Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1991, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
I
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 23. AGÚST 1991.
Ætla að sýna
dvergakast
- efdvergurfinnst
„Ein hugmyndin, sem kom upp til
- atað vekja athygli á mótinu, var að .
sýna dvergakast. Það var haft sam-
band við erlenda umboðsaðila en
víða erlendis er keppt í dvergakasti.
Við áttum von á dverg frá Miami
sem gerir út á þetta en nú hefur það
brugðist. Það er ennþá verið að leita
að dvergi en þetta virðist hér um bil
dottiö upp fyrir þar sem enginn
frnnst," sagði Hjalti Úrsus Árnason.
Kraftajötnar Islands fyrirhuga að
sýna dvergakast á keppninni um
sterkasta mann íslands sem haldin
verður í Hljómskálagarðinum um
næstu mánaöamót.
„Dvergakast fer þannig fram að
handfóng eru sett á dverg og hann
fær hjálm á höfuðið. Síðan er honum
-j^kastað á svampdýnu og vegalengdin
mæld,“ sagði Hjalti.
„Ég hef nú alltaf verið frekar
hræddur við þessa hugmynd um
dvergakastkeppni. Ég vil frekar
koma með góða ímynd, að krakkam-
ir fari á mótin og sjái heilbrigða og
góða keppni. Hitt er annað mál að
fólk verður að ráða því hvað það vill
gera og sjá. Ef þetta er vinsælt og
dvergurinn vill þetta þá er varla
hægt að banna svona lagað,“ sagði
Hjalti.
Að sögn Páls Skúlasonar heim-
"^pekiprófessors er það engin trygg-
ing fyrir því að dvergakastið sé sið-
ferðilega rétt að dvergurinn sjálfur
fallist á að taka þátt í því.
„Það orkar tvímælis að rugla svona
saman íþróttaleik og sirkussýningu.
Mér finnst það vafasamt og ekki sam-
ræmast anda íþróttanna," sagði Páll.
-BÓl
Annríki 1 Keflavík:
Ölvaður Finni
til vandræða
Lögreglan í Keflavík hafið í ýmsu
að snúast í nótt vegna ölvunar sem
var talsvert áberandi í bænum eftir
'•kráaráp. Lögreglan þurfti síðan að
hafa afskipti af fólki sem var til vand-
ræða. Flestir fengust til að fara til
síns heima að lokinni skemmtun en
einn mann varð aö flytja í fanga-
geymslur. Var það óskiljanlegur
Finni sem talaði aðeins móðurmáliö
og það með þvoglukenndum hætti.
Var hann til nokkurra vandræða og
gisti því fangageymslur í nótt. -ÓTT
Þjóðverji beið bana
Þjóðveiji hrapaði til bana fram af
syllu í svokölluðu Hengifossgili á
Fljótsdalshéraði í fyrradag. Fallið var
um flórir metrar. Talið er að Þjóðverj-
anum, sem var 19 ára, hafi skrikað fót-
__ur á syllunni eftir að hafa farið eftir
annarri uppgönguleið í gilinu en sam-
ferðamenn hans og landar gerðu. -ÓTT
O
“V
LOKI
Fær þessi rútubílstjóri ekki
bjartsýnisverðlaun
Bröstes?
Ýtti rútunni af stðð
■ JL ■ Æ M ■
Gn vviissii Vmm nenni
Litlu munaði að illa færi þegar
mannlaus rútubifreið rann stjóm-
laust í átt aö tjaldsvæði Skútu-
staöahrepps í Reykjahlíð á miö-
vikudagskvöld. Rútan stöðvaðist
skammt frá tjöldum á svæðinu.
Bílstjóri rútunnar var að dytta
að bílnum þegar atvikiö varð.
Startarinn var brunninn yfir og
hugðist bílstjórinn láta rútuna
renna af stað til að koma henni í
gang. Rútan var uppi í brekku fyrir
ofan fjaldsvæöið. Bilstjórinn tók
farartækiö úr gír og bremsu og fór
síöan út til að ýta því sjálfur af stað.
