Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Side 32
44 MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1991. tr Menning DV THó Reykjavíkur Síöastliðiö fóstudagskvöld voru tónleikar í Hafnar- borg í Hafnaríirði þar sem Tríó Reykjavíkur lék ásamt bandaríska flautuleikaramum Julius Baker og fiðlu- leikaranum Leon Spierer. Baker var m.a. fyrsti flautu- leikari í New York Fílharmóniuhljómsveitinni, en Spierer hefur verið fyrsti konsertmeistari Filharmón- íuhljómsveitar Berlínar um árabil. Á efnisskránni voru verk eftir Bohuslav Martinu, Wolfgang Amadeus Mozart og Johannes Brahms. Fyrir misskilning missti gagnrýnandi DV af fyrsta verkinu á tónleikunum, Sónötu fyrir tvær fiðlur og píanó eftir Martinu. Þess eru dæmi að gagnrýnendur flalli um óheyrðan flutning verka og þeir eru til sem jafnvel telja slík vinnubrögð líklegri til góðs árangurs en þau hefðbundnu. Á það verður þó ekki hætt hér heldur látið við sitja að fjalla um þau verk sem gagn- rýnandinn hlýddi á. Kvartett fyrir flautu og strengi eftir Mozart er glað- legt verk og stílhreint svo sem vænta má. Hinn drama- tíski undirtónn, sem gefur verkum frá síðari hluta æfi Mozarts dýpt og víðfeðmi, er þó ekki áberandi hér. Hægi þátturinn skapar skýrar andstæður með pizzicato undirleik við laglínuna í flautunni. Rondóið í lokin er sérlega bjart og skemmtilegt. Píanókvartett Brahms í A dúr, kallar fram saman- burð við hinn fræga Píanókvintett í F moll, sem er að flestu leyti magnaðra verk. Þótt kvintettinn hafi bjart hljóðfæri, eina fiðlu, fram yfir kvartettinn, er litur hans yfirleitt dekkri og meira í stíl við það sem mönn- um finnst dæmigert fyrir Brahms. Kvartettinn er engu að síður ágætt verk. Það rennur eins og fljót til sjávar og skiptast á lygnur og iðuköst. Flautuleikur Bakers í Mozart var fallega útfærður af yfirsýn hins þjálfaða atvinnumanns. Halldór Har- aldsson átti ágæta spretti í Brahms. Strengjaleikurinn leiö í heild fyrir að vera óhreinn og ónákvæmur. Kann skýringin að einhverju leyti að vera sú að Guðný Tónlist Finnur Torfi Stefánsson Guðmundsdóttir lék á lágflðlu í stað fiðlunnar, sem hún leikur á venjulega. Spillti þetta nokkuð fyrir flutn- ingnum, en kom samt ekki í veg fyrir að góð stemning skapaðist hér og þar. Þá varð ljóst að Spierer er hinn ágætasti fiðluleikari, með fallegan tón og skipar hend- ingum sínum með listrænt úthugsuðum hætti. Salurinn í Hamraborg var því sem næst fuilskipaður og sannaðist enn ágæti hljómburðarins þar. Hins veg- ar vantar enn pall fyrir tónlistarmennina að sitja á svo að áheyrendur sem aftarlega sitja fái séð þá al- mennilega. Á þetta hefur áður verið minnst í pistlum þessum og skal hér enn skorað á bæjarstjórann í Hafn- arfirði að koma þessu mikilvæga máh í höfn hið fyrsta. Góður hljóðfæraleikur Einar Jóhannesson klarínettleikari og Phihp Jenk- ins píanóleikari héldu tónleika í Hafnarborg í Hafnar- firði í gærkvöldi. Á tónleikunum voru flutt verk sem þeir félagar hafa æft til útgáfu á hljómdiski og eru þau eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Howard Ferguson, Thomas Dunhill, Charles Stanford, Richard Stoker, Carl Nielsen, Whliam Y. Hyrlstone og Malcolm Arn- old. Eins og sjá má eru flest þessi tónskáld ensk og frá síðari hluta nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tutt- ugustu. Var