Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1991, Síða 17
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚS'I' 1991.
25,-
•bikamum á LaugardalsveUinum á sunnudag:
neistari í fyrsta
Valur í 7. sinn?
og allt liöiö. Þaö er mikill spenningur
í mannskapnum og þaö er kannski
ekki skrítið því enginn okkar hefur
áður leikið úrslitaleik í bikarkeppn-
inni. Við lékum að visu úrslitaleik í
deildinni fyrir tveimur árum og töp-
uðum illa á reynsluleysi og spenn-
ingi. Ég held að viö höfum lært af
þeim leik en það er ljóst að Valsmenn
eru reyndari í svona leik og þeir
þekkja andrúmsloftið. Við förum til
að njóta þess að spila og hafa gaman
af þessu og ætlum auðvitað að sigra,“
sagði ólafur Kristjánsson, fyrirliði
FH-inga, í samtali við DV.
„Það er góður andi í liðinu og menn
eru samstilltir á að gera okkar allra
besta. Liðið fer saman í dag á Hótel
Örk og mun dvelja þar fram að leikn-
um. Þetta veröur líklega fyrsti og síð-
asti úrslitaleikur nokkurra leik-
manna hðsins sem komnir eru á fer-
tugsaldurinn og standa á tímamót-
um. Það þjappar mönnum líklega
enn meira saman. Það eru allir heilir
og tilbúnir í slaginn nema að það er
enn spurning um Guðmund Val sem
hefur verið meiddur. Hallsteinn Arn-
arson kemur frá Bandaríkjunum í
dag og fer með okkur austur í Hvera-
gerði.
Það er ekki spurning að viö ætlum
okkur að fá bikarinn í Fjörðinn í
fyrsta sinn. Við erum búnir að leika
mjög erfiða leiki á leiðinni í úrslitin,
bæöi í Garði og á Ólafsfiröi, og nú
er bara að klára dæmið. Ég hvet
Hafnfirðinga til að fjölmenna og
styðja vel við bakið á okkur. Viö
höfum haft góðan stuðning undanf-
arið og ég vona að við fáum hann
áfram,“ sagði Ólafur ennfremur.
Ólafur H. Kristjánsson, fyrirliði FH, togast á um mjólkurbikarinn. Það kemur
ra að hampa honum í leikslok á sunnudaginn.
DV-mynd S
Þori að lofa
markaleik
„Þetta verður örugglega mjög erfiður
leikur, enda eru þeir meö mjög gott
liö og góða leikmenn. Ég á von á
mjög skemmtilegum leik og þori að
lofa því að þetta verður markaleikur.
Ég reikna ekki með að það þurfi tvo
leiki til að fá fram úrsht og ég mæli
með að fólk missi ekki af leiknum á
sunnudag. Undirbúningurinn er
svipaður og í fyrra nema nú fer liðið
í Bláa Lónið í fyrramáhð og dvelur
þar fram að leik. Mannskapurinn er
við góða heiisu og menn eru til í slag-
inn,“ sagði Ingi Björn Aibertsson,
þjálfari Valsmanna, aðspurður um
leikinn á blaðamannafundi í gærdag.
Ingi Björn var sem kunnugt er leik-
maður og þjálfari FH-inga um ára-
bh.
• Heiðursgestur KSÍ á leiknum
verður Davið Oddsson forsætisráð-
herra. Markús Öm Antonsson borg-
arstjóri verður heiðursgestur Vais
og Guðmundur Árni Stefánsson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar, verður
heiðursgestur FH á leiknum.
-RR
óttum sem hefst í nótt:
idurnir í Tokyo?
verða undanrásir í 10 km hlaupi
kvenna þar sem Martha Emstdóttir
er skráð th keppni. Miðvikudaginn
28. ágúst er ekkert keppt.