Ætlaði hann síðan að hoppa inn
aftur og fara undir stýri þegar rút-'
an mjakaðist af stað niöur brekk-
una
Bílstjóranum tókst að ýta hinu
stóra farartæki af stað og hljóp svo
að opnum dyrunum. En þá rak
hann tærnar i, hrasaði og féll. Sá
hann þá á eftir rútunni renna níður
brekkuna sér til mikillar skelfing-
ar. Rútan stefndi stjórnlaus á tjöld
á svæðinu. Þegar hún átti skammt
eftir ófariðþangað varð barð á veg-
inum. Ökutækið stöðvaðist við það
og sluppu menn þar með skrekk-
inn.
-ÓTT
Ungur maöur, Þórarinn Þórarinsson, slapp á ótrúlegan hátt við alvarleg meiðsl er hann féll um tólf metra niður
um lyftuop i Þjóðarbókhlöðunni siðdegis I gær. Þórarinn var að toga rafmagnstöflu upp til sin þegar hann rann til
á plasti og hrapaði niður. Honum tókst að grípa i kapalinn á leiðinni og varð það til þess að hann kom ekki meö
höfuöið niður á undan og dró það auk þess úr fallinu. Þórarinn var á gæsludeild Borgarspítalans í morgun. Hann
marðist og hlaut einnig önnur meiðsl sem þó eru talin minniháttar. Þórarinn fær bráðlega að fara heim. -ÓTT
Veðriðámorgun:
HlýjastáNorð-
austur-og
Austurlandi
Framan af degi verður hæg suö-
vesíanátt á landinu. Skýjað verð-
ur suðvestanlands en léttskýjað í
öðrum landshlutum. Undir kvöld
fer að rigna á Suðvesturlandi með
vaxandi sunnan- og suðaustanátt.
Hiti er áætlaður á bilinu 10-17
stig og verður hlýjast á Norðaust-
ur- og Austurlandi. \
ísland viðurkennir
fullveldi Eistlands
og Lettlands
ísland hefur viðurkennt sjálfstæði
og fullveldi Eistlands og Lettlands.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra átti í gær fund með utanrík-
isráðherra Lettlands, Janis
Jurkans, í íslenska sendiráðinu í
Kaupmannahöfn. Að þeim fundi
loknum átti utanríkisráðherra síma-
viðtöl við Lennart Meri, utanríkis-
ráðherra Eistlands.
Tilefnið var yfirlýsingar þjóöþinga
um endurreisn sjálfstæðis og full-
veldis landanna.
Jafnframt staðfesti utanríkisráð-
herra aö ríkisstjórn íslands væri
reiðubúin til að taka upp viðræður
við ríkisstjórnir landanna um stjórn-
málasamband milli ríkjanna.
Reuterfréttastofan vakti sérstaka
athygli á viðurkenningu íslands á
Eistlandi og Lettlandi í gær og benti
jafnframt á að íslendingar heföu
fyrstir þjóða viðurkennt sjálfstæði
Letta. -J.Mar
Fulltrúi Eistlandsá
fundiverslunairáða
Ársfundur stjómenda verslunar-
ráða á Norðurlöndum stendur nú
yfir. Fundurinn er haldinn á Sauðár-
króki og hófst hann í morgun.
Fundinn sitja 20 fulltrúar verslun-
arráða í Finniandi, Noregi og Syí-
þjóð, auk fulltrúa Verslunarráðs ís-
lands. Þá hafði fulltrúum verslunar-
ráða Eistlands, Lettlands og Litháens
verið boðið en vegna nýafstaðinna
atburða sá aöeins fulltrúi Eistlands
sérfærtaðkoma. -JSS
ÞJÓFAVARNIR
FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI
Vönduð og viðurkennd þjónusta