Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Side 36
LOKI Ætli þau hafi skrifað í gestabókina? Óboðið fólk í Gljúíurleit: Gestabók leitar- kofansnotuð ' semöskubakki Leitarmenn úr Gnúpveijahreppi, sem komu aö Gljúfurleitarskála á Gnúpveijaafrétti í gær, komu að óhuggulegri umgengni er þeir áðu í skálanum. Brotnar flöskur fundust við innganginn og matarleifar og umbúðir voru á víð og dreif innan- dyra. Gestabókin hafði auk þess greinilega verið notuð sem ösku- bakki. Talið er fullvíst að fólk, sem sást á þremur fjallabílum við afréttinn í gær, hafi gist í skálanum og verið þarna að verki. Þegar leitarmanna- hópur úr sveitinni var á ferðinni við Gljúfurleit á laugardag var ekkert jHí athugavert við umgengni á staðnum. i athugun er að kæra málið til lög- reglu. Eftir því sem DV kemst næst er málið litið mjög alvarlegum aug- um, sérstaklega í ljósi þess að um- gengni við leitarmannaskála hefur batnað mjög á undanfornum árum. -ÓTT Eskifjörður: Óká137 kílómetra hraða Lögreglan á Eskifirði stöðvaði bíl- stjóra um helgina sem ók á 137 kíló- metra hraða á milli Eskifjarðar og Egilsstaða. Hann var sviptur öku- réttindum á staðnum. Fimm aðrir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á þessari sömu leið en þeir sluppu með áminningu. -ingo Meðeiturlyf átónleikum Tuttugu og tveggja ára gamall karl- maður var handtekinn á tónleikum þungarokkssveitarinnar Skid Row í Laugardalshöllinni á laugardags- kvöldið eftir að upp komst að. hann hafði eiturlyf'í fórum sínum. Reyndist hann hafa rúm 17 g af hassi og tæp 2 g af amfetamíni á sér og var það gert upptækt. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og málið telst upplýst. • -ingo Akureyri: Stáluúrfjórum bifreiðum Lögreglan á Akureyri rannsakar nú stuld á útvarps- og segulbands- tækjum úr fjórum bifreiðum aðfara- nótt laugardagsins. Bílunum var lagt með tiltölulega stuttu millibili á Helgamagrastræti, Byggðavegi, og við Oddeyrargötu. Engu öðru var stolið úr bílunum sem flestir voru ólæstir. -ingo Finnar ekki lægstir en fengu þó Njarðvíkurhöfn: Tókum lægsta tilboði - segirEllertEiríkssonbæjarstjóri Finnska fyrirtækið HAKA, sem unnið hefur að dýpkunarfram- kvæmdum í Sandgerðishöfn í sumar, var eitt þriggja fyrirtækja sem buðu í dýpkun hafnarinnar í Njarðvík á dögunum. Hin tvö voru íslensk. Finnska fyrirtækið var ekki með lægsta tilboðið í verkið en fékk það engu að síður. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Keflavík, segir að í útboðsgögnum hafl verið klásúla um að menn gerðu bæði heildartilboð og frávikstilboð, það er tilboð í hluta verksins. „Eftir að hafa skoðað tilboðin ákváöum við að taka frávikstilboði Finnanna í sprengingar inni í höfn- inni. í því verki voru þeir lægstir. Hins vegar reiknuðum við út að hentugra væri að láta grafa í innsigl- ingunni í tímavinnu. Við réðum enn finnska fyrirtækið til verksins enda er það með stórvirk og afkastamikil tæki á sínum snærum," segir Ellert. Tilboðin í heildarverkið, bæði sprengingarnar og gröftinn í innsigl- ingunni, voru á þá leið að siglfirska fyrirtækið Dýpkunarfélagið bauð lægst eða tæpar 24 milljónir og síðan kom fmnska fyrirtækið HAKA með rúmar 26 milljónir. Köfunarstöðin hf. var hæst með rúmar 36 mUljónir. Að sögn EUerts var fjárveitingin í verkið um 20 mUljónir eða lægri en tilboðin þijú. Því var ákveðið að skipta verkinu; nota frávikstUboð Finnanna og láta grafa á tímakaupi. „Ég reikna með að verkið kosti okkur með þessum hætti í kringum 20 mUljónir eða sem nemur fjárveit- ingunni. Við náum fram lægri kostn- aði en ef við hefðum tekið heildartil- boðunum." -JGH