Aðfaranótt fimmtudagsins 29. ág-
úst er undankeppni í hástökki
kvenna þar sem Þórdís Gísladóttir
verður með. Röðin er svo komin að
Pétri Guðmundssyni í imdankeppni
kúluvarpsins kl. 1.30 á föstudagsnótt
og kl. 10.05 um morguninn verða
• Sigurður Matthiasson, UMSE, er
þriðji islenski spjótkastarinn sem
keppir á HM. Það hefur aldrei gerst
áður á heimsmeistaramóti að þrír
íslenskir keppendur hafi náð að
vinna sér rétt til slíks en til þess
þarf stórafrek. Árangur íslensku
spjótkastaranna í sumar hefur líka
vakið mikla athygli á stórmótum
sumarsins. Besti árangur Sigurðar
er 80,50 metrar.
úrsht í 10 km hiaupi kvenna.
Næstsíðasta dag mótsins, laugar-
daginn 31. ágúst, gætu þrír íslending-
ar tekið þátt í keppni. íris Grönfeldt
verður með í undankeppni spjót-
kastsins sem hefst kl. 1 um nóttina,
fyrri hópur, og sá síðari ki. 2.20. Þá
er vel trúlegt að Pétur Guðmundsson
komist í úrshtakeppnina í kúluvarp-
inu sem hefst kl. 9.30 á laugardags-
morguninn og ef Þórdísi tekst að
• Vésteinn Hafsteinsson, HSK, tek-
ur þátt í kringlukastskeppninni i
Tokyo en hann hefur verið besti
kringlukastari okkar siðan Óskar
Jakobsson hætti keppni fyrir rúmum
áratug. Vésteini hefur gengið erfið-
lega á stórmótum eins og spjótköst-
urum okkar en á EM í Split komst
hann þó í úrslit og hafnaði í 12.
sæti. íslandsmet hans frá því 1989
er 67,64 metrar.
komast áfram hefjast úrsht í há-
stökki kvenna kl. 7.30 sama morgun.
Síðasta keppnisdag HM, 1. sept-
ember, eru eingöngu úrslitagreinar
og eini íslendingurinn sem á mögu-
leika á að koma þar fram er Iris
Grönfeldt, ef hún kemst áfram.
Ekki er að efa að mörg mikh afrek
verða unnin þessa viku í Tokyo og
íslensku keppendunum er óskað
velfamaðar. örn Eiðsson
• Þórdís Gisladóttir, HSK, keppir í
hástökki á HM í Tokyo. Um tíma leit
út fyrir að hún gæti ekki verið með
vegna meiðsla en úr því rættist sem
betur fer. Þórdís hefur verið með i
keppni töluvert á annan áratug og
hefur mikla reynslu. Hún hefur unnið
marga góða sigra á mótum, bæði
hér heima og erlendis. íslandsmet
hennar er 1,88 metrar, sett í fyrra.
íþróttir
Magnús bætti við
íslandsmeti í gær
- á Evrópumeistaramótinu í sundi 1 Aþenu
Sjötta íslandsmetið var sett á Evr-
ópumeistaramótinu í sundi í Aþenu í
gær. Magnús Már Óiafsson setti þá
Islandsmet í 100 metra skriðsundi,
synti á 51,62 sekúndum en gamla metið
var 51,01. Magnús komst í B-úrsht, sem
fóru fram sídegis í gær, og synti þá
vegalengdina á 51,63 og varð í 14. sæti
í greininni.
Alexander Popov frá Sovétríkjunum
setti Evrópumet í úrshtasundinu, 49,18
sekúndur. Þá setti Krisztina Egerszegi
frá Ungverjalandi heimsmet i 100
metra baksundi kvenna, synti á 1:00,31
mín.
Bróðir Magnúsar, Amar Freyr, synti
einnig 100 metra skriðsund í undan-
rásum, synti á 53,57 sekúndum og bætti
sinn árangur í þessari grein um eina
sekúndu.
Ævar Öm Jónsson synti 200 metra
baksund á 2:12,30 mínútum og var
hálfri sekúndu frá sínu besta. Ingi-
björg Arnardóttir komst í B-úrslit með
því að synda 400 metra skriösund á
4:29,29 mínútum og var mjög nærri þvi
að setja nýtt íslandsmet.
Árangrinum verður
að fylgja eftir
Árangur íslensku keppendanna á Evr-
ópumótinu til þessa er mjög góður tii
þessa og sýnir svo ekki verður um
vihst aö íslenskt sundfólk er í mikilli
framför. Þessum árangri verður að
fylgja eftir með því að koma upp sóma-
samlegri aðstöðu fyrir sundfólkið, að
byggð verði hið fyrsta 50 metra inni-
laug.
