Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 9. SÉPTÉMBER 1991. 31 LífsstOl Reykjavík og nágrannabyggðarlög: Hækka leikskólagjöld Leikskólagjöld hækkuðu i Reykjavik og flestum nágrannabyggðarlögum um 9-10% um síðustu mánaðamót. Leikskólagjöld hækkuðu hjá Reykjavíkurborg um síðustu mán- aðamót um 9-10%. Flest nágranna- byggðarlögin fylgja dæmi Reykjavík- urborgar og hækka sín leikskóla- gjöld en á öðrum þéttbýlisstöðum á landinu hækka þau almennt ekki. Reykjavikurborg hefur þó einna lægstu dagvistargjöldin á landinu. „Leikskólagjöld hækkuðu um 9% eða þar um bil í Kópavogi á sama tíma og gjöldin hækkuðu hjá Reykja- víkurborg. Síðasta hækkun leik- skólagjalda var á sama tíma og hækkun Reykjavíkurborgar. Gjöldin eru eitthvað hærri í Kópavogi, gæsla í 4 tíma er á 6.400 krónur nú og 8 tímar fyrir forgangshópar kosta 9.000 krónur," sagði Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri í Kópavogi. „Við hækkuðum dagvistargjöldin í Garðabæ um 10% en þau hafa ekki hækkað í um 2 ár hjá bænum. Þau hafa því varla fylgt verðlagshækkun- um. Gjaldið er nú 6.000 krónur fyrir fjóra tíma en forgangshópar borga 8.600 fyrir 8 tíma gæslu á leikskóla. Almennt gjald fyrir 8 tíma er 15.800 krónur,“ sagði Ásdís Elva Jónsdóttir, félagsmálastjóri í Garðabæ, í samtali við DV. „Síðasta hækkunin á dagskóla- gjöldum var 1. mars á Seltjarnar- nesi, en það var 12,28% hækkun. Gjaldið fyrir 8 tíma dagvistun er 16.440 almennt gjald en gjaldið fyrir forgangshóp er 9.700. Dagvistun fyrir 4 tíma almennt gjald er 8.020 en for- gangshópur greiðir 4.880 krónur," sagði Karl Marinósson, félagsmála- stjóri Seltjarnarness, í samtali við DV. „Mér er ekki kunnugt um að hækkun sé ráðgerð á leikskólagjöld- um á Seltjarnarnesi á næstunni," sagði Karl. Fara ekki eftir hækkunum frá Reykjavíkursvæóinu „Það hefur ekki verið rætt um hækkun á dagvistargjöldum á Akur- eyri. Venjulegt dagvistargjald fyrir 4 klukkutíma er 6.020 en fyrir 8 tíma er það 12.040 krónur," sagði Ingibjörg Eyfells, dagvistarfulltrúi á Akureyri í samtali við DV. „Það var tekin ákvörðun þegar gerð var ijárhagsáætlun fyrir árið 1991 að það yrði um að ræða 10% meðaltalshækkun milli ára á Sel- fossi. Það var gerð stefnumörkun í upphafi árs og 1. febrúar kom fyrsta hækkunin í gildi en síðan hækkaði 1. júní og næsta hækkun verður 1. nóvember. Hækkunin er um 5% í hvert skipti. Leikskólagjöld verða 1. október 5.800 krónur fyrir 4 tíma en 8 tímar forgangshópagjaldiö 9.720 en almenna gjaldið fyrir 8 tíma 14.500, fæði innifalið," sagði Ólöf Thoraren- sen, félagsmálastjóri á Selfossi, í samtali við DV. „Leikskólagjöld hafa ekki hækkað á Egilsstöðum frá því í vor. Gjaldið fyrir 4 tíma er 6.100 krónur og 13.000 fyrir 8 tíma, fæði innifalið," sagði Birgir Ingvarsson, félagsmálastjóri á Egilsstóðum, í viðtali við DV. Ballet Byrjendur (yngst 4ra ára) og framhaldsnemendur. Innritun í síma 72154 BALLETSKÓLI SIGRÍÐAR ÁRMANN SKÚLAGÖTU 32-34 Uppskera á kartöflum: Vaxtartruflanir á gullauga - stórum hluta uppskerunnar er hent „Það er erfitt að segja til um hversu góð uppskeran á kartöflum verður í ár því hún er ekki öll komin í hús, en það virðist stefna í góða upp- skeru. Ef uppskeran er góð gæti það haft áhrif til lækkunar verðs á kart- öílum,“ sagði Kristinn Vagnsson, sölustjóri hjá Ágæti, í samtali við DV. „Neyslan breytist ekkert þó upp- skeran sé góð, þetta er fyrst og fremst spurning um að finna þennan meðal- veg í framleiðslu. Sá sem framleiðir vöruna þarf að hafa í sig og á. Þegar svona mikil framleiðsla er á kartöfl- um má búast við lækkun kartöflu- verðs og jafnframt má búast við því að einhverjir bændur detti út af markaðnum af því þeim tekst ekki að selja kartöflur sínar. í fyrra var uppskeran ágæt og ekk- ert var flutt inn af erlendum kartöfl- um. Það verður sennilega nægt fram- boð af kartöflum í ár fram til næstu uppskeru. Þó er erfitt til um það að segja því margir eiga eftir aö taka upp og heildarmagnið liggur ekki Ijóst fyrir. Töluvertum skemmdir í ár Það er eitthvað af kartöfluupp- skerunni ónýtt í ár vegna vaxtar- truflana á gullauganu. Það myndast vaxtartruflanir við góð skilyrði í teg- undinni gullauga en ekki í rauðum íslenskum því þær vaxa jafnar. Við góð skilyrði verða sumar kartöflur af tegundinni gullauga mjög stórar og þegar það gerist vill myndast svartur depill í miðju kartöflunnar. Við verðum því að tína burt allar stærri kartöflur af færiböndum og henda þeim. Það er nú líka þannig að viðskiptavinurinn vfll heldur ekki fá of stórar kartöflur. Kartöflurnar vaxa of hratt ef skil- yrðin eru mjög góð. Það er því ekk- ert betra að hafa of góð skilyrði. Ég myndi áætla að bændur, sem eru á okkar vegum, þurfi að henda um 20% af framleiðslunni af þessum sökum. Það er mun hærra hlutfall en í fyrra. Hins vegar virðist vera lítið um skemmmdir í ár af völdum sýking- ar,“ sagði Kristinn. -IS Erna Stefánsdóttir og Saa Damalee, sem voru aö taka upp kartöflur fyrir helgi, voru sammála um aö uppskeran í ár væri óvenjugóð og kartöflurnar væru mjög stórar og fallegar. DV-mynd Hanna , Kennsla hefst miðvikudaginn 11. sept. Hinir frábæru SUPADANCE skór fyrir dömur og herra í öllum stærðum og gerðum. FID Betri kennsla - betri árangur. Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar Innritun og upplýsingar dagana 2. - 6. sept. kl. 13 -19 í síma: 64 1111. Kennsluönnin er 15 vikur, og lýkur með jólaballi. Kennslustaðir: Auðbrekka 17, "Lundur" Auðbrekku 25, og "Hallarsel" við Þarabakka 3 í Mjódd. Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska, standard og gömlu dansana. Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina. Einkatímar eftir samkomulagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.