Óperusmiðjan: Setur upp La Boheme „Við höfum leitað eftir samstarfi við Borgarleikhúsið um að setja upp óperuná La Boheme eftir Puccini. Samningarnir við leikhúsið eru á lokastigi og þvi má búast við að við frumsýnum í mars eða aprU á næsta ári,“ sagði Margrét Pálmadóttir, formaður Óperusmiðjunnar, við DV. Ópersumiðjan er félagsskapur „yngri“ atvinnusöngvara. Ný stjórn hefur verið kjörin og á komandi starfsári verða flutt mörg smærri verkefni og eitt stórt. Fékkst 2 mUlj- óna styrkur frá menntamálaráðu- neytinu tU að ráðast í stórt verkefni. „Viö munum fara ótroðnar slóðir i uppfærslunni þannig að útkoman ætti að verða óhefðbundin og skemmtUeg." -hlh Listamaðurinn Erró er einn af þeim fjölmörgu sem stunda laxveiðar hér á landi. Hann var við veiðar í Iðunni fyrir helgi og veiddi þrjá laxa. Þennan dag veiddust 7 laxar á svæöinu og var Erró aflahæstur. DV-mynd G.Bender Veðriöámorgun: Rigning norð- austanlands Á morgun verður norðlæg átt og fremur svalt, einkum á Norð- ur- og Norðausturlandi. Skýjað og Uklega skúrir eða dálítU rign- ing norðaustanlands fram eftir degi en bjart veður um sunnan- vert landið og víða vestanlands. T FRETTA Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn Áskrift - DreifÍng: Sími 27022 ÞJÓFAVARNIR FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMIU Vönduð og viðurkennd þjónusta @91-29399 Allan sólarhringinn Öryggisþjónusta VARI síðan T 969 Kveikti i íbuo smm i 3ja hæða fjolbylishusi 32 ára karlmaöur hefur verið dæmdur í þriggja ára skilorðs- bundið fangelsi fyrir að hafa lagt eld að íbúð sinni í þriggjahæöa fjöl- býhshúsi aö Pólgötu 6 á ísafirði 26. ágúst 1990 og valdið með þvi öðrum háska og verulegu eignatjóni. Refs- ingin var vegna sérstakra ástæðna skilyrt í S ár sem er óvenju langur skilorðstími. Sakbomingurinn viðurkenndi að hafa lagt eld að gardínum í íbúð sinni á l. hæð hússins um klukkan 23 umrætt kvöld. Tiu manns áttu heima í húsinu en aðeins sakborn- ingurinn og kona á 3. hæð voru í húsinu. Maðurinn, sera hafði um langa hríð átt við persónuleg vandamál að striða, kvaðst hafa boriö logandi kveUgara að glugga- tjöldum sveftiherbergis síns. Hann haföi meira og minna veriö við áfengisneyslu í tvo daga. Eftir að eldurinn kviknaði sagði hann að sér hefði orðið ljóst að hann hefði gert eitthvað „voðalegt“ af sér og hringdi hann þá í lögreglu og til- kynnti um eldinn. Sagðist hann þá hafa farið út á sameiginlegan gang til að vara aðra við. A 2. hæð fann hann engan en í fátinu kvaðst hann hafa gleymt íbúunum á 3. hæð. Þar var kona sem ekki varð vör við eldinn og reykinn fyrr en hún heyrði í sírenum slökkviliðs. Hún komst síðan sjálf út við illan leik. Skemmdir urðu miklar í ibúð mannsins en núnni i öðmm íbúð- um hússins. Sakborningurinn, semhafði lengi verið félagslega einangraður og átt erfltt uppdráttar, viðurkenndi að að honum kæmu „ljótar hugsanir" þegar hann horfði ölvaður á glæpa- myndir. í skýrslum fé'agsmálayfir- valda kom rn.a. fram að maðurinn hafði verið mjög afskiptur. Þar kom einnig fram að hagsmunum mannsins yrði best þjónað ef hon- um yrði tryggt búsetuöryggi í sam- neyti við aðra, annaöhvort í vernd- uðu sambýli eða undir umsjón og eftirliti tilsjónarmamis. Fram kom að verið væri að vinna að framtíð- arlausn málsins og fullur vilji við- eigandi yfirvalda til að finna varan- lega lausn á málefnum mannsins. Hann hefur m.a. gengist undir áfengismeðferð. Með hhðsjón a þessu var refsing mannsins skjlyt til 5 ára. Dóminn kvað upp Jónai. Jóhannsson, héraðsdómari á ísafirði. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.