslenskum stjómmálum og
aldrei að vita nema vaðið sé áfram
í villu og vímu vil ég þó vona að
ísland sé endanlega úr myndinni
um aðild að EES.
Eftir að slitnaði upp úr viðræðum
EB og EFTA lýstu alUr formenn
stjórnarandstöðuflokkanna því yf-
ir að þeir teldu að nú væri viðræð-
um íslendinga um aðild að evr-
ópsku efnahagssvæði lokið og snúa
bæri sér að öðrum verkefnum.
Vonandi standa þessir flokkar
saman á þingi gegn aðildinni að
EES og ánægjulegt væri ef innan
raða stjórnarflokkanna fyndust
einhverjir sem tækju fullveldi þjóð-
ar sinnar fram yfir flokkspólitíska
stefnu.
Utanríkisráðherra hefur oft sagt
að það sem hann er að semja um
sé ekki fullveldisafsal þótt hann
hafi lagt fram á Alþingi 11.000 þús..
blaðsíðna kladda 1.400 lagabálka
sem æðri eiga að verða íslenskum
lögum og ráöa að miklu leyti
hvernig þjóðfélag okkar verður. -
Ef ráðherrann heldur að þetta sé
sannleikanum samkvæmt veit
hann greinilega ekki hvað hann er
að semja um og það er alvarlegt
mál. - Það er ótrúleg forherðing að
halda því fram að það sé ekkert
afsal á fullveldi að verða að lúta
erlendum lögum hversu alvarlegar
afleiðingar sem það hefði fyrir
þjóöfélagið.
Er það þetta sem koma skal?
Utanríkisráðherra gat þess í sjón-
varpsþætti fyrir nokkru að samtök
launafólks tækju samningnum
mjög vel. Þá hafa þau að sjálfsögðu
sætt sig viö þaö ástand sem hér
gæti skapast við frjálsan flutning á
vinnuafli milh aðildarríkja EES og
fá í tilefni af því ef til vill að kynn-
ast af eigin raun atvinnuleysi sælu-
ríkjanna í Efnahagsbandalaginu.
Kannski taka samtök launafólks
því líka mjög vel að íslenskt land
og auðlindir komist í eigu erlendra
fjármagnsfursta. - Ef svo fer þarf
Jón Baldvin væntanlega ekki leng-
ur að spyrja „Hverjir eiga ísland?“
Kannski verður hann þá líka orð-
inn „kommissar" í Brussel eða
æðsti valdakóngur í Litháen!!
Fullveldið lifi!
Er ekki tímabært að alþingis-
menn sem vilja binda enda á þessar
viðræður kynni ítarlega hvaða
fórnir íslendingar þurfa aö færa til
þess að fá að komast inn fyrir toll-
múrana? - Fram að þessu hefur
áróður EES-dýrkenda flogið eins
og eldibrandur um þjóðfélagið og
mengað andrúmsloftið óhugnan-
legum fnyk.
Hins vegar hafa margir þekktir
menn, sem trúir eru fullveldinu,
varað þjóðina við því sem þessir
samningar hafa að bjóða. Því miður
virðast orð þeirra ekki hafa náð
eins vel til fólksins og blekkingaá-
róðurinn.
En jafnvel þótt útlitið sé skugga-
legt nú á sólbjörtum sumardögum,
þegar áhrifa- og valdamenn í þjóð-
félaginu heyrast tala um að full-
veldið sé tímaskekkja, vil ég halda
í þá von að ekki takist að vinna
óbætanlegt skemmdarverk þótt svo
fari að Alþingi samþykki samning-
inn. - Ég treysti því fullkomlega
að forseti íslands samþykki ekki
valdaafsal, heldur kreíjist þjóðar-
atkvæðagreiðslu. - Þaö traust
byggi ég sérstaklega á því að Vig-
dís Finnbogadóttir muni gegna for-
setaembættinu áfram næsta kjör-
tímabil. - Það skiptir nefnilega
miklu máh að forsetinn sé sannur
íslendingur. Það ættum viö aö sjá
nú.
Aðalheiður Jónsdóttir
„Ég treysti þvi fullkomlega að forseti
Islands samþykki ekki valdaafsal, held-
ur kreíjist þjóðaratkvæðagreiðslu. Það
traust byggi ég sérstaklega á því að
Vigdís Finnbogadóttir muni gegna for-
setaembættinu áfram næsta kjörtíma-
bil.“