Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Side 7
MÁNUÐAGUR 9. SEPTEMBER 1991.
7
3v_____________________________Viðskipti
Sverrir Kristinsson, fasteignasali 1 Reykjavík:
Fjörkippur undanfarið
Fjölbýlishús í Reykjavík. Fasteignaverð
130
120
110
100
90
80
Fasteignamarkaðurinn er góður fyrir kaupendur núna og hægt að komast
að góðum skilmálum, segir Sverrir Kristinsson, fasteignasali í Reykjavík.
miðað við lanskjaravisitölu
Janúar 1984 = 100. Ársfjórðungstölur
: jk li!i. '
§ |
k : :■■: :;:V , |pil!!! llilll!
llllipl !!!!!!! Illllli;
•
1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991
Sverrir Kristinsson, hjá fasteigna-
sölunni Eignamiðlun í Reykjavík,
segir að augljós fjörkippur hafi
hlaupið í fasteignamarkaðinn í byrj-
un september eftir fremur rólega
sumarmánuði.
Hann ségir ennfremur að markað-
urinn sé um þessar mundir hagstæð-
ur fyrir kaupendur íbúða. íbúðaverð
hefur hækkað mjög lítið á árinu og
varla haldið í við verðbólguna. Raun-
gengið er því svipað og í byrjun árs-
ins.
„Hjá okkur hefur verið mjög líflegt
frá byrjun september. Fyrirspurnir
hafa aukist sem og sala. Þetta kemur
einnig fram í fleiri auglýstum eign-
um,“ segir Sverrir.
Hjá Fasteignamati ríkisins fengust
þær upplýsingar að salan virtist hafa
verið fremur róleg fyrri hluta ársins.
Gögn varðandi viðskipti síðustu
mánuði hafa enn ekki borist.
Raungengi íbúðaverðs í fjölbýlis-
húsum í Reykjavík hefur breyst mjög
lítiö frá miðju ári 1989 þegar efna-
hagslífið var í kreppu.
Sverrir Kristinsson fasteignasali
telur að fasteignamarkaðurinn sé
hagstæður fyrir kaupendur fasteigna
og þeir eigi möguleika á að komast
að góðum skilmálum.
„Þegar íbúðir eru í smíðum eru
seljendur tilbúnir til að taka á sig
hluta affalla af húsbréfum. Og í at-
vinnuhúsnæði bjóðast góð lán til
langs tíma.“
Sverrir segir að sér virðist sem
nokkuö sé að draga úr offramboði
síðustu ára á atvinnuhúsnæði þar
sem minna hafi verið byggt af því.
„Það er raunar svo komið að okkur
vantar núna ýmsar gerðir af skrif-
stofuhúsnæði.“
Það er fyrst og fremst í sölu á ný-
byggingum sem seljendur taka á sig
hluta affalla. Yfirleitt er hámarkið
um 30 prósent af verði íbúðanna.
Dæmi: íbúð er seld á 10 milljónir.
Greiddar eru 5 milljónir út og afgang-
urinn með húsbréfum. Af þessum 5
milljónum taka sumir seljendur á sig
afföll upp að 3 milljónum eða 30 pró-
sent af 10 milljóna söluverði.
Algengt verð á 2 herbergja íbúðum
er á bihnu 4,5 til 5,5 milljónir króna
eftir því hvar þær eru. Þær allra
dýrustu, nýjar lúxusíbúðir, fara yfir
6 milljónir.
Dýrasta hverfið í bænum er nýi
miðbærinn, kringum Kringluhverf-
ið. Vesturbærinn kemur þar á eftir.
Algengt verð á 3 herbergja íbúðum
er núna á bilinu 6,5 til 7 milljónir.
Og algengt verö á 4 herbergja íbúðum
er á bilinu 6,5 til 8,5 milljónir króna.
Munurinn felst í staðsetningu, stærð,
ásigkomulagi og hvort bílskúr fylgir
með.
Algengt verð á raðhúsum er á bil-
inu frá 11 til 15 milljónir króna. Ódýr-
ustu raðhúsin eru frá 8,5 milljónum.
Þau eru þá komin til ára sinna. Ný
raðhús fara upp í 14 til 15 milljónir.
Algengasta verð á glæsilegum ein-
býlishúsum er frá 15 til 20 milljónir
króna. Þau allra glæsilegustu fara
uppí25milljónir. -JGH
Koparkranar fyrir vatn, gufu og
olíu, ávallt fyrirliggjandi.
Heildsala — smásala.
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.
P!eglei*s
Margrét Hálfdánardóttir
skrifstofustjóri
Grímur Grímsson
framkvæmdarstjóri
MAL
Velkominn í Enskuskólann
Verið velkomin að líta inn í Enskuskólann í
spjall og kaffi áður en námskeiðin hefjast, 3.
til 10. september.
Við bjóðum upp á 10 námsstig í ensku.
Við metum kunnáttu þína og í framhaldi af
því ráðleggjum við þér hvaða námskeið hentar
þér og þínum óskum best.
Komdu í heimsókn eða hringdu - því fylgja
engar skuldbindingar.
INNRITUN STENDUR YFIR
HRM í SÍMA 25330 EÐA 25900 00 FAÐU FREKARIUPPLYSINGAR
KENNSLA HEFST 11. SEPTEMBER
Fjrrir fullorðna:
Almenn enska (7 vikur)
(1 - 10 stig)
Enska,r bókmenntir (5 vikur)
Rituð enska (5 vikur)
Viðskiptaenska (5 vikur)
Bretland: Saga, menning og
ferðalög (5 vikur)
TOEFL-G MAT-GRE Námskeið
Undirbúningsnámskeið fyrir
próf sem krafist er við flesta
skóla í enskumælandi löndum
(5 vikur)
Fyrir böm:
Leikskóli fyrir 3-5 ára (12 vikur)
Forskóli fyrir 6-8ára (12 vikur)
Byijendanámskeið fyrir 8-12 ára (12 vikur)
Unglinganámskeið fyrir 13-15 ára (12 vikur)
Önnur námskeið:
Laugardagsnámskeið (12 vikur)
Hraðnámskeið (1 vika)
Kráarhópar (7 vikur)
Umræðuhópar (7 vikur)
Einkatímar
Hægt er að fá einkatíma eftir vali
ÞÚ FINNUR ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJÁ OKKUR - VELKOMIN í HÓPINN...
skólinn
TÚNGOTU 5 101 REYKJAVIK