-JKS/VS
Þórður stóð sig f rá-
bærlega f Skotlandi
- boðinn skólastyrkur af Doug Saunders
Sautján ára kylfmgur úr Golf-
klúbbnum Leyni á Akranesi, Þórður
Ólafsson, stóð sig frábærlega vel á hinu
þekkta Doug Saunders golfmóti ungi-
inga sem fram fór á dögunum í Skot-
landi. Frammistaða Þóröar vakti
mikla athygli á mótinu og Doug Saund-
ers sjálfur heihaðist svo af framgöngu
Þórðar að hann bauð honum skóla-
styrk í Bandaríkjunum þegar honum
hentar.
Þórður lék í Evrópuriðli sem í voru
þátttakendur frá 18 þjóðum. Hann lék
holumar 72 á 290 höggum, 2 höggum
yfir pari og hafnaði í fjórða sæti.
Franskur sigurvegari lék á 281 höggi
og í 2.-3. \sæti urðu jafnir keppendur
frá Svíþjóð og Englandi á 289 höggum.
Það munaði aðeins tveimur höggum
að Þórður kæmist í úrsht mótsins
ásamt keppendum frá öðmm heimsálf-
um.
Þetta er langbesti árangur íslensks
kylfings á umræddu móti frá því að
Ulfar Jónsson hafnaði í 2. sæti fyrir
nokkrum árum og fékk skólastyrk í
Bandaríkjunum fyrir vikið. Þórður er
gífurlegt efni og árangur hans undir-
strikar þær miklu framfarir sem orðið
hafa í golfi unglinga upp á síðkastið.
Þórður hóf sumarið með 5 í forgjöf en
er nú kominn undir 2 í forgjöf og er í
hópi fjögurra forgjafarlægstu kylfinga
hérlendis í dag að sögn Hannesar Þor-
steinssonar hjá Golfsambandi íslands.
-SK
Aðsókn hef ur aukist
Islandsmeistarar Fram hafa til þessa
dregið að sér flesta áhorfendur á
heimaleikjum liðanna sem leika í 1.
dehd. Þegar skammt er th loka íslands-
mótsins er ljóst að um nokkra aukn-
ingu er um að ræða í aðsókn á flestum
leikjum liðanna.
Fram hefur leikið 7 heimaleiki og
hafa samtals 10.111 áhorfendur komið
á leiki hðsins. Þetta gerir 1.444 áhorf-
endur að meðaltah á leik. KR kemur í
öðru sæti hvað aðsókn áhorfenda
áhrærir. Á sjö heimaleiki hðsins hafa
samtals 8.307 áhorfendur lagt leið sína
á KR-völhnn sem gerir aö meðaltah
1.187 áhorfendur á leik. Þessi tvö félög
skera sig nokkuð úr í þessum efnum.
FH hefur th þessa þriðju bestu að-
sóknina á heimaleikjum. í 8 leikjum
6.563 áhorfendur og um 820 að meðal-
tali á leik. Breiðablik er í íjórða sæti
með samtals 5.754 áhorfendur og 822
að meðaltali. ÍBV í fimmta sæti með
samtals 5.560, KA 3.834 í sjötta sæti,
Víðir samtals 2.805 áhorfendur í sjö-
unda sætinu og Stjarnan samtals 2.491
áhorfenda í áttunda sætinu.
Valur og Víkingur hafa trassað að
senda inn aðsóknartölur inn á skrif-
stofu KSÍ. í gær höfðu félögin aðeins
sent inn aðsóknartölur um tvo heima-
leiki þannig að tölur frá þeim eru ekki
marktækar.
• Valur hafði sent inn tölur um tvo
heimaleiki, samtals 2.431 áhorfandi og
Víkingur 1.800 áhorfendur í tveimur
leikjum einnig.
-JKS
íslandsmótið - 2. deild
Selfoss-Þór Ak.
í kvöld kl. 19.
Allir á völlinn!
Knattspyrnudeild