fróðlegt fá þetta yfirht en flest verkin eru htt kunn hér á landi. Kirkjusónata Mozarts er í einum stuttum þætti, ein- föld skýr og mjög falleg. Four Short Pieces eftir Fergu- son eru í nýklassískum anda með svohtlum frönskum áhrifum og af léttara taginu. Þetta er einkar lagleg tónlist. Phantasy Suite eftir Dunhill er rómantískt verk þar sem þó er haldið aftur af tilfmningunum og gefur það verkinu blæ sem vel má kalla enskan. Són- ata op. 129 eftir Stanford er undir greinilegum áhrifum frá Brahms og hefur einnig yflrbragð sjálfstjórnar í tilfmningamálum þrátt fyrir rómantíkina. Þetta er vel gert og heildsteypt verk. Sonatina eftir Stoker er í stíl nýklassíkur og bregður fyrir impressionisma. Verkið er skýrt og áheyrilegt og má einnig segja þaö um Fant- asistykke eftir Nielsen þótt ekki sé að heyra þar hin persónulegu séreinkenni sem setja lit á síðari verk þessa danska tónskálds. Four Characteristic Pieces eftir Hyrlstone var svipmesta enska verkið á þessum tónleikum. Þarna bar nokkuð á þjóðlagaáhrifum en tónlistin var fjölbreytt og rík og tónsvið klarínettsins var vel og skemmthega notað. Eftir Arnold var flutt Sonatina sem hljómaöi í ætt við leikhústónhst og var létt og skemmtileg. Verkið hefur á sér nokkuð léttmet- isyfirbragð en við nánari athugun má heyra að meira hvílir að baki. Inn á mhli verka efnisskrárinnar skutu Tónlist Finnur Torfi Stefánsson þeir félagar nokkrum íslenskum lögum, Vísum Vatns- enda-Rósu í ágætri útsetningu Jóns Ásgeirssonar og leikhústónhst eftir Atla Heimi Sveinsson, þar á meðal mjög fahegu lagi úr leikritinu Dimmalimm. Flutningur þessara verk tókst mjög vel. Hljóðfæra- leikararnir voru vel samhæfðir og flutningurinn var yfirleitt%öruggur og snurðulaus. Leikur Einars á klarí- nettið var sérlega góður. Nákvæmni og fullkomið vald en einkum og sér í lagi hstræn og tjáningarrík túlkun er það sem einkennir leik þessa frábæra listamanns sem áreiðanlega á sér ekki marga jafnoka á hljóðfæri sitt. Undirleikur Philips Jenkins á píanóið var einnig með ágætum. Andlát Elínborg Guðjónsdóttir lést á heimili sínu fóstudaginn 6. september sl. Þórður Guðmundsson, Sólvallagötu 36, Keflavík, lést aðfaranótt fóstu- dags 6. september. Borgþór Jónsson lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Neskaupstað 6. sept- ember. Haraldur Magnússon frá Víkings- stöðum andaðist í Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum fóstudaginn 6. septemb- er. Daníel Þórhallsson útgerðamaður, Hátúni 10, Reykjavík, lést aðfaranótt 7. september. Sigurlaug Þ. Ottesen er látin. Jarðarfarir Unnur Erlendsdóttir, Bólstaðarhlíð 10, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 11. september kl. 15. Minningarathöfn um Helgu Sigurð- ardóttur fyrrverandi póstvarðstjóra, Múlavegi 20, Seyðisfirði, fer fram frá Fossvogskapeliu þriðjudaginn 10. september kl. 15. Útförin fer fram frá Seyöisfj arðarkirkj u flmmtudaginn 12. september kl. 14. Jóhanna Jónsdóttir frá Skógi, Rauðasandi, lést á elliheimilinu Grund þann 26. ágúst sl. Jarðarfórin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Axel Hafsteinn Þóroddsson leigubíl- stjóri, Melhaga 6, Reykjavík, sem lést 1. september, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 10. septem- ber kl. 13.30. Helga Sæmundsdóttir, Miðbraut 26, Seltjarnarnesi, sem lést 2. september sl., verður jarðsett frá Seltjarnarnes- kirkju þriðjudaginn 10. september kl. 15. Lárus Hjaltested, Kríunesi v/Vatns- enda, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 10. sept- ember kl. 13.30. Sturla Sigfússon vélstjóri, Frostafold 105, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju í dag, 9. september, kl. 13.30. TUkyimingar Vetrarstarf Söngsveitarinnar Fílharmóníu hefst þann 11. september nk. Aðalverk- efni vetrarins verður messa eftir Rossini sem flutt verður í vor og jólatónleikar í Kristskirkju í desember. Ákveðið hefur verið að gangast fyrir námskeiði til und- irbúnings og til að hvetja ungt fólk til inngöngu í kórinn. Á námskeiöinu verð- ur kennd raddbeiting, nótnalestur og undirstöðuatriði í tónfræði. Meö nám- skeiðinu vill Fílharmónía gefa ungu fólki tækifæri til að kynnast kórstarfinu og auka kunnáttu sína um leið. Raddprófun fer fram í lok námskeiösins og gefst þá þátttakendum kostur á að ganga til liðs við kórinn. Kórstjóri Fílharmóníu er Úl- rik Ólason og verður hann kennari á námskeiðinu ásamt Elisabetu Erlings- dóttur, óperusöngkonu og Jóhönnu Lövdahl. Námskeiðið hefst miðvikudag- inn 11. sept. kl. 20 og verður kennt í hús- næði FÍH í Rauðagerði 27, sjö kvöld á hálfum mánuði, þrjá tíma i senn. Kórinn getur bætt við sig góðu söngfólki, sérstak- lega í karlaraddir. Reglulegar æfingar hefjast síðan miðvikudaginn 25. septemb- er í Melaskóla og verður æft tvisar í viku mánudaga og miðvikudaga kl. 20.30- Myndgáta ©iZH jWv. ■EyþoW,—ó- \ /*»• °.v -o. —-------- — —&>ín—*— Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. Lausn gátu nr. 123: Hefur rétt fyrir sér Tombóla Nýlega færðu þessar stúlkur af Kjalar- nesinu Barnaspítala Hrmgsins kr. 5.100 sem þær höfðu safnað með því að halda tombólu og fleira. Stúlkurnar heita: Dagmar Dögg Þorsteinsdóttir, Olga Ellen Þorsteinsdóttir, Elin Rós Pétursdóttir, Thelma Ý r Friðriksdóttir og Vilborg Guð- rún Sævarsdóttir. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Vetrarstaríið hefst þriðjudaginn 10. sept- ember í Félagsheimilinu, Baldursgötu 9. Opið hús frá kl. 13. Haustferð Jöklarannsóknar- félags íslands Hin árlega haustferð félagsins í Jökul- heima verður farin helgina 13.-15. sept- ember. Lagt verður af stað á fóstudags- kvöld kl. 20 frá Guðmundi Jónssyni hf., Borgartúni 34. Þátttaka tilkynnist Stefáni Bjamasyni, vs. 28544, hs. 37392, eða Ást- valdi Guðmundssyni, vs. 686312. ITC-deildin Kvistur Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í Hohday Inn í kvöld, mánudaginn 9. sept- ember, og hefst kl. 20.00. Gestir eru vel- komnir. Upplýsingar hjá Gróu í síma 74789. Félagsstarf aldraðra Gerðubergi Mánud. 9. sept.: F.h. fótsnyrting og hár- greiðsla, kl. 12 hádegishressing. E.h. spil- að og spjallað, kl. 15 kaffi. Upplýsingar í síma 79020. LEGSTEINAR s/f Helluhrauni 14 220, sími 652707 ^^^Opii^J8JLaugardag^&^15^^^ Fyrirlestrar Háskólafyrirlestur Idar Stegane, dósent í norrænum bók- menntum við háskólann í Björgvin, flyt- ur opinberan fyrirlestur í boði heim- spekideildar Háskóla íslands þriðjudag- inn 10. september kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist: „SkrifUiv og dikting pá nynorsk 1850-1905“ og verð- ur fluttur á norsku. Fyrirlesturinn er öhum